Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1988, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1988, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 28. MARS 1988. Viðskipti___________________________________________________________________________pv Þoivaldur Gytfason hagfræðiprófessor: Gengisfellingin ónauðsynleg Þorvaldur Gylfason, prófessor í hag fræöi við Háskóla íslands. Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggö Sparisjóðsbækurób. 19-20 Ib.Ab Sparireikningar 3jamán. uppsögn 19-23 Ab.Sb 6mán. uppsogn 20-25 Ab 12 mán. uppsögn 21-28 Ab 18mán. uppsögn 32 Ib Tékkareikningar, alm. 8-12 Sb Sértékkareikningar 9-23 Ab Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir 6mán. uppsögn 3,5-4 Ab.Úb, Lb.Vb, Bb.Sp Innlán með sérkjörum 19-28 Lb.Sb Innlángengistryggð Bandaríkjadalir 5,75-7 Vb.Sb Sterlmgspund 7,75-8.25 Úb Vestur-þýskmörk 2-3 Ab Danskar krónur 7,75-9 Vb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvixlar(forv.) 29,5-32 Sp Viðskiptavíxlar(forv.)(1). kaupgengi Almenn skuldabrél 31-S5 Sp Viðskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdr) 32,5-36 Sp Utlán verðtryggð Skuldabréf 9,5-9,75 Allir nema Úb Utlántilframleiðslu Isl. krónur 30,5-34 Bb SDR 7,75-8.25 Lb.Bb, Sb Bandarikjadalir 8,75-9,5 Lb.Bb, Sb.Sp Sterlingspund 11-11,5 Úb.Bb, Sb.Sp Vestur-þýsk mórk 5-5,75 Úb Húsnæðislán 3.5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 45,6 3.8 á mán. MEÐALVEXTIR överðtr. feb 88 35,6 Verðtr. feb. 88 9.5 ViSITÖLUR Lánskjaravisitala mars 1968stig Byggingavísitala mars 343stig Byggingavisitala mars 107,3 stig Húsaleiguvísitala Hækkaði 9% . jan. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Avoxtunarbréf 1,3927 Einingabréf 1 2,670 Einingabréf 2 1,555 Einingabréf3 1.688 Fjólþjóðabréf 1,342 Gengisbréf 1,0295 Kjarabréf 2,724 Lífeyrisbréf 1.342 Markbréf 1,416 Sjóðsbréf 1 1.253 Sjóðsbréf 2 1,365 Tekjubréf 1,390 HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennartryggingar 128 kr. Eimskip 420 kr. Flugleiðir 284 kr. Hampiðjan 144 kr. Iðnaöarbankinn 177 kr. Skagstrendingurhf. 189 kr. Verslunarbankinn 140 kr. Útgeróarf. Akure. hf. 174kr. (1) Við kaup á viðskiptavlxlum og viö- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaukpa viðskiptavlxla gegn 31%ársvöxt- um ög nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb=lönaðar- bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um penlngamarkaö- inn birtast f DV á fimmtudögum. betra að draga úr opinberum útgjóldum Þorvaldur Gylfason hagfræðipró- fessor segir það alvarlegt áfall fyrir ríkisstjómina að hafa séð sig knúna til að fella gengi krónunnar þegar eitt af meginatriðum í stefnu hennar væri að halda genginu stöðugu. Enn- fremur telur Þorvaldur að gengis- felling í miðjum kjarasamningum, en gengið var fellt þann 29. febrúar síðastliðinn, sé ekki vænleg til árang- urs, því hún kalli á samsvarandi kauphækkun næstum strax og að fiskvinnslufyrirtækin, sem ætlunin var að hjálpa, verði trúlega engu betur sett innan skamms en áður. Þjóðarheildin verði hins vegar verr sett en áður vegna aukinnar verð- bólgu af völdum gengisfellingarinn- ar. Þetta kemur fram í grein Þorvalds Gylfasonar í nýjasta hefti Vísbend- ingar, vikurits Kaupþings hf., um viðskipti og efnahagsmál. Þorvaldur segir að ríkisstjómin hafi sjálf gefið þá skýringu fyrir gengisfellingunni að fiskvinnslan hafi verið rekin með óbærilegu tapi og að gengisfelling- unni hafi verið ætlað að færa fisk- vinnslufyrirtækjum um 3 milljarða á árinu til að fleyta þeim yfir erfiðleik- ana. „Var gengisfelling þá besta fiáröfl- unaraðferðin? Nei. Þetta stafar ekki aðeins af því að gengisfellingin dugir aö öllum líkindum ekki við núver- andi aðstæður til annars en að kynda undir verðbólgu þvert ofan í ásetning ríkisstjórnarinnar, heldur einnig af því að aðrar leiðir vom færar,“ segir Þorvaldur. Og síðar: „Það var til dæmis hægt að draga fyrirhuguð opinber útgjöld saman um 3 milljarða króna og færa (eða lána) fiskvinnslunni þessa fiár- hæð gegn því skilyrði að hún gerði rækilegar ráðstafanir til hagræðing- ar í rekstri. Hvaða útgjöld? Margt kemur til greina. Árin 1984-87 hækk- uðu ríkisútgjöld um 160 prósent, þótt verðlag hækkaði „aðeins“ um 90 pró- sent á mælikvarða vísitölu fram- færslukostnaðar. Þessi þijú ár jukust ríkisútgjöld um 8 til 9 milljarða króna á ári að raungildi á núverandi verð- lagi.“ Þá segir Þorvaldur: „Það er aö visu auðvelt að fella gengið. Það er hægt með einu pennastriki. En gengisfell- ing er verðbólguráðstöfun, sérstak- lega við núverandi aðstæður. Strangt aðhald í ríksfiármálum hefði hins vegar dregið úr verðbólgu og auð- veldað áframhaldandi gengisfestu, en þaö hefði jafnframt útheimt erfið- ar ákvarðanir." Og loks: „Það er til dæmis eftirtekt- arvert, að fyrirhuguð bygging nýs alþingishúss, ráðhúss og veitinga- húss hitaveitunnar í Reykjavík á vegum ríkisins og Reykjavíkurborg- ar mun eiga að kosta svipaða upphæð og gengisfellingin færöi fiskvinnsl- unni eða 3 milljarða króna og reyndar ríflega það,“ segir Þorvaldur Gylfason. -JGH Iðnlánasjóður malar gull Iðnlánasjóður skilaði rúmiega 263 milljóna króna hagnaði á síö- asta ári. Ástæðan fyrir þessum mikla hagnaöi er fyrst og fremst sú að sjóðurinn tók erlend lán sem báru lága raunvexti vegna gengis- þróunarinnar, en lánaði hins vegar verötryggð lán með 7,1 prósent vöxtum. Mismunurinn á þessum ólíku vaxtakjörum, um 380 milljón- ir króna, rann í sjóðinn. Sjóðurinn þurfti að afskrifa lán aö fiárhæð 116 milljónir króna á síðasta ari. Þaö eru um 2,5 prósent af heildarútlánum. Þetta haföi þó ekki áhrif á góöa afkomu sjóösins. Á þremur árum hefur eigiö fé sjóðsins vaxið úr 410 milljónum króna f 1.501 milijón. Hann er nú oröinn næststærsti atvinnuvega- sjóðurinn á eftir Fiskveiðasjóði. . -gse Þetta ár ræður úrslitum í Norður- AHantshafsfluginu - segir Sigurður Helgason, forsljóri Flugleiða Sigurður Helgason, forsfióri Flug- leiða, segir í viðtali við fréttablað starfsmanna Flugleiða að þetta ár ráði úrslitum um hvernig rekstri Norður-Atlantshafsflugs félagsins verði háttað í framtíðinni. „Það er Ijóst að arðsemin af rekstri Flugleiða verður í framtíðinni að vera mun meiri en hún hefur verið á seinni árum ef okkur á að takast að endumýja flugflotann og mæta aukinni samkeppni," segir Sigurður ennfremur. „Ef áframhaldandi rekstur At- lantshafsflugsins í núverandi mynd samræmist því ekki þá er ég hrædd- ur um að við veröum aö finna þessum rekstri annan grundvöll eða draga verulega úr honum ella, að minnsta kosti hlutfallslega. Ég lít svo á að þetta ár ráði úrslitum hvað þetta varðar.“ -JGH Sigurður B. Stefánsson hagfræðingur: Stjómmálamenn hætti að vemda þá sem steypa sér í skuldir Sigurður B. Stefánsson, hagfræð- ingur og forstöðumaður verðbréfa- markaðar Iðnaðarbankans, heldur því fram að stjórnvöld verði að hlúa betur að þeim sem vilja spara og safna eignum, ef takast á að ná því nauðsynlega marki að snúa við hugs- unarhætti skuldarasamfélagsins á íslandi og stöðva söfnun erlendra skulda. „Sfiómmálamenn verða að hætta að vemda sífellt þá sem steypa sér í skuldir og stundum án nægrar fyrirhyggju.“ Þetta kemur fram í grein sem hann skrifar í nýjasta tölublað Verðbréfa-' markaðar Iðnaðarbankans. Sigurður segir ennfremur: „Þrátt fyrir að kjör sparenda hafi mjög snú- ist til hins betra á níunda áratugnum nægir spamaður þjóðarinnar enn ekki fyrir fiárfestingu innanlands. Á árinu 1988 er talið að 10 til 15 millj- arða vanti upp á og sú fiárhæð, jöfn viðskiptahallanum, bætist við er- lendar skuldir landsmanna.“ -JGH Sigurður B. Stefánsson, hagfræð- ingur og forstööumaöur verðbréfa- markaðar Iðnaðarbankans. Verðbólgan á íslandi færist á hærra plan Verðbólgan á íslandi hefur frá ár- inu 1960 sífellt farið vaxandi. í nýjasta fréttabréfi Verðbréfavið- skipta Samvinnubankans er ísland borið saman við OECD-löndin á nokkmm tímbabilum frá árinu 1960. Niðurstaðan er eins og vænta mátti sú að veröbólgan á íslandi vex með hverju árinu - og færist sífellt á hærra plan. -JGH Vodkinn Eldurís á fleiri staði Glenmore Distilleries, umboðs- aðili vodkans Eldurís í Bandaríkj- unum, ætlar nú að færa út kvíamar og markaðssefia Eldurís í Michiganfylki. Hingaö til hefur Eldurís aðeins fengist í Washington DC, Baltimore, Maryland og Kentucky. Þess má geta að markaðsherferð Eldurís vodkans hefur vakið at- hygh og komist á hsta yfir bestu herferðimar í Bandaríkjunum. -JGH Forstöðumaður nýstofnaðs Verð- bréfamarkaðar Útvegsbankans, Friðrik St. Halldórsson. Friðrik St. Halldórsson Friörik St. Hahdórsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Verðbréfa- markaðar Útvegsbankans. Hann er 28 ára viðskiptafræðingur og hefur starfað hjá Útvegsbankanum í sex ár. Síðustu þrú árin hefur hann unnið hjá Iðntæknistofmm íslands sem fiármálasfióri. Friðrik er kvæntur Bergljótu Frið- riksdóttur nemanda og eiga þau eitt bam. -JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.