Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1988, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1988, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1988. 3 Fréttir Systkinin Sigurður og Elín, sem bæði eru einstæðir foreldrar, sitja hér í íbúðinni ásamt börnum sinum. Þau borguðu 150 þúsund kr. í leigu fyrirfram til manns sem ekki á íbúðina. DV-mynd Heiðar Baldursson Systkini svikin í leiguviðskiptum - misstu 150 þúsund kr. fyrirframgreiðslu Reykvísk systkini á fertugsaldri búast við að lenda á götunni fljót- lega vegna þess að þau leigðu íbúð í Garðinum á Suðumesjum af fyrr- verandi eiganda hennar. Maðurinn sveik út úr systkinunum 150 þús- und kr. í fyrirframgreiðslu þegar hann leigði þeim húsnæðið um miðjan janúar en Landsbankinn í Sandgerði keypti íbúðina á uppboöi um miðjan desember eftir að mað- urinn var úrskurðaður gjaldþrota í haust. Hann er nú farinn úr landi. Málsatvik eru þau að Elín Eiríks- dóttir flutti með 6 ára gamlan son sinn frá Svíþjóð í haust en þar höfðu þau búið í Z'A ár. Elín hugð- ist setjast aö á Reykjavíkursvæð- inu og auglýsti eftir íbúð í 'A mánuð en fékk ekkert húsnæði á viðráðan- legu verði. Bróðir hennar, Sigurð- ur Eiríksson, hafði þá verið húsnæðislaus í mánuð ásamt 14 ára gamalli dóttur sinni. Systkinin tóku því það ráö að leigja húsnæði saman. „Við sáum auglýsingu um húsnæði í Garðinum og svöruöum henni því að við vorum gjörsam- lega á götunni en við ætluðum aldrei að flytja á Suðurnesin. Bróð- ir minn sækir vinnu til Reykjavík- ur og er þetta því mjög óhagstætt. Ég er aftur á móti nýlega byrjuð að vinna við beitingar hér í Garðin- um. En okkur fannst leigusalinn miskunna sig yfir okkur og fluttum inn í íbúðina fyrir tæpum tveimur vikum eftir að hafa borgað honum tíu mánaða leigu fyrirfram eða 150 þúsund. Hluta þessarar upphæðar fengum við að láni hjá félagsmála- stofnun til að geta leigt okkur húsnæði á frjálsum markaöi en hluti hennar kom frá okkur sjálf- um. Þegar við vorum flutt inn í íbúðina heyrðum við ávæning af því aö maðurinn, sem hefði leigt okkur, ætti ekki húsnæðið heldur hefði Landsbankinn í Sandgerði keypt það á uppboöi. Á þriðjudag fengum við þetta staðfest hjá úti- bússtjóra bankans. Leigusahnn var ,þá farinn til Flórída meö peningana og sjáum við ekki fram á að fá þá nokkurn tíma aftur. Raunar situr maður hérna gjörsamlega kjaftbit á þessu. Hugsunin hjá mér snýst helst um það að flytja sem fyrst aftur til Svíþjóöar,“ sagði Elín Ei- ríksdóttir i samtali viö blaðamann DV. Jónas Gestsson, útibússtjóri Landsbankans í Sandgerði, staö- festi sögu Elinar í samtali við DV. Hann sagði yfirmenn bankans ekki hafa vitaö að íbúðin hefði verið leigð heldur hefðu þeir tahö að fyrri eigandi byggi þar enn. Ástæða þess að bankinn hefði ekki fengið íbúð- ina afhenta væri sú að ekki hefði verið búið að ganga frá afsali. Hann hefði fyrst heyrt hvernig í málinu la á mánudag. Jónas sagði enga ákvörðun hafa verið tekna um hvað gert yröi í málinu. -JBj KL. 9-17 SUNNUDAG KL. 14-17 LAUGARDAG Landsins stærsta úrval af bólstruðum húsgögnum OPIÐ UM HELGINA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.