Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1988, Síða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1988, Síða 44
60 MÁNUDAGUR 28. MARS 1988. Sviðsljós DV Ólyginn sagði... Madonna hefur fengiö svo margar lífláts- hótanir um ævina aö henni er hætt að standa á sama. Hún á stóra villu við Malibu í Banda- ríkjunum og nýlega lét hún byggja fjallháa veggi meö gadda- vírsgiröingum kringum villu sína. Auk þess er hún búin aö koma fyrir sjálfvirku þjófavarn- arkerfi og tveir hundar af rott- weilerkyni (eins og þessi í rússneska sendiráðinu) spranga um garðinn hjá henni ef einhver skyldi komast yflr giröinguna. Langar einhvern að prófa? Raquel Welch er kyntákn og þarf náttúrlega aö gera mikiö til þess að viðhalda því tákni. Eitt af því er aö klæö- ast réttu fotunum og gæta þess aö þau passi. Um daginn fór hún í búöir fll þess að kaupa sér galla- buxur en var búin aö eyða mörgum klukkustundum í leit áöur en hún fann buxur sem pös- suöu og hún var ánægö meö. Þegar þaö loks tókst keypti hún 12 pör svo hún þyrfti ekki aö leggja á sig erfiðið aftur. Tom Cruise er frægur leikari og þykir með laglegri mönnum. Vegna fríö- leika síns fær hann oft hin ótrúlegustu tilboð. Arabahöföingi einn, sem veður í peningum, bauö Tom rúmar fjörutíu milljónir króna ef hann vildi koma í af- mælisveislu dóttur sinnar og syngja þar rokklag en hann mátti aðeins vera íklæddur sundskýlu. Dóttir arabahöföingjans er mikill aðdáandi leikarans. Tom Cruise afþakkaöi boðið kurteislega. Önnum kafnir hljómlistamenn Bítlavinir gáfu sér tíma til þess að hlada eina hljómleika í Lækjartungli fyrir stuttu, frá vinstri eru Jón Ólafs- son, Eyjólfur Kristjánsson, Rafn Jónsson, Stefán Hjörleifsson og Haraldur Þorsteinsson. Bítlavinir hafa lítið spilað saman að undanfórnu enda eru flestir hljómsveitarmeölimir önnum kafnir við önnur störf. Stefán Hjörleifsson hefur veriö við nám erlendis, Rafn Jónsson trommu- leikari er jafnframt í hljómsveitinni Grafík og Eyjólfur hefur verið á fleygiferö í Eurovisionkeppninni, auk þess sem hann syngur í söng- leiknum Jesús Kristur súperstjarna. Jón Ólafsson og Haraldur Þorsteins- son hafa einnig í mörg hom aö líta. Þeir félagamir gáfu sér þó tíma um daginn, Stefán Hjörleifsson geröi stans á landinu, og héldu hljómleika í Lækjartungli og mætti fjöldi gesta til þess að hlusta á þá. Áhorfendur, sem voru fjölmargir, skemmtu sér konunglega á hljómleikum Bítiavinafélagsins. DV-myndir Ragnar S Söngleikir eru í tísku um þessar mundir, bæði austan hafs og vestan, og_ tigið fólk flykkist á helstu sýningamar. í New York er söngleikurinn Phantom of the Opera sýndur og hefur hann fengið fádæma góðar viðtökur. Forsetafrúin í Bandaríkjunum, Nancy Reagan, brá sér á sýningu um daginn og fékk aö heilsa upp á söngv- arana baksviös í hléi og var þá þessi mynd tekin af henni. Nancy Reagan haföi mjög gaman af því að fá að hitta söngvarana i söngleiknum Phantom of the Opera baksviðs i leikhtéi. Símamynd Reuter Ljósmyndari DV rakst á þennan hreykna hundeigenda, sem var að viðra glæsilegan hund sinn af Sheaffer tegund á dögunum, og mátti til með að festa þau á filmu. Hundar af þessari tegund eru mannhæðarháir þegar þeir standa upp á afturfæturna og því ekki árennilegir, enda oft notaðir til gæslustarfa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.