Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1988, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1988.
Iþróttir
Mál ívars Websters og Bjöms Hjörieífssonar:
lur út vegna
vörðunar!
ins rókstyðji þetta ekki frekar
stjórnarmaður eins stærsta sérsam-
bandsins skuli sitja í stjórn afreks-
mannasjóðs/‘ sagði Guðfinnur
jafnfraint. „Ég tel það einfaldlega sið-
laust,“ sagði hann.
„Þarna á ég við Steinar J. Lúövíks-
son, varaí'ormann HSÍ. - Ég er ekki
aö setja út á persónu hans á nokkurn
hátt, hins vegar tel ég það
„prinsípp“-mál að þarna sitji ekki
maður sem hefur beinna hagsmuna
aö gæta fyrir afreksfólk sinnar
íþróttagreinar. Þarna eiga aðeins að
sitja hlutlausir menn.“
Vlllýsa ábyrgð á hendur ÍSÍ
„Ég vil lýsa ábyrgö á þessari styrk-
veitingu, sem ég tel fljótfærnislega, á
hendur ÍSÍ og forystu þess sam-
bands,“ sagði Guðflnnur ennfremur.
„Raunar finnst mér vanta alla
stefnumörkun hjá ÍSÍ er varðar af-
reksmenn í Iþróttum. Ég held aö
menn ættu almennt að hugsa sinn
gang og hætta þessu pukri með pen-
inga. Eins og málum er háttað í dag
veit enginn íþróttamaður hvar hann
stendur í raun. Þetta er hálfgert
limbó fyrir íþróttafólkið. Sundfókið
hefur til aö mynda æft af hörku, lagt
í ærinn kostnað vegna' ástundunar
sinnar og náð árangri en misst styrk-
inn þrátt fyrir framfarir. Að mínum
dómi er þessi styrkveiting því illa
rökstudd, eins og áður sagði, og af
þeim sökum óverjandi á allan hátt,“
sagöi Guðflnnur.
-JÖG
Ekki víst að Webster
sleppi með áminningu
- lögfræðingur UBK áfrýjar og dómstóll KKÍ tekur málið fyrir
Frjálsar íþróttir:
Nú mistókst
mettilraun
hjá Johnson
- Sjöberg felldi 2,42 meba
Nico Claesen:
Ánægður
í London
ívar Webster, Haukum. Mál hans
irður nú tekið fyrir að nýju og óvist
rer endanleg niðurstada verður.
Það vakti töluverða-athygli á dög-
unum þegar héraðsdómstóll UMSK
dæmdi í máli sem upp kom í leik
Hauka og Breiðabliks í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik á dögunum.
ívar Webster, leikmaður Hauka,
sló þá einn leikmann Breiðabliks,
Björn Hjörleifsson, í gólfið þannig að
vel sá á kappanum og þegar málið
var tekið fyrir hjá héraðsdómstól
UMSK slapp ívar við áminningu sem
mörgum fannst einkennileg niður-
staða, svo að ekki sé sterkara að orði-
kveðið. Staðreyndin mun vera sú að
Blikar lögðu ekki mikla áherslu á
hugsanlegan rétt sinn í málinu fyrir
héraðsdómi UMSK hver svo sem
ástæðan kann að hafa verið. Hauk-
arnir vöröu hins vegar sinn mann
af hörku og lokaniðurstaða héraðs-
dómstólsins var sem sagt sú að
Webster slapp vel frá öllu saman með
áminningu.
Blikarnir hafa áfrýjað
Flestir áttu von á því að málið
Ben Johnson geysist i markið í Madrid í
rkvöldi. Símamynd Reuter
Þó Ben Johnson frá Kanada sé frár
á fæti og án efa sprettharöastur í
heiminum í dag nær hann ekki að
setja heimsmet í hvert skipti sem
hann sprettir úr spori. í gærkvöldi
reyndi hann við heimsmet sitt í 60
metra hlaupi innanhúss á móti í
Madrid - en mistókst. Met hans er
6.41 sekúnda en hann sigraði í hlaup-
inu á „aðeins“ 6,49 sek. Næstir á eftir
honum komu Belginn Ronald Desru-
elles og Kanadamaðurinn Desai
Williams, en báðir fengu tímann 6,59
sekúndur.
Svíinn síðhærði, Patrick Sjöberg,
reyndi að bæta eigið heimsmet í há-
stökki innanhúss með því að stökkva
2.42 metra á mótinu en mistókst.
Hann sigraði í greininni með 2,35
metra stökki. -VS
Kristján Bemburg, DV, Belgiu:
Nico Claesen, belgíski lands-
liðsmaðurinn sem leikur með
Tottenham Hotspur í Englandi,
bar í gær til baka fregnir enskra
blaða þess efnis aö hann vildi
komst burt frá Tottenham þar
sem hann væri haldinn mikilli
heimþrá. Hann segist mjög á-
nægður í London og hafa fyrir
skömmu neitað tilboði frá Glas-
gow Rangers. -VS
• Andri Marteinsson á milli tveggja forvígismanna Vikingsliðsins í gær,
þeirra Júrí Sedov, þjálfara og Sigurðar Georgssonar, formanns knattspyrnu-
deildar.
DV-mynd GVA
„Eg ætla að gera betur en í fyrra“
Stórsigur hjá
San Antonio
ínótt
væri þar með úr sögunni en á dögun-
um tók málið óvænta stefnu. Lög-
fræðingur Breiðabliks í málinu sendi
inn formlega áfrýjun til Körfuknatt-
leikssambandsins og er því ljóst að
málið er engan veginn úr sögunni.
Dómstóll KKÍ mun taka málið fyrir
á næstu dögum og þá kemur í ljós
hvort ívar fær dóm eða ekki. Verði
hann dæmdur kann það að hafa al-
varlegar afleiðingar fyrir lið Hauka
en ívar Webster er sem kunnugt er
einn af lykilmönnum liðsins. -SK
Pétur Guðmundsson og félagar hans hjá
San Antonio Spurs unnu öruggan sigur á
New Jersey Nets, 118-106, í NBA- deildinni
í körfuknattleik í nótt. Leikurinn fór fram
á heimavelli San Antonio.
• Þetta var 18. sigur San Antonio í deild-
inni í vetur en liðið hefur hins vegar tapað
22 í leikjum. Liðið er í öruggu úrslitasæti
í NBA-deildinni.
• Úrslit annarra leikja í nótt uröu þau
að New York Knicks sigraði Washington
Buflets, 110-106, Houston Rockets sigraði
Phoenix Suns, 109-93, Detroit Pistons sigr-
aði Milwaukee Bucks, 99-97, Los Angeles
Lakers sigraði Chicago Bulls, 110-101, og
loks vann Portland Trail Blazers lið Atl-
anta Hawks, 121-110. -JKS
Andri Marteinsson á
ný í Hæðargarðinn
- er hlýtt til KR en hjartað slær í Víkingi, segir Andri
„Það er óneitanlega mikifl léttir að
vera búinn að taka ákvöröun. Þetta
er búið aö vera mikið sálarstríð en
það er nú sem betur fer afstaðið."
Þetta sagði Andri Marteinsson
knattspyrnumaður, sem nú hefur
skipt yflr í sitt gamla félag, er kominn
til Víkings eftir eitt leikár vestan við
læk - meö KR-ingum.
„Ég vona að ég hafi tekið rétta á-
kvörðun og að hún komi vinum
mínum þægilega á óvart. Félaga-
skiptin voru erfið en þau gerðust í
mesta bróðerni, mér er enda hlýtt til
KR en hjartað slær í Víkingi. Því er
ekki, að neita að Júrí Sedov, þjálfari
Víkings, hafði mikil áhrif á ákvörðun
mína enda er hann afar hæfur í sínu
starfi,“ sagði Andri.
- Hverja telur þú möguleika Vík-
inga í fyrstu deildinni í sumar?
„Eins og staðan er í dag þá ætlum
við Víkingar að stefna að því halda
okkur í deildinni. Síðan má setja
markiö hærra ef liðið mótast á þann
hátt sem Júrí vonast til. Víkingar
hafa styrkst mikið, góðir leikmenn
hafa bæst í hópinn og efnilegir strák-
ar hafa fengið sína eldskírn. Ég sé
því ekki ástæðu til annars en að vera
bjartsýnn."
- Hvernig verður íslandsmótið í
kjölfar þeirra breytinga sem átt hafa
sér stað?
„Mér líst mjög vel á íslandsmótið,
sérstaklega vegna þessara breytinga.
Þjálfarar og leikmenna hafa færst
milli liða og nýir bæst í hópinn. Ég
tel að viss ferskleiki fylgi þessum
breytingum og sóknarknattspyrna
verði í hávegum höfð, knattspyma
sem gleður augað."
- Nú varstu skorinn upp á dögunum
vegna þrálátra meiðsla í ökkla. Verð-
ur þú tilbúinn í slaginn með vorinu?
„Já, ég er orðinn góður af meiðsl-
unum - er allur að braggast. Ég sé
af þeim sökum ekkert því til fyrir-
stöðu aö ég verði í mínu besta formi
í sumar. Eitt er öruggt. Ég ætla að
gera betur en í fyrra og það ætti ekki
að vefjast fyrir mér því þá skoraði
ég aðeins eitt mark. í sumar verð ég
grimmari uppi við markið, svo mikið
er víst,“ sagði Andri.
Sedov brosti i kampinn
Júrí Sedov, þjálfari Víkings, var
kampakátur að hafa heimt Andra úr
vesturbænum:
„Þaö má á margan hátt líta á komu
Andra á táknrænan hátt um þá
grósku sem nú er í knattspyrnumál-
um hjá Víkingum," sagði Sedov.
„Við höfum enda enga ástæðu til
beijast fyrir tilveru okkar í fyrstu
deildinni. Við hljótum að stefna að
því að ljúka komandi leikári á meðal
þriggja efstu liða - þaö ætti í hverju
falli að verða auðveldara núna. Mik-
ilvægast er að koma strákunum í
liðinu í skilning um eigin getu, auka
sjálfstraust þeirra," sagði sovéska
goðsögnin.
-JÖG
Annar sigur í Finnlandi
íslenska kvennalandsliðið í handknattleik sigraöi irnar mætast í þriðja skipti í kvöld. íslenska liðið
það finnska í vináttulandsleik í Helsinki í gærkvöldi, leikur síðan tvisvar gegn Svíum um næstu helgi.
13-11. í fyrrakvöld vann ísland einnig, 19-11, og þjóð-