Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1988, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1988, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 1988. Sandkom Ekkert of góðir til að borga VEGAGHRÐIN DaguráAk- ureyriereina staHræktadag- blaðiðutan Reykjavíkur- svæðisins og aukþesshið ágætastablað. Þaö kom á óvart í síðustu viku þegar DV barst áskriftarrukkun trá Degi. Þetta var venj ulegt gluggaumslag en á því var merki Vegagerðarinn.ar og auk þess stimpill fyrirtækisins. Þetta kemur manni til að álykta aö Vega- gerðin fjánnagni rukkunarherferðir Dags. Skrásetjari Sandkoms er nú að hugsá um að láta Land9virkjun standa skil á reikningum sem allt of ört berast inn um bréfaiúguna hans. Það ætti varla að hafa mikil áhrif á afkomu Landsvirkjunar í saman- buröi við heildarveltuna! Fjandvinir! Flestirmuna sjálfsagteftir rimmunnisem varðámilli Friðriksstór- meistaraólafs- sonarog Campomanes- ar þegar Friðrik sóttist eftir endur- kjöri í forsetastól FIDE á sínum tíma. Campomanes hefur alla tíð verið umdeildur og var á sinum tíma jafn- vel kaliaður „alþjóðlegur glæpamað- ur og bóö“ í íslenskumfjölmiðlum og var sú yfirlýsing fengin frá vini vorum Kortsnoj sem lítið álit liafði á kappanum. Campomanes vann Frið- rik í baráttu þeirra um forsetastólinn og þótti ýmsum illt í efni að illmenni veeri koihið svo hátt til vegs og virö- ingar á meðan prúðmennið Friðrik sæti heima með sárt ennið. Nú er svo komiö að áiit manna á Campomanesi hefúrbreystnokkuð. Hannvirðist vera frekj udallur en afar klár og auk þess hefur hann reynst íslendingum sæmilegur vinur. Þaö var honum að þakka að kæra Friðriks Ólafssonar á liendur Kortsnoj í SL John vegna óprúðmannlegrar framkomu við Jó- hann Rjartarson náði fram að ganga. Og nú styður Campomanes beiðni Akureyringa um að fá að halda ein- vigi Karpo vs og Jóhanns í haust. Campomanes er kannski ekki sem verstur eftir allt saman! Auglýsingu frestað Sjónvarpið auglýstiísíð- ustuvikuyfir- burðisínasem framkomuí skoöanakönn- un Félagsvís- indastofnunar. meðalannars stórar myndir af Ingva Hrafni frétta- stjóra með sínum mönnum. Nú er Sandkomi tjáð að auglýsing þessi hafi átt að birtast daginn sem viðtalið viö Ingva Hrafn birtist í Nýju lífi þar sem hann úthúðaði yfirmönnum stofnunarinnar. Auglýsingin var aft- urkölluð í flýti, samkvæmt heimild- um Sandkorns, þar sem forráðamenn töldu umfalið vegna viðtalsins og auglýsinguna ekki fara vel saman. Auglýsingin var svo sett inn aftur ægar ljóst mátti vera að enginn yfir- gæfi stólsinn. Lauf- eða Laug-? Ólafúr Lauf- dalhefursem kunnugterver* íðstórtnafní skemmtiiðnað- inumáíslandi undanfíirinár. ÍReykjavík hafa nokkrir staðir barist gegn Lauf- dals-stórveldinu. Þeirra á meðal og kannski einna stærstur þessara staða er Þórscafé. Framkvæmdastjóri Þórscafé heitir Björgvin L. Ámason. í Ijósi samkeppninnar hefúr Björgvin ekki farið hátt með hvað L-ið i nafni hans stendur fyrir en góðkunningja hans tókst þóaöhafaþaöuppúr honum á dögunum. Ellið stendur sem sé lyrir Laugdal! Það eru þ vi Laufdal og Laugdal sem sjá um að s vala skemmtanaþorsta Rey kvíkinga þessa dagana. Umsjón Axel Ammendrup Fréttir Hörmulegar bvýr í Hvalfirdi og KJós segir forstöðumaður brúardeildar Vegagerðarínnar „Það má telja víst að brýrnar tvær í Hvalfjarðarbotni og brúin yfir Laxá í Kjós verða ekki leystar af hólmi næstu árin. Þetta eru hörmulegar brýr. Á brúnni inni við Botnsskála er trégólf og þar getur orðið hált í bleytu. Brúin yfir Laxá í Kjós er orðin það léleg að handrið- in eru hætt aö tolla á henni. Þessar þrjár brýr eru án efa þær verstu á hringveginum," sagði Guðmundur Arason, forstöðumaður brúar- deildar Vegagerðar ríkisins. Að sögn Guðmundar er helsta ástæðan fyrir því að ekki hefur verið ráðist í endurgerð þessara brúa sú að ýmsar hugmyndir eru uppi um hvernig umferð um Hval- íjörð eigi að verða í framtíðinni. Vegagerðin hefur gert tillögu um brú yfir fjörðinn en hugmyndum um undirgöng hefur einnig verið haldið á lofti. Nú liggur fyrir Al- þingi tillaga um könnun á bestu lausn þessa máls og ákvörðun þar um hefur því verið frestað. Svipaða sögu er að segja um brúna yfir Laxá. Beðið hefur verið með brúar- smíði þar til endanlegt vegarstæði kemst á vegaáætlun. Það er ekki á vegaáætlun sem gildir næstu þrjú árin og ekki heldur neinar þær framkvæmdir er gætu leýst brýrn- ar í Hvalíjarðarbotni af hólmi. „Miðað við umferðarþunga eru þessar þrjár brýr mest aðkallandi af þeim verkefnum sem bíða brúar- deildarinnar og svo hefur verið í nokkur ár. Þær hugmyndir að lausnum, sem uppi hafa verið, eru hins vegar það fjárfrekar að ekki hefur fengist fjármagn til aö hefjast handa,“ sagði Guðmundur Arason. -gse Reiðhöllin gefur mikla möguleika Hestamannafélögin Andvari, Fák- ur, Gustur, Höröur og Sörli stóðu að opnu hestaíþróttamóti í Reiðhöllinni um síðustu helgi og var það jafnframt fyrsta hestamótið sem þar er haldið. Það kom í ljós aö annað andrúmsloft verður á hestamótum í Reiðhöllinni en undir beru lofti. Því valda ólíkar aðstæöur. Minni asi var á allri fram- kvæmd hestamótsins í Reiðhöllinni. Áhorfendur lalla út og inn, fá sér veitingar og rabba saman. Þrátt fyrir að einungis eitt mót hafi farið fram, er þegar hægt að bera saman ýmsa þætti móta í Reið- hölhnni og móta úti í náttúrunni. Veðurfar veröur auðvitað svipað all- an ársins hring í Reiðhöllinni, þó svo að hiti sé mismunandi mikill. Knapar eiga því auðveldara með ýmiss konar skrautklæðnað, þurfa ekki aö klæða af sér hita. Betri tengsl eru milli knapa og áhorfenda því keppnis- svæðið og áhorfendasvæðið eru mjög nálægt hvort öðru. Aðstaða er fyrir hestana í hesthúsi í Reiðhöllinni og geta knaparnir því blandað geði við áhorfendur fyrir og eftir sýningar, þurfa ekki að hafa áhyggjur af því hvort hesturinn sé á tryggum stað. Áhorfendur kunna að meta áhyggju- leysið á áhorfendapöllum, geta farið og komið eins og þeir vilja, fengið sér veitingar og hitt kunningja. Öll að- staða er slík að hægt er að mynda mikla stemmningu meðal áhorfenda. Þulir þurfa að vera mjög vel að sér í sögu hesta, knapa og hestamóta og gefa upplýsingar um hvern kepp- anda um leið og hann kemur til keppni. Einnig þarf að gefa upplýs- ingar um stöðu keppninnar öðru hvoru og segja hvaða keppandi er efstur og hverjir eiga möguleika. Tölvur eru notaðar til aö reikna út árangur hvers keppanda. eftir að dómarar hafa gefið einkunnir. Þaðan fær þulurinn upplýsingar sem eiga að berast til áhorfenda jafnóðum. Er undirlagið of mjúkt? Það sem helst telst miður er keppnisvöllurinn sjálfur. Margir knapanna telja að undirlag í vellin- um sé ekki nógu hart og því sé erfiðara að sýna fágaða reið- mennsku. Ekki er hægt að keppa í gæðingaskeiði, til þess er völlurinr, of stuttur, og erfitt að keppa í fimm- gangi af sömu ástæðum. Margir hestanna eru ókunnir aðstæðum, beinlínis hræddir. Hringvöllurinn er mjög nálægt áhorfendum og þvi hætta á truflunum, sérlega vegna barna sem eiga þaö til að hætta sér of nálægt keppnisvellinum og eru þá ekki meirá en í metra fjarlægð frá keppanda þegar munurinn er minnstur. Fyrsta hestamótið í Reiðhölhnni olli nokkrum vonbrigðum, en gaf fyrirheit um betri tíma. Keppendur fengu ekki háar einkunnir, yfirleitt DV myndir E.J. Gylfason var annar á Stormi og Sig- urður Vignir Matthíasson þriðji á Greiða. Halldór Viktorsson á Herði sigraði í fjórgangi unghnga, Álfur Þráinsson var annar á Rökkva og Edda Sólveig Gísladóttir var þriðja á Janúar. Sig- urbjörn Bárðarson sigraði fjórgangi fullorðinna, sat Fálka. Sigurður Mar- ínusson var annar á Krákustíg og Sigríður Benediktsdóttir þriöja á Árvakri. Edda Rún Ragnarsdóttir sigraði í töltkeppni barna á Kría, Sig- urður Vignir Matthíasson var annar á Greiða og Ragnar E. Ágústsson þriðji á Njáli. Tómas Ragnarsson sigraði í fimmgangi á Snúði, Sigur- björn Bárðarson var annar á ívani og Jón P. Ólafsson þriðji á Glaumi. Sigurbjörn Bárðarson sigraði í tölt- keppninni á Fálka, Sævar Haralds- son var annar á Kjarna og Elsa Magnúsdóttir þriðja á Skagfjörð. Edda Rún Ragnarsdóttir sigraði í fjórgangi barna á Kría, Róbert Pet- ersen var annar á Rúti og Gísh Geir Gylfason þriðji á Stormi. Halldór Viktorsson sigraði í töltkeppni ungl- inga á Herði, Álfur Þráinsson var annar á Rökkva og Rakel Sigurðar- dóttir þriðja á Kasmír. Sigurbjörn Bárðarson varð stiga- hæstur knapa í flokki fullorðinna og sigraði einnig í íslenskri tvíkeppni. Halldór Viktorsson geröi hið sama í flokki unglinga. Gísli Geir Gylfason varð stigahæstur í barnaflokki en Edda Rún Ragnarsdóttir sigraði í ís- lenskri tvíkeppni. Krákustígur Gunnars Dungal, sem Sigurður Mar- ínusson sat, var valinn glæsilegasti gæðingur mótsins og hlaut feikistór- an bikar að launum. Aö kvöldi laugardags og sunnu- dags var dagskrá með úrslitum á hestamótinu, svo og sýningum á kynbótahrossum og söluhrossum. E.J. Krákustlgur, sem Sigurður Marínusson sýndi, var valinn glæsilegasti gæð- ingur mótsins. Sigurbjörn Bárðarson bætti sex verðlaunagripum í safn sitt. arsvæðinu og einnig voru keppendur úr Borgarfirði, af Suðurlandi og frá Suðurnesjum. Sigurbjörn Bárðarson heldur sig við efnið og sankaði að sér sex verðlaunum. Þau bætast við tæp- lega tvö þúsund verðlaunagripi sem hann hefur náð á tuttugu ára ferli sínum í hestamennsku. Helstu úrslit urðu þau að Þórður Þorgeirsson sigraði í hindrunar- stökki á Eldi, Sigurbjörn Bárðarson var annar á Hæringi og Hjörný Snorradóttir þriðja á Stimi. Benedikt Þorbjörnsson sigraði í hlýðnikeppni fullorðinna á Spora, Barbara Meyer var önnur á Sóloni og Sigurbjöm Bárðarson þriðji á Fálka. Edda Sól- veig Gísladóttir sigraði í hlýðni- keppni unglinga á Janúar, Hjörný Snorradóttir var önnur á Stirni og Elín Rós Sveinsdóttir þriðja á Rispu. Róbert Petersen sigraði í hlýðni- keppni barna á Þorra, Gísh Geir frá 7,00-8,00, sem gæfi samkvæmt gæðingakeppnisskalanum um 5,00 í einkunn. Vera má að ökunnugleiki vegna aöstæðna hafi valdið þessu, og ættu framfarir að verða á næstu mótum. Framkvæmd á mótinu var ekki nógu traust. Til dæmis þurftu kepþendur sjálfir að raða upp hindr- unum fyrir keppni í þeirri grein og fékk hver keppandi að fara æfinga- stökk áður en hann keppti. Slíkt er ekki gert í öðrum íþróttagreinum. Eins vantaöi nánari tengsl milli keppenda og áhorfenda, en það er verkefni þula. Ýmsir aðilar gáfu veg- lega bikara til eignar. Sigurbjörn með sex sigra Það er greinilegt að Reiðhöllin verður vettvangur barna og ungl- inga. Þátttaka var mjög almenn en áberandi góð hjá unga fólkinu. Þátt- fakendur vom víða að af höfuðborg-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.