Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1988, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1988, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 19. APRlL 1988. Fréttir Verkalýðshreyfing á krossgötum: Ekki er ólíklegt að þeir Þórarinn V. Þórarinsson og Magnús L. Sveinsson verði að skipta um sæti i þeirri samningalotu sem nú er að hefjast og að það verði Magnús sem bendi Þórarni á hvað gera skuli til að leysa deiluna. DV-mynd GVA Rangt stöðumat Margir hafa bent á að stöðumat verkalýðsforingjanna nú hafl verið rangt. Margir þeirra, og þar á með- al Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambands- ins og Dagsbrúnar. lýstu því yfir viö fjölmiðla að hin haröa andstaða í félögunum hefði komið sér á óvart. Fleiri foringjar tóku í sama streng. Þeir höföu í gegnum árin getað treyst því aö samningar væru samþykktir ef þeir mæltu með þeim. í sjálfu sér má segja að fyrst hægt var að fá samþykkta samninga fyr- ir rúmu ári, sem gerðu ráð fyrir 30 til 40 þúsund króna mánaðar-. launum verkafólks og verslunar- fólks, væri ekki óeölilegt fyrir þá að reyna að koma nú í gegn samn- ingum frá 32 til 42 þúsund krónum á mánuði. Þeir virðast aftur á móti ekki hafa gert sér grein fyrir því að þolinmæði fólksins var á þrot- um. Þetta bendir vissulega til þess að þeir séu ekki í sambandi við sína umbjóðendur. Einnig má vel vera að sú stað- reynd að ekki var samið í heildars- amfloti verkalýðsfélaga innan Alþýðusambandsins hafi haft sitt að segja. Ekki er ótrúlegt að fólki hafi fundist samningarnir nær sér en áður hefur verið, þegar samið var í samfloti. Los á mörgu í skoðanakönnun DV fyrir skömmu kom í ljós að Kvennalist- inn var kominn í tæplega 30% fylgi, með 19 þingmenn ef þetta hefði komið út úr kosningum. Margir hrukku við og ekki síst foringjar annarra stjórnmálasamtaka. Bent var á ýmsar ástæður fyrir þessari miklu fylgisaukningu Kvennalist- ans, meðal annars almenna óánægju með svo margt í þjóðfélag- inu. Vel má vera að sú kenning sé rétt og ekki er ólíklegt að fólk hafi RAUTT GINSENG ER SVARIÐ! verið að lýsa þessari sömu óánægju þegar það kaus um kjarasamning- ana. Hver sem ástæðan er, þá er alveg ljóst að þung undiralda er í þjóðfélaginu á mörgum sviðum, undiralda sem hvorki stjórnmála- menn né verkalýðsforingjar virð- ast hafa gert sér grein fyrir. í sjálfu sér þarf enginn að vera hissa þegar kjarasamningar, sem bjóða fólki 32 til 42 þúsund krónur í mánaðarlaun samkvæmt taxta, eru felldir. Það er skrýtla að ætla að bjóða fólki launataxta upp á þetta árið 1988. Launin hans Guðjóns Þeir eru ófáir sem haldaþví fram að launamál Guðjóns B. Olafsson- ar, forstjóra Sambandsins, þar sem talað var um meira en milljón á Fréttaljós Sigurdór Sigurdórsson mánuði, hafi orðið til þess að vekja fólk af Þyrnirósarsvefni. Margir verkalýðsforingjar sem DV hefur rætt viö um þessi mál fullyrða að ef launamál Guðjóns hefðu ekki komið upp á yfirborðið, hefði þessi hvellur aldrei orðið. Þeir benda á aö fólkið í verkalýðsfélögunum út um allt land, með 32 þúsund til 42 þúsund króna launataxta og í vinnu hjá Sambandinu, hafi sagt hingað og ekki lengra þegar upp- lýstist að forstjóri þess var ein- hvers staðar á annari milljóninni í mánaðarlaunum. Ekki leikur vafi á að þetta hefur haft sitt að segja, en það ber heldur ekki vott um merkilegt stöðumat að verkalýðsforingjunum skuli hafa dottið í hug að ætla aö bjóða fólki fyrrnefnd taxtalaun. Matarskattur og aðrar hækkanir Ekki síst er það merkilegt vanmat á stöðunni þar sem skömmu áður en samningamir voru undirritaðir haföi matarskatturinn skollið yfir með öllum sínum þunga. Lofað hafði verið að ýmsar vörur myndu lækka í kjölfarið vegna tollalækk- ana en þær lækkanir komu aldrei, eins og ílestir höfðu reyndar bent á um leið og matarskatturinn skall yfir. Sömuleiðis höfðu ýmsar opin- berar verðhækkanir komið til Uppreisn félaganna eða framkvæmda rétt fyrir undirskrift samninga, svo sem rafmagn og sími. Bifreiðatryggingaiðgjöld hækkuðu um tugi prósenta og 6% gengisfelling dundi yfir síðustu dagana fyrir undirritun. Margir verkalýðsforingjar höíðu lýst því yfir í haust er leið að þolin- mæði fólks væri á þrotum, löngu áður en þessar álögur skullu yfir. Samt sem áður reyndu þeir að koma samningum um 32 þúsund til 42 þúsund króna mánaðarlaun í gegn í félögunum. Stóru orðin frá í haust virtust þá aöeins hafa verið innantóm orð. Ef þolinmæði fólks var á þrotum í haust áður en kaup- m|þ;ur tók að hrapa, hvernig var henni þá háttað þegar samningarn- ir voru bornir upp. Þetta bendir vissulega til þess að foringjarnir séu úr sambandi við sitt fólk. Magnús L. Sveinsson og stjóm Verslunarmannafélags Reykjavík- ur báru upp samninga með margnefndum töxtum. Þeir voru felldir. Þeir reyndu aftur og höfðu þá hækkað taxtana um 50 til 100 krónur á mánuði, allt eftir starfs- aldri. Aftur voru samningarnir felldir og þá í allsherjaratkvæða- greiðslu. Svona vinnubrögð þættu ekki merkilegt stöðumat í skák, svo mikið er víst, og enginn yrði stór- meistari ef stöðumatið væri ekki betra en þetta. Hvað tekur við? Það hlýtur að vera eðlilegt að velta því fyrir sér hvað nú taki við í verkalýðsfélögunum. Eru þar að eiga sér stað kynslóðaskipti, er ungt fólk að taka við? Verður boðið fram gegn sitjandi foringjum á næsta ári? Margir halda því fram að svo sé. Þeir hinir sömu benda á að fylgisaukning Kvennalistans sé ekki stundarfyrirbæri, Kvennalist- inn muni fá stór- aukiö fylgi í næstu Alþingiskosningum. Þeir benda einnig á að þetta los sem komið er á stjórnmálaflokkana muni einnig ná til verkalýðshreyfingarinnar. Óánægja sem lengi hefur verið að grafa um sig innan verkalýðshreyf- ingarinnar muni finna sér farveg í mannaskiptum í æðstu embættum fjölmargra verkalýðsfélaga á næstu misserum. í haust verður haldið þing Al- þýðusambands íslands. Menn eru þegar farnir að spá í hver verði næsti forseti þess og hverjir verði kosnir i miðstjórn. Vel má.vera að það sama fólk og sagt hefur við verkalýðsforingja sína: Hingað og ekki lengra, bindist samtökum um að koma fólki úr sínum röðum á þing Alþýðusambandsins og hyggi á breytingar. Ef til vill er of snemmt að spá nokkru þar um, en það þyrfti alla vega ekki að koma á Óvart eftir það sem á undan er gengið í vetur. Hugsanlegt er að það sem gerst hefur í verkalýðsfélögunum í vetur sé bóla sem muni hjaðna. Meiri lík- ur eru þó á að fólkið haldi áfram og skipti um æðstu menn í félögun- um og að við taki muri yngri menn en sitja í flestum verkalýðsfélögun- um um þessar mundir og hafa setið , lengi. Ef af því verður má gera ráð fyrir mun harðari átökum á vinnu- markaði að ári en viö höfum þekkt um áratuga skeið. Þá gæti sú undir- alda sem nú virðist vera í þjóð- félaginu á svo mörgum sviðum orðið að broti sem allir yrðu varir við þegar það ríöur yfir. -S.dór Þegar allur þorri verkalýðsfélaga í Verkamannasambandinu felldi kjarasamninga í vetur hrukku menn við og spurðu sem svo: Hvað er að gerast? Annað eins og þetta halöi ekki átt sér stað í áratugi. Eftir síðari lotuna, sem fram fór á Akureyri, samþykktu félögin öll, nema Vestmannaeyjafélögin og kvennadeildin á Akranesi. Eftir þá lotu komu verslunarmannafélögin og félög iönverkafólks og sömdu. Hin síðarnefndu samþykktu en verslunarmannafélögin felldu svo að segja öll og meira aö segja voru samningarnir tvífelldir í Verslun- armannafélagi Reykjavíkur. Það er í sjálfu sér ekkert eðlilegra en að menn velti ástæöunni fyrir þessu fyrir sér. Um langt árabil hafa samningar svo til undantekninga- laust verjð samþykktir ef verka- lýðsforingjar hafa skrifað undir þá og mælt meö þeim á fundum. Nú dugöi það ekki til. sambandsleysi foringja?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.