Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1988, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1988, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1988. 3 Fréttjr Kristján Valdimarsson, nýráðinn framkvæmdastjóri Alþýðu- bandalagsins. Spennandi tímar framundan Kristján Valdimarsson var ráð- inn framkvæmdastjóri Aiþýðu- bandalagsins 18. janúar síðstlið- inn. Enginn framkvæmdastjóri hafði þá verið starfandi hjá Al- þýðubandalaginu síðan í sept- ember en þá lét Óttar Proppé, fyrirrennari Kristjáns, af störfum og gerðist ritstjóri Þjóðviljans. Kristján starfaði síðast sem skrifstofustjóri Alþýðubanda- lagsins og þar áður sem fram- kvæmdastjóri Alþýöubandalags- ins í Reykjavík. „Starf framkvæmdastjóra Alþýðu- bandalagsins er á margan hátt ólíkt starfl framkvæmdastjóra Alþýðubandalagsins í Reykjavík sem ég gegndi áður. Þetta nýja starf mitt snýst meðal annars um rekstur flokksins, tengsl við flokksfélög og flokksmenn og skipulagningu á fundum innan hans. Þaö leggst ákaflega vel í mig að taka við þessu starfi enda nóg að gera og spennandi tímar framundan. Flokkurinn hefur undanfarið staðið illa hvað fylgi varðar og er nú efst á verkefna- listanum að ná aftur fótfestu og einnig að efla félagsstarfið innan flokksins.“ Kristján er fæddur á Akureyri í maí 1951. Faðir hans heitir Vald- imar Jakobsson, deildarstjóri hjá Olís, en móðir hans, sem nú er látin, hét Fanney Unnur Kristj- ánsdóttir. Sjálfur á Kristján einn 14 ára son sem heitir Hrafn. Kristján flutti sem barn til Reykjavíkur með foreldrum sín- um en fór í menntaskóla til Akureyrar. Hann útskrifaðist stúdent frá MA og bjó svo eitt ár eftir stúdentspróf á Akureyri en hélt þá til Reykjavíkur í Háskól- ann. Þar lagði hann stund á stjórnmálafræði og útskrifaðist með BA-próf í stjórnmálafræði 1976. Næstu þrjú árin starfaði Kristján sem deildarfulltrúi fé- lagsvísindadeildar Háskóla ís- lands og á svipuðum tíma gekk hann í Alþýðubandalagið. Áriö 1979 var hann ráðinn fram- kvæmdastjóri Alþýðubandalags- ins í Reykjavík. - En hver eru helstu áhugamál- in? „Það má segja að áhugamál mín séu almenn útivera. Ég fer í sund á hverjum degi og stunda skíði á veturna. Svo finnst mér mjög gaman að komast út úr bænum á sumrin og ferðast um landið. Það er ákaflega gott að komast út á land frá skarkala dagsins í Reykjavík. Nú svo er maður ekki alveg laus við pólitíkina. Ég hef áhuga á þjóðmálum og stjórn- málum og það er meðal annars þess vegna sem ég valdi stjórn- málafræðina. Nú svo er það líklega einnig ein ástæðan fyrir því aö ég starfa fyrir Alþýðu- bandalagið. -JBj Nú á að nota ökuljós allan sólartiringinn: Kostar bifreiðaeigendur 600-700 milljónir á ári Með gildistöku nýrra umferðar- ' enásamatíma voru 10% afvegakerf- laga 1. mars næstkomandi verður inu hér á landi með bundnu slitlagi. meðal annars gert skylt að aka með Jónas sagði að bensíneyðslan ein ökuljós hér á landi allan sólarhring- hefði aukist að jafnaði um 8,5% í inn, allt árið. í Svíþjóð eru í gildi Svíþjóð. Bifreið, sem áður eyddi 11 sams konar ákvæði. Eftir að lögin lítrum á hverja hundrað kílómetra, höfðu verið í gildi í eitt ár í Svíþjóð eyðir nú tæplega 12 lítrum. Það er var reiknað út hversu mikið þessi fleira en aukinn bensínkostnaður aukna ljósanotkun hefði kostað sem kemur til, t.d. aukið álag á raf- sænska bifreiðaeigendur. Ef miðað geymi og reyndar allt rafkerfiö. er við sömu forsendur og Svíar má . Perur koma til með að duga mun áætla að lagabreytingarnar komi til skemur en áður. með að kosta bifreiðaeigendur hér á Jónas Bjamason sagði að hér væri landi um 6 til 700 milljónir árlega, um meðaltal að ræða og munur á varlega áætlað. milli einstakra bifreiðategunda gæti Jónas Bjarnason, framkvæmda- verið allt að 40%. stjóri Félags íslenskra bifreiðaeig- Jónas sagði að þótt breyting þessi enda, FÍB, segir að kostnaðurinn sé kostaði mikla peninga væri FÍB sam- þó líklega ennþá meiri hér en saman- mála þessum breytingum á umferð- burður við Svíþjóö gefur til kynna. arlögum. Öryggi verður mun meira 1. desember 1986 voru 70% af vega- • en áður, sagði Jónas Bjamason. -sme kerfi Svíþjóðar með bundnu slitlagi Með ökuljósin á fullu: það kostar bifreiðaeigendur hundruð milljóna að nota Ijósin viö akstur allan sólarhringinn. Boris Spassky: Tölvur hafa ger- breytt skákinni Sigurdór Sigurdórsson, DV, Kanada: Tölvur hafa gerbreytt öllum undir- búningi og rannsóknum skákmanna frá því sem áður var, sagði stórmeist- arinn Boris Spassky í fyrirlestri sem hann hélt hér í St. John um helgina. Hann flallaði að mestum hluta um einvígi þeirra Fischers á íslandi 1972. Sem dæmi um þessa breytingu sagði Spassky sagði að nú gætu menn verið með allar skákir væntanlegs andstæðings síns inni á tölvudiski og það tæki engan tíma að kalla þær fram og skoða þær. Eins sagði hann menn nú leggja miklu meiri áherslu á byrjanir og endatöfl eftir aö tölvur komu og væri svo komið að ef menn gerðu hin minnstu mistök í byrjun réðist andstæðingurinn strax á þann veikleika, kannaðist við hann og réð- ist á hann, hversu lítill sem hann væri. Svona hefði þetta ekki verið. Það voru mest bandarískir blaða- menn sem komu á þennan fyrirlestur og spurðu grimmt um samband Spasskys við Fischer. Spassky sagði, það sem áður hefur komið fram í fréttum, aö hann hefði hitt Fischer nýlega að máli en af honum hefði verið tekið loforð um að segja ekki neitt um líðan Fischers né hvar hann býr. Olafsfjarðarmúli: Útboð verður síðla vetrar Nú ér að ljúka svokölluðu forvali Vegagerðarinnar vegna fyrirhug- aðra framkvæmda við jarðgöng um Ólafsflarðarmúla. Forvalið fer þann- ig fram að verktakar senda inn upplýsingar um tækjabúnað sinn, reynslu og önnur þau atriði sem máh skipta, samkvæmt upplýsingum sem DV fékk hjá Helga Hallgríms- syni, yflrverkfræðingi hjá Vegagerð ríkisins. Sagði Helgi að nú hefðu borist upp- lýsingar frá 11 verktökum en vera kynni að fleiri myndu lýsa áhuga sínum á þátttöku í fyrirhuguðu út- boði. Nú er verið að vinna að undir- búningi útboðs og kvaðst Helgi búast við að útboðið færi fram seinna í vetur. Jarðgöngin verða grafin í einum verkáfanga og boðin út í einu lagi. Áætlað er að verkið taki þrjú ár, en göngin verða þrír kílómetrar að lengd. ........................... Jöri Jöri Burgeisar HUSIÐ OPIÐ FRA KL. 19-03 Svart & hvítt - á tjá og tundri ÖLL FÖSTUDAGS- ^ OG LAUGARDAGSKVÖLD eru byrjaðar sýningar ársins á fjörugum og eldhressum Þórskaba- rett sem hlotið hefur nafnið Svart & hvítt á tjá og tundri. Söngur, dans, glens og grín eru allsráðandi í grínveislu ársins sem stendur öll föstudags- og laugardags- kvöld fram á vor - og dugar ekki til!!! Þríréttuð veislumáltíð. Verðið kemur sérstaklega á óvartl! Borðapantanir og nánari upplýsingar hjá veitingastjórum alla virka milli klukkan 10.00 og 21.00 í símum: 23333 og 23335. Saga °9 Maggi Dansstúdió Disu Brautarholti 20, símar 23333 og 23335. Hafið samband sem fyrst, i fyrra komust færri að en vildu LEONE TINGANELLI flytur Ijúfa dinnermúsík fyrir matargesti. Þórskabarett - litrík skemmtun vid allra hæfi!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.