Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1988, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1988, Síða 17
ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 1988. 17 Lesendur Hiyðjuverkamaður í dag, ráðherra á morgun: Um PLO og fleira Konráö Friðfmnsson skrifar: Hryðjuverk fordæmir friöelskandi fólk og hryðjuverkamönnum vill sama fólk láta refsa ótæpilega. Morð- ingjar, morðingjar, hrópar það er fregnir berast um spellvirki illmenn- anna. Vissulega ber að fordæma aðgerðir þeirra. En margt er skrýtið í kýrhausnum og mikijl tvískinnung- ur og hræsni er í gangi hjá þeim er ræða þetta mál. Ofbeldissinnar, eins og margir kjósa að kalla skæruhða og aðra álíka hópa, gætu sem hægast verið orðnir æðsta vald sinnar þjóðar á morgun, að undangengnum átökum að sjálfsögðu. Slíkt hefur margoft átt sér stað úti í hinum stóra heimi. En það sem verra er og snýr að okkur vesturálfumönnum er það, að ekki eru hryðjuverkamenn gærdags- ins fyrr búnir að hrifsa til sín völdin en vestanmenn samþykkja að styðja viðeigandi valdatöku og senda í kjöl- farið hamingju- og heillaóskaskeyti. Einu viröist gilda með hvaða hætti herramir fengu sitt vald. Þetta hefur mér ætíð þótt svolítiö einkennilegt. En bíðið nú hæg. Máiinu er ekki lokið. Sama gengið, eða það af því sem eftir liflr, á harma að hefna. Safnar hði, vopnar það og heldur í víking gegn óréttlætinu og er þar með komið í flokk með misindis- mönnunum, sem við öh fyrirlítum. Mikhr og illir menn. - Já, máhö er eitt allsheijar rugl og þvæla. Það hefur sjálfsagt ekki farið fram hjá neinum að hæstvirtur utanríkis- ráðherra átti óformlegar viðræður við einn af forkólfum PLO á dögun- um. Þau orðaskipti fóru fyrir bijóstið á mörgum og sér í lagi forsætisráð- herra vorum. Hann vih kannski að rykfallna hugtakiö, Kani góður, Rússi vondur, sé í heiðri haft, án undantekningar? Þaö má hins vegar rétt vera að rödd Hólmans í norður- höfum leysi ekki deilur araba og ísraela. En ég er engu að síður þeirrar skoðunar og reyndar handviss um að ráðherrann geröi rétt og framtak hans muni leiða íslensku þjóðina til aukinnar virðingar og velsældar, verði framhald á. Hvers vegna ættu íslendingar ekki að senda sinn full- trúa á fund PLO, ef þeir óskuðu eftír viðræðum? Er ástæðan máske sú, að Frónbúar telji sig yflr araba hafna? Nei, gott fólk, við skuium ekki temja okkur þann leiða sið að hta niður á aðra. Það kann ekki góðri lukku að stýra. Óll erum við samheijar og um leiö jafningjar. Miklu nær væri að hta á PLO og Araba sem hugsanlega við- skiptaöila. Á þann hátt tengjast þjóöir saman núna. En til að svo' megi verða þurfa menn aö talast við. Orð eru til alls fyrst. Þessa sérkennilegu hringþoku má sjá í Hörpumerki, ef horft er til himins á heiðskiru kvöldi. Frá stjörnunum: Orkustraumamir yndislegu Dfaumar og vemleiki: Útilokum ekki Gautl skrifar: Ég las greinina sem Ingvar Agnarsson skrifaöi í lesendadálk DV fyrir stuttu og er mjög sam- mála honum. Ég ht þannig á aö draumar og veruleiki sé oftast hið sama. Þótt martraðir séu ruglaðir draumar er það í rauninni lélegt samband, eins og t.d. gerist iijá sjónvarpi sem fær of margar rás- ir sem trufla hver aðra. Oft dreymir mig drauma sem ég læri nýög mikið af. Tímiim, sem teng- ist jörðu, er bara jarðbundinn og er tímaskyn mannsins aðlagað snúningi sólkerfis okkai-. Fyrir stuttu dreymdi mig að ég væri kominn flörutiu ár aftur í tímann og var ég að útskýra fyrir fólkinu í draumnum hvaöan ég væri en fólkið í draumnum trúði mér ekki svo að ég varð að sýna því dagatahð á klukkunni minni. Ég hef aidrei hugsað neitt út í tímaferðir áður og hef því enga fordóma eins og margir hafa en þetta gæti verið hægt í draumum. Það er greinilega ekki hægt að sanna eða afsanna þessa hluti en ég ætla að hvelja alla þá sem eru aö lesa þetta núna að útiloka ekki, hafa heldur ekki neinar fastar skoöanir þegar einhveijum hug- myndum er haldið á lofti því fastar skoðanir eru ahtaf leiöin- legar, ekki síst er maður upp- götvar að þær hafa verið rangar. Geymið aht sera okkur er sagt á bak viö eyrað. Ekki úthoka. Ingvar Agnarsson skrifar: Fagurt er útsýni þegar htið er frá jöröu til himins og stjama á heið- skíru kvöldi. Hversu heihandi er að horfa á þessi björtu blys, þar sem þau sindra í fjölbreyttum litum um gjörv- aha hveifingu himins. Hér eru töfraheimar furðulegri en mannleg- ur hugur getur í raun gert sér aö fullu grein fyrir. Enginn er svo stór, að ekki verði htih gagnvart þessum töfrum,og eng- inn er svo lítill, að ekki stækki, er hann finnur lífsstrauma þá, er frá stjömunum stafa, gagntaka hveija taug, hveija hræringu lífs og sálar. Því víst er, að frá lífheimum stjam- anna berast magnandi orkustraum- ar, er lyfta í æðra veldi, hverri þeirri sál, er horfir og hlustar og lætur hehlast af þeim mjúkamætti er það- an bylgjast fram um geimdjúpin. Stöndum úti á kyrm kvöldi, þegar stjörnur loga sem bjartast og gemm ráð fyrir að þar séu heimkynni lífs, sem að mætti og visku standi okkur mönnum óendanlega miklu ofar. Og þá hygg ég, að flest getum viö fundið í raun þessa gleðjandi orkustrauma, sem ég er að tala hér um. Þetta er ekki bara ímyndun eða óskhyggja ein, heldur raunveruieiki, sem flestir finna og hafa fundið á öllum tímum, ef slakað er á og streyta daganna látin víkja fyrir þeim mætti, sem frá hfheimum stjarnanna stafar. Hvernig raðar þú inn í og hann- ar híbýli þín? Ertu smekkmann- eskja með bros á vör yfir góðum árangri, eða finnst þér þú geta breytt og bætt um bet- ur? DV leitaði álits hjá sérfróð- um manni hvað þetta snertir og leiðir hann lesendur í sann- leika um ýmis góð ráð sem gott er að hafa í huga þegar maður skipuleggur innan- stokks. Farið verður yfir samspil húsgagna og lita á veggjum, gróðurs og annars sem skiptir máli. Komið hefur fram að efnis- og litaval hvers konar og uppröðun húsgagna er nú orðin frjálslegri en áður var, svo ekki sé meira sagt. Nánar i Lifsstil á morgun. STEINULLARVERKSMIÐJAN H/F AÐALFUNDUR Aðalfundur Steinullarverksmiðjunar hf. verður hald- inn í Safnahúsinu Sauðárkróki, þriðjudaginn 19. apríl kl. 17.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjómin THERMO TRIM! HVAÐ ER ÞAÐ? II ■- Thermo Trim er ^ Wýjar perur í IJfe, djúphitunarmeð- ferð til hjálpar í megrun og gegn cellulite. Nýjar perur i Ijósabekkjum Einnig frábært gagnvart bólgum, bakverkjum og lélegu blóðstreymi. Nánari upplýsingar Sólbaðsstofan Aestas, Reykjavikurvegi 60, sími 651092. TILBOÐ ÓSKAST: i eftirtaldar eignir Ræktunarsambands Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu. 1. Verkstæðishús við Nesveg í Stykkishólmi ásamt tækjum. 2. Skurðgrafa, Atlas 1302, árg. ’83, notuð ca 4500 vinnustundir. 3. Jarðýta, Case 1150 C, árg. 1983. 4. Jarðýta, IH. TD.9B, árg. 1969. 5. Jarðýta, IH. TD.9B, árg. 1968, ógangfær. 6. 2 stk. Rome plógherfi. Upplýsingar um ástand þessara eigna gefur Jón Bæringsson, síma 93-81302 á daginn og í síma 93-81265 á kvöldin. Tilboð sendist Guðbjarti Gunn- arssyni, Hjarðarfelli, 311 Borgarnes, fyrir 22. apríl næstkomandi. Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Stjórn Ræktunarsambands Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu. Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum fer fram sem hér segir: Hraunbær 56, 2.t.h., þingl. eigandi Skúli Sigurðsson, fer fram á eigninni sjálfri íimmtud. 14. apríl ’88 kl. 16.00. Uppboðsbeiðandi er Iðnaðarbanki ís- lands hf., Tryggingastofiiun ríkisins og Gjaldheimtan í Reykjavík. SúðarvogUr 52, þingl. eigandi Jóhann- es Þ. Jónsson, fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 14. apríl ’88 kl. 17.00. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík. Borgarfógetaembættið í Revkjavík I Lifsstil á morgun höldum viö áfram að kynna þær vörur sem stórmarkaðir ýmist flytja inn sjálfir eða láta pakka fyrir sig. í biaðinu i dag er sagt frá eigin innflutningi Hagkaups og á morg- un segjum við frá eigin pökkun Mikla- garðs. Allt þetta stuðlar að lægra vöruverói og ekki er óliklegt að stórmarkaóir eigi eftir aö auka slika starf- semi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.