Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1988, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1988.
9
Útlönd
Palestínskur unglingur skýtur grjóti úr teygjubyssu að ísraelskri herþyrlu sem varpað var táragasi úr á Vest-
urbakkann. Símamynd Reuter
Grjótkast gegn
drottnurum
^&iðja um
^Bk-jógúrt
í tuttugu og eitt ár hafa Palestínu-
menn á herteknu svæðunum
komið ár eftir ár og dag eftir dag
til Tel Aviv til þess að taema sorp-
tunnur og skúra gólf. Á kvöldin
hafa þeir svo snúið aftur heim til
Gazasvæðisins. Nú eru ekki taldar
miklar líkur á að þeir sætti sig við
slíkar aðstæður mörg ár í viðbót.
* Óeiröimar á Gazasvæðinu og
Vesturbakkanum, sem staðið hafa
frá því í desemberbyijun, hafa
kostað á fimmta tug mannslífa.
Palestínumenn krefjast þess að
israelsmenn yfirgeíl svæðin en
ekki er ólíklegt að til blóðsúthell-
inga komi þó svo að ísraelsmenn
taki þá ákvörðun að láta svæðin
af hendi. Um sjötíu þúsund ísraels-
menn hafa sest að á herteknu
svæöunum og þeir hafa lýst því
yfir að þeir afhendi ekki land sitt
án mótmæla. Því þykir ekki
ósennilegt að þeir grípi til þeirra
vopna sem þeir eru sagðir eiga nið-
urgraíin.'
Áhrif
Margir óttast þau áhrif sem það
kann að hafa að skipa ungum her-
mönnum að drepa mótmælendur
eða nota barefli gegn þeim. Láðs-
foringi, sem sér um að mennta
hermenn, hefur lýst yfir áhyggjum
sínum vegna þessa og í síðustu viku
komu sálfræðingar í ísrael á fram-
færi sömu athugasemdum.
Ekki eru þó allir jafnviðkvæmir.
Margir þeirra sem predikað hafa
harðar aögerðir gegn aröbum
draga nú þá ályktun að stjórn hers-
ins hafi ekki verið nógu ákveðin
og hafi þess vegna hvatt Palestínu-
menn til óeirða. Margir óbreyttir
borgarar eru jafnvel enn harðari í
afstöðu sinni en þjóðernissinnaöir
þingmenn.
Gagnrýni gyðinga
Aldrei áður hafa Isráelsmenn þó
sætt jafnmikilli gagnrýni gyöinga
um aílan heim eins og nú. Gagn-
rýnin hefur átt greiðan aðgang að
íjölmiðlum og hafa ísraelsmenn átt
erfitt með að kyngja henni.
Varnarmálaráðherra landsins,
Yitzhak Rabin, er ábyrgur fyrir
aðgerðum hersins gegn Palestínu-
mönnum. Sú staðreynd aö hann
skuli vera sósíaldemókrati hefur
haft mikil áhrif á umræðurnar. Ef
Ariel Sharon frá Likud-flokknum
hefði fyrirskipað sams konar að-
gerðir hefðu sósíaldemókratar
heldur betur látið í sér heyra.
Sundrung
Sundrungin milh sósíaldemó-
krata og Likud er nú meiri en
nokkru sinni. Leiðtogi sósíaldemó-
krata, Shimon Peres utanríkisráö-
herra, er fylgjandi alþjóðlegri
friöarráðstefnu um Miðausturlönd
en Yitzhak Shamir forsætisráð-
herra er andvígur slíkri ráðstefnu.
Leggur hann mikla áherslu á að
nú megi ísraelsmenn í engu láta
undan. Eftir því sem óeirðirnar
halda áfram hafa þó sífellt fleiri,
meira að segja leiðandi stjórn-
málamenn Likudflokksins, fariö að
efast um nauðsyn þess að beita
jafnhörðum aðgerðum og gert er.
Ástæða þykir til að óttast að slíkar
vangaveltur hætti um léið og óeirð-
unum hnnir.
Kosningar
Kosningar eru fyrirhugaðar í
ísrael í nóvember og leiðandi sós-
íaldemókrati, sem ekki vill láta
nafns síns gétið, segir úrslitin vera
komin undir Palestínumönnum.
Ef þeir halda áfram mótmælaað-
gerðum sínum er möguleiki á ,að
þorri karla með kosningarétt hafi
gegnt mánaðarherskyldu á her-
teknu svæðunum fyrir kosningar.
Þá sé möguleiki á að boöskapurinn
komist til skila og skynsemin sigri.
En ef ísraelsmönnum tekst að bæla
niöur óeirðirnar og þeir komast
enn einu sinni á þá skoðun að þeir
hafi sýnt að leysa megi öll vanda-
mál með vopnavaldi er leiknum
tapað, að því er sósíaldemókratinn
fullyrðir.
Miðjarðarhaf
Vestur-
bakkinn
JÓRDANIA
Rauða
hafið