Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1988, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1988, Blaðsíða 37
ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1988. 37 Klæðnaður keppnis- fólks Rússar gerast nú æ tískusinnaðri og færast nær tískulínunum í vestri. Þó reyna þeir að halda sér- kennum sínum og tekst það ágæt- lega. Nú, þegar vetrarólympíuleik- arnir eru í nánd, sem haldnir eru í Calgary í Kanada, hafa Sovét- menn tekiö sig til og kynnt línuna sem íþróttamenn þeirra munu klæðast á leikunum. Þau líta bara nokkuð nýtískuléga út en þó með rússnesku yfirbragði. Sviðsljós Svona lítur hann út, klæðnadurinn á rússneska keppnisfolkinu á vetrar- ólympíuleikunum í Kanada. Símamynd Reuter Gitte Nielsen Rætur vaggs og veltu Nú fyrir skömmu var boðið saman ílestum þeim listamönnum sem áttu upphafið að rock and roll bylgjunni á sérstaka samkomu þeim til dýrðar í New York. Miklum vonbrigðum olli að sumir þeir þekktustu úr þeim hópi létu sig vanta þó að flestir hafi séð sér fært aö mæta. Þannig vantaði Paul McCartney á meðan George Harri- son, Ringo Starr og meira að segja Yoko Ono mættu. McCartney lýsti þvi yfir að mismunandi hagsmunir í peningamálum hjá þeim gerðu það að verkum að hann gæti ekki mætt. Keith Richards úr hljómsveitinni Rolling Stones lét sig einnig vanta, en gaf enga skýringu. Diana'Ross mætti ekki, en þarna átti að sameina hljómsveitina Supremes. Alkunna er að ósætti hefur verið á milli Díönu Ross og Mary Wilson úr hljómsveit- inni. Þeir sem mættu voru þó margir. Þar má telja Bruce Springsteen, Bob Dylan, Beach Boys, The Drifters, Billy Joel, Little Richard og Joan Baez. Það var því frítt liö tónlistar- manna, sem þarna var samankomið, og áttu þeir það sameiginlegt að vera drifkraftarnir í vagg og veltusveifl- unni. Nokkrir þeirra tóku lagið fyrir viðstadda við mikinn fógnuö. Meðal þeirra sem tóku lagið á samkomunni voru fyrrum Bitiilinn George Harrison og Bob Dylan. Simamynd Reuter Hertoga- ynja a frumsýn- mgu Nú er veriö að frumflytja nýjasta söngleik Andrews Lloyd Webber sem nefnist „Phantom of the op- era“ í New York. Meðal frumsýn- ingargesta var Sarah Ferguson, sem hafði Bernard Jacobs, eiganda breska konunglega leikhússins, sem fylgdarmann í þetta sinn. Eig- inmaður Fergie, Andrew, komst ekki vegna anna. Félagar í írsku samtökunum ÍRA sáu sér leik á borði og gengu með mótmælaspjöld framhjá við opnun sýningarinnar. Hvort sem það var viljandi eða óviljandi lék Sarah á hóp mótmælenda því hún mætti tíu mínútum of seint og varð því ekki vör við nein mótmæli. Aðgöngumiðar voru seldir á 35 þúsund krónur á frumsýninguna og ágóðinn látinn renna til velgerð- armála í Bretlandi og Bandaríkjun- um. Mikils er vænst af þessari sýningu sem öörum verkum Andrews Lloyd Webbers sem nær undantekningalaust hafa notið fá- dæma vinsælda. Sarah tekur við blómvendi úr hendi litillar bandarískrar stúlku á frumsýn- ingu verksins Phantom of the opera. Fylgdarmaður Söru, Bernard Jacobs, horfir hrifinn á. Simamynd Reuter sem á síðustu árum hefur varla haft tíma til þess að stíga fæti á danska grund síðustu árin lét sig þó hafa það aó koma í nokkurra daga heim- sókn þangað stuttu eftir jólin. Ástæðan var sú aó hún var að taka við verðlaunum sem Dani ársins sem er sams kon- ar kosning og maður ársins hjá okkur íslendingum. Þar vann hún sigur yfir til dæmis Jannie Spies, Preben Elkjær, Margréti Danadrottningu og Paul Schlúter. Mel Gibson hefur látið fara frekar lítið fyrir sér upp á síðkastið og lítið leikið í kvikmyndum. En nú verður líklega breyting þar á, aðdáendum hans til mikillar gleði. Hann hefurskrifað und- ir samning um að leika í nýrri kvikmynd sem mun heita „Tequila sunrise". Mel Gib- son er ekki meðal þeirra lægst launuðu, því fyrir leik sinn fær hann borgaðar 120 milljónir króna. George Michael er maður með fjármálavit. Hann hélt nýlega hljómleika í Randers í Danmörku og hafði hugsað sér að leigja þyrlu til þess að komast aftur heim til Englands. En hún átti að kosta hálfa milljón króna og flugtíminn áætlaður 7 tímar svo George leigði sér bara einkaþotu í staðinn og hún kostaði „aðeins" 200 þúsund krónur, svo hann sparaði 300 þúsund krónur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.