Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1988, Blaðsíða 30
42
FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1988.
Jarðarfarir
Minningarathöfn um Jón Guð-
mundsson frá Molastöðum, Háuhlíð
6, Sauðárkróki, fer fram frá Sauðár-
^ krókskirkju laugardaginn 6. febrúar
kl. 14. Jarðsett verður frá Kópavogs-
kirkju mánudaginn 8. febrúar kl.
13.30.
Jónína Albertsdóttir frá ísafirði,
verður jarðsungin frá Ísaíjarðarkap-
ellu laugardaginn 6. febrúar kl. 14.
Sigrún Lára Sigurðardóttir verður
jarösungin frá Garðakirkju í dag, 5.
febrúar, kl. 15.
Ingigerður K. Loftsdóttir lést 30.
janúar sl. Hún fæddist á Krossi í
Ölfusi hinn 4. október 1894, dóttir
hjónanna Gróu Gottskálksdóttur og
Lofts Þorsteinssonar. Hún giftist
Óskari Jónssyni en hann lést árið
1944. Þeim hjónum varð fjögurra
barna auðið en þrjú lifa móður sína.
Útfor Ingigerðar verður gerð frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík í dag kl. 15.
Áslaug Guðjónsdóttir lést 29. janúar
sl. Hún var fædd á ísafirði 15. sept-
ember 1903 og voru foreldrar hennar
hjónin Sigríöur Halldórsdóttir og
Guðjón Magnússon. Áslaug giftist
Andrési Einarssyni en hann lést árið
1941. Þeim hjónum varö þriggja
dætra auðið. Síðustu 17 árin starfaði
Áslaug hjá Nóa, Síríus og Hreini.
Útfór hennar verður gerö frá Frí-
kirkjunni í dag kl. 13.30.
Andlát
Eyþór Hallsson, fyrrverandi skip-
stjóri, Lindargötu 24, Siglufirði, lést
í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
4. febrúar.
Sigríður Þórðardóttir frá Hofstöðum,
Dvalarheimili aidraðra, Borgarnesi,
lést 2. febrúar á Sjúkrahúsi Akra-
ness.
Happdrætti
Dregið í happdrætti
Kristilegrar skólahreyfingar
Þann 25. jan. var dregið hjá yfirborgar-
dómara í þúsund miða happdrætti KSH.
Vinningur, Daihatsu Cuore bifreið, kom
á miða nr. 893. Kristileg skólahreyfing
þakkar öllum sem stutt hafa starfið.
Ýmislegt
Myndakvöld Ferðafélagsins
Myndakvöldið veröur í Risinu, Hverfis-
götu 105, miðvikudaginn 10. febrúar og
hefst stundvíslega kl. 20.30. Myndaefni:
Gérard Delavault sýnir loftmyndir og
landlagsmyndir frá eftirtöldum stöðum:
Gígum á Reykjanesskaga, Berserkja-
hrauni og Hnappadal, Landmannalaug-
um, háhitasvæði Torfajökuls, Suðurjökl-
um, Skaftafelli og Öræfajökli. Myndirnar
hafa ekki verið sýndar áður. Eftir hlé
verða sýndar myndir frá síðustu ára-
mótaferð F.í. í Þórsmörk. Myndir frá
kvöldvökum og útimyndir. Aðgangseyrir
er kr. 100. Allir velkomnir félagar og aðr-
ir. Veitingar í hléi.
Vökudeild Barnaspítala
Hringsins
fær hitakassa að gjöf
Kiwanisklúbburinn Hekla í Reykjavik
færði nýverið vökudeild Barnaspítala
Hringsins að gjöf fullkominn hitakassa,
sem ætlaður er til meðferðar og hjúkr-
unar á fyrirburðum og öðrum nýburum,
sem þurfa á gjörgæslu og annarri sér-
meðferð að halda. Starfsliö vökudeildar
vfil hér með koma á framfæri alúðar-
þökkum tfi klúbbfélaga fyrir rausnarlega
og mikilvæga gjöf.
Fræðslukvöld um Trúfrelsi
á íslandi
Fræðslukvöld sem haldið er á vegum
Reykjavikurprófastsdæmis og öllum er
opið veröur í Háteigskirkju nk. þriðjudag
9. febrúar og hefst kl. 20.30. Umræðuefni:
Trúfrelsi á íslandi. „Þegar aðventistar,
hjálpræðisherinn og fleiri fríkirkjuhreyf-
ingar komu til landsins." Fyrirlesari séra
Jónas Gíslason dósent.
Danskeppni1988
Sjöunda íslandsmeistarakeppnin í „free-
style" dönsum er á næsta leiti. Félags-
miöstöðin Tónabær og íþrótta- og
tómstundaráð standa saman að keppn-
inni sjöunda árið i röð. Dansráð íslands
sér um faglegu hUðina, Keppnisflokkar
eru tveir: emstaklingsdans og hópdans
(hópur minnst þrír einstakUngar). Allir
íslenskir unglingar á aldrinum 13-17 ára,
þ.e. fæddir 1971-74 aö báöum árum með-
töldum, hafa rétt til þátttöku. Fyrirkomu-
lag: Dagana 10., 11. og 12. mars fer
forkeppni fram um land allt. Þátttöku-
tilkynningar þurfa að hafa borist hverj-
um forkeppnisstað fjórum dögum fyrir
keppni og þátttökugjald er kr. 100 á
mann. ÚrsUtakeppnin verður föstudag-
Merming
Heima er best.... .eða hvað?
ÁS-leikhúsið sýnir á Galdraloftinu:
Farðu ekki.
Hölundur: Margaret Johansen.
Þýðing: Gunnar Gunnarsson.
Leikmynd: Jón Þórisson.
Leikstjóri: Ásdís Skúladóttir.
í gærkvöldi frumsýndi Ás-leik-
húsiö leikritið Faröu ekki á Galdra-
loftinu viö Hafnarstræti.
í verkinu er fjallaö um ofbeldi á
heimili, en það efni hefur til
skamms tíma verið mikið feimnis-
mál. Eins og oft gerist undir slíkum
kringumstæöum hefur veriö látiö
í veðri vaka aö slíkt ofbeldi væri
næsta fátítt. Þetta hefur síðan haft
þær afleiðingar aö þar sem vanda-
máliö hefur verið fyrir hendi hefur
það veriö falið eftir bestu getu, inn-
an veggja heimilisins, þangað til
allt er komiö í óefni.
Þaö er trú margra að opinská
umræða um máliö geti orðið fórn-
arlömbum ofbeldisins til hjálpar
og veitt þeim kjark til að leita að-
stoðar. Einnig að hræðsla við
afhjúpun geti í sumum tilfellum
haldið aftur af þeim sem hneigðir
eru tfi ofbeldis.
Leikrit Margaret Johansen,
Farðu ekki, er greinilega skrifað í
þeim tilgangi að svipta hulunni af
þessu viðkvæma máli og fjallar um
þann vítahring sem tveir einstakl-
ingar geta lent í þar sem kvalari
og fórnarlamb geta hvorki lifað
saman né heldur skilið. Þau lifa í
þeirri sjálfsblekkingu að þeim tak-
ist af sjálfsdáðum aö yfirvinna
vandamáliö en reyndin er önnur.
En þar sem höfundi er svo mjög
í mun að koma á framfæri lýsingu
á því ástandi sem'þannig gengur
hring eftir hring í sambúðinni er
verkið miklu fremur leikin skýrsla
en dramatisk lýsing á tveimur ein-
staklingum og samskiptum þeirra.
Leikritið ber ekki í sér neina
framþróun í sambandi þeirra
Andrésar og Maríu, aöra en þá sem
tíminn felur í sér. Atriðin eru að
grunni til aðeins endurtekningar
hvert á öðru með smátilbrigðum.
Sama máli gegnir um persónu-
sköpunina. Það verður ekki séð að
persónurnar þróist neitt í verkinu.
Fyrir utan það að drykkja eigin-
mannsins verður sífellt stífári og
höggin þyngri eftir því sem líður á
verkið er lítinn mun á þeim Andr-
ési og Maríu og sambandi þeirra
að finna.
En hvað er höfundurinn að segja
með þessu verki og hvaða lærdóm
'vill hún að áhorfandinn dragi af
sambúðarsögunni? Er Andrés að fá
útrás fyrir vanmetakennd og reiði
þegar hann lúber konu sína fyrir
engar sakir? Eða er hann haldinn
kvalalosta og nýtur þess þar af leið-
andi aö niðurlægja Maríu og
misþyrma henni?
Það er gefið í skyn að vandinn sé
heimanfylgja þeirra beggja. Strax í
upphafi sambands þeirra bera viö-
brögð Maríu með sér aö hún er vön
barsmíðum og höfundur ýjar að
ástæðum, skelþunnum að vísu, fyr-
ir framkomu Andrésar.
Það veikir verkið að ræturnar að
meinsemdinni eru látnar liggja í
fortíð þeirra hvors um sig þannig
að ósköpin, sem yfir þau ganga,
verða eins og einhver óumílýjan-
lega örlög. Sambúðin virðist engu
breyta um nánast sjálfvalin hlut-
verkaskipti þeirra. Strax í upphafi
er María buguð og beygir sig undir
höggin eins og hún hefur gert á
æskuheimilinu. Andrés aftur á
móti tekur upp merki föður síns
og eygir strax við fyrstu kynni
heppilegt fómarlamb þar sem Mar-
ía er. Hann fetar sig áfram, varlega
í fyrstu, en færir sig fljótlega upp
á skaftiö.
Þessi örlagaundirtónn veldur því
að áhorfandinn skynjar ekki sem
skyldi sársaukann sem ætti að vera
fyrir hendi í verki sem þessu og
gengur út að lokinni sýningu harla
glaður vegna þess aö þetta er eitt-
hvaö sem aðeins kemur fyrir aðra.
En öll umgjörö leiksins og út-
færsla leikstjórans, Ásdísar
Skúladóttur, er með miklum ágæt-
um. Leikmynd Jóns Þórissonar er
Jakob Þór Einarsson og Ragn-
heiður Tryggvadóttir í hlutverkum
sinum i „Farðu ekki“.
Leiklist
Auður Eydal
að vonum þröng í því litla rými sem
gefst þarna á Galdraloftinu en gef-
ur engu að síður góða mynd af litlu
heimili ungra hjóna. Með útsjónar-
semi tekst furðu vel að nýta plássið
til sviðsskipta.
Gunnar Gunnarsson hefur þýtt
verkið lipurlega.
Þau Ragnheiður Tryggvadóttir og
Jakob Þór Einarsson leika hjónin
ungu. Bæði ná þau sterkum tökum
á persónunum strax í upphafi. Ná-
vígi við áhorfendur er mikið og
líkamleg og andleg átök harkaleg
og miskunnarlaus. Örugg leik-
stjórn Ásdísar og sannfærandi
leikur þeirra Ragnheiðar og Jakobs
koma þessum atriðum heilum í
höTn.
í fyrri hluta verksins gefast betri
túlkunartækifæri, þar sýna per-
sónurnar fleiri blæbrigði heldur en
þegar átökin magnast og örvænt-
ingin eykst í síöari hlutanum. Þá
er eins og persónusköpunin fletjist
út í stað þess að dýpka og skerpast
og spennan dettur um leið niður.
Hér veldur líka nokkru um sífelld
skipti milli atriða sém mörg hver
eru örstutt.
Ragnheiður nær sterkum tökum
á hlutverki Maríu sem rifjar upp
atburði úr hjónabandi sínu og
Andrésar. Hún nær að sýna öll
blæbrigði ástar og undirgefni,
hræðslu og heiftar, sem textinn
gefur tilefni til. Að vísu virkaði hún
stundum sem sterkari og sjálfstæð-
ari kona en María á að vera, þannig
aö það varð hálfótrúlegt hvað hún
lét yfir sig ganga án þess að rísa
upp gegn taumiausri kýgun og mis-
þyrmingum.
Jakob Þór Einarsson slær af ör-
yggi á marga strengi í hlutverki
eiginmannsins. Andrés er ekki per-
sóna sem á samúð höfundar.
Atferli hans er að mestu látið óút-
skýrt. Hann er bara svona, senni-
lega vegna meðfæddrar ofbeldis-
hneigöar og áhrifa í uppvextinum.
Jakob Þór sýnir útsmoginn kval-
ara, grimman og blíðan til skiptis
í upphafi, en þegar á líður verður
alit hans æöi öfgafyllra og tilvilj-
anakenndara.
Farðu ekki íjallar um efni sem
ekki hefur verið rætt opinskátt fyrr
en á síðustu árám. Þessi sýning
Ás-leikhússins er innlegg í umræð-
una og til þess fallið ásamt öðru
að svipta bannhelginni af þessu
viðkvæma máli. -AE
Lifandi Brahms
Gamall kunningi Sinfóniunnar
stjórnaði tónleikum hennar í gær-
kvöldi; George Cleve frá Bandaríkj-
unum. Hann mun hafa veriö hér
aðalstjómandi veturinn 1971-2 og
fara góðar sögur af starfi hans þá
og tónleika hans minnst með sökn-
uöi.
Cleve byrjaði á Landsýn eftir Jón
Leifs, býsna sterku og frumstæöu
tónverki fullu af íslendingslegri
kergju og þráhyggju. Einhvern
veginn hljómaði það ekki beint
sannfærandi og mætti segja mér
að það öðlaðist allt annað gildi með
karlakór í lokin, eins og gert mun
ráð fyrir í upphaflegri dagskrá.
Á þessum tónleikum var einleik-
arinn líka frá Bandaríkjunum,
Randall Hodkinson píanóleikari.
Tónlist
Leifur Þórarinsson
píanóleikarinn Randall Hodkinson,
sem mun sérstaklega vera kominn
hingað til að styrkja og styðja hug-
myndina góðu um Tónleikahús.
Það var sannarlega fallega hugsað.
Og píanóleikur hans var einnig fal-
legur, glitrandi snjallur, í því
heldur leiðinlega tónverki Rapsód-
íu um stef eftir Paganini eftir
Rakkmanínoff. Og hljómsveitin lék
með af krafti og tilfinningu sem
Cleve vakti yfir af miklu öryggi.
En aðalánægjuefnið var fyrsta
sinfónía Brahms, þetta magnaða
klassísk-rómantíska stórvirki sem
illa spilað getur drepið þrjátíu naut
úr leiðindum. Þama var það spilað
af innilegri sannfæringu, með
sterkum, velhljómandi strengjum
og fögrum blæstri. Það er ekki að
efa að margt í túlkun Cleves kom
á óvart, hraðinn var stundum
býsna greiður fyrir einlæga aödá-
endur þungans þýðverska og
stundum var farið allglæfralega í
„frasana", sérstaklega í lokaþætt-
inum. En þetta var skemmtilegur,
lifandi Brahms, tilgerðarlaus og
hreinn á einstaklega örlátan máta.
-LÞ
inn 18. mars í Tónabæ. Nánari upplýsing-
ar eru veittar í Tónabæ, síma 35935.
E.B. neglur við Laugaveg
Opnuö hefur verið ný handsnyrtistofa að
Laugavegi 33, inngangur frá Vatnsstíg.
Eigandi er Ebba Kristinsdóttir og heitir
stofan E.B. neglur. Ebba starfaði áður á
Cortex og sérhæfir sig í acryl- og gel-
nöglum. Með Ebbu á myndinni er Helle
sem starfar hjá henni.
Ný hársnyrtistofa á Laugavegi
Opnuð hefur verið ný hársnyrtistofa að
Laugavegi 33 b, inngangur frá Vatnsstig.
Eigandi er Ágústa Hreinsdóttir (lengst til
vinstri) en þjá henni starfa einnig Stein-
unn Þorgilsdóttir, Guðrún Alfreðsdóttir
og Mjöll Daníelsdóttir. Stofan var sér-
hönnuð af Tryggva Tryggvasyni arkitekt.
Rætt um unglingabækur á
Rás2
í þættinum „Ekkert mál“ á Rás 2 Rikisút-
varpsins 3. janúar sl. komu tveir ungling-
ar í heimsókn og ræddu um ungl-
ingabækurnar sem komu fyrir jólin 1987.
Það voru þau Sólveig Amardóttir, nem-
andi í 9. bekk Austurbæjarskólans, og
Jón Atli Jónasson, nemandi í Héraðsskól-
anum á Laugarvatni. Uppáhaldsbók
þeirra beggja reyndist vera „Er andi í
glasinu" eftir Rúnar Ármann Arthursson
sem kom út hjá bókaforlaginu Svart á
hvítu. Björn Jónasson, framkvæmda-
stjóri Svart á hvítu, ákvað að gefa þeim
báðum eintak af þessari bók og einnig
af- bókinni „Algjörir byrjendur" eftir
samá höfund sem kom út fyrir jólin 1986.
Á myndinni sést Sólveig taka við bókun-
unm úr hendi Bjöms Jónassonar, en Jón
Atli fékk sínar bækur sendar á Laugar-
vatn.
Neyslustýring
Stjóm Landssambands fiskeldis- og haf-
beitarstöðva (LFH) gerði á fundi sínum
13. janúar sl. svohljóðandi ályktun:
Stjórn Landssambands fiskeldis- og haf-
beitarstöðva (LFH) mótmælir því harð-
lega að lagður er 25% söluskattur' á
vatnafisk, svo sem lax og silung, á meðan
eingöngu er 10% söluskattur á öðmm
neyslufiski, svo sem ýsu, þorski, ufsa og
fleiri tegundum. Hér er vegið að ört vax-
andi atvinnugrein og er nú svo komiö að
stórlega hefur dregiö úr kaupum neyt-
enda innanlands á laxi og silungi. Það
er því verulegt áhyggjuefni að á tímum
umræðna um heilbrigt mataræöi skuli
vatnafiskur vera skattlagður sem um
lúxusvöm sé að ræða. Öllum ætti að vera
kunnug hollusta fisks í mataræðinu. LFH
skorar því á rikisstjórn íslands og Al-
þingi að taka þessa óréttlátu skattlagn-
ingu tafarlaust til endurskoöunar og sjá
til þess að söluskattur á vatnafiski verði
a.m.k. lækkaður niður í 10%.
Lögfræðiaðstoð Orators
félags laganema, er á fimmtudagskvöld-
um kl. 19.30-22 í síma 11012.