Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1988, Qupperneq 25
ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1988.
25
DV
Dægradvö]
Það getur verið ósköp gott að tylla sér aðeins í mjúkan snjóinn.
DV-mynd KAE
Er skautaíþróttin á
undanhaldi?
Fyrir nokkrum árum var blóma-
skeið skautaíþróttarinnar og keppt
var í íshokkíi milli Reykjavíkur og
Akureyrar. Sá tími virðist liðinn
undir lok, allavega í bili, því þegar
Reykvíkingar misstu skautasvelliö
á Melavelli lagðist íshokkíkeppnin
niður. DV kom við á Tjörninni síð-
astliðinn þriðjudag og mátti sjá
örfáa, gallharða skautaiðkendur,
enda var Tjörnin ekki árennileg.
Þykkt lag af snjó þakti ísinn en
börnin sem þarna voru höfðu út-
búið nokkrar brautir sem þau
notuðu óspart.
Eins og allir vita er það í tísku
að vera hraustur og vel á sig kom-
inn, samanber umfjöllun um
líkamsrækt hér í Dægradvöl ekki
alls fyrir löngu. Skíðaíþróttin nýt-
ur töluverðra vinsælda á íslandi
en það lítur út fyrir aö landinn
haíi að mestu lagt skautana á hill-
una. Á Akureyri má þó búast viö
að áhugi á þessari íþrótt glæðist að
nýju en um síðustu helgi var tekið
í gagnið nýtt skautasvæði þar.
í höfuðborginni nýtur Tjörnin í
miðbænum enn mestra vinsælda
sem skautasvell á veturna en einn-
ig er hægt að njóta þessarar íþrótt-
ar á Rauðavatni, við Blöndubakka
og Rofabæ samkvæmt upplýsing-
um DV. Borgarbúar ættu nú að
seilast í gömlu skautana sína,
þurrka af þeim rykið og skella sér
á ísinn. Ekki vantar veðrið.
-StB
Ágúst Björnsson skiðakennari virðist fær i flestan sjó á þessari mynd.
Hentug fjölskylduíþrótt
„Áhugi á skíðaíþróttinni fer vax-
andi, einkanlega á skíðagöngu,”
sagði Ágúst Björnsson, kennari hjá
Skíðafélagi Reykjavíkur, þegar DV
innti hann eftir áhuga borgarbúa á
skíðum. Kennsla á vegum félagsins
fór fram á túninu við Kjarvalsstaði
í síðustu viku og kenndi Ágúst þar
hóp nemenda.
Skíðaíþróttin er tilvalin fjölskyldu-
íþrótt, sagði Ágúst, og virðist sem
kynslóðabilið sé lagt til hliðar um
leið og skíðin eru tekin fram. í einni
grein þessarar íþróttar, göngunni, er
þó áberandi ákveðinn aldurshópur.
„Fólk yfir miðjum aldri virðist sækja
meira í skíðagöngu en aðrir,“ sagði
Ágúst „og hef ég kennt elstum 83 ára
manni sem aldrei hafði stigið á skíði
fyrr.“
Hóparnir í kennslunni hjá Ágúst
eru blandaðir, bæði hvað varðar ald-
ur og kyn, og er raðað í þá eftir getu
hvers og eins. Ung börn fylgja gjarn-
an mæðrum sínum, sagöi Agúst, allt
niður í fjögurra ára gömul. Kennsla
á gönguskíðum fer yflrleitt fram á
Miklatúni og verður á laugardögum
og sunnudögum það sem eftir er
vetrar þegar veður leyfir.
Skíðafélag Reykjavíkur gengst
einnig fyrir skíðagöngumótum auk
kennslunnar og að sögn Ágústs er
öldungamótið einkar vinsælt. Það er
haldið árlega og í ár verður það hald-
ið í Hlíðarfjalli við Akureyri í' lok
apríl.
Gönguleiöir eru víða í nágrenni
Reykjavíkur en Ágúst segist vonast
til að hægt sé að ryðja braut fyrir
göngumenn frá Skíðaskálanum í
Hveradölum að hverunum í Skála-
felli. „í fyrra var veður annaðhvort
of slæmt til að hægt væri að ganga
þessa leið eða snjór ekki nægur,“
sagði Ágúst Björnsson. Núna hefur
snjó aftur á móti kyngt niður og má
því búast við að Reykvíkingar sjái
vaska skíðagöngumenn í nágrenni
borgarinnar.
-StB
Á skíðum í miðri höf-
uðborginni
Skíðafélag Reykjavíkur hefur stað-
ið fyrir kennslu á gönguskiðum á
túni Kjarvalsstaða. Fátt fólk var
mætt þegar DV kom þar við á dögun-
um en áhuginn leyndi sér ekki í
andlitum nemendanna. Myrkur var
skollið á og kalt var í veðri þegar
göngugarparnir renndu sér fyrstu
metrana. Heldur voru fyrstu skrefin
reikul og sumir duttu öðru hverju
en furðu fljótt renndu þeir sér af
vaxandi öryggi um túnið.
Meðal nemenda var ung kona kom-
in alla leið frá Ameríkunni, Sonia
Chavarria. Sonia flutti hingað fyrir
ári og býr í Reykjavík ásamt unnusta
sínum sem er íslenskur. „ísland er
yndislegt land,“ sagði hún „og er ég
komin til langdvalar." í gærkvöldi
var frumraun Soniu á gönguskíðum
en hún ætlar ekki að láta hér staðar
numið. „Ég ætla á skíði eins oft og
ég kemst, þetta er mun skemmtilegra
en að vaska upp, það eitt er víst,“
sagði Sonia Chavarria að lokum og
renndi sér hikandi af stað á þessum
framandi fótabúnaöi.
Þær stöllur, Guörún Björnsdóttir
og Elín Magnúsdóttir, létu hvorki
kuldann né reynsluleysið aftra sér.
„Bóndinn fór í fyrsta sinn i gær en
hafði lítið gaman af,“ sagði Elín.
„Þetta er aftur á móti í fjóröa sinn
sem ég fer á skíði og fmnst alveg
meiriháttar," sagði hún og gekk
vasklega af stað. -StB
Hvernlg skyldu þau nú eiga að snúa? gæti hún Sonia Chavarria verið að
hugsa á þessari mynd. DV-mynd KAE
Nýtt skautasvæði á
Akureyri
Skautafélag Akureyrar vígði nýtt
skautasvæði um síðustu helgi. Svæð-
ið er með vélfrystingu en erfitt hefur
reynst að halda ísingu á þeim svæð-
um sem hingaö til hafa verið notuð
til skautaiðkana í höfuðstað norður-
lands. íþróttavellir Þórs og KA hafa
verið vinsælir sem skautasvell en að
sögn Ingólfs Ármannssonar hjá
Skautafélagi Akureyrar hafa vetur
verið of mildir síðastliðin tvö til þrjú
ár til að iðka þessa íþrótt af fullum
krafti.
Skautafélagið hefur í samráði við
Æskulýðsráö Akureyrar haldið uppi
kennslu á skautum og má búast við
að fjörkippur komist í þessa íþrótt
með tilkomu nýjo svæðisins. Að sögn
Ingólfs mun félagið standa fyrir
kennslu í listhlaupi. íshokkíi og ein-
faldlega „að standa á fótunum”.
Nýja svæðið verður sem áður sagði
opnað um næstu helgi og mun verða
opið á sömu tímum og önnur íþrótta-
mannvirki. Ingólfur sagði að nú
þegar notfærði fjöldi fólks sér þessa
aðstöðu en vinnu við svæöið væri
ekki að fullu lokið þannig aö það
væri ekki opið almenningi nema að
mjög takmörkuðu leyti.
Hjá Skíðafélagi Ákureyrar eru
skráðir á annað hundrað manns
sagði Ingólfur Ármannsson að lok-
um. -StB
Snævi þakin tjörn
Það fellur undir starfsmenn
Laugardalsvallar að hreinsa snjó-
inn af skautasvæði borgarbúa á
Tjörninni í Reykjavík og þegar DV
spurði Jóhannes Óla Garðarsson
vallarstjóra hvenær vænta mætti
þess að Reykvíkingar gætu iðkað
þessa vinsælu íþrött á sléttu
skautasvelli kvað hann ísinn of
veikan til að hægt væri að koma
við þeim tækjum sem til þyrftu.
„Snjórinn, sem nú liggur yfir ísn-
um, virkar sem einangrun," sagði
Jóhannes Óli, „og víða hafa mynd-
ast vakir upp við land. Tækin sem
Laugardalsvöllur hefur yfir að
ráða eru of þung.“
Jóhannes Óli benti á í lokin að
víðar væru skautasvell á höfuð-
borgarsvæðinu en á Tjörninni í
miðbænum. Viö Blöndubakka og
Rofabæ verða svæði sprautuð og
ísinn á Rauðavatni verður hreins-
aður á allra næstu dögum.
-StB