Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1988, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1988.
5
Fréttir
Búnaðarmálastjóri um vanda loðdýrabænda:
Það ber að bjarga mönnunum
„Það er engan veginn hægt að tala
um hrun í þessari framleiðslu þó að
erfiðleikar steðji að um tíma. Eg tel
að árangurinn af loðdýraræktinni
hafi ekki orðið lakari en menn máttu
eiga vona á,“ sagði Jónas Jónsson
búnaðarmálastjóri aðspurður um
ástandið hjá loðdýrabændum.
Að undanfópnu hafa fulltrúar loð-
dýrabænda átt í samningaviðræðum
við landbúnaðarráðherra um aðstoð
en miklar þrengingar hafa gengið
yfir að undanfórnu. Sérstaklega eiga
refabændur í erfiðleikum en hjá
minkabændum mun ástandið vera
betra.
Jónas taldi tvær ástæður fyrir
þeim erfiðleikum sem .steðjað hafa
að. Annars vegar sé meira framboð
núna af refaskinnum og megi sér-
staklega rekja það til framleiðslu-
aukningar Finna. Hins vegar fylgi
uppboðsverð gengi dollarans og
verðfall hans hafi því lækkað verðið
til viðbótar við verðfall vegna aukins
framboðs.
„Þetta kemur á versta tíma því að
greinin er þaö ný að bændur fá þetta
um leið og þeir eru að reyna að koma
undir sig fótunum. Eigið fé er lítið
og því erfitt aö standa af sér svona
skakkaföll.“
Jónas játaði að afkoman væri mi-
sjöfn frá einu búi til annars. Stafaði
það af mismikilli kunnáttu, óheppni
og mismunandi aðstæðum. Hann
bætti þvi við að hjá einstaka bændum
væru skinnagæöi misjöfn vegna mis-
góðra dýra og einnig vegna mismun-
andi meðferðar. Þá væri enn verið
að bæta stofninn hér og því væru
bestu dýrin látin lifa.
Það hefur verið gagnrýnt að bænd-
um skuh vera att út í loðdýrarækt
án þess að kunna á henni tilhlýðileg
skil og því sé framleiðslan hér á landi
lélegri en í samkeppnislöndunum að
magni og gæöum. En var bændum
ýtt út í þetta á fölskum forsendum?
„Ýtt, ég vill nú heldur segja hvatt-
ir. Bændur voru vissulega hvattir til
-- ---■
Egg frá Hollandi:
Kílóið
á 67 kión-
ur úr búð
„Við erum búnir að fá tilboð um
sölu á bæði kjúklingum og eggjum.
Það verð sem viö fáum þar er svo
gott að það sannfærir okkur um að
þessi innflutningur eigi rétt á sér,“
sagði Jón Ásbergsson, forstjóri Hag-
kaups, en fyrirtækið hefur nú fengið
svar frá Hollandi vegna fyrirhugaðs
innílutnings þess á eggjum og kjúkl-
ingum. Að sögn Jóns munar ótrúlega
miklu á því verði sem erlendu aðil-
amir bjóða þeim og því sem þeir
þurfa að greiða til innlendra fram-
leiðenda.
Jón sagði að fob. verð á eggjum
væri 32 kr. kílóið sem gæti þýtt út
úr búð hér um 67 kr. í stað 210 kr.
eins og þaö kostar víðast hvar. Kjúkl-
ingakílóið á fob. verði er 50 kr. sem
yrði 99 kr. á Hagkaupsverði. Nú kost-
ar kjúklingakílóið um 440 kr.
„Við ætlum að sækja um innflutn-
ingsleyfi til landbúnaðarráðuneytis-
ins og láta þar reyna á hvort menn
vilja leyfa íslenskum neytendum að
kaupa á þessu hagstæða verði.“ Jón
sagði að með umsókninni myndi
fylgja rökstuðningur frá Hagkaupi
sem sýndi fram á að hér væri um svo
óvenjulegan verðmun að ræða að
hagsmunir neytenda hreinlega
krefðust þess að þessi innílutningur
yrði gefinn fijáls.
að hefja loðdýrarækt vegna ástands
í öðrum framleiðslugreinum land-
búnaðarins og svo koma auðvitað
byggðasjónarmið inn í máhö. Loð-
dýraræktin í hehd er ákveðin tilraun
og alrangt að hætta við þá tilraun
núna. Því ber að bjarga þessum
mönnum nú. Ég tel ástandið ekki
þýða skipbrot fyrir þetta sjónarmið.
Það mátti alltaf búast við þrenging-
um en ég er sannfærður um að við
getum staðiö þetta af okkur.“
Eins og áður segir stendur minka-
ræktin mun betur og öll aukning í
ár verður á sviði minkaræktar. Þar,
eins og í refaræktinni, eru verðsveifl-
ur miklar og því er það trú manna
að einnig megi búast við skakkafóll-
um þar.
Því hefur oft veriö haldið fram að
ísland sé vel falhð til loðdýraræktar
og þvi til sönnunar tíundaðar tvær
ástæður.
Sú fyrri er að fóðurkostnaöur sé
htih. Það er rétt að því leyti að hrá-
efni er ódýrt og gott. Hins vegar hefur
þurft að byggja upp fóðurstöðvar en
fjármagnskostnaður vegna þeirra er
nú tahnn ein af ástæðum þess hve
hla gengur.
Hin ástæðan lýtur að loftslaginu
sem margir fullyröa að eigi vel við
loðdýr. Má það rétt vera en hinu er
ekki að neita að illa hefur gengið að
ná tökum á ræktuninni eins og mik-
h ófijósemi dýranna sýnir. Jónas
benti á að þetta væri vandi sem allir
þyrftu að ghma við og væru nú t.d.
Norðmenn að berjast við sama
draug. -SMJ
Technics . SONY* DENON
BSPanasonic • cgSAMSUNG
10-40% afsláttur
Hljómtækjasamstæður frá kr. 11.60$;-
Magnarar (Sony) frá kr. 9.950,- • Geislaspilari (Technics) 14.700,-
Kassettutæki (Denon) frá kr. 12.70Ö>-Plötuspilarar (Panasonic) frá kr. 4.810,-
Útvarpstæki (Sony) frá kr. 7.500,- • Hátalarar (Sony) frá kr. 8.800,-
Vídeómyndavélar VHS-C frá kr. 81.700,- • Myndbandstæki VHS 24.900,-
Sjónvarpstæki frá kr. 17.600,- • Ferðaútvarp m/kassettu frá kr. 3.800,-
VHS spólur 3ja tíma frá kr. 380,- • Kassettur 60 mín. 3 stk. frá kr. 295,-
Heyrnartól frá kr. 850,- • Vasadiskó-útvarp frákr. 1.980,- • og margtfleira.
Góð greiðslukjör.
JAPISS
BRAUTARHOLT 2 • KRINGLAN • SÍMI 27133
-SMJ