Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1988, Blaðsíða 29
ÞRIÐJÚDAGUR 19. APRÍL 1988.
29
Fólk í fréttum
DV
Magnús L. Sveinsson
Magnús L. Sveinsson, formaöur
Verzlunarmannafélags Reykjavík-
ur, hefur verið í fréttum DV vegna
verkfallsboðunar verslunar-
manna. Magnús Leifur er fæddur
1. maí 1931 á Uxahrygg í Rangár-
.vallahreppi og lauk samvinnu-
skólaprófi 1951. Hann var skrif-
stofumaður á Selfossi 1951-1958 og
í Reykjavík 1958-1960. Magnús var
skrifstofustjóri Verzlunarmanna-
félags Reykjavíkur 1960-1980 og
framkvæmdastjóri frá 1980. Hann
hefur verið í stjóm Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur frá 1964,
varafórmaður 1965-1980, formaður
frá 1980 og í stjóm Lífeyrissjóðs
verziunarmanna frá 1981. Magnús
var í stjórn Menningar- og fræðslu-
sambands alþýðu 1968-1980 og var
formaður Æskulýðsráðs Reykja-
víkur 1969-1970. Hann var í stjórn
samtaka sykursjúkra frá stofnun
1971-1979 og varaformaður
Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í
Reykjavík 1972-1978. Magnús hefur
verið borgarfulltrúi í Reykjavík frá
1974, í borgarráði 1974-1978 og frá
1982. Hann hefur verið formaður
atvinnumálanefndar og Innkaupa-
stofnunar Reykj avíkurborgar frá
1982 og forseti borgarstjórnar frá
1985.
Magnús kvæntist 14. apríl 1957
Hönnu Sigríði Hofsdal, f. 10. apríl
1931, tannsmiði. Foreldrar hennar
em Karl Guðmundsson, útgeröar-
maður í Ólafsvík, og Sólveig
Þorsteinsdóttir, húsfreyja á Húsa-
vík. Börn Magnúsar og Hönnu eru:
Sveinn, f. 4. september 1957, inn-
kaupafulltrúi hjá Stálvik, kvæntur
Sólveigu Skúladóttur; Sólveig, f. 25.
október 1959, flugfreyja í Rvík, og
Einar Magnús, f. 10. október 1966,
menntaskólanemi og dagskrár-
gerðarmaöur á Stjörnunni.
Systkini Magnúsar: Jön Þórar-
inn, f. 11. apríl 1925, forstjóri
Stálvíkur í Garðabæ, kvæntur Þur-
íði Hjörleifsdóttur; Kristján Grétar,
f. 9. mars 1927, bifreiðarstjóri í
Rvík, kvæntur Margit Zuber;
Bjarni Hafsteinn, f. 28. október
1929, bifreiðarstjóri í Rvík, og Matt-
hías Böðvar, f. 1. maí 1931, fram-
kvæmdastjóri í Garðabæ,
sambýliskona hans er íngibjörg
Matthíasdóttir. Bróðir Magnúsar,
samfeðra, er Ólafur Konráö, f. 18.
júlí 1920, d. 9. mars 1988, rafvirki í
Rvík, kvæntur Dór'u Magnúsdótt-
ur.
Foreldrar Magnúsar voru Sveinn
Böðvarsson, d. 8. ágúst 1985, b. á
Uxahrygg á Rangárvöllum, og kona
hans, Guðbjörg Jónsdóttir. Fööur-
bróðir Magnúsar var Böðvar, faðir
Árna, málfarsráðunautar RÚV.
Sveinn var sonur Böðvars, b. á
Þorleifsstöðum á Rangárvöllum,
Jónssonar. Móðir Böðvars var
Ingibjörg, systir Arnheiðar, ömmu
Gunnars Bergsteinssonar, for-
stjóra Landhelgisgæslunnar. Ingi-
björg var dóttir Böðvars, b. á
Reyðarvatni, Tómassonar og konu
hans, Guðrúnar Halldórsdóttur,
hálfsystur Guðbjargar, langömmu
Ingólfs Jónssonar ráðherra og
Kristínar, móður Þorðar Friðjóns-
sonar, forstjóra Þjóðhagstofnunar.
Móðir Guðrúnar var Ingibjörg
Halldórsdóttir. Móðir Ingibjargar
var Guðbjörg Sigurðardóttir, systir
Jóns á Hrafnseyri, afa Jóns forseta.
Systir Guðbjargar var Salvör,
Magnús L. Sveinsson.
amma Tómasar Sæmundssonar
Fjölnismanns.
Móðir Sveins var Bóel Sigurðar-
dóttir, b. í Múlakoti í Fljótshlíð,
bróður Þorleifs, afa Ólafs Túbals
listmálara. Siguröur var sonur Eyj-
ólfs, b. í Múlakoti, Arnbjörnssonar,
bróður Ólafs, langafa Bergsteins
Gizurarsonar brunamálastjóra.
Móðir Bóelar var Þórunn Jóns-
dóttir, b. í Hlíðarendakoti, Ólafs
sonar. Móðir Jóns var Helga
Jónsdóttir „eldprests" Steingríms-
sonar.
Guðbjörg er dóttir Jóns, b. í Ey í
Landeyjum, Gíslasonar og konu
hans, Þórunnar ljósmóður Jóns-
dóttur, b. á Sleif í Landeyjum,
Nikulássonar. Móðir Þórunnar var
Þorbjörg ljósmóðir Jónsdóttur, b. á
Hrútsstööum í Flóa, Einarssonar.
Móðir Jóns var Þorbjörg Guð-
mundsdóttir, systir Brynjólfs,
langafa Magnúsar Stephensen
landshöfðingja, Þuriðar, móður
Þorsteins Erlingssonar, og langafa
Brynjólfs, langafa Erlends Einars-
sonar, fyrrv. forstjóra SIS. Móðir
Þorbjargar var Hallbera Erlends-
dóttir, systir Helga, langafa
Sigmundar, afa Sigmundar Guð-
bjarnasonar rektors.
Móðir Þórunnar var Sigríður Sig-
urðardóttir, b.í Miðkoti í Landeyj-
um, Ólafssonar, b. á Ey, Gestsson-
ar, prests á Móum á Kjalarnesi,
Þorlákssonar, bróður Ástriðar,
langömmu Þorláks Ó. Johnson,
kaupmanns í Rvík, afa Einars Lax-
ness, framkvæmdastjóra Mennta-
málaráðs. Móðir Sigurðar var
Halldóra Þórhalladóttir, systir
Guörúnar, langömmu Kjartans,
föður Magnúsar ráðherra.
Afmæli
Öm Bjamason
Öm Bjamason rithöfundur,
Ránargötu 6, Reykjavík, er fertug-
ur í dag.
Örn fæddist á Akureyri og ólst
þar upp hjá móðurforeldrum sín-
um. Hann stundaði sjómennsku á
togumm á sumrin meö skólanámi.
Öm hóf prentnám og vann við
prentverk hjá Skjaldborg á Akur-
eyri en flutti til Reykjavíkur og
hélt þar áfram prentnáminu hjá
Gutenberg.
Eftir að Örn kom til Reykjavíkur
varð hann fljótlega þekktur fyrir
söng sinn og gítarundirleik en
hann samdi þá gjarnan sjálfur lög
og texta.
Öm hefur unnið aö ritstörfum á
undanförnum árum en kunnustu
leikrit hans em útvarpsleikritið
Biðstöö þrettán og leikritið Fyrsta
öngstræti til hægri, sem var frum-
flutt hjá Leikfélagi Akureyrar 1979.
Þá hefur Örn verið að vinna að
þýðingum.
Öm á tvö böm. Þau eru: Jón
Kristján, f. 7.5. 1970, og Unnur
Margrét, f. 14.9. 1983.
Foreldrar Arnar: Bjami Bjarna-
son; bryti frá Vestmannaeyjum, og
Unnur Margrét Guömundsdóttir.
Örn dvelur í Vestmannaeyjum á
afmælisdaginn hjá systur sinni,
Hólmfríði Arnar.
Örn Bjarnason
Antonía
Kristjáns-
dóttir
Antonía Kristjánsdóttir, Fá-
skrúðsfirði, er áttatiu og fimm ára
í dag.
Hún dvelur nú á elliheimilinu
Uppsölum á Fáskrúðsfirði.
Antonía Kristjánsdóttir.
Jón Benjamín Jónsson
Aubert Jóhann Högnason
Aubert Jóhann Högnason véla-
maður, Hamrabaorg 30, Kópavogi,
er fertugur i dag.
Aubert Jóhann fæddist í Miðdal
undir Vestur-Eyjaíjöllum, og ólst
þar upp í foreldrahúsum. Hann fór
sextán ára til sjós frá Vestmanna-
eyjum og var þar á ýmsum bátum,
en 1975 stofnaði hann fyrirtækið
Vélaleiga og traktorsgröfur - Au-
bert Högnason, og hefur starfrækt
það fyrirtæki síðan í Kópavogin-
um.
Kona Auberts er Margrét Stein-
unn, f. 20.10. 1953, dóttir ísleifs
Pálssonar, b. á Langekru áRangár-
völlum og Guðrúnar Valmunds-
dóttur.
Börn Auberts og Margrétar
Steinunnar eru Guðmar, f. 1974;
Birna, f. 1977; og Steinar/f. 1983.
Foreldrar Auberts Jóhanns eru
bæði látin, en þau voru Högni
Kristófersson b. í Miðdal og kona
hans Anný S. Hermanssen, frá
Vestmannaeyjum, norskrar ættar.
Högni var sonur Kristófers b. í
Stóra-Dal undir Vestur-Eyjaíjöll-
um, Þorlákssonar og konu hans
Auðbjargar Ingvarsdóttur frá
. Neðra-Dal.
Til hamingju með afmælið
80 ára
Sigríður Þórðardóttir, Sundabúð
2, Vopnafirði, er áttræð í dag.
70 ára
Eirikur Pétursson, Kvíabólsstíg 4,
Neskaupstaö, er sjötugur í dag.
60 ára
Jón Rafn Guðmundsson, Hraun-
brún 31, Hafnarfirði, er sextugur í
dag.
Jóhanna Sigfúsdóttir, Laugar-
brekku 18, Húsávík, er sextug í dag.
50 ára
Inga K. Guðjónsdóttir, Túngötu 61,
Eyrarbakka, er fimmtug í dag.
Anna Sigurveig Sæmundsdóttir,
Litlagerði 4, Hvolhreppi, er fimm-
tug í dag.
40 ára
Sigurður Friðriksson, Vesturgötu
37, Keflavík, er fertugur í dag.
Sigurður Hafsteinn Matthiasson,
Berghólum, Keflavík, er fertugur i
dag.
Guðmundur M. Johannsen, Dals-
hrauni 13, Hafnarfiröi, er fertugur
í dag.
Kristinn E. Guðnason, rafvirki.
Sævangi 17, Hafnarfirði, er fertug-
ur í dag.
Sólveig Róbcrtsdóttir, Fífuscli 13,
Reykjavík, er fertug í dag.
Guðmundur Gunnarsson, Skafta-
hlíö 28, Reykjavík, erfertugur í dag.
Andlát
Jens Guðbrandson, frá Höskulds-
stöðum, Helgubraut 31, Kópavogi, lést
fóstudaginn 15. apríl.
Marsibil Sigurðardóttir, frá Grund til
heimilis að Smáratúni 12, Svalbarös-
eyri, lést 17. apríl í Kristnesspítala.
Bergur Lárusson, Vanabyggð 11, Ak-
ureyri, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu,
Akureyri, sunnudaginn 17. apríl.
Gunnhildur Oddsdóttir, frá Neskaup-
stað, til heimilis að Vallartúni 1 Kefla-
vík, lést í hjartadeild Landspftalans 17.
apríl sföastliöinn.
Erlendur Sigurjónson, Víðivöllum 2,
Selfossi, lést á Rauöa kross-heimili
Reykjavíkur sunnudaginn 17. apríl.
Þorbjörn Sigurðsson lést í hjúkr-
unarheimilinu Skjólgaröi, Höfn, 16.
apríl síöastliöinn.
Siguröur Jónsson, Auöarstræti 11, lést
aðfaranótt 16. apríl.
Jens Ragnarsson, Meistaravöllum 35,
lést á St. Jósepsspítalanum í Hafnar-
firði sunnudaginn 17. apríl.
Karl Guömundsson, Dalsbyggö 3,
Garðabæ, lést sunnudaginn 17. arpíl.
Einar Þorleifsson, Faxabraut 68,
Keflavík, er látinn.
Björn Finnbogason frá Hvítárdal er
látinn.
Jón Benjamín Jónson skipstjóri,
Dvalarheimili aldraðra að Hlíf í
Torfnesi á ísafirði, er áttræður í
dag.
Jón fæddist aö Hlíð í Álftafirði í
Súðavíkurhreppi og ólst þar upp
og að Mýrum í Álftafirði, Hann
byrjaði ungur til sjós. tók fiski-
mannapróf á ísafirði 1933. og var
síðan stýrimaður og skipstjóri á
ýmsum bátum og skipum frá
ísafirði í fjölda ára. Hann var stýri-
maður á Sæbirni ÍS 1935-45, skip-
stjóri á Ásbimi ÍS 1946-54.
skipstjóri á Friöbert Guðmunds-
syni 1955-56 og á Gunnvöru og
Gunnhildi ÍS um skeið. Jón var svo
verkstjóri íshúsfélags ísafjarðar
um þriggja ára skeið, en hætti til
sjós þegar hann var kominn undir
sjötugt.
Kona Jóns er Helga. 3.3. 1912,
dóttir Engilberts Sigurðssonar.
- sem lengst af var sjómaður frá
Hnifsdal, og Þórdísar Ólafsdóttur.
Jón og Helga eiga fimm börn. Þau
eru: Ingibjörg, húsmóðir á ísafirði.
f. 30.11. 1932, gift Oddi Bjarnasyni
sjómanni. en þau eiga fimm börn:
Helga Hulda. húsmóðir á ísafirði.
f. 23.7. 1934. gift Jóni Kristmanns-
syni. verkstjóra hjá íshúsfélagi'
ísfirðinga, en þau eiga finmi dætur:
Vignir. forstjóri hjá Oliufélaginu á
ísafirði. f. 31.8.1935. kvæntur Láru
Helgadótur, en þdu eiga þrjú börn:
Jón Þór. framreiðslumaður i
Revkjavik. f. 8.12. 1942. á tjögur
börn: Margrét, húsmóðir á ísafiröi.
f. 25.1. 1951. en hún er gift Guðna
Jóhannessyni. og á lnin þrjú börn
og hann tvö.
Foreldrar Jóns voru Jón Jónsson
sjómaðlir og Vigdís Gmmlaugs-
dóttir.
Tilmæli
til afmælisbarna
Blaðið hvetur afmælisbörn og að-
standendur þeirra til að senda því
myndir og upplýsingar um frænd-
garð og starfssögu þeirra. Þessar
upplýsingar þurfa að berast í síðasta
lagi tveimur dögum fyrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir