Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1988, Blaðsíða 29
FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1988.
41
Fólkífréttuín
Jón A. Baldvinsson
V -
Jón A. Baldvinsson, sendiráðs-
prestur í London, hefur verið í
fréttum DV vegna hjarta- og
lungnaaðgerðar sem gerð var á
ungum íslendingi á þriðjudaginn.
Jón Aðalsteinn fæddist 17. júní 1946
og lauk guðfræðiprófi frá HÍ 1974.
Hann var prestur í Staðarfellspre-
stakalh 1974-1983 og var við nám í
sálgæslu í Edinborg 1978-1979. Jón
hefur verið sendiráðsprestur í Lon-
don frá 1983. Kona Jóns er Margrét
Sigtryggsdóttir, f. 9. nóvember 1947,
kennari og tækniteiknari. Foreldr-
ar hennar eru Sigtryggur Júlíus-
son, rakarameistari á Akureyri, og
kon^ hans, Jóhanna Jóhannsdótt-
ir. Börn Jóns og Margrétar eru
Sigrún, f. 21. desember 1968, nemi
í MA; Róshildur, f. 3. júní 1972,
nemi. Sonur Jóns er Ragnar Þór,
f. 23. júní 1966, húsasmiður á Húsa-
vík, kvæntur Helgu Björgu Sigurð-
ardóttur og eiga þau eitt bam.
Systkini Jóns em Baldur, f. 13.
mars 1948, b. á Hnjúki, kvæntur
Sigrúnu Aðalgeirsdóttur; Baldvin
Kristinn, f. 23. febrúar 1950, b. í
Torfunesi, kvæntur Brynhildi Þrá-
insdóttur; Hildur, f. 10. nóvember
1953, hárgreiðslumeistari á Húsa-
vík, gift Garðari Jónassyni versl-
unarstjóra, og Friðrika, f. 2. febrúar
1961, gift Gunnari Jóhannssyni,
framkvæmdastjóra á Húsavík.
Foreldrar Jóns eru Baldvin Bald-
ursson, b. og oddviti á Rangá í
Ljósavatnshreppi í Þingeyjarsýslu,
og kona hans, Sigrún Jónsdóttur.
Faðir Baldyins er Baldur, b. og
oddviti á Ófeigsstöðum í Kinn,
Baldvinsson, b. og oddvita á Ófeigs-
stöðum Baldvinssonar, b. í Nausta-
vík, bróður Kristjönu, móður
Benedikts Sveinssonar alþingis-
forseta, föður Bjarna forsætisráð-
herra. Baldvin var sonur Sigurðar,
b. á Hálsi í Kinn, bróður Krist-
bjargar, langömmu Jóns Múla og
Jónasar Árnasona. Sigurður var
sonur Kristjáns, b. og dbrm. á 111-
ugastöðum Jónssonar, bróður
Björns, langafa Kristínar, ömmu
Inga Tryggvasonar og Kristínar
Halldórsdóttur alþingismanns.
Móðir Baldurs á Ófeigsstöðum var
Kristín Jónasdóttir, b. á Sílalæk
Guðmundssonar, b. á Sílalæk Stef-
ánssonar, b. á, Sílalæk Indriðason-
ar, b. á Sílalæk Árnasonar,
forföður SOalækjarættarinnar.
Móðir Guðrúnar var Guðrún Jóns-
dóttir, b. í Stóm-Tungu í Bárðardal
Jónssonar, bróður Guðrúnar,
ömmu Helgu, ömmu prófessoranna
Björns Þorsteinssonar og Þor-
bjarnar Sigurgeirssonar. Móðir
Baldvins var Hildur, systir Helgu,
móður Jónasar Jónssonar búnað-
armálastjóra. Hildur var dóttir
Friðgeirs, b. á Þóroddsstað Kristj-
ánssonar. Móðir Friðgeirs var
Bóthildur Grímsdóttir, b. á Krossi
í Ljósavatnshreppi Einarssonar og
konu hans Sigurbjargar Pálsdótt-
ur, móður Jónasar Jónssonar á
Hriflu og Kristjáns, föður Jónasar,
forstööumanns Ámastofnunar.
Móðir Hildar var Kristbjörg Ein-
arsdóttir, b. í Björgum í Kinn,
Grímssonar, bróður BóthOdar.
Sigrún er dóttir Jóns, b. á Hömr-
um í Reykjadal, bróður Júlíönu,
móður Stefáns Haraldssonar yfir-
læknis. Jón var sonur Friðriks, b.
og pósts á Helgastöðum Jónssonar,
b. á Kraunastöðum í Aðaldal Jóns-
sonar. Móðir Jóns á Kraunastöðum
var Herborg Helgadóttir, b. á
Skútustöðum Ásmundssonar, for-
föður Skútustaðaættarinnar.
Móðir Jóns var Guðrún Þorgríms-
dóttir, b. í Hraunkoti í Aðaldal
Halldórssonar, b. á Bjamastöðum
í Báröardal Þorgrímssonar. Móðir
Hahdórs var Vigdís Hahgrímsdótt-
ir, b. í Hraunkoti í Aðaldal Helga-
sonar, forfóður Hraunkotsættar-
innar. Móðir Guðrúnar var
Guðrún Jónsdóttir, b. í Haga Áma-
sonar, og konu hans, Helgu Jóns-
dóttur af Hólmavaðsættinni, systur
Jóns á Hafralæk, afa skáldanna
Guðmundar á Sandi og Sigurjóns á
Litlu-Laugum og Áslaugar Frið-
jónsdóttur, móður Karls ísfelds
skálds. Móðir Sigrúnar var Frið-
rika Sigfúsdóttir, b. á Hahdórsstöö-
um í Reykjadal Jónssonar, b. á
Sveinsströnd í Mývatnssveit Jóns-
sonar, b. á Skútustöðum Helgason-
ar, bróður Herborgar. Móðir
Sigfúsar var Marja Gísladóttir, b. á
Skörðum í Reykjahverfi Gíslason-
ar og Guðrúnar, móður Jóns
Stefánssonar, Þorgils gjallanda.
Jón A. Baldvinsson.
Guðrún var dóttir Jóns, prests í
Reykjahlíð Þorsteinssonar, forföð-
ur Reykjahlíðarættarinnar. Móðir
Jóns var Sigríður, systir Sigurðar
skálds á Arnarvatni og Jóns á
Múla, afa Jóns Múla og Jónasar
Árnasona. Sigríður var dóttir Jóns,
b. og skálds á Helluvaði Hinriks-
sonar, af Harðabóndaættinni.
Móðir Sigríöar var Friðrika Helga-
dóttir, systir Jóns og Herborgar.
Bessí Jóhannsdóttir
Bessí Jóhannsdóttir kennari,
Hvassaleiti 93, Reykjavík, er fertug
í dag. Bessí fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp í foreldrahúsum. Hún
lauk stúdentsprófi frá MR 1967, BA
prófi í sagnfræði og félagsfræði við
HÍ 1973, cand. mag. prófl 1979 og
prófi í uppeldis- og kennslufræðum
1978. '
Bessí hefur verið stundakennari
við MR og við Kennaraháskóla ís-
lands en hún var kennari við
Kvennaskólann í Reykjavík frá
1973-1980 og kennir nú við VÍ. Bessí
var varaformaður Hvatar, félags
sjálfstæðiskvenna í Reykjavík, frá
1975-77 og formaður frá 1981-83.
Hún átti sæti í framkvæmdastjórn
Sjálfstæðisflokksins 1978-80 og aft-
ur frá 1987. Þá er hún í miðstjórn
Sjálfstæðisflokksins frá 1987 og
formaður fræðslunefndar Sjálf-
stæðisflokksins. Bessí var vara-
borgarfuhtrúi frá 1974-82. Hún sat
í félagsmálaráði og fræðsluráði
Reykjavíkurborgar frá 1982-86 og
sat í stjórnarnefnd Borgarbóka-
safnsins frá 1979-86. Hún hefur
verið formaður Rannsóknastofn-
unar uppeldismála frá 1986,
formaður skólanefndar Kvenna-
skólans í Reykjavík og hefur setið
í úthlutunarnefnd listamanna-
launa.
Bessí giftist 3.2.1968 Gísla, f.11.2.
1947, forstjóra Bifreiða og land-
búnaðarvéla, syni Guðmundar,
forstjóra í Reykjavík, Gíslasonar
ogkonu hans Ernu, Adolphsdóttur.
Bessí og Gísli eiga tvö börn: Ema
verslunarskólanemi, f.5.5. 1968, er
unnusta Jóns Kára Hilmarssonar
viðskiptafræðinema; Guðmundur,
f.12.2.1975, er nemi í foreldrahús-
um.
Bessí á fjögur systkini: Ósk Sól-
veig, húsmóðir í Reykjavík, f.30.10.
1946, átti Skæring Eyjólfsson bif-
vélavirkja; Ásta, Verslunarstjóri í
Reykjavík, f.3.2. 1950, átti Bjarna
Jóhannsson verslunarstjóra;
Björgvin Þór, þroskaþjálfí í Reykja-
vík, f.22.1. 1951, átti Marianne
Susanne; og Bessi, f.3.12. 1960.
Foreldrar Bessíar eru Jóhann
Þór Bessason, bifvélavirki í
Reykjavík, f.28.5. 1926, og kona
hans, Arnheiður Björgvinsdóttir
verslunarmaður, f.19.5. 1927. Arn-
heiður er frá Seyðisfirði, dóttir
Björgvins verkamanns þar Jóns-
sonar og Sólveigar Jónsdóttur.
Föðuramma Bessíar var Ástríður,
dóttir Þórðar Þorvarðssonar og
konu hans, Arndísar Erlendsdótt-
ur. Föðurail Bessíar var Bessi,
sjómaður á Akureyri og í Reykja-
vík, sonur Einars Baldvins, b. og
alþingismanns á Hraunum í Fljót-
um, Guðmundssonar b. á Hraun-
um, Einarssonar, bróður Baldvins,
þess er gaf út Ármann á Alþingi.
Bróðir Bessa var Guðmundur, fað-
ir Kristínar, móður Þorsteins
tannlæknis, föður Kristínar út-
varpsfréttamanns. Annar bróðir
Bessí Jóhannsdóttir.
Bessa var Páll, borgarstjóri í
Reykjavík, faðir Ólafs verkfræð-
ings, föður Unnar veðurfræöings
sem gift er Þórarni Eldjárn rithöf-
undi. Hálfsystir Ólafs var Kristín,
móðuramma Eddu leikkonu og
Freys jarðfræðings Þórarinsbarna.
Meðal systra Bessa var Jórunn,
móðir Kristínar, konu Páls ísólfs-
sonar og móður Þuríðar óperu-
söngkonu og Einars skólastjóra.
Systir Kristínar var Katrín, móðir
Jórunnar Viðar, móður Katrínar
Fjeldsted borgarráðsmanns. Móðir
Bessa var Kristín Pálsdóttir, prests
og sálmaskálds á Völlum í Svarfað-
ardal Jónssonar, systir Gísla á
Grund í Svarfaðardal, afa Einars
Olgeirssonar alþingismanns.
Andlát
Friðfinnur Kærnested Konráðsson
Friðflnnur Kærnested Konr-
áðsson matsveinn varð bráð-
kvaddur fyrir utan heimhi sitt að
Hverfisgötu 18, Hafnarfirði, 24.
janúar sl. Hann fæddist á Akur-
eyri 3.4. 1920. Friðfinnur fluttist
með foreldrum sínum til Hafnar-
fjarðar 1926 og þar bjó hann alla
tíð síöan.
Friðfinnur kynntist 1947 Lilju
Sigurðardóttur, f. 13.10. 1913, og
giftu þau sig nokkru síðar. Lilja
átti fyrir fimm börn en þau Frið-
finnur eignuðust sjö börn. Þau
eru: Bára Fjóla, f. 1948, fóstra og
húsmóðir í Hafnarfirði, gift
Halldóri Gunnlaugssyni stýri-
manni; Guðmundur, f. 1949,
sjómaður í Hafnarfirði; Reynir,
f. 1952, verkamaður í Hafnarfirði;
Konráð, f. 1953, verkamaður í
Hafnarfirði; Sigurður, f. 1954,
verkamaður í Hafnarfirði,
kvæntur Karlottu Hafsteinsdótt-
ur húsmóður; Sólrún, f. 1956,
húsmóðir í Hafnarfirði;.og Sig-
fríður, f. 1959, verslunarmaður.
Systkini Friðfinns eru: Kristín,
ekkja í New York; Hinrik, starfs-
maður í Steinullarverksmiðju í
Mors í Noregi; og Ragnar, húsett-
ur í Reykjavík en hann starfaði
lengi á Landspítalanum.
Foreldrar Friðfinns eru báðir
látnir en þeir voru: Konráð, sjó-
maöur í Hafnarfirði, Þorsteins-
son og kona hans, Sólrún Þóra,
húsmóðir og lengi starfsstúlka á
Vífilsstaðahælinu, Kristjánsdótt-
ir.
Friðfinnur Kærnested Kon-
ráðsson.
Útförin fer fram frá Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði föstudaginn
5.2. klukkan 13:30.
______________________________Afmæli
Þórarinn Ólafsson
Þórarinn Ólafsson húsasmiður, laug eignuðust tvær dætur.
Tunguvegi 10, Reykjavik, er att-
ræður í dag. Þórarinn fæddist að
Laxárdal í Þistilfirði og ólst þar upp
í foreldrahúsum. Hann stundaði á
unghngsárunum öll almenn sveita-
störf en fór til náms tvo vetur að
Alþýðuskólanum á Laugum. Þór-
arinn lærði húsasmíði í Reykjavík
og tók sveinspróf á Húsavík 1936
og vann við húsasmíðar á Þórshöfn
til 1940. Þá flutti hann til Reykja-
víkur þar sem hann hefur búið
síðan og starfað við húsasmiðar.
Kona Þórarins er Guðlaug, dóttir
Ólafs vélstjóra Sæmundssonar og
Jóninu Dagnýjar Hansdóttur.
Guðlaug á þrjár dætur frá fyrra
hjónabandi en Þórarinn og Guð-
Til hamingju
85 ára
Jakob Gunnlaugsson, Móabaröi 6,
Hafnarfirði, er áttatíu og fimm ára
í dag.
80 ára
Guðleif Jónsdóttir, Egilsgötu 6,
Borgarnesi, er áttræð í dag.
70 ára_________________________
Ólafur Jónsson, Arnarholti, er sjö-
tugur í dag.
Lárus Jónatansson vélvirki, Ara-
hólum 4, Reykjavík, er sjötugur í
dag.
Óskar Ingvarsson, Meiöavöllum,
Kelduneshreppi, er sjötugur í dag.
Dæturnar eru Lára, Dagný, Helga,
Guðrún Guðmunda og Vilborg, all-
ar húsmæður í Reykjavík.
Þórarinn átti níu systkini en á
nú fjögur systkini á lífi.
Foreldrar Þórarins voru Ólafur,
b. á Laxárdal, Þórarinsson og kona
hans, Guðrún Guðmunda Þorláks-
dóttir, Einarssonar. Föðurforeldr-
ar Þórarins voru Þórarinn, b. og
smiður á Efri-Hólum í Norður-
Þingeyjarsýslu og síðar í Laxárdal,
Benjamínsson, og kona hans, Vil-
borg Sigurðardóttir, ættuð úr
Jökuldalnum.
Þórarinn mun ásamt konu sinni
og dætrunum fimm dvelja erlendis
á afmælisdaginn.
með daginn!
Kjartan Björnsson, Kolbeinsgötu
6, Vopnafirði, er sjötugur í dag.
60 ára
Ingvi Björn Antonsson vigtarmað-
ur, Hjarðarslóð 4E, Dalvík, er
sextugur í dag.
40 ára
Magnús Sverrisson, Marargötu 3,
Reykjavík, er fertugur í dag.
Reynir Kjartansson, Nesbala 76,
Seltjarnarnesi, er fertugur í dag.
Regina Sigurðardóttir, Þórunnar-
stræti 129, Akureyri, er fertug í dag.
Ragnheiður E. Torfadóttir, Lerki-
lundi 17, Akureyri, er fertug í dag.
Tilmæli til afmælisbarna
Blaðið hveturafmælisbörn og að-
standendur þeirra til að senda því myndir
og upplýsingar um frændgarð og starfs-
sögu þeirra.
Þessar upplýsingar þurfa að berast
í síðasta lagi tveimur dögum
fyrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir