Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1988, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1988, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1988. 11 __________________________Útlönd Norðurlöndin bregðist við nýjum aðstæðum Páll Vilhjálmssan, DV, Osló: Hafið 6 milli íslands og Noregs yrði vetlvangur úrslitaátaka ef til styijaldar kæmi á milli Bandaríkj- anna og Sovétrikjanna. Bandarísk- ar hemaðaráætlanir ganga út á það að ef stórveldunum lendir saman, til dæmis á Persaflóa, muni Banda- ríkin flyfja átakasvæðið til Norður- hafa þar sem Sovétríkin standa verr að vígi. Bandaríski flotinn, sem meðal annars hefur aðstöðu á Keflavíkur- flugvelli, mun freista þess að tor- tíma sovésku kjarnorkukafbátun- um sem hafa bækistöðvar á Kólaskaga, skammt frá landamær- mn Noregs. Með þessum hætti á að knýja Sovétríkin til uppgjafar, því án kjamorkuflauganna í kaf- bátunum eru þau ekki í stakk búin til aö heyja kjamorkustyrjöld. Hernaðaráætlun Bandaríkja- manna fyrir Norðurhöf varð til snemma á þessum áratug. Ríkis- stjóm Reagans Bandaríkjaforseta ákvað að stórefla herskipaflotann og undir forystu John Lehman flotamálaráðherra var samþykkt hemaðarmálaáætlun sem lagði áherslu á að sækja aö sovéska flot- anum sem næst bækistöðvum hans. Sovétríkin eiga tvo úthafsflota. Annar er Kyrrahafsflotinn, með heimahöfn í Vladivostok viö Jap- anshaf. Hinn er norðurflotinn svokallaði með bækistöðvar á Kólaskaga við Barentshaf. Norðurflotinn er mun mikilvæg- ari fyrir Sovétríkin og er hann bæði stærri og betur búinn en Kyrrahafsflotinn. Mikilvægasta hlutverk norðurflotans er að tryggja að Sovétríkin geti svarað kjamorkuárás sem eyðilegði kjarnorkuflaugar þeirra á landi. í norðurflotanum era um það bil fjörutíu kafbátar búnir langdræg- um kjamorkueldflaugum. Kjamorkukafbátar hvors stór- veldis fyrir sig eiga að tryggja ógnarjafnvægið, tryggja að hvomgt stórveldanna ráðist á hitt, af ótta við að verða sjálft tortímingunni að bráö. Hernaðaruppbygging Þegar Ronald Reagan var kosinn forseti Bandaríkjanna árið 1980 lagði hann áherslu á að byggja upp hernaöarmátt landsins. Bandarík- in voru auðmýkt í Víetnamstríð- inu, sem lauk 1975, og í íran þegar Khomeini kom til valda þar 1979. Hernaðaruppbygging og vígreifari utanríkisstefna áttu að færa banda- rísku þjóðinni sjálfstraust á ný. Eitt af fyrstu verkefnum ríkis- stjómar Reagans var að endur- byggja og stækka bandaríska herskipaflotann. Gerð var áætlun um að stækka herskipaflotann þannig að hann teldi rúmlega sex hundmð skip. Áætlunin miðast við að þessi skipafloti verði tilbúinn snemma á næsta áratug og mun endurbygging flotans kosta því sem næst eitt þúsund milljarða Banda- ríkjadala. Sóknarstefna flotans Jafnhliöa endurbyggingu her- skipaflotans var samin hernaöará- ætlun sem var vígdjarfari en áður. Hernaðaráætlanir Bandaríkja- manna eftir síðari heimsstyijöld- ina byggðust fyrst og fremst á því að átök á milli stórveldanna myndu bijótast út í Mið-Evrópu og af skilj- anlegum ástæöum gegndi her- skipaflotinn litlu hlutverki þar. Eftir að ríkisstjórn Reagans tók yið völdum fékk bandaríski flotinn veigameira hlutverk en áður. Var það ekki síst að þakka hinum dug- andi flotamálaráðherra Reagans, John Lehman. Lehman gegndi embætti flotamálaráðherra þangað til í fyrra, þegar hann gekk í kosn- ingastjóm George Bush forseta- frambjóðenda. Ef Bush verður kosinn forseti Bandaríkjanna er Lehman talinn líklegastur til að verða vamarmálaráðherra í stjóm hans. Hernaðaráætlun flotans gengur undir nafninu The Maritime Stra- tegy og var alþjóð fyrst kunn þegar James E. Watkins, aðmíráll og yfir- maður bandaríska flotans, skrifaði grein með sama nafni í tímarit flot- ans, U.S. Naval Proceedings, í janúar 1986. Frá spennu til átaka í grein sinni útskýrði Watkins aðmíráll höfuðþætti áætlunarinn- ar. Áætlunin er þríþætt. í fyrsta þætti er gert ráð fyrir að spennuástand ríki á milli stórveld- anna. Hlutverk flotans er þá að ógna Sovétríkjunum. Flugmóður- skip, fylgdarskip þeirra og kafbátar stefna á Noregshaf og koma sér fyrir á hernaðarlega mikilvægum stöðum. Landgönguhð flotans kem- ur með flugvélum til Noregs, þar sem fyrir er birgðastöð þess. Ef ógnunin bregst, segir Watkins, og stríð brýst út er bandaríski flot- inn reiðubúinn undir átök. Annar þáttur áætlunarinnar ger- ir ráð fyrir að Bandaríkin grípi frumkvæðið í stríðsátökunum. A- rásarkafbátar Bandaríkjanna eiga að leita uppi og eyða sovésku kaf- bátunum sem bera langdrægar kjarnorkueldflaugar. Orrastuþot- ur frá flugvélamóðurskipunum skulu ná yflrráðum í loftinu þannig að herþotur Sovétmanna nái ekki að gera usla í bandaríska flotanum. Lokaþáttur áætlunarinnar stefnir að því að færa aðalátökin sem næst sovéskum landsvæðum. Endanlegt markmið er að bijóta á bak aftur sovéska norðurflotann og þar með vængstýfa hemaðar- mátt Sovétríkjanna. Eitt meginatriðið í hernaðaráætl- un Bandaríkjanna er að tortíma stórum hluta kjarnorkuvígbúnaö- ar Sovétríkjanna með hefðbundn- um vopnum. Wátkins aðmíráll segir í greininni í U.S. Naval Proce- edings að Sovétríkin myndu hugsa sig um tvisvar áður en þau hæfu kjarnorkustyijöld ef sovésku kjamorkukafbátamir lægju í tætl- um á botni Barentshafs. Um þetta atriði hafa heyrst sterkar raddir efasemda, bæði í Bandaríkjunum sjálfum og utan þeirra. Gagnrýniraddir Bandarískir og evrópskir hernaö- ar- og vígbúnaðarsérfræðingar gagnrýna flotaáætlunina einkum frá tveim hliðum. Annars vegar út frá herfræðilegum sjónarmiðum og hins vegar frá utanríkispólitískum sjónarhóli. Efasemdamenn úr hópi hernað- arsérfræðinga segja meðal annars að aöalforsenda flotaáætlunarinn- ar, um að stórveldin eigi tiltölulega langvinnt stríö með hefðbundnum vopnum, standist tæplega. Ef stór- veldin fari í stríð muni kjamorku- vopn verða tekin fljótt í notkun, er sagt. Sérfræðingar, eins og John J. Nearsheimer við Chicagohá- skóla og Steven Miller viö tæknihá- skólann í Massachusetts (MIT), segja flotaáætlunina til þess fallna að auka hættuna á að styijöld með hefðbundnum vopnum breytist í kjarnorkuhemað. Sovétríkin myndu aldrei horfa upp á þaö að- gerðalaus aö bandaríski flotinn sökkti kjamorkukafbátum þeirra. Fyrr yrði banvænum skeytum )caf- bátanna skotið á bandarískar borgir, segja Nearsheimer og Mill- er. Þeir benda á að flotaáætlunin geti stytt bilið á milli spennu- ástands og styijaldar, Sovétríkin gætu hræðst til að taka fyrst í gikk- inn, en bíða ekki eftir að komast í skotfæri bandaríska flotans. Norðurlönd í skotmáli Fyrstu áratugina eftir síöari heimsstyijöld voru Norðurlöndin í útjaðri kalda stríösins og vigbún- aöarkapphlaup stórveldanna miðaðist við ástandið í Mið-Evr- ópu. Uppbygging sovéska norður- flotans á síðasta áratug og nýleg. sóknaráætlun bandaríska flotans gera Norðurlönd og aðliggjandi hafsvæði að vígvelli, ef til styijald- ar kemur. Norðurfloti Sovétríkjanna er al- mennt ekki talinn ógnun við Noröurlöndin. Norðurflotinn er byggður upp í kringum kjarn- orkukafbátana sem eiga að tryggja að Sovétríkin geti svarað óvæntri kjarnorkuvopnaárás frá Banda- ríkjunum. Önnur hlutverk norður- flotans, eins og að torvelda birgðaflutninga yfir Atlantshaf, eru neðar í forgangsröðinni. Af þessum ástæðum er á Norð- urlöndum litið á bandarísku flotaá- ætlunina sem hluta af glímutökum stórveldanna og gagnkvæmu vopnaskaki þeirra. Það em vaxandi áhyggjur um 'að Norðurlönd muni dragast inn í átök Bandaríkjanna og Sovétríkj- anna, sem eiga sér rætur annars staðar í heiminum. Með flotaáætl- uninni em Bandaríkin að opna leið til að flylja hugsanleg átök við Sov- étríkin í þriðja heiminum til Norðurhafa þar sem auðveldara er að sækja að sovésku landsvæði. Deildarstjóri í norska utanríkis- ráöuneytinu, Sverre Jervell, notaði heilt ár í Bandaríkjunum til þess að kynnasér flotaáætlunina. í bók, sem hann skrifaði eftir heimkomu sína, varar hann Norðurlandaþjóð- irnar við að láta sem ekkert hafi í skorist og bregðast ekki við nýjum aðstæðum. í bókinni, Spillet om Norske Havet (Tiden 1987), segir Jervell Norðurlandabúa knúða til að gera ráðstafanir sem miði aö því að draga úr spennunni á milli stór- veldanna í Norðurhöfum. Ef ekki verða Norðurlönd leiksoppar stór- velda sem hafa ekki fyrir sið að taka tillit til smáþjóða þegar hags- munir þeirra sjálfra eru í veði. SERTILBOÐ + TOLLAUiKKUN PPVSnSKÁPUM Nú er tíminn til að fá sér FRYSTISKÁP. Úrval af útlitsgölluðum B1E1SS33BSQ frystiskápum á frábœru verði. Nú 35.802.- star. DÆMI: Frystiskápur H155 - 270 L afsláttur v. útlitsgalla tollalœkkun 53.510.- 10.230.- 3.500.- 39.780,- KRINGLUNNI S. 685440

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.