Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1988, Blaðsíða 40
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreiflmg: Sími 27022 í
ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1988.
Vigdís hHft-
ir Reagan
í dag
Vigdís Finnbogadóttir, forseti ís-
lands, mun í dag hitta Ronald Reagan
Bandaríkjaforseta aö máli í Hvíta
húsinu í Washington.
í morgun hitti forsetinn George
Bush, varaforseta Bandaríkjanna, að
máli í Washington.
Forseti mun síöan halda frá Was-
hington i kvöld áleiðis til New York.
-HV
Hvalavið-
ræður í
Washington
8. febrúar
DV fékk staöfest í morgun hjá
Kjartani Júlíussyni hjá sjávarút-
vegsráöuneytinu aö Halldór Ás-
grímsson sjávarútvegsráöherra fer
^til viöræöna við Bandaríkjastjórn
um hvalveiðimál þann 8. febrúar nk.
Viöræöurnar fara frám í Washing-
ton. Ekki er enn ákveöið hverjir fara
meö sjávarútvegsráðherra.
Aöspuröur kvaöst Kjartan búast
við áframhaldandi viöræöum um
Ottawa samkomulag ríkjanna
tveggja sem stuðlar að bættum störf-
' um vísindaráðs Hvalveiöiráðsins.
. -StB
Varð undir
stálplötu
Gylfi Krístjánsson, DV, Akureyri:
Vinnuslys varð í Vélsmiðjunni
Odda á Akureyri í gærmorgun. Maö-
ur sem var aö vinna viö stálplötu
lenti undir plötunni og var hann
íluttur á sjúkrahús.
Maöurinn kvartaöi aðallega undan
meiöslum á mjööm. Þau voru þó ekki
talin mjög alvarleg og slapp maður-
inn því nokkuð vel.
Lfftiyggiiigar
ili
ALÞJÓÐA
FTRYGGINGARFELAGIÐ HF.
I.AGMl'L! 5 - RLYKJAYIK
Simi ívSU»44
LOKI
Vonandi verður langt í
hundrað króna myntina!
Þröstur Ólafsson um Vestfjarðasamninginn:
„Af og frá að yfir-
færa hann á línuna“
„Ég hugsa til þess meþ hrylhngi
aö-það skuli vera búiö aö binda
þetta til eins árs meö þaö hangandi
yfir höfðinu að gengið verði svo
fellt. Gengisfellingin er búin að
vera í loftinu síðan í haust og menn
hafa fullyrt í fjölmiölum aö þaö sé
búiö að lofa þeim gengisfellingu,"
sagði Jón Kjartansson, formaður
Verkalýðsfélags Vestmannaeyja,
um nýgerða kjarasamninga Ál-
þýöusambands Vestijarða og
Vinnuveitendafélags Vestijaröa.
Samningarnir fela í sér 7,5%
launahækkun frá undirritun. Sam-
tals er í þeim gert ráö fyrir 13%
hækkun á árinu. Þeir gilda til ára-
móta. Þeir kveða á um að bónus-
kerfi verði lagt niður og tekiö upp
hlutaskiptakerfi þess í staö. Það
felur í sér aö allir í vinnslurásinni
fái sama kaupaukann.
í samningnum er kveðið á um
1500 króna launahækkun frá und-
irritun og starfsaldurshækkanir,
2% eftir 1 ár, 3% eftir 3 ár, 4% eftir
7 ár og 5% eftir 15 ár. Námskeiðs-
álag hækkar úr 1700 krónum í 2600.
Síðan veröa 3% áfangahækkanir
1. apríl og 2,5% 1. ágúst. Orlofs-
dögum fjölgar um einn hjá þeim
sem hafa starfaö 10 ár eða lengur
hjá sama vinnuveitanda.
„Ég held að menn séu almennt
inni á meiri hækkunum en þarna
er samið um þannig aö þeir séu
öruggir um að halda kaupmættin-
um,“ sagði Þröstur Ólafsson,
framkvæmdastjóri Dagsbrúnar.
„Kaupmátturinn hefur rýmað um
9% frá síðustu launahækkunum og
það er ljóst að það sem eftir liflr
árs verður verðbólgan ekki undir
13-15%. Ég er ekki að formæla
samninghum sem slíkum, enda
getur vel verið að hann passi fyrir
vestan. En það er af og frá að yfir-
færa hann á línuna." Ásmundur
Stefánsson, forseti ASÍ, vildi ekki
tjá sig um samninginn í morgun.
-JSS
Það veitir ekki af öllum fjölskyldumeðlimum til að greiða í stöðu-
mælinn núna enda kostar hvorki meira né minna en 50 kr. að
skjótast í verslun þar sem eru stöðumælar. DV-mynd GVA
Rannsakaður af
bankaeftiHiti
Bankaeftirlitið er með bókhald ur þess að bókhald Sparisjóðs
Sparisjóðs Rauðasandshrepps til Rauðasandshrepps væri nú til
athugunar. Þórður Ólafsson, for- rannsóknar. Þórður sagöi að sér
stöðumaður bankaeftirlitsins, væri óheimilt að tjá sig um ein-
sagði aö Sparisjóður Rauðasands- staka efnisþætti rannsóknar sem
hrepps væri meðal minnstu spari- þessarar.
sjóða á landinu. „í rekstri minni Heildarinnstæður í Sparisjóði
sparisjóöa geta komið upp þær að- Rauðasandshrepps voru í árslok
stæður aö bankaefflrlitiö telji 1986 5,2 milljónir og eigið fé á sama
nauösynlegt að kalla til sín bókhald tíma var um 400 þúsund krónur.
þeirra," sagði Þórður Ólafsson. -sme
Hann vildi ekki tjá sig um ástæð-
Fimmtíukall í stoðumæla:
Byrjaðað
breyta mælunum
„Það ræðst.af gæðum stöðumæla-
gæslunr.ar hve vel tekst til við að
innheimta þetta nýja gjáid," sagði
Ásgeir Þ. Ásgeirsson, deiidarverk-
fræðingur hjá borginni, þegar hann
var spurður um hve mikið ný hækk-
un stöðumælagjalds á að skila í
borgarkassann. Nú hefur gjaldið ver-
ið hækkað úr 20 kr. upp í 50 kr.
Þegar er byrjað að breyta gjaidskrá
stöðumæla en þeir eru nú um 1100 í
borginni þannig að það tekur nokk-
urn tíma. í fyrra innheimtist frá
stöðumælum um 24 milljónir kr.
Miðað við þessa hækkun ætti að inn-
heimtast í ár á milli 50 og 60 milljónir
kr. Ætiunin er að fjölga stöðumæla-
vörðum til að efla eftirlitiö. SMJ
Veðrið á morgun:
Suðlæg
átt
ríkjandi
Á morgun verður suðlæg átt um
allt land, 4 til 6 vindstig og snjó-
koma eða slydda á Suður- og
Vesturlandi en annars hægari
vindur og þurrt. Hiti verður á bil-
inu -3 til 1 stig.
1-2 króna lækkun
á verði bensíns?
Líklegt er að bensínverð lækki um
næstu mánaðamót vegna lækkandi
innkaupsverðs oliufélaganna á bens-
íni. En nú virðist lækkandi olíuverð
á heimsmarkaði vera að skila sér
hingað tii lands.
Vilhjálmúr Jónsson, forstjóri Olíu-
félagsins hf„ sagði í samtali við DV
í morgun að ef af lækkuninni yrði
gæti bensínlítrinn lækkað um 1-2
krónur en hann kostar nú 33,70 kr.
Verðið er ekki endanlega ákveðið
en um miðja þessa viku mun Verð-
lagsstofnun að öllum líkindum skera
úr um hve mikil lækkunin verður.
-JBj