Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1988, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1988, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1988. Fréttir Einvígið Jóhann-Kortsnoi: Sálfræðistríð í algleymingi - Campomanes stendur með íslendingum í ásökunum um tmflanir Kortsnojs Sigurdór Sigurdóisson, DV, SLjohn; „Það er ekki hægt að líta fram hjá því að framkoma Kortsnojs í 5. og alveg sérstaklega 6. skákinni hlýtur að hafa haft truflandi áhrif á Jóhann Hjartarson og kvörtun Friðriks Ól- afssonar verður að taka til greina,“ sagði Campomanes, forseti Alþjóða- skáksambandsins, i samtali við DV í gærkveldi. Eins og skýrt var frá í DV i gær kærði Friðrik Ólafsson til Ghgoric, ytlrdómara keppninnar, framkomu Kortsnojs þegar hann gekk á hrað- ferð umhverfis skákborð þeirra Jóhanns og alltaf í sjónmáli Jó- hanns. Þar að auki teygöi hann sig yfir borðið til að drepa í sígarettu sinni í öskubakka. „Þannig er Kortsnoj. Nú sjáið þið gamla refinn í allri sinni mynd. Þeg- ar mest á ríður fyrir hann svífst hann einskis," sagði stórmeistarinn Reym- ond Keene í samtah við DV en hann ásamt öllum stórmeisturunum hér er hneykslaður á framkomu Kortsnojs og ekki síst vegna þess að Jóhann er þekktur fyrir drenghega framkomu við skákborðið. Menn hafa bent á það að nær úti- lokað sé fyrir Jóhann að svara í sömu mynt með framkomu, einfaldlega vegna þess að hann hefur aldrei beitt brögðum og ef hann ætlaði að taka upp á því nú myndi það sennilega pirra hann sjálfan mest. „Jóhann er heiðursmaður og hann á ekki að beita neinum brögðum gegn gamla refnum," sagði Keene. Spakir íslendingar hafa bent á að nú á miðjum þorra væri ekkert við því að segja þótt Jóhann tæki með sér harðfiskpakka upp á svið og maulaði úr honum. Sennilega myndi fnykurinn pirra Kortsnoj meira en orð fá lýst. Friðrik sendi inn kærubréf í gærkvöldi: Aðstoðavmaður Kortsnojs í hörku- rrfnldi við Gligonc yfiidomara Sigurdór SigurdórsBon, DV, Stjohru í nótt fréttist að Gurevic, aðstoð- armaður Kortsnojs, ætti í samræð- um og háarifrildi viö þá Gligoric yfirdómara og Campomanes, for- seta FIDE, vegna kærubréfs sem Friðrik Ólafsson stórmeistari hafði sent Ghgoric í gærkvöldi vegna framkomu Kortsnojs í sjöttu ein- vígisskákinni gegn Jóhanni. Þrá- inn Guðmundsson, forseti Skáksambandsins, og imdirritaður urðu vitni að þessu samtali eftir aö þaö fréttist. Við fórum á staðinn og urðum vitni að því sem var að gerast. Þetta gerist á öðrum tíman- um í nótt að okkar tíma Deilan stendur um það hvort á að verða víð þeirri kröfu Kortsnojs að þeir Jóhann sitji við sama borð og áður eða hvort þeir færi sig á borð á miöju sviði eins og Friðrik og Þráinn vilja sem og mótshaldar- ar hér eða hvort Kortsnoj fær kröfu sinni framgengt um sömu sæti og áður. Um þetta voru háværar deil- ur milh Gurevic og Gligoric, sem hafði kærubréf Friðriks og Jó- hanns í höndunum. Campomanes, forseti FIDE, tók undir kröfur ís- lendinganna í þessu máh. í kærubréfl Friöriks var þess kraflst að ekki yrði gengið umhverfis borðið á meðan andstæðingurinn ætti leik, ennfremur að ekki yrði reykt við borðið meðan andstæð- ingurinn ætti leik og að andstæð- ingurinn mætti ekki ganga i sjónhnu þess sem ætti leik hverju sinni. Þess er einnig krafist að til- laga mótshaldara um að keppendur veröi færðir á mitt sviðið verði tek- in til greina. Hér er að sjálfsögöu á ferðinni heiftarlegt sálfræðistríð og íslend- ingarnir telja mjög mikilvægt að Kortsnoj fái ekki öhum sinum duttlungum framfylgt þar sem Ijóst er að Jóhann hefur orðið fyrir truflunum af hans orsökum. Einn- ig er Jjóst að Kortsnoj er að hefja sitt fræga sálffæöistríð til að bijóta andstæðing sinn niður. Að sögn Ghgoric verður tekin ákvörðun um það rétt áður en skákin hefst í dag hvort þeir sifja á miöju sviði eða hvort orðið verður viö kröfu Kortsnojs um að sömu sæti veröi notuð og áður. Karvel Pálmason: „Merkileg niðurstaða“ „Þetta þykir mér merkileg niður- staða. Hún sýnir að Vestfirðingar eru á því róli sem meirihluti þjóðarinnar er sammála um.“ Þetta sagði Karvel Pálmason, al- þingismaður og varaformaður V.-'rkamannasambandsins, þegar jurstöður úr skoðanakönnun um viðhorf fólks til þess -hvort Vest- fiarðasamningarnir yrðu lagðir til grundvallar fyrir komandi kjara- samninga. -sme / Kari Steinar Guðnason: Samningar Vestfirðinga vitrænir „Ég tel að samningar Vestfirðinga séu vitrænir en þeir miðast við að halda verðbólgunni í skefjum. Niður- staða könnunarinnar sýnir því að fólk vill fara varlega og forðast að kalla yfir sig verðbólguholskeflu,“ segir Karl Steinar Guðnason, al- þingismaður og formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur. „Hvað Vestfjarðasamningana snertir tel ég reyndar að um frekari útfærslu þurfi á þeim hvað snertir aðra starfshópa en fiskvinnslufólk.“ -JGH Gert klárt fyrir næsta túr. DV-mynd Brynjar Gauti Neytendasamtökin skora á ríkissyómina: Eggja- og kjúklingamálin rædd á Alþingi Á fundi Neytendasamtakanna í gærkvöldi var samþykkt ályktun þar sem skorað er á ríkisstjómina að nema úr gildi reglugerö land- búnaðarráöherra um veröstýr- ingu. „Það er greinilegt að mikill ágreiningur er um þetta mál innan ríkisstjómarinnar. Bæöi forsætis- og iönaðarráðherra hafa lýst því yfir að þetta sé ákaflega óheppilegt og þá hefur viöskiptaráðherra, væntanlega með vitund sinna flokksmanna, tekið undir það,“ sagði Jónas Bjamason hjá Neyten- dasamtökunum. Þá sagði Jónas aö hann reiknaöi meö aö Alþingi myndi fjalla um málið næsta mánudag. Jónas bætti því við að Neytendasamtökin ætluðu að upp- lýsa um talnagrundvöll útreikn- inga sinna og þar myndu birtast sláandi tölur. „Við munura sækja eftir þeim leiðum sem viö höfum til að hafa áhrif á 6 manna nefndina enda ófært að aðeins kostnaðartölur fraraleiöenda liggi þar til grund- vallar. Annars vil ég taka það fram að við teljum að það hafi veriö far- ið Ula með þessa framleiðendur enda grætur lanbúnaöarkerfið krókódílatárum yfir ófórum þeima. Hinn raunverulegi óvinur 'þeirra er kiötmafía landbúnaðarkerfis- ins,“ sagði Jónas. -SMJ Halldór Asgrímsson: Anægður með niðurstöðuna „Ég er út af fyrir sig ánægður með þessa niöurstöðu. Hún sýnir aö mik- il óánægja er með framvindu mála í alþjóða hvalveiðiráðinu. Það eru ýmis rök sem mæla með því að við segjum okkur úr ráðinu og reyndar eru önnur sem mæla með því aö við séum í því áfram. En stefnan er enn- þá sú að vera áfram í ráöinu," segif Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra, aðspurður vegna skoöana- könnunar DV í dag. „Framvinda næstu mánuða í hvalamálinu sker úr um þaö hvort við íslendingar verðum áfram í al- þjóöa hvalveiöiráöinu eða ekki.“ -JGH Sálfræðistríðið í skákeinvíginu: „Þú hefur völdin, maður - sagði Campomanes við Gligoric yfirdómara ik Sigurdór Sgurdórssan, DV, Stjóhn; Þegar dregið var um hti í gær- morgun óskaði Kortsnoj eftir því að þeir Jóhann sætu áfram við sama borð og í sömu stólum í framhald- ' seinvíginu. Júgóslavneski stórmeist- arinn Ghgoric, sem er yfirdómari, tók þessa ósk Kortsnoj tíl greina þrátt fyrir andmæh Friðriks Ólafs- sonar. Friðrik vildi að farið yrði að óskum mótshaldara og þeir Jóhann og Kortsnoj og Spraggett og Salov færðu sig á borðin fyrir miðju sviöi. Auðvit- að voru andmæh Friðriks, sem þekkir alla króka og kima svona ref- skákar, liður í að láta Kortsnoj ekki komast upp með að fá óskum sínum framfylgt. Þegar ég hitti þá Ghgoric og Campomanes skömmu eftir að dreg- ið hafði verið um hti deildu þeir um þetta mál. Ghgoric sagði að ekki væri annað hægt en að verða við þessum óskum Kortsnojs. „Þú ert yfirdómari hér og hefur völdin, maður. Þú getur gert það sem þú vilt í þessu máh og ef þú treystir þér ekki th að verða við óskum móts- haldara þá skal ég gera það fyrir þig,“ sagði Campomanes. „Viltu taka það að þér,“ spurði Gligoric. „Alveg sjálfsagt,“ svaraði Campomanes. Gligoric sagði að hann myndi að- vara Kortsnoj um að trufla ekki Jóhann oftar. Hann sagöi kæru Frið- riks réttmæta. Sagði Ghgoric að hann myndi annað hvort setja þá reglu að keppendur gengju um gólf fyrir framan sviðið eða á þeim stað á sviðinu sem nú er auður eftir að fimm einvígjum er lokið. „Þú getur hka fært skákborðin al- veg fram á brún sviðsins þannig að Kortsnoj geti ekki gengið umhverfis það eins og hann gerði í 6. skák- inni,“ sagðiCampomanes. Ghgoric tók undir það. Það verður fróðlegt að sjá hvernig gangur sálfræðistríðsins verður í dag þegar aukaeinvígið hefst. Eins og áður hefur verið greint frá í DV verð- ur tefld skák í dag, miðvikudag, síðan önnur á fóstudag. Fáist ekki úrsht í þessum tveimur einvígisskákum munu þeir setjast að tafli á laugar- dag. Fyrst yrði þá tefld klukkutima skák, ef ekki fengjust úrsht þá hálf- tíma skák og ef það dygði ekki th þá yrðu tefldar 15 mínútna hraðskákir þar th úrsht fengjust. Spennan er því vægast sagt mikil og ekki auðvelt að vera íslendingur hér, svarandi fyrirspurnum frá for- vitnu fólki um þetta allt saman en það hefur frést hingað th Saint John að íslenska þjóðin standi á öndinni vegna þessa einvígis. Það gerum við íslendingarnir hér að vísu Jíka. Aukaeinvígið: Jóhann hefur hvítt í fyni skákinni Sigurdór Sigurdóisson, DV, Stjohn; í gærmorgun var dregið um hti í aukaeinvígi þeirra Jóhanns og Kortsnojs. Þeir Friðrik Ólafsson og Gurevich, aðstoðarmaður Kortsnojs, drógu og kom upp að Jóhann hefði hvítt í fyrri skákinni. Menn eru ekki á einu máli um hvort það hafi verið gott fyrir Jóhann að hafa hvítt í fyrri skákinni. Sumir segja að betra heföi verið fyrir hann að hafa svart í fyrri skákinni, verjast og tefla til jafntefiis en sækja svo með hvítu mönnunum í seinni skák- inni. Sjálfsagt má deha um þetta endalaust en sennhega hitti Þráinn Guðmundsson, forseti Skáksam- bandsins, naglann á höfuðið þegar hann sagði: „Það sem skiptir máh er að tefla betur en andstæöingurinn og vinna, ekki hvorn litinn maður hefur, og ég er viss um að Jóhann er mér sam- mála.“ Allir undir hatt sexmannanefndar Eggja- og kjúkhngaframleiðendur hafa farið fram á að sex manna nefndin verðleggi framleiðslu þeirra. Þetta gerist þó að forráðamenn þess- ara félaga hafi staöfastlega neitað því aö þeir ætli að leita th sexmanna- nefndarinnar. Kartöflubændur eru meö þeim- í samfloti og má því segja að þessar greinar stefni undir hatt hefbundinna búgreina. Þykir mörgum að hér sé alvarleg stefnumörkun í uppsiglingu og hefur viöskiptaráðherra sagt að þetta gangi þvert á stefnu ríkisstjómarinnar og því komi nú til greina aö breyta bú- vörulögunum. -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.