Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1987, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1987, Page 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1987. íslenski jassballettflokkurinn vonast til þess að leikhúsfólk geti nýtt sér krafta hans. íslenskur jassballett Afrakstur þriggja mánaða vinnu hjá íslenska dansflokknum mátti sjá á sviðinu í Broadway fyrir helgi er sýning flokksins Áfram veginn (Mo- ving on) var sýnd í fyrsta sinn. íslenski dansflokkurinn er skipað- ur níu dönsurum og stjórnandi flokksins er Evrol Puckerin. List- dansstjórar eru Karl Barbee og María Gísladóttir. Flokkurinn var stofnaöur í þyí skyni að skapa íslensku dansfólki fleiri tækifæri til að vinna að jass- ballett, sérstaklega með það í huga aö leikhúsfólk gæti nýtt sér krafta íslenska jassballettflokksins. Á sýningunni kom fram áskorun til þeirra sem áhuga hafa á jassball- ett, eða vilja styðja hann, að skrifa sig á áskriftarhsta til styrktar ís- lenska jassballettflokknum. Ljós- myndari DV brá sér í Broadway og tók myndir af sýningu flokksins. Sviðsljós Ólyginn sagði... Elton Jöhn er þekktur fyrir geysigóðar lagasmíðar sínar sem virðast koma á færibandi frá honum. Nú hefur mönnum loksins hugkvæmst að nýta hann á sviði. Hann hefur samið sinn fyrsta söngleik sem færður verður upp á Broadway, lík- lega seint á næsta ári. Söngleikurinn verður um söguna frægu, Rauðu akur- liljuna. Ekki er þó talið líklegt að Elton John komi sjálfur fram í söngleiknum. Marlon Brando sem áður var vinsælasti eða allavega hæst launaði leikari Hollywood, er nú líklega þekktur fyrir lítið annað en vera feitasti leikari Holly- wood. Hann er víst á annað hundrað kíló að þyngd og hefur engin áform um að grenna sig. Hann á heima í Beverly Hills og íssali nókkur þar í nágrenninu segir að Brando sé fastagestur hjá sér. Brando kemur einu sinni í viku og kaupir fjóra lítra af ís sem hann innbyrðir alla sjálf- ur. Sting hljómlistarmaðurinn kunni, sem lék í hljómsveitinni Police hér áður fyrr, er nú í hljómleikaför um heiminn til styrktar Amnesty Internation- al. Honum gengur bara nokkuð vel því hann hefur safnað sem svarar 34 milljón- um íslenskra króna hingað til, og bætt um 250 þúsund nýjum félögum í samtökin í Bandaríkjunum. Þó er Sting ekki nema rétt nýbyrjaður á tónleikaför sinni. Susan Dey, sem leikur i Lagakrókum, lifði af sjúkdóminn illvíga, anorexia nevrosa. Víti til vamaðar Alltaf af og til skjóta upp kollinum nöfn frægra leikara sem þurfa að berj- ast við sjúkdóminn anorexia nevrosa sem lýsir sér í sjúklegri megrunarþörf og lystarleysi sem getur leitt til dauða. Það vakti til dæmis mikla athygli þegar stúlkan úr systkinaparinu sem kallaði sig Carpenter söngdúettinn lést eftir að hafa fengið sjúkdóminn. Fyrir nokkrum árum átti þekkt leikkona við þennan sjúkdóm að stríða, Susan Dey, sem leikur annað aðalhlutverkið í Lagakrókum sem Stöð 2 er nú aftur að taka til sýninga. Susan Dey lék einnig dóttur Matlocks lögmanns í bíómyndinni, en myndin var undanfari þáttanna. Susan barðist við sjúk- dóminn í mörg ár og hafði loks sigur. Hún segir að það að eignast bam hafl hjálpað henni mikið. Sjúkdómurinn er að miklu leyti sjálfskaparvíti sem skapast oft af því að fólk byrjar í megrun og missir svo alla lyst á mat, fær jafnvel viðbjóð á hon- um. Það réynir allt til þess aö komast hjá því að boröa og reynir að kasta þeim mat upp sem inn er kominn og má nærri geta að erfitt getur verið að ná sér upp úr þannig sjúkdómi. Susan Dey er þekkt fyrir að vera ákaflega ákveðin og hún reyndi mikið til þess að slá í gegn í Hollywood. Hún gekk einfaldlega of langt fram í því að reyna að líta vel út því hún hélt að leikkonur kæmust ekkert áfram nema vera ákaflega grannar og glæsilegar útlits. Hún segist nú vona, eftir að hún náði sér, að hún sé víti til vamaðar og segir hveijum sem heyra vill sjúkdómssögu sína. Kraftaverkin gerast enn Aldrei bjóst hann við að draumur hans myndi rætast en kraftaverkin gerast enn. Fyrir 26 árum bað sovéski dans- arinn, Rudolf Nureyev, um póli- tískt hæli í Frakklandi eftir sýningu Kirovballettsins þar. Hann fékk hælið, og var hann fyrstur í hópi nokkurra flóttamanna úr so- véskum ballettflokkum til Vestur- landa. Alexander Godunov og Mikail Barishnikov fylgdu í kjöl- farið á eftir honum. Rudolf Nureyev, sem nú er 49 ára gamall, hefur alltaf þráð að heim- sækja fóðurland sitt aftur og hitta móður sína sem nú er dauðsjúk. Hann gerði sér engar vonir um að draumur hans gæti ræst en nú hef- ur ástand breyst það mikið í Sovétríkjunum og þíða í stjóm- málum að hann fékk leyfi til þess að heimsækja föðurland sitt. Hann gat heimsótt gamla heimabæ sinn, Oufa, sem er þorp um 180 kílómetra frá Moskvu, og hitt móður sína. Hin nýja glasnost, slökunarstefna Sovétleiðtogans Gorbatsjovs, kemur greinilega mörgu góðu til leiðar. Sovéski ballettsnillingurinn er þarna að fá gamlan draum sinn til að rætast á heimaslóðum sínum í Sovétríkjunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.