Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1988, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1988, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1988. Neytendur Aðeins fimm rækjur í stærstu samlokunni Engar makkarónur fundust Neytendasíðunni hafa borist margar ábendingar í sambandi við rækjusamlokur. Er umkvörtunar- efnið yfirleitt það að engar rækjur séu í samlokunum eða að hagsýnir samlokusmyrjarar drýgi rækjurnar með makkarónum, en fróðir segja að þegar þær eru komnar saman við rækjur, egg og annað gums, auk þess sem búið sé að hylja herlegheitin með kransæðakremi (majónesi), þá sé ekki nokkur leið að þekkja þær úr. Við ákváðum því að kanna máhð og festum kaup á rækjusamlokum frá sjö framleiðendum. Samlokurnar voru teknar og krufnar og leiddi krufningin ýmis- legt áhugavert í ljós. Farin var sú leið að samlokumar voru opnaðar og rækjurnar leitaðar uppi með þvi að krafla í innihaldinu við gott ljós. í könnuninni var ekki tekin afstaða til bragðgæða. Leitarstarfið hófst með því að opn- uð var samloka frá Júmbó (kr. 130). Hún er gerð úr hvítu brauði en hið innra leynist mikið af majónesi. Eftir þó nokkurt krafl tókst okkur að fmna í samlokunni 17 smáar rækjur en auk þeirra var mikið af eggjum sem skor- in höfðu verið í ræmur. Eggin torvelduðu mjög leit. Næst var opnuð heilhveitibrauðs- samloka frá Brauðbæ (kr. 130). Ekki tók langan tíma að kryfja hana, enda blöstu við sjónum manna 24 stórar rækjur og lítiö annað. Þetta var eina samlokan sem stóð undir nafni, sam- loka sem hefur ekkert að fela. Næst á dagskrá var heilhveiti- brauðssamioka frá Sóma (kr. 125). Þetta var sú samloka sem flestar hafði rækjurnar en þær voru alls 37 talsins. Þær voru þó fremur smáar. Einnig var nokkuð af kransæða- kremi og eggjum. Næsta samloka var mikill hlemm- ur, Tröllabiti að nafni (kr. 125). Ekki vantaði gumsið, en athygli vakti að þrátt fyrir ítarlega leit tókst okkur ekki að finna nema fimm rækjur í samlokunni, og það þótt hún væri sú stærsta í hópnum. Þetta er því vissu- lega samloka með rækjum, en minna gæti það ekki verið. Samloka frá Kútter á Hlemmtorgi kom næst (kr. 130). Þetta var heil- hveitibrauðssamloka, nokkuð heið- arleg, en í henni voru tólf stórar rækjur. Síðasta samlokan í prófuninni var frá BSÍ. Þessi var gerð úr hvítu brauði og innihélt hún mikið af eggj- um og majónesi. Þrátt fyrir að þetta væri ein dýrasta samlokan í hópnum (kr. 155) tókst okkur ekki að finna nema 15 rækjur í henni og allar frem- ur væskilslegar. Það er því greinilegt að rækjusam- lokur bera fæstar nafn með rentu. Fólk kaupir samlokumar í góðri trú, og þó ekki sé beinlínis um svik að ræða, eins og t.d. að setja makkarón- ur í staðinn fyrir rækjur, er ekki beinlínis hægt að segja að staðið sé að málum af fyllsta heiðarleik, ef undan eru skildar samlokumar frá Brauðbæ og Sóma. -PLP Samlokurnar góðu fyrir krufningu. DV-myndir GVA Til vinstri er Brauðbæjarsamlokan en til hægri Tröllabiti. Þuvrkaðar baunir lækka í verði Linsubaunir 60 kr Góð frétt fyrir sprengidaginn. Þurrkaðar baunir hafa nú lækkað í verði, þar á meðal gular hálfbaunir. En látum þær bíða betri tíma. Nú verður tekin fyrir önnur baunateg- und sem líka hefur lækkað í verði en það eru linsubaunir. Næringargildi Linsubaunir eru eins og aðrar þurrkaðar baunir góð uppspretta eggjahvítuefna og er þeirra því oft neytt í stað kjöts og fisks. Þær eru einnig járn- og steinefnaríkar og er það mikill kostur í vetrartíö. Meðal bætiefna, sem þær innihalda, eru A, B og E fjörefni og þær innihalda einn- ig járn, magnesíum og fosfór. Þurrkaðar baunir hafa löngum þótt þungar í maga og hefur það fælt margan frá því að neyta þeirra. Hjá þessu er þó hægt að komast enda vel þess virði þar sem kílóverð þeirra er aðeins um 60 krónur. Til að gera þær auðmeltanlegri er gott að leggja þær í bleyti kvöldiö áður en þeirra er neytt. Þá ber að skipta um vatn og skola baunirnar vel áður en þær em soðnar. Næsta skref er svo að sjóða þær vel og lengi. Ekki er talið æskilegt að blanda þeim saman við aðrar tegundir þurrkaðra bauna. Hins vegar er ráðlegt að bera þær fram með grænmeti. Krydd Linsur em sérstakar á bragðið og því ekki hægt að krydda þær með hverju sem er. Nokkrar kryddteg- undir era öðrum æskilegri, til dæmis lárviðarlauf, blóðberg (týmían), kúmen, rósmarín, karrý, negull, sinnep, paprika, pipar og steinselja. Matreiðsla Margar tegundir eru til af linsu- baunum og hægt að matreiöa þær á óteljandi vegu. Hér á eftir fara nokkrar uppskriftir Linsubaunastappa Innihald: 250 g bleyttar linsubaunir 50 g heil hrísgrjón 1 laukur 1 hvítlauksrif Þetta er allt soðið í potti meö tals- verðu vatni í u.þ.b. klukkutíma. Síðan er allt saman maukað og borið fram með ristuðu brauði. Linsur í karrýi að hætti Egypta Innihald: 250 g bleyttar linsur 3 tsk. sterkt karrý 2 laukar 4 hvítlauksrif Linsurnar eru soðnar í u.þ.b. klukkutíma. Á meðan er hitt maukað Mwmmm Er ekki rétt að fara að gefa baunum gaum? Þær geta alveg komið I stað kjöts en eru tiu sinnum ódýrari. . hvert kíló og steikt í karrýi. Öllu er svo blandað vel saman og borið fram heitt. Linsur með grænmeti Innihald: 500 g bleyttar linsur 2 litlir tómatar 1 hvítlaukur 2 gulrætur 250 g spínat 1 kartafla 1 msk paprika olia og salt Linsurnar em settar í eldfast mót ásamt tómötunum, hvítlauknum, paprikunni, lárviðarlaufi og vatni. Þetta er sett í ofn við 150' C í tuttugu mínútur. Þá er bætt við sneiddum gulrótum, kartöflum og spínati, auk olíu. Þetta er svo látið bakast í tutt- ugu mínútur. -PLP 1 U pplýsingaseðill i Hvað kostar heimilishaldið? i | Vinsamlega sendiö okkur þennan svarseðil. Þannig eruð Jjér orðinn virkur þátttak- | andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar I fjölskyldu af sömu stærð og yðar. I ! Nafn áskrifanda Heimili Sími Fjöldi heimilisfólks Kostnaður í janúar 1988: J Matur og hreinlætisvörur I Annað I kr. kr. Alls kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.