Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1988, Side 7
FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1988.
7
Fréttir
Danska stúlkan horfin frá Noregi:
Meinað að tala
við dóttur mína
- segir Inge Lise Jespersen
Inge Lise Jespersen heldur á mynd af Piu, dóttur sinni. Öllum ber saman
um að Pia hafi verið eðlileg og heilbrigð stúlka til 14 ára aldurs en bá fór
að bera á alvarlegum vandamálum. DV-mynd GVA
Danska stúlkan sem hvarf frá ís-
landi til Neregs í júlí síðastliðnum,
Pia Jespersen, er horfm frá Noregi
og veit norska barnaverndarnefndin
ekki hvar hún er niðurkomin. Þessar
upplýsingar staðfesti Snjólaug Stef-
ánsdóttir hjá bamaverndamefnd
Reykjavíkur. Norska barnavemdar-
nefndin hefur hingað til neitað að
gefa móður Piu upp símanúmer eða
heimilisfang hennar þar sem stúlkan
hefur óskað eftir að halda því leyndu.
í slagtogi með eldri manni
Pia Jespersen, sem varð 16 ára í
nóvember síðasthðnum, hvarf úr
vörslu bamaverndarnefndar 1. júlí
síðastliðiö sumar og var hennar leit-
aö í 5 vikur áður en hún fannst hjá
36 ára gömlum móðurbróður sínum
í Noregi, Peter Jespersen, sem hún
virðist eiga í ástarsambandi við.
Hann borgaöi farmiða fyrir hana úr
landi undir fólsku nafni. Á undan-
íomum tveimur árum hefur hann
átta sinnum hjálpað Piu að strjúka
að heiman eða úr skóla en hún stakk
fyrst af til Noregs í júní 1986. Móðir
Piu, Inge Lise Jespersen, er ekki viss
um hvort dóttir sín dvelji nú hjá
bróðurnum en er mjög uggandi um
andlega og líkamlega heilsu dóttur
sinnar því hún segir bróður sinn
hafa misnotað dóttur sína kynferðis-
lega frá því hún var 14 ára gömul
jafnframt sem hún grunar hann um
að gefa henni eiturlyf. Frá þeim tima
sem samband þeirra hófst fór að bera
á alvarlegum vandamálum hjá Piu.
Hefur hún m.a. sagt frá því að hún
muni bráðlega deyja en ekki viljað
skýra það nánar. Inge Láse Jespersen
er jafnvel hrædd um að líf dóttur
sinnar sé í hættu.
Flókin fjölskyldubönd
Inge Lise hefur þrábeðið norsku
barnavemdarnefndina og lögregl-
una um að fá að heyra í dóttur sinni
en hefur veriö neitað þar sem Pia
vill ekki ræða við fjölskyldu sína og
heldur því m.a. fram að fósturfaðir
sinn hafi haft í frammi við sig kyn-
ferðislega áreitni. Fósturfaðirinn
hefur neitað þessum ásökunum. Inge
Lise segir bróður sinn hafa komið
þessu inn hjá Piu til að draga athyg-
lina frá misgjörðum sjálfs sín auk
þess sem hann sé ekki heill á geös-
munum. „Hann er hommi og auk
þess að hafa misnotað dóttur mína
kynferðislega átti hann í kynferðis-
legu sambandi við fyrrverandi
eiginmann minn, föður Piu, og er það
orsök þess að við skildum fyrir tæp-
um tíu árum. Mér virðist þetta vera
barátta geðsjúks manns á móti syst-
ur sinni og er eini tilgangurinn að
eyðileggja líf mitt,“ sagði Inge Lise
Jespersen í samtali við blaðamann
DV.
„Norska lögregtan gerir fátt“
Inge Lise Jespersen og núverandi
eiginmaður hennar fluttu til íslands
með fjölskyldu sína vorið 1987 til að
koma Piu úr fyrra umhverfi í þeirri
von aö það gæti hjálpað henni. Þá
komst stúlkan strax í umsjá barna-
verndarnefndar. En að sögn Inge
Lise hefur Peter Jespersen ótrúlegt
vald yfir stúlkunni og reynir hún
ávallt aö komast til hans aftur. Inge
Lise vill að Pia fái læknis- eða sál-
fræðimeðferð á íslandi. „Ég hef verið
í sambandi við norsku lögregluna og
barnavemdarnefnd en mér virðist
lítið vera gert í máhnu auk þess sem
mér er meinað að tala við dóttur
mína. Bróðir minn var settur í
gæsluvarhald í fjórar vikur í lok síð-
asta árs vegna ásakana minna. Ég
veit ekki hvar Pia dvaldist á meðan
en mér var sagt að ef ég kærði hann
ekki formlega yrði honum sleppt. Ég
sendi þrjár kæmr á hann en samt
sem áður var honum sleppt úr fang-
elsinu 17. desember og ekkert gert
frekar í málinu. Mér finnst þetta
mjög einkennileg málsmeðferð og
virðist mér þetta fólk ekki ætla að
hjálpa stúlkunni til aö fá rétta með-
höndlun. Pia hefur ásakað fósturfóð-
ur sinn um kynferðislega áreitni og
er sú fullyrðing ein sér næg ástæða
til þess að koma Piu undir læknis-
hendur og reyna að greiða úr þeim
sálarflækjum sem hún á við að etja.
Ég mun halda áfram að berjast fyrir
því aö koma dóttur minni í réttar
hendur svo henni verði hjálpað. Okk-
ur þykir öllum vænt um hana og öll
fjölskyldan saknar hennar en við
virðumst htið geta gert.“
Norska barnaverndarnefndin
til íslands
Tveir starfsmenn norsku barna-
verndarnefndarinnar komu til ís-
lands 16. desember síðsthöinn til að
kanna aðstæður og bakgrunn Piu. í
lok desember fékk móðir hennar svo
sent bréf þess efnis aö barnavemdar-
nefndin vilji ekki aö stúlkan hafi
samband viö móöur sína þar til hf
hennar verði komið í jafnvægi. Segir
í bréfinu að andlegt ástand Piu sé
ekki gott og gæti þaö orðið henni til
tjóns aö hitta móður sína. En nú er
stúlkan aftur horfin og enginn veit
hvar hún er niðurkomin.
-JBj
Liðið sem keppir fyrir Islands hönd á skólaskákmótinu i Finnlandi ásamt
fararstjórum (aftasta röð frá vinstri): Ingi Fjalar Magnússon, Hannes Hlifar
Stefánsson, Davið Ólafsson, Andri Áss Grétarsson, Þröstur Árnason, Snorri
Karisson, Rikharður Sveinsson fararstjóri og Ólafur H. Ólafsson fararstjóri.
(Miðröðin frá vinstri): Héðinn Steingrimsson, Helgi Áss Grétarsson og Þór-
leifur Karlsson. Fremstur er Arnar Gunnarsson. DV-mynd S
Norrænt skólaskák-
mót í Finnlandi
Árleg einstaklingskeppni í norr-
ænni skólaskák fer fram í Espoo,
Finnlandi dagana 4.-7. febrúar. Tíu
íslenskir keppendur taka þátt í
keppninni í fimm aldursflokkum.
Keppni þessi er ein af þremur árleg-
um Noröurlandamótum í skólaskák
sem haldin eru til skiptis á Norður-
löndunum.
Undanfarin ár hafa íslendingar átt
vaxandi velgengni að fagna í norr-
ænu skólaskákmótunum. í einstakl-
ingskeppninni 1987 unnu íslendingar
þrjá flokka af fimm. Þá hafa íslensk-
ar grunnskóla- og framhaldsskóla-
sveitir unnið Norðurlandamót á
hverju ári síöan 1984. íslenska liðið
skipa: Andri Áss Grétarsson, Davíð
Ólafsson, Hannes Hhfar Stefánsson,
Þröstur Árnason, Snorri Karlsson,
Ingi Fjalar Magnússon, Héðinn
Steingrímsson, Þórleifur Karlsson,
Helgi Áss Grétarsson og Arnar
Gunnarsson. -JBj
OVTO ,.
JIS
jauaan'S
, hiQ34ó:>:itA
600
ENGIN UTBORGUN - ENGIR VEXTIR
KYNNTU ÞÉR SÉRTILBOÐ OKKAR
Vörumarkaðurinn h(.
Kringlunni sími:68 5440