Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1988, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1988.
DV
sinna fyrir Breiðablik í gærkvöldi. Þau dugðu þó Kópavogsliðinu ekki til sigurs
DV-mynd Brynjar Gauti
*a í sigri á Breiðabliki:
ingamar hafa
\a skilað sér“
klum augnablikum og KR stakk af
legri til sigurs, en barátta KR-inga hélt
leiknum í jafnvægi og þeir komust yflr
í lok hálfleiksins, 12-11. Blikar náðu
einu sinni að jafna í seinni hálfleik,
14-14, en þá tók Gísh Felix til sinna ráða.
Varnarleikur KR-inga var einnig mjög
góður í seinni hálfleiknum, þeir lokuðu
á horna- og línuspil Kópavogsliðsins,
sem haíði skilað góðum árangri í fyrri
hálfleik, og Gísli Felix sá um skytturn-
ar. Við þetta greip ráðleysi um sig hjá
Blikunum, þeir áttu ekkert svar og
misstu leikinn alveg úr höndunum á
sér.
Auk Gísla Felix átti Þorsteinn Guð-
jónsson mjög góðan leik í liði KR -
lykilmaður í vöm og skæður á línunni
og í heild komst liðið vel frá leiknum.
Kristján Halldórsson var bestur Blik-
anna, skoraði falleg mörk af línunni og
var iðinn við að næla í vítaköst en ann-
ars léku flestir Kópavogsbúa undir getu.
• Mörk KR: Stefán Kristjánsson 6/2,
Þorsteinn Guðjónsson 5, Konráð Olavs-
son 5, Guðmundur Pálmason 3,
Guðmundur Albertsson 2, Sigurður
Sveinsson 1.
Mörk UBK: Kristján Halldórsson 5,
Hans Guðmundsson 5/3, Þórður Davíðs-
son 2, Aðalsteinn Jónsson 2, Björn
Jónsson 2/1, Jón Þórir Jónsson 1, Andr-
és Magnússon 1, Magnús Magnússon
1/1.
• Dómararnir, Guðm. Kolbeinsson og
Þorgeir Pálsson, gerðu sín mistök en
höfðu ágæt tök á leiknum. -VS
muleiknum
:gir gjaldkeri KKÍ
þeim sem sigra á veglegan hátt. Fyr-
irvarinn var of stuttur til að útvega
utanlandsferðir í vinninga en ég
reikna með að sá háttur verði hafður
á í framtíöinni. Hvaö áhugamáhna-
reglurnar varðar er þetta spurning
um hvað þessar greiðslur eru kallaö-
ar,“ sagði Kristinn.
-VS
Staðan
Staðan í 1. deild karla í handknatt-
leik eftir sigur KR á UBK:
FH............10 8 2 0 280-216 18
Valur.........10 8 2 0 214-161 18
UBK...........10 6 0 4 208-211 12
Víkingur......10 6 0 4 253-227 12
Stjarnan......10 5 1 4 225-239 11
KR............10 4 1 5 211-223 9
ÍR............10 3 2 5 213-234 8
KA............10 2 3 5 197-212 7
Fram.........10 2 1 7 223-246 5
Þór..........10 0 0 10 198-253 0
íþróttir
„Hlakka mikið
til að leika með
I jgtt^. WWtt^ Wtt Wtt ^ ^ I
vaismonnum
- segir Sigurður Sveinsson sem leikur með Val næsta vetur |
„Mér líst mjög vel á þá ákvörð-
un að leika með Valsmönnum á
næsta keppnistimabili og hlakka
mikið til. Það komu aöeins tvö liö
til greina, Valur og Fram, og aö
vel athuguöu máli varð Valur
ofan á,“ sagði Sigurður Sveins-
son, landsliösmaður í handknatt-
leik, í samtali við DV í gærkvöldi
en Sigurður hefur undanfarin sex
ár leikið handknattleik í Vestur-
Þýskalandi. Siguröur leikur nú
með Lemgo og er burðarásinn- í
Mðinu og er mikill fengur fyrir
Val að fá Sigurö í sínar raðir.
„Valsmenn vantar örvhentan
leikmann en Fram hins vegar
• Sigurður Sveinsson.
ekki og það réð ákvöröun minni.
Einnig langar mig að leika í Evr-
ópukeppni á næsta ári og ég er
viss um að Valsmönnum tekst
það. Margir að félögum mínum í
landsliðinu leika með Val og fé-
lagsskapurinn er góður. Þetta er
góöur timi aö flytja aftur til ís-
lands enda er ég orðinn þreyttur
á verunni hér í Vestur-Þýska-
landi," sagði Sigurður.
„Það verður skemmtilegt að
leika' heima næsta vetur og geta
einbeitt sér aö undirbúningi
landsliðsins fyrir ólympíuleik-
ana,“ sagði Sigurður Sveinsson
aö lokum. -JKS
Matti Nykanen þar sem hann kann best við sig, i útsýnisflugi yfir Innsbruck
i Austurríki. Símamynd Reuter
Matti
slakar
á klónni
Finninn fljúgandi, Matti Nykanen,
virðist vera að slaka talsvert á klónni
í heimsbikarnum en hann varð 5. í
Gstaad í Sviss um nýliðna helgi. Fékk
Matti aðeins 210,1 stig og stökk lengst
82 metra.
Mótið vann Tékkinn Pavel Ploc en
sá er reginkeppinautur Matta í
keppninni um heimsbikarinn.
Hreppti Tékkinn 218 stig en lengsta
stökk hans, sem þótti einstaklega
glæsilegt, mældist 87 metrar.
í ööru sæti varð Júgóslavinn Miran
Tepes, með 86,5 metra stökk og 214,7
stig. Á hælum Lans varð síðan hinn
sterki A-Þjóðverji, Jens Weissflog.
stökk sá lengst 84 metra en hreppti
212,3 stig. -JÖG
Handknattleikur:
„Aðstoð leikmönnum til
handa á fullan rétt á sér“
- segir Þorbjöm Tjöivi, formaður handknatHeiksdeildar Vals
„Það eru ekki allir sem hafa tök á
því að stunda íþrótt sína. Ég er þess
enda fullviss að margir þeir sem nú
eru að væru ekki þátttakendur í
handknattleik fengju þeir ekki ein-
hverja aðstoð frá sínum félagslið-
um.“
Þetta sagði Þorbjörn Tjörvi Stef-
ánsson, formaður hanknattleiks-
deildar Vals, í samtali við DV.
„Aðstoð leikmönnum til handa á
fullan rétt á sér,“ sagði Þorbjörn
jafnframt, „enda verður þjóð sem
vill eiga afreksmenn á heimsmæli-
kvarða að gera eitthvað fyrir sína
íþróttamenn. Viö hjá Val gerum í
raun allt of htiö fyrir okkar leikmenn
en ég er á þeirri skoöun að félagshð
eigi aö vera leikmönnum innan
handar, einnig við félagaskipti.“
- Telur þú að sú aðstoð sem hér
um ræðir brjóti í bága við reglur HSÍ
um áhugamennsku?
„Ég veit ekki hvemig þessu er hátt-
að hjá öðram félögum en það þrífst
ekkert hjá Val sem brýtur í bága viö
þessar reglur. Sjálfur er ég sáttur við
þær og tel enga ástæðu til að hrófla
við þeim,“ sagði Þorbjörn Tjörvi.
- Nú hyggst Sigurður Sveinsson, sem
sphar með Lemgo í V-Þýskalandi,
ganga til hðs við Valsliðið á næsta
leiktímabih. Greiðið þið götu hans á
einhvern hátt?
„Félagið sem slíkt gerir ekkert fyr*
ir Sigurð Sveinsson, hann fær enga
peninga frá Val. Það fólk sem ber
hlýjan hug til félagsins gerir honum
hins vegar kleift að flytja til íslands.
Þetta er það eina. Að sjálfsögðu verð-
um við Sigurði síðan innan handar
við að útvega vinnu og á ahan þann
hátt sem okkur er unnt og samrým-,
ist reglum HSÍ um áhugamennsku.
-JÖG