Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1988, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1988, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988. 17 Lesendur Hermdargjöf frá borginni? - Llr sólstofu hins nýja áfangastaóar fyrir konur sem koma úr meðferð eftir vímuefna- neyslu. Loks „heimili" fyrir konur Þórdís Guðmundsdóttir skrifar: í sjónvarpsviðtali við konu eina, sem tók á móti lykli frá Reykjavíkur- borg og á aö ganga aö húsi, sem borgin keypti fyrir konur sem koma úr vímumeðferð, kom fram að hér áður fyrr hefðu konur bara ekki þor- að að koma fram með vandamál sín. - Þetta væri allt annað nú orðið! En máhð er einfaldlega þaö að ís- lenskar konur drukku bara minna brennivín hér áður og þurftu ekki neina „meðferð“ eins og nú er raun- in. Íslenskt kvenfólk er farið að súpa ótæpilega á og gefur karlmönnum ekkert eftir hvað drykkjusiði snertir. Það sést best á skemmtistöðum borg- arinnar, einkum fyrir framan bar- ina, þar sem þær standa gjaman, líkt og þeir gera á „pöbbunum“ í Eng- landi og bíða eftir að þeim sé brynnt. Einhverjar konur munu nú segja sem svo: Ja, af hveiju megum við ekki drekka eins og karlarnir? Jú, jú, það er allt í lagi, ef ykkur flnnst svona til fyrirmyndar hinir íslensku drykkjusiðir. En þeir eru reyndar engir siðir, heldur fyrirbæri sem flokka má undir óþolandi og sérís- lenskan ólifnaö. Það er vart til ömurlegri sjón en að sjá laglegar og vel klæddar konur rangla kóf- drukknar að barborði og segja: „fáða sama“! En hver er hin raunverulega þörf fyrir þetta „vandræðaheimili" sem ég kalla þessa hermdargjöf frá borg- inni og greitt er fyrir með sköttum okkar borgaranna? Að mínu mati er engin þörf fyrir þetta hús, sem við- komandi nefna áfangastað fyrir konur sem koma úr vímuefnameð- ferð eða búa við slæmar félagslegar aðstæður. - Það var þá „heimili", sem þær loks fengu eða hitt þó held- ur! Það er ennfremur til skammar, hvemig hér dekraö er við þetta fólk, sem stundúm er kallaö „utangarðs- fólk“. Samtökin „Konan“, sem nýlega vígöu áfangastaðinn að Snekkjuvogi 21, spái ég að séu enn ein samtökin til viðbótar, sem við þurfum að standa undir í framtíð- inni. Það er ekki á ósköpin bætandi. Betri stjómanda fyr- ir „Gettu betur Þröstur Grímsson hringdi: Síðastliðið fóstudagskvöld (8. apríl) var ég og fjölskylda mín sest fyrir framan sjónvarpstækið og ætluðum við að njóta góðrar skemmtunar fyr- ir framan tækið þessa stund sem þátturinn Gettu betur er á skjánum. Sá sem stjómaði þættinum lét eins Sigrún Óladóttir hringdi: Mig langar til að segja frá konu sem stífar og strekkir dúka þar sem ég veit að margir em í vandræðum með slíkt en vita ekki hvert skal leita. Ég hef fariö til hennar með stóra og hann væri orðinn krakki og verr en það og tilþrifin vom vægast sagt mjög hallærisleg hjá honum. Krakk- ana, sem tóku þátt í þættinum, hafði hmm að fíflum hvað eftir annað. Ég vonast til að nýr sijómandi verði ráöinn að þessum þætti hið bráðasta. borðdúka jafnt sem litla. Þetta er rpjög vel gert hjá henni og alls ekki dýrt. Konan heitir Þuríður og síminn hjá henni er 30645. - Þuríður, takk fyrir vel unnin verk. Hringið í síma Kona sem strekkir duka HONDA FAX teléfaxtæki til sölu. Greiðslukjör við allra hæfi. Lampar sf. Skeifunni 3B, annarri hæð, sími 84481 Alhliða viðgerðir á steyptum mannvirkjum VIÐGERÐIR A STEYPUSKEMMDUM OG SPRUNGUM Fagleg ráðgjöf, unnln af fagmönnum og sérhæfðum viðgerðarmönnum. HÁÞRÝSTIÞVOTTUR: Traktorsdælur að 400 bar. SILANHUÐUN: Til varnar steypuskemmdum. O MÓÐA Á MILL GLERJA? Fjarlægjum móðu á milli glerja >< með sérhæfðum tækjum. Varanleg og ódýr aðgerð. | Látið fagmenn vinna verkin, það tryggir gæðirT VERKTAK HF. Sími 78822, bílas. 985-21270. Þorgrímur Ólafsson húsasmíðameistari Verðlækkun!! Sumardagurinn fyrsti hefur um margra alda skeið verið haldinn há- tíðlegur hér á landi. í Lífsstíl á morgun verðurfjallað um þennan merkisdag og sagt frá hjátrú og ýmsu öðru sem tengist honum. Ung- mennafélagshreyfingin gerði þennan dag að samkomudegi í byrjun aldar- innar og síðan hefur það verið til siðs að vera með ýmsar uppákomur þennan fyrsta dag sumars. Nú er verkfall verslunarmannayfirvof- andi og óvíst hve lengi það stendur. Neytendasíðan mun á miðvikudag fjalla um ástand mála, til dæmis hvaða verslanir verða opnar og hvaða vörur þær munu hafa á boðstólum. Einnig birtum við nokkur hagnýt ráð varð- andi matarinnkaup og geymslu matvæla. í Lífsstíl á miðvikudag verð- ur Neytendasíðan með sérstaka umfjöllun um verkfalliö, þann hluta þess sem snýr að neytendum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.