Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1988, Blaðsíða 21
20
ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 1988.
Iþróttir
• Sandy Lyle frá Skotlandi er
komirin í annað sætið á heims-
listanum í golfi eflir sigur sinn
í bandarísku meistarakeppn-
inni, US Masters, um síöustu
helgi. Hann komst upp fyrir
Severiano Ballesteros og er með
1258 stig. Greg Norraan er efst-
ur með 1333 stig en Ballesteros
þriðji með 1102. Næstir koma
Bemhard Langer með 1024, lan
Woosnam með 842 og Curtis
Strange 801 stig.
• Verona á Ítalíu hefur áfrýj-
að úrskurði aganefndar Knatt-
spyrnusambands Evrópu, sein
fyrir skömmu dæmdi einn leik-
manna félagsins, Silvano
Fontolan, í eins árs bann. Hann
var fundinn sekur um að hafa
neytt örvandi lyfja fyrir leik
Verona gegn Werder Bremen i
Evrópukeppninni fyrr í vetur.
Talsmenn Verona segja aö Fon-
tolan hafi notað lyf við bronkít-
is sem er löglegt á Ítalíu. Félagið
var um leið dæmt i 36 þúsund
dollara sekt og þeim úrskurði
var einnig áfrýjaö.
• Steaua og Dinamo frá Búk-
arest hafa mikla yfirburði í
rúmensku 1. deildinni i knatt-
spymu og unnu bæði ömgga
útisigra um siðustu helgi. Ste-
aua er með 40 stig eftir 21 leik,
hefur gert 2 jaíhtefli en unniö
19 sinnum, og Dinamo hefur 40
stig eftir 22 leiki, hefúr unnið
19, gert 2 jafritefli en tapaö einu
sinni. f þriðja sæti er Victoria
frá Búkarest með 29 stig.
• ÖUu fleiri lið eiga mögu-
leika á titlinum í Ungverja-
landi. Honved er efst eftir 21
umferð með 28 stig, Ujpest Doz-
sa er með 27, Tatabanya og
Raba ETO 26 og Haladas hefur
25 stig.
• Enn tvísýnni er staðan í
Júgóslavíu. Eftir 23 umferöir
em Velez og Dinamo Zagreb
með 29 stig á toppnum, Partizan
og Rauöa Stjaman 28 og
Sloboda Tuzla er með 27 stig í
fimmta sæti.
• John Toshack, fyrram mið-
heiji Liverpool og velska
landsliðsins, hefur framlengt
samning sinn við spænska fé-
lagið Real Sociedad til ársins
1991. Toschack tók við liðinu
áriö 1985 og það er nú í ööra
sæti 1. deildar, tíu stigum á eft-
ir Real Madrid.
• Nasko Sirakov, einn snjall-
asti knattspymumaður Búlgar-
íu, er genginn til liðs við
spænska félagið Real Zaragoza.
Sirakov varð þriöji markahæsti
knattspyrnumaöur Evrópu sl.
vetur er hann skoraði 36 mörk
fyrir Vitosha. Hann gerði
þriggja ára samning og kaup-
verðið er talið um 900 þúsund
dollarar.
• Alex Czerniatynski, belg-
íski landsliðsmaðurinn í knatt-
spyrnu sem leikur með
Standard Liege, sagði í viðtali
nýverið við íþróttablaðið Sport
90 að aöeins 3-4 knattspymu-
menn í Belgíu hefðu meira en
hálfa milijón í mánaðarlaun.
Czemiatynski sagöi aö í þeim
hópi væru Amór Guðjónhsen
og Jan Cuolenmans.
• David Fairclough, áður
„super sub“ hjá Liverpool, er
nú orðinn varamaður hjá Be-
veren. Hann vill nú fara frá
félaginu og hefur náð munnlegu
samkomulagi við forráðamenn
enska 2. deildar liðsins Oldham
e'n þar er fyrram félagi hans
hjá Iáverpool, Phil Neal þjálf-
ari.
______DV
Heinjsmeistaramótið í goKheimi:
Sveit Islands lék vel
og hreppti bronsverðlaun
lögðu Bandaríkjamenn að velli í úvslvtunum í leik um bronsið
Fjórða heimsmeistaramótið í golf-
hermi var haldið um helgina á Glen
Eagles hótelinu í Skotlandi. Sveit frá
íslandi hélt nú í fyrsta skipti utan til
þátttöku í mótinu. Síðastliðinn vetur
keppti Hannes Eyvindsson sem ein-
staklingur í sömu keppni en nú var
ákveðið aö senda heila sveit. Hana
skipuöu þeir Einar L. Þórisson og
Ragnar Olafsson en liðsstjóri var
Björgúlfur Lúðvíksson, allir úr GR.
Á fóstudag mætti sveitin Argent-
ínumönnum en leikin var holu-
keppni og gilti betra skor kylfmgs í
hvorri sveit. Sigur vannst á Argent-
ínumönnum á 21. holu en keppni var
geysilega hörö og tvísýn. Léku Arg-
entínumenn raunar betur en þeir
áttu sjálfir von á. Þannig komust ís-
lendingar í átta þjóða úrslit og á
laugardagsmorgun mættu þeir V-
Þjóðverjum. Voru V-Þjóðverjar
lagðir með gífurlegum yfirburðum, 7
og 5, þ.e. íslendingar áttu sjö holur
góðar þegar fimm voru eftir.
Þannig fór sveit okkar manna í
undanúrslit en þar átti hún í höggi
við Norðmenn. Sú viðureign var
geysilega hörð og að flestra dómi
úrslitaleikur mótsins. Þarna töldu
enda flestir aö tvær bestu sveitir
mótsins væru að reyna með sér.
íslendingar leiddu lengst af eða
fram að 18. holu. Þar jöfnuðu Norð-
menn. 19. holan féll síðan en á 20.
holu slógu bæði Ragnar og Einar út
af,- Þar með tapaðist leikurinn en
Norðmenn fóra í úrslit og mættu þar
Finnum.
íslendingar mættu hins vegar
Bandaríkjamönnum í viðureign um
þriðja sætið og fór sá leikur fram í
gærmorgim. ísland sigraði 3 og 1 og
var sá sigur aldrei í hættu. Norð-
menn urðu síðan meistarar en þeir
lögðu Finna, 1 og 0.
Þá fór fram teighöggskeppni
(drive-keppni) þ.e. keppni um hver
kyifinganna slægi lengst af teigi.
Ragnar Ólafsson sýndi þá mikla yfir-
burði og átti 6 lengstu höggin. Hann
sló 291 metra, 290 metra, 289 metra,
288 metra tvívegis og loks 287 metra.
Næstur honum kom Norðmaður með
286 metra sem var hans langlengsta
högg.
íslenska sveitin náði betri árangri
á heimsmeistaramótinu en bjartsýn-
ustu menn þorðu að vona. Vakti
sveitin enda gífurlega athygli þar
sem ekki var gert ráð fyrir svo sterk-
um golfmönnum frá íslandi. Sveitin
kemur heim með bronsverðlaun auk
verðlauna fyrir mestu högglengd.
Margir leika þennan leik
- DV ræðir vlð hinn raunverulega njösnara Anderiecht
• Stelnar Birgisson.
Steinar áfram
hjá Runar?
„Eins og staðan er í dag eru meiri
líkur á að ég verði áfram hér í Nor-
egi. Ég átti fund með fofráðamönn-
um félagsins í gærkvöldi og þá
skýrðust ýmis atriöi en þó eru nokkr-
ir þræöir lausir ennþá sem við
munum reyna að leysa á fundi síðar
í vikunni,“ sagöi Steinar Birgisson,
handknattleiksmaður hjá norska fé-
laginu Runar, í samtah við DV en
félagið vann sér eins um kunnugt er
sæti í 1. deild með sigri í 2. deild fyr-
ir nokkru.
Ef Steinar verður áfram hjá Runar
mun hann einungis leika með félag-
inu á næsta keppnistímabili en í
vetur þjálfaði hann jafnframt hðið.
Steinar hefur að undanfórnu aðstoð-
að félagið við leit að þjálfara og
einnig sterkum línumanni.
Steinar sagði einnig við DV að ef
góður þjálfari og línumaður fyndist
fyrir næsta keppnistímabil væri
hann bjartsýnn á gott gengi liðsins í
1. deild en fyrir hjá félaginu væri
ágætis mannskapur. -JKS
Kristján Bemburg, DV, Belgíu:
„Ef Anderlecht kaupir óþekkta
leikmenn verða þeir að vera 15-16
ára gamlir - eins og þegar Lokeren
náði í Arnór Guðjohnsen á sínum
tíma - til að þeir geti skrifað undir
samning fyrir 17. afmæhsdaginn og
teljist því ekki útlendingar," sagði
Martin Lippens, aðalþjálfari And-
erlecht, í samtali við DV í tilefni af
fregnum um að „yfirnjósnari" félags-
ins hefði sýnt mikinn áhuga á
Þórsaranum HaUdóri Áskelssyni á
dögunum.
Lippens gegnir stöðu „yfimjósn-
ara“ Anderlecht, fylgist meö þeim
leikmönnum sem áhugaveröir þykja
fyrir félagið. „Margir leika þann leik
að kynna sig sem útsendara frá
þekktum félögum, með það að mark-
miði að gerast miiliiiðir og hljóta
sjálfir prósentur ef samningar tak-
ast. Þessir menn eru mjög óæskileg-
ir, þeir hirða peninga frá knattspym-
unni sem er slæmt mál. Það er miklu
betra að borga litlu félagi beint fyrir
góðan leikmann, þá haldast fjármun-
imir innan knattspyrnuhreyfingar-
innar,“ sagði Lippens.
Hann sagði ennfremur að nú færu
í hönd erfiðir tímar hjá Anderlecht
við að senya viö leikmenn, sérstak-
lega þá erlendu. „Við megum aðeins
nota þrjá hverju sinni og þurfum því
að selja a.m.k. einn í vor til þess að
geta keypt þekktan erlendan leik-
menn eins og við stefnum að,“ sagði
Lippens.
Svíinn Lindmann, Ástralinn
Krncevic og Hoilendingurinn Janss-
en teljast útlendingar hjá Anderlecht
en Amór og Danimir Frimann og
Andersen hafa sömu réttindi og Belg-
ar þar sem þeir geröu samninga við
belgísk félög áöur en þeir uröu 17
ára. Ljóst er að Lindmann verður
skilað heim til Svíþjóðar í vor enda
hefur hann lítið náð að sýna.
JKGÍlVlKmga.r tryggðu sér i gærkvöldi íslandsmeistaratitilinn
í meistaraflokki kvenna í körfuknattleik. ÍBK sigraði ÍR í Seljaskóla i gær-
kvöldi meö 47 stigum gegn 64 og hér sést fyrirliöi liðsins hampa sigurlaun-
unum eftir leikinn. DV-mynd Brynjar Gauti
Leikmenn ÍR rændir
a eigm heimavelli
- um 70 þúsund hurfú úr veskjum leikmanna og þjálfara körfúbottaliðs ÍR
„Þetta kom auðvitað flatt upp á
okkur og þá kannski ekki síst það
að hér vora að öllum líkindum að
verki unghngar úr okkar hverfl,"
sagði einn leikmanna í úrvalsdeild-
arliði ÍR í körfuknattleik en
nokkrir leikmenn liðsins og þjálf-
ari þess, Einar Bollason, lentu í
heldur leiðinlegu máli éftir síðari
undanúrslitaleikinn í bikarkeppn-
inni í íþróttahúsi Seljaskóla á
dögunum.
Þegar leikmenn ÍR komu til bún-
ingsklefa síns aö leik loknum
blöstu tóm veskin við nokkrum
þeirra. Þjófar höfðu látið greipar
sópa og stolið samtals um 70 þús-
undum króna.
Báru kennsl á þjófana
Atburð þennan kærðu ÍR-ingar
þegar til Rannsöknarlögreglunnar
en nokkrir leikmenn í yngri flokk-
um ÍR báru kennsl á pilta sem voru
á vappi við búningsklefa ÍR-inga.
Nokkrir fílefldir leikmenn IR-liðs-
ins hófu þegar leit í hvérfinu að
þjófunum en þeir fundust ekki og
málið er enn óupplýst. Einar Bolia-
son, þjálfari ÍR-inga, mátti sjá á
eftir nokkrum tugum þúsunda í
hendur þjófanna en aðrir leikmenn
misstu minni fjárhæðir. Ef þjófarn-
ir hefðu gefið sér betri tíma við
verknaðinn heföu þeir að öllum lík-
indum getaö náð sér í önnur 70
þúsund þvi sumir sluppu betur en
aörir og þar á meðal einn leik-
manna ÍR sem var með um 40
þúsund í veskinu. -SK
I
ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 1988.
21
íþróttir
Dómur fallinn í máli Elíasar Sveinssonar gegn borgarsjóði:
Hæstiréttur
dæmdi Bíasi
eina miilión
s
Elias Sveinssoilvann á dögunum mál fyrir Hæstarétti gegn
Davið Oddssyni borgarstjóra fyrir hönd borgarsjóðs Reykjavikurborgar. Elias slas-
aðist er hann rann í bleytu sem myndaðist við leka i þakinu á Baldurshaga og sést
hér benda á staðinn þar sem óhappið varð árið 1982. Hæstiréttur dæmdi Elíasi
rétt rúma milljón í skaðabætur. DV-mynd Brynjar Gauti
„Þetta eru ekki miklar bætur
miðað við það tjón sem ég varð fyr-
ir en engu að síður var það miög
gott aö vinna þetta mál. Þetta er
að mörgu leyti prófmál og ég veit
um marga íþróttamenn sem orðið
hafa fyrir svipuöum áfóllum og ég
í þessu tilfelli,“ sagöi Elías Sveins-
son frjálsíþróttamaöur en hann
hefur nú unnið mál fyrir Hæsta-
rétti gegn Davíö Oddssyni borgar-
stjóra fyrir hönd borgarsjóðs
Reykjavíkur sem hann áfrýjaöi úr
héraðsdómi.
Rann i bleytu i Baldurshaga
Tiidrög þessa máls eru þau aö29.
dag nóvembermánaðar árið 1982
var Elías Sveinsson, sem um langt
árabil var einn okkar snjallasti
frjálsíþróttamaður, við æfingar í
Baldurshaga undir stúku Laugar-
dalsvallar. Elias var að hlaupa
grindahlaup er hann rann til í
bleytu sem myndast hafði á gólfmu
í salnum og meiddist alvarlega á
fæti.
„Þetta var grátlegt svo ekki
sé meira sagt“
Elías Sveinsson sagði í gær: „Þeg-
ar þetta gerðist var.ég búinn aö
vinna íslandsmeistaratitilinn í tug-
þraut samtals níu sinnum. Val-
björn Þorláksson hafði unnið
þennan sama titil tiu sinnum og ég
ætlaði mér svo sannarlega að slá
það met hans og til þess halöi ég
aUa burði. Þetta óhapp batt hins
vegar snöggan endi á allar þessar
áætlanir. Eg dró á eftir mér löppina
í heilt ár en hún var lömuö frá hné
og niður.“
„Fór í læknismeðferð til
Bandaríkjanna“
Elías heldur áfram: „Þegar hér
var komið sögu fór ég til Bandaríkj-
anna'í læknismeðferð. Ég fór í
leysigeislameðferö og varð mun
betri í fætinum en þó aUs ekki
nægilega góöur. Kostnaðinn viö
þessa ferð varð ég að greiða sjálf-
ur. Þessi meiðsli há mér ennþá og
Uklega næ ég mér aldrei fullkom-
lega af þessu.“
Elías fékk rúma milljón
Elías tapaði þéssu máU fyrir hér-
aðsdómi en áfrýjaði þeim úrsUtum
til Hæstaréttar sem dæmdi í mál-
inu á dögunum. Elías fær rétt rúma
mUljón í sinn vasa en það er um
helmingurinn af því sem hann fór
fram á. í dómnum segir meðal ann-
ars: „Þeir tveir íþróttamenn sem
meö áfrýjanda voru þama við æf-
ingar kveöast báðir hafa orðið
varir við bleytu er þeir komu í sal-
inn og annar þeirra, þjálfari hinna
tveggja, kveðst hafa þurrkaö upp
bleytu af gólfinu. Verður sam-
kvæmt þessu að telja að áfrýjandi
hafi mátt verða var við bleytu á
• gólfinu og hafi honum því borið að
sýna sérstaka aðgæsiu við æfingar
sínar. Þykir hann ekki hafa sýnt
af sér þá aðgát sem af honum mátti
krefjast í umrætt sinn og verði þvi
að bera tjón sitt að nokkra leyti
sjálfur." -SK
Bestu golfkonur heims láta bíða eftir sér:
Konumarmæta
ekkl norður í ár
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Þeir hjá stjóm PGA eru búnir að
fresta þessu móti um eitt ár þannig
að bestu golfkonur heims munu
mæta til Akureyrar á næsta ári. Við
höfum litlar skýringar fengið hjá
PGA vegna þessarar uppákomu en
það er staðreynd að þeir hafa tvíselt
mótið að þessu sinni og það er greini-
legt að vinstri höndin veit ekki hvað
sú hægri gerir,“ sagði Gunnar Sól-
nes, formaður Golfklúbbs Akur-
eyrar, í samtaU við DV í gærkvöldi.
Það verður sem sagt ekkert úr því
að bestu golfkonur heims sýni Ustir
sínar á JaðarsveUi í sumar eins og
tíl stóð.
Mótið, sem halda átti á Akureyri,
er mót atvinnukvenna í golfi og eitt
af mörgum mótum hjá veika kyninu
í Evrópu ár hvert. Golfklúbbur Ak-
Leikir í kvöld
ÍBK og Haukar leika þriðja og síð-
asta leik sinn í undanúrslitum
úrvalsdeildarinnar í kvöld kl. 20 í
Keflavík. Liöin hafa unnið sína viö-
ureignina hvort og það lið sem
stendur uppi sem sigurvegari í kvöld
mætir UMFN eða Val í úrslitaleikj-
unum um meistaratitUinn.
• KR og Fram mætast í sannjsölluð-
um stórleik í Reykjavíkurmótinu í
kvöld. Leikið er á gervigrasinu og
hefst slagurinn kl. 20.30.
ureyrar verður að sjá á eftir þessu mikla
móti tíl Skotlands og stjórn GA bíður
nú skýringa á öUu saman ásamt afsök-
unarbréfi frá PGA. „Við erum með alla
pappíra og samninga undirskrifaða en
Elísabet Þórðardóttir, DV, Kristiansand-
íslendingar unnu glæsUegan sigur á
Ungverjum, 5-0, í fyrsta leik 3. deildar
Evrópumeistaramótsins í gær. íslenska
Uðið var sigurstranglegra fyrirfram en
ekki var reiknað með því að sigur ynnist
á þennan hátt.
• Broddi Kristjánsson mætti Gabor
Petrovits í fyrstu viðureign og vann 15-8
Og 15-10.
• 'Þórdís Edwald lék næst við CsiUa
Forian. Þórdís vann óvæntan sigur, 11-6,
6-11 og 11-9, og það eftir að hafa lent 1-7
undir í síðustu lotunni.
• Árni Þór Hallgrímsson og Ármann
Þorvaldsson tryggðu íslenskan sigur í
leiknum með því að vinna Csaga Kiss og
Voros 18-13 og 15-8.
• Óvæntustu úrslitin urðu í tvíliðaleik
kvenna þar sem Elísabet Þóröardóttir og
Inga Kjartansdóttir sigruðu Juska Fejes
ég reikna ekki með því að við fórum að
gera fjárkröfur vegna þessarar niður-
stöðu. Viö fáum þetta mót á næsta ári,
fyrir því höfum við 100% tryggingu,“
sagði Gunnar Sólnes. -SK
og Wigh 15-8, 8-15 og 15-10.
• Broddi og Þórdís innsigluðu síöan sig-
ur íslendinga með því aö vinna Nagy og
Dovalovszki í lokaleiknum. Þau höfðu lagt
sömu mótherja að veUi í einstakUngs-
keppninni á sunnudag. Þau unnu fyrstu
lotu 16-18. En Broddi og Þórdís snera blað-
inu viö og unnu hinar 15-12 og 15-3.
• Þórdís Edwald hefur 'nú keppt átta
sinnum á Evrópumeistaramótinu sl. tvo
daga og sigrað í öll skiptifi. Eins og fram
kom i DV í gær vann hún alla leiki sína
í fyrstu umferðum einstaklingskeppninn-
ar á sunnudag og þau Broddi eru einnig
komin í aðalkeppnina í tvenndarleik.
Þriöja Uðið í riölinum er þaö norska en
íslendingar mæta því í dag. SigurUöið í
riðlinum mætir Tékkum eða Finnum í
úrslitaleik 3. deUdar og þeir sem vinna
deildina leika aukaleik við botnlið 2. deild-
ar um sæti í henni.
• Halldór Áskelsson sést hér i leik
meó Þór gegn Lokeren. Úrslit kosn-
ingarinnar á Akureyri koma engum
á óvart. DV-mynd Marc de Waele
Halldór Askels
íþróttamaður
Akureyrar
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
HaUdór Áskelsson, knattspyrnu-
maður úr Þór, hefur verið kjörinn
íþróttamaöur Akureyrar árið 1987.
Kjör HaUdórs þarf ekki að koma
neinum á óvart, hann átti geysUega
gott keppnistímabil á síðasta ári og
var jafnbesti leikmaður Þórs.
í kjörinu fékk Halldór 169 stig.
Guðrún H. Kristjánsdóttir skíða-
drottning kóm í næsta sæti með 135
stig, Hans Rúnar Snorrason júdó-
maður í 3. sæti með 116 stig, ErUngur
Kristjánsson, knattspyrnu- og hand-
knattleiksmaður úr KA, fékk 92 stig
í 4. sæti og í 5. sæti varð Svavar Þór
Guðmundsson, sundmaður úr Óðni.
I IR 1 5. flokkl, sem varð um sfðustu helgi
| íslandsmeistari i körfuknattleik, ásamt þjálfara sinum, Birni Leóssyni.
DV-mynd Brynjar Gaut
Stórsigur íslands
gegn Ungverjalandi