Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1988, Blaðsíða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1988.
Utlönd
Tóku ritstjóm
herskildi
Tveir menn, vopnaðir haglabyss-
um, tóku á mánudag herskildi
ritstjóm dagblaðs í bænum Luber-
ton í Bandaríkjunum.
Mennirnir tveir, Eddi Hatcher og
Timothy Jacobs, héldu sautján
starfsmönnum blaðsins í gísbngu í
nær eUefu klukkustundir áöur en
þeir gáfust upp og voru teknir
fastir.
Eftir handtökurnar sögðu menn-
imir tveir að kynþáttamisrétti
væri á stefnuskrá stjórnvalda í
bænum og var að skilja að þeir
hefðu tekið skrifstofuna herskildi í
mótmælaskyni.
Eddie Hatcher á leið i réttarsal til
aó svara til saka fyrir athæfi þeirra
félaga. Simamynd Reuter
Timothy Jacobs með afsagaða
haglabyssu meðan á hersetu
þeirra félaga á ritstjórninni stóð.
Simamynd Reuter
Lögregluþjónn leiðir Jacobs
brott eftir handtökuna.
Simamynd Reuter
Mennirnir tveir voru i stöðugu símasambandi við yfirvöld meðan á
umsátrinu um skrifstofuna stóð. Með á myndinni er starfsmaður dag-
blaðsins sem greinilega er farinn að þreytast á verunni. Simamynd Reuter
Franskur njósn
ari myrtur
Vopnaður vörður við franska sendiráðið I Beirút við lík franska njósnarans
sem skotinn var til bana í gær. Simamynd Reuter
Bjami Hmriksson, DV, Bordeaux:
Nokkuð víst þykir aö Frakkinn,
sem skotinn var í Beirút í gærmorg-
un, hafi verið starfsmaöur frönsku
leyniþjónustunnar. í fyrstu sögðu
starfsmenn franska sendiráðsins í
Beirút að um hefði verið að ræða
kaupsýslumann en franskir embætt-
ismenn greindu síðar frá að hann
hefði verið starfsmaður frönsku
leyniþjónustunnar en þóst vera sölu-
maður. Leyniþjónustumaöurinn
ferðaöist undir nafninn Jacgues
Meurant en heimildarmenn í Frakk-
landi segja að hans raunverulega
nafn sé Merrin.
Morðiö á Jacques Meurant var
greinilega vel skipulagt. Leyniþjón-
ustumaðurinn var í kristna hluta
borgarinnar og var nýstiginn upp í
bifreið sína þegar þrír menn komu
að og skutu hann á örstuttu færi.
Mennirnir tóku ýmsa pappíra sem
Meurant var með í bílnum.
Franska ríkisstjómin hefur hvorki
viljað neita né játa aö Meurant hafi
verið annar æðsti maður leyniþjón-
ustunnar í Beirút og borið ábyrgð á
öryggi þeirra Frakka sem búa í Lí-
banon en samkvæmt líbanskri
útvarpsstöð var Meurant að koma
frá fundi með yfirmanni líbönsku
öryggisþjónustunnar þegar morðið
var framiö.
Enn eru sex þúsund franskir ríkis-
borgarar í Líbanon og frönsk yfir-
völd hafa vaxandi áhyggjur af öryggi
þeirra.
Finnska stjómin hyggst sitja áfram
Gunnlaugur A. jónsson, DV, Lundi:
Harry Holkeri, forsætisráðherra
Finnlands, skýrði frá því í gær að
ríkisstjóm hans hygðist sitja áfram.
Paavtf Váyrynen, formaður Mið-
flokksins, hafði krafist þess að ríkis-
stjómin segði af sér í kjölfar
forsetakosninganna enda hefur það
verið venja eftir allar forsetakosn-
ingamar í Finnlandi í þau rúmlega
sjötíu ár sem landið hefur búið við
sjálfstæði.
Miöflokkurinn hefur viljað túlka
hið mikla fylgi Váyrynens í forseta-
kosningunum á þann veg að kjósend-
ur hafi viljaö láta í ljós óánægju sína
með áform ríkisstjómarinnar um að
breyta skattakerfinu og því sé eðh-
legt að ríkisstjórnin hefji nú viðræö-
ur við stjómarandstöðuna. En
Holkeri virðist ekki hafa neitt slíkt í
hyggju.
Ljóst er aö Koivisto verður valinn
forseti er kjörmenn koma saman eft-
ir tvær vikur. Hann vantar aðeins
sjö kjörmenn til að fá meirihluta og
enginn vafi er á aö hann fær nægi-
lega mörg atkvæði kjörmanna Hægri
flokksins til að verða valinn. Mauno
Koivisto fékk rúmlega 47 prósent at-
kvæða í kosningunum en Váyrynen
er hins vegar talinn standa vel að
vígi í forsetakosningunum eftir sex
ár þar sem hann svo óvænt náði nú
öðm sætinu sem alniennt hafði verið
reiknað með að Holkeri forsætisráö-
herra myndi hljóta.
Saka hermenn um morðin
Sólbaðsstofa
Ástu B. Vilhjálms
Grettisgötu 18 - sími 28705
VISA OG EURO
ATH!
24 tímar aðeins
2.200 krónur
Hvar annars staðar er
það betra og ódýrara?
Tilboðið stendur
áfram.
ÍVERIÐ VELKOMIN
J ÁVALLT HEITT
ÁKÖNNUNNI
Þijú lík, þar á meðal lík íjórtán ára
unglings, sem skotinn háfði veriö í
höfuðið, fundust í gær á stað í E1
Salvador þar sem svokallaðar dauða-
sveitir hafa gjaman komið fóm-
arlömbum sínum fyrir. Ættingjar
hinna látnu fullyrða aö her landsins
hafi staöið að morðunum.
Staðurinn sem líkin fundust á var
einn af helstu aftökustöðum dauða-
sveita hersins í E1 Salvador á fyrstu
árum borgarastyrjaldarinnar í
landinu. Sveitirnar myrtu þá þús-
undir af þeim sem grunaðir voru um
stuöning viö vinstrisinna í landinu.
Þetta er hins vegar í fyrsta sinn um
nokkurra ára skeið sem fómarlömb
dauðasveita finnast á þessum staö.
Undanfarið hefur að nýju boriö á
aftökum í stíl dauöasveitanna í E1
Salvador og kaþólska kirkjan í
landinu tekur undir þær ásakanir
almennings að her landsins standi á
bak við hluta þeirra.
Ættingjar eins af fórnarlömbum dauðasveitanna standa yfir líkinu.
Símamynd Reuter