Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1988, Page 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988.
Sandkom
Kratar i sturtu
SUJnefhistfé-
lagsskapur
ungrakrata.
Þeir láta sér
dettaýmislegtí
liugeinsogsja
má nf auglýs-
ingufráþeim
scm birtist í Ai-
þýðublaðinu
fyrir helgi, .Hittumst í sturtunni í
Engihjalla" er yfirskrift auglýsingar-
innar. l>ar er ennfremur sagt að
ungkratar séu þeirrar skoðunar að
heilbrigð sál þrífist best í hraustum
líkaraa og því ætli þeir aö hittast
vikulega í Æfingamiðstööinni í Engi-
hjalia til að koma „skikk á skrokk-
inn“. Nú er það bara spurningin
h vort kratamir eru að fara í sturtu
til að þrífa sig eða hvort þeir eru að
hvítþvo sjálfa sig af aðgerðum ríkis-
stjómarinnar. Allavega virðist sturt-
an vera aðalmálið í krataauglýsing-
unni eins og síðar kemur fram.
fsturtu
með Bryndísi
íauglýsing-
unnikemur
framaðBjami
P. Magnússon
borgarfulltrúi
verðursérstak-
urheiðursgest-
urísturtunniá
fyrstuæfing-
unniensvo
kemur rúsinan í pylsuendanum:
„Síðar er ráðgert að bjóða Bryndísi
Schram, en ekki fyrr en SUJ-félagar
verða komnh- í betra form.“ Það er
hætt viö að nú fari fjölgandi í SUJ
því hver vill ekki fara í sturtu með
Bryndísi. Það er jaih vel liætt við að
það verði uppselt í sturtuna. Þetta er
með frumlegri aðferðum sem Sand-
korn hetúr heyrt um að stjómmála-
samtök beiti til að ná til sín
kjósendum. Það eina sem manni dett-
ur í hug að standist samanburð er
Ciccolínahinítalska.
Skíðamenn
skammast
Mönnumer
ennifersku
minni vetrar-
ólympíuleik-
amiríCalgary
ogþauleiðu
mistöksem
urðuereinnis-
lenskukepp-
endannaog
skíðin hans urðu viðskila, auk þess
sem gleymdist aðskráhanntil
keppni. Nú, nokkrum mánuöum síð-
ar, eða nánar tiltekið á miðvikudag í
síðustu viku, birtist fféttatilkynning
frá Skíðasambandi íslands þar sem
íþróttafréttamenn og blaðamenn al-
mennt fengu heldur betur tii tevatns-
ins. Þar stendur meðat annars:
„Þegar tréttamenn loks sáu ástæðu
til að skrifa verulega um skíðaíþrótt-
ina var það gert af slíku þekkingar-
leysi aö langt er síöan annað eins
hefur séstá prenti...“ Ogsíðan: „í
skrifum þessum flestum var aðallega
kappkostaö að finna að og draga fram
eitthvaö neik vætt og niðrandi um þaö
fólk sem vinnur að framgangi skiða-
iþróttarinnar.. .Yfirleitthvarfallt
hiðjákvæða sem snertiföríslenskra
keppendaá 15. vetrarólympíuleikana
í Calgary í gjömingaveðri meinfýsn-
.. .og biðjast
afsökunar
Ekki vantar
stóruoröin.
Þaðkomþvíá
' óvartþegar
Hreggviður
Jónsson, for-
maðurSkíöa-
sambantls
íslands, skrif-
aöi afsökunar-
beiðni vegna fréttatilkynningarinnar
í Morgunblaðiö daginn eftir. Þar
kveður skyndilega við allt annan tón:
„Umfjöllun íþróttafréttamanna á
Morgunblaðinu, í ríkisíjölmiðlunum
og það eréghefséðeða heyrt frá
öðrum íþróttafréttamönnum var fag-
leg og þeim mönnum tfl sóma. Ég vil
fyrir hönd SKÍ biðja íþróttafrétta-
menn afsökunar ef þeir hafa tekið
lessa fréttatilkynningu til sin.“ Það
er magnað hvað hlutimir geta brey st
mikiðáeinumdegi!
Umsjón: Axel Ammendrup
Fréttir
Dómsmálaráðuneytíð um handleggsbrotið:
Telur að ákæra
eigi föðurinn
Dómsmálaráðuneytið hefur sent
ríkissaksóknara umsögn varðandi
atvik það sem varð á lögreglustöð-
inni í Reykjavík þegar Sveinn
Jónasson var tvíbrotinn á upphand-
legg þegar lögreglumenn voru að
færa hann úr yfirhöfn eftir fræga
handtöku.
í umsögn dómsmálaráðuneytis
segir, eftir því sem heimildir DV
greina frá, meðal annars að mat
ráðuneytisins sé að einn lögreglu-
mannanna skuli ákærður vegna
málsins. Sá lögreglumaður er faðir
þess sem átti bílinn sem Sveinn Jón-
asson kom viö og leiddi til hand-
tökunnar og handleggsbrotsins.
Hefur hann verið leystur frá störfum
á meðan málið er rannsakað. Þá er
í umsögn ráðuneytisins vikið að
þætti varðstjórans sem var á vakt
þegar atvikið átti sér stað. Mælst er
til þess að þáttur hans verði rannsak-
aður frekar.
Þorsteinn Geirsson, ráðuneytis-
stjóri í dómsmálaráðuneytinu, segir
að þess þeri að geta að umsögn ráðu-
neytisins hafi ekki áhrif á ákæruvald
eða dómstóla. Hér sé eingöngu um
að ræða umsögn vinnuveitanda þess-
ara tilteknu manna. Þorsteinn vildi
ekki ræða umsögn ráðuneytisins en
neitaði ekki að þau atriði, sem hér
hafa verið nefnd, væru í umsögninni
ásamt fleiri atriðum.
-smé
Nýja heimavistin til vinstri en heiisugæslustöðin til hægri.
DV-mynd Sig. Ægisson
Djúpivogur:
Nýja heilsugæslustöðin fokheld
Sigurður Ægisson, DV, Djúpavogi:
Ný heilsugæslustöð er risin hér á
Djúpavogi, fokheld og öll frágengin
að utanverðu. Áætlað er að bjóða út
í einum áfanga í haust það sem eftir
er, og gert er ráð fyrir aö verkinu
ljúki þá á næsta ári. Á fjárlögum rík-
isins nú 1 ár voru 3 milljónir lagðar
til þessa verks.
Vart þarf að nefna hvílík breyting
verður á heilsugæslu allri með til-
komu þessa glæsilega húss, enda
gamla stöðin úr sér gengin að mörgu
leyti, biðstofa sjúklinga óþægilega
lítil, og röntgenherbergi ónothæft.
Hefur fólk því verið sent á Höfn í
röntgenmyndatöku.
Þá lítur stórt og myndarlegt
íþróttahús væntanlega dagsins ljós
viö grunnskólann bráðlega, en teikn-
ingarnar hafa verið samþykktar í
hreppsnefnd. Er þar um að ræða 756
fermetra límtréshús. En vegna hins
mikla kostnaðar, sem núverandi
dýpkunarframkvæmdum í smábáta-
höfninni fylgir, og eins hins að ljúka
þarf bæði nýsmíðaðri heimavist og
félagsaðstöðu, veröur einhver bið
eftir þessu íþróttahúsi.
Fjárhagsáætlun fyrir Ólafsfjörð:
Fimm milljónir í grasvöll
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ástandið mætti svo sannarlega
vera betra og það er ekki feitan gölt
að flá varðandi framkvæmdir," sagði
Valtýr Sigurbjamarson, bæjarstjóri
á Ólafsfiröi, í samtali við DV, en fjár-
hagsáætlun bæjarins var lögð fram
á fundi bæjarstjórnar í síðustu viku.
Heildartekjur bæjarsjóðs eru áætlað-
ar 75 milljónir króna og rekstrargjöld
73,5 milljónir.
„Þaö sem okkur svíður mest er
hvað aðstöðumunurinn í þjóðfélag-
inu er orðinn mikill," sagði Valtýr
Sigurbjamarson bæjarstjóri. Það er
alltaf veriö að „nauöga“ jöfnunar-
sjóði sveitarfélaga og menn úti á
landi eru orðnir á einu máli um að
sá sjóður stendur ekki lengur undir
nafni sem jöfnunarsjóður. Við höfum
1,5 milljónir króna sem rekstraraf-
gang, en ef viö hefðum sama hlutfall
og Reykjavík næmi þessi upphæð
ekki 1,5 milljónum heldur 24 milljón-
um.
Það má líka snúa þessu dæmi við.
Rekstrargjöld Reykjavíkurborgar
nema 5,8 milljörðum króna og ráða-
menn geta fært til eignabreytinga um
tæpa 2 milljarða. En ef þeir hefðu
sama hlutfall og við næmi þeirra
upphæð 121 milljón króna en ekki
tæplega 2 milljörðum. Þarna munar
nokkrum ráðhúsum og hringleika-
matsöluhúsum.
Ég er í sjálfu sér ekki aö agnúast
út í það að höfuðborgin hafi fé til
framkvæmda en þetta sýnir samt
sem áður að eitthvað er bogið við
skiptingu þess fjármagns sem úr er
að moða í þjóðfélaginu."
Valtýr sagði að stærsta fram-
kvæmdin á Ólafsfirði á árinu yrði
gerð grasvallar og ætti að vinna við
þaö verk fyrir um 5 milljónir króna,
en lítið verður um aðrar fram-
kvæmdir. „Það verður reynt að
halda því marki að ný lán verði svip-
uð og afborganir af eldri lánum svo
skuldabyrðin aukist ekki,“ sagði
Valtýr.
Úrslitin í „Hvað heldurðu?a:
Reykvíkingar gegn Árnesingum
Reykvíkingar sigruðu ísfirðinga í
í spumingaþættl Sjónvarpsins, Hvað
heldurðu?, um helgina. Það verða því
Reykvíkingar og Ámesingar sem
keppa til úrslita á hlutlausun velh í
Stykkishólmi næstkomandi sunnu-
dag.
Reykvíkingar hafa sigraö alia sína
andstæðinga í keppninni, Akur-
eyringa, Hafnfirðinga, Þingeyinga og
loks ísfirðinga. Hefur styrkur liðsins
farið vaxandi með tímanum og sigr-
aði liðið ísfirðinga með miklum
stigamun.
Ámesingar hófu keppni meö því
að sigra Uð Rangæinga og síðan Vest-
mannaeyinga. Þá töpuðu þeir fyrir
ísfirðingum með einu stigi en kom-
ust aftur inn í keppnina sem upp-
bótarlið þar sem liðið tapaði meö
minnsta hugsanlega stigamun. Þá
sigruðu Árnesingar Kjalnesinga fyr-
ir rúmri viku og komust óvænt í
úrsht. -JBj
Vidtalid
„Ég er ekki
bókstafstrúar-
manneskja"
^mmmm^mmmm^mmmmmm^mmmmé
Nafn: Ragnheiður Bjarnadóttir
Aldur: 34 ára
Staða: guðfræðingur
„Líffræði og guðfræði eru raun-
ar ekki svo ólíkar fræöigreinar
því liffræöin tjailar llka um sköp-
unarverkið. Eg er ekki bókstafs-
trúarmanneskja og hef því aldrei
átt í erfiðleikum með að að tengja
þetta í eitt kerfi. Fólk gengur allt-
af út frá því aö guðfræðingar séu
bókstafstrúarmenn en ég held að
þeir séu í minnihluta. Við vitum
að guð skapaði heiminn en
hvemig hann fór aö því er auka-
atriði,“ segir Ragnheiður Bjama-
dóttir sem fy rst vakti athygli fyrir
frækilega frammistöðu í spum-
ingaþætti Stöðvar 2, Meistaran-
um, og síðar spumingaþætti
Sjónvarpsins, Hvaö heldurðu?
Ragnheiður útskrifaðist sem guð-
fræðingur síðastliðið haust og
hefur hún undanfarið verið í af-
leysingastörfum en hugsar sér
fljótlega til hreyfmgs og hefur
hún m.a. áhuga á að fara til
Bandaríkjanna í doktorsnám í
guðfræði.
Líffræði, söngur
og guðfræði
Ragnheiöur gekk í Menntaskól-
ann í Reykjavík og útskrifaðist
sem líffræðingur frá Háskóla ís-
lands haustið 1976. Næstu vetur
á eftir sneri hún sér að söngnámi
í Söngskólanum í Reykjavík og
lauk þaðan áttunda stigs prófi
árið 1978. Ragnheiöur, sem er
sópran, hélt þá í söngnám til Vín-
arborgar þar sem hún dvaldi með
hléum í sjö ár. Námsferili hennar
er langur enda segist hún gera
þaö sem henni dettur í hug-hverju
sinni, annars myndi hún ávallt
naga sig í handarbökin. „Eftir að
ég byijaði í lífíræöinni beindist
áhuginn meira og meira aö tón-
listinni en mér fannst ég veröa
að kiára lífíræöinámiö fyrst. Mér
leiö ágætlega í Vín. En ég kom
alltaf heim inn á milli vegna þess
að ég las guðfræðina utanskóla
meðan ég dvaldi í Austurríki og
þurfti alltaf að koma heim tfl að
taka próf og stunda fyrirlestra."
Ragnheiður er fædd árið 1953 í
Reykjavík. Faðir hennar er
Bjarni Bjarnason, forstjóri Stef-
áns Thorarensen hf„ og móðir
hennar er Alma Thorarensen.
„Ég er ennþá ógift og bamlaus.
Nú til dags þykirþað ekki tiltöku-
mál þótt maður sé ógiftur kominn
á þennan aldur. En systir mín á
böm sem égfæ stundum lánuö.“
Með landafræðidellu
„Ég hef áhuga á öllu sem við-
víkur listtun auk þess sem ég er
með landafræðidellu sem lýsir
sér á furðulegasta hátt. T.d. hef
ég geysilega mikinn áhuga á
ferðalögum og finnst mér mjög
áhugavert að koma til landa án
þess að vera túristi. Túrisminn
er búinn að eyðileggja menningu
fiölmargra landa. Ahugi á þjóö-
sögum og ljóðum frá ólikum
löndum tengist landafræðidell-
unni. Þá hef ég mikinn áhuga á
eldamennsku og þá auövitað frá
öllum heimshomum. Einnig
vekja nytjajurtir og fleira í nátt-
urunni áhuga minn.“ „JBj