Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1988, Page 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1988.
Spumingin
Ert þú hlynnt(ur) hvalveiö-
um okkar íslendinga?
Gunnar Þór Sveinsson: Ekkert á
móti þeim. Finnst þær eiga rétt á sér
í þeim mæli sem við höfum ákveðið.
Elin Elísdóttir: Já, það er ég, hef aldr-
ei séð neina ástæðu til að stöðva
þessar veiðar.
Sigurður Sigurðsson: Já, ég er
hlynntur þeim. Mér líst vel á ákvörð-
un Halldórs og þaö mætti einnig
huga að hrefnunni.
Guðjón Guðmundsson: Já, að sjálf-
sögðu.
■f
* % ið # i
Matthías Pálsson: Nei, ég er nú eigin-
lega á móti þeim.
Lesendur
Gervihnöttur á fastri braut endurvarpi rafmagni til móttöku á jöröu niðri?
Rafmagnssala frá íslandi:
Gervihnöttur eða
sæstrengur?
Gísli skrifar:
Við lestur frétta um hugsanlega
sölu rafmagns til Evrópu í gegnum
sæstreng og þá aðallega til Bret-
lands rifjaðist upp fyrir mér að
hafa fyrir allmörgum árum heyrt
ávæning af hugmyndum um flutn-
ing rafmagns gegnum gervihnött
til Afríkulanda.
í þá daga voru ekki til eins full-
komnir sæstrengir og nú virðist
vera, samkvæmt fréttum um að
orkutap verði ekki nema 10%. Þá
var orkutapið miklu meira, svo að
sú hugmynd gekk ekki upp.
Gervihnattarhugmyndin minnir
mig að hafi gengið út á að framleiða
rafmagn hér á íslandi, senda það
upp til gervihnattar sem yrði á
fastri braut á heppilegum stað í
himingeimnum til að endurvarpa
rafmagninu niður, t.d. á Miðjarðar-
hafsströnd Afríku.
Þar yrðu byggðar nokkrar geysi-
stórar verksmiðjur („desalination
phnts“) til að vinna hreint vatn
úr sjó með hjálp rafmagnsins og
dæla því síðan til þurrkasvæða og
eyðimarka Afríku, m.a. til Sahara
og til auðugra oliuríkja. Mætti
þannig hugsaniega breyta Afríku í
gróðrastöð sem koma myndi í veg
fyrir sívaxandi hungursneyð þar í
álfu vegna vaxandi fólksfjölgunar.
Auðvitaö yröi kostnaðurinn gíf-
urlegur við slíkan gervihnött en
fimmfaldur sæstrengur um 800 km
úthafið myndi heldur ekki kosta
neina smápeninga, auk þess sem
hann gæti orð'3 fyrir kostnaðar-
sömum skemmdum, t.d. vegna
veiðiskipa, kafbáta eða jafnvel
náttúruhamfara eins og dæmi eru
til um við aðra neðanjarðar- og
neðansjávarstrengi.
Áhugavert væri að einhver
tæknifróður aðih upplýsti um
hvort slíkar gervihnattarsendingar
eru mögulegar og hver kostnaður-
inn gæti orðið samanborið við
sæstreng sem aðeins tæki land á
einum stað, t.d. í Skotlandi, og kall-
aði því hugsánlega á dýran fram-
haldsflutning til annarrr svæða.
Saltflutningaskip Nesskips, m.s. Hvítanes, sem nefnt er til sögunnar i bréfinu.
Árás á íslenska farmenn
Jónas Garðarsson, stjórnarmaður í
Sjómannafélagi Reykjavíkur, skrif-
ar:
Á liðnum árum hefur kaupskipaút-
gerð höggvið stórt skarð í raðir
íslenskra farmanna með leigu á er-
lendum skipum, mönnuðum erlend-
um farmönnum, til siglinga til og frá
landinu.
í Þjóöviljanum hinn 15. des. sl. er
haft eftir Guðmundi Ásgeirssyni,
framkvæmdastjóra Nesskips, að
EKKl sé í bígerð hjá útgerðarmönn-
um að reyna að fá erlendar áhafnir
á kaupskipin. Sama dag og þetta er
haft eftir Guðmundi keyrði um þver-
bak þegar íslenskir farmenn voru
látnir víkja úr skiprúmi á saltflutn-
ingaskipi Nesskips - m.s. Hvítanesi
- og Pólverjar ráðnir í þeirra stað
fyrir brot af launum íslenskra far-
manna sem þykja léleg.
Tveimur dögum síðar er haft eftir
Guðjóni Á. Einarssyni, rekstrar-
stjóra Nesskips, í Þjóðviljanum að
íslenskir farmenn séu lélegir starfs-
kraftar! Finnst mér þetta furðu sæta
þar sem íslenskir farmenn eru þver-
skurður af íslensku vinnuafli þar
með töldu skrifstofuliði Nesskips.
Eftir þessi ummæh og athafnir
þeirra Nesskipsmanna furða ég mig
á hvað þeir eru að gera í íslensku
samfélagi. Hvers vegna flytja þeir
ekki á erlenda grund og starfa þar?
- Þá geta aðrir íslendingar, sem
treysta sér th að vinna með löndum
sínum, spreytt sig á t.d. saltfiskflutn-
ingum og öðrum þeim flutningum
sem til faha hér á landi.
Hringið
í síma
27022
milli kl.
13 og 15,
eða skrifið.
Frftími stjómmálamanna:
Ólíkt
hafast
þeir að
Guðrún Guðmundsdóttir skrifar:
Eins og kunnugt er kveina ís-
lenskir stjórnmálamenn og
kvarta ef þeir fá, ekki sín venju-
legu:
1) nokkurra vikna jólafrí,
2) nokkurra vikna páskafrí og
3) nokkurra mánaða sumarfrí.
Nýlega var hins vegar sagt frá
því í blöðum að Margaret Thatc-
her, forsætisráðherra Breta, ynni
aha virka daga frá því eld-
snemma á morguns (fer á fætur
kl. 6) og fram að miðnætti.
Þá er því og við að bæta aö hún
gefur sér naumast tíma th að taka
sumarfrí. Tekur þó venjulega
einnar viku frí að sumrinu. - Af
þessu gætu íslenskir stjórnmála-
menn dregið nokkum lærdóm.
Dagskrá Stöðvar 2 versnar
K.Þ hringdi:
Ég er ein þeirra sem eru áskrif-
endur aö Stöð 2 og ég hef þá
kvörtun fram aö færa, sem kannski
fleiri eru búnir að koma á fram-
færi, að myndir, sem endursýndar
eru, og það eru þær oft, eru mjög
oft sýndar í miðri kvölddagskrá.
Þetta er mjög óþægilegt fyrir þá
sem þurfa snemma á fætur á
morgnana og geta ekki setið við
sjónvarp lengi fram eftir aö kvöld-
inu. Þess vegna væri hlskárra að
þessar endursýningar væiu með
þvi efhi sem seinast er í dagskránni
ef á annað borð er verið að endur-
sýna myndir.
Ég veit um þó nokkra sem hafa
haft við orð að hætta alveg við
áskrift að stööinni ef þessu heldur
áfram og ég er einmitt í þeim hópi.
Vona að þetta atriði a.m.k. verði
tekið til greina.