Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1988, Side 9
. ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1988.
9
Utlönd
Bandaríkin fordæma
ákveð-
morðið
Bandarísk stjómvöld fordæmdu í
gær harðlega morðið á Khalil Wazir,
næstæðsta yfirmanni frelsissamtaka
Palestínu, PLO, og sögðust þar
hvergi/hafa komið nærri.
Á sama tíma skýrðu heimiidir í
ísrael frá því að ísraelsk stjómvöld
hefðu fyrirskipað morðið á Wazir,
sem féll fyrir byssukúlum tilræðis-
manna á heimili sínu í Túnis á
laugardag, og Yitzhak Shamir, for-
sætisráðherra ísrael, hét því opin-
berlega að halda áfram að „beijast
gegn hermdarverkamönnum".
ísraelar hafa ekki opinberlega lýst
ábyrgð á morðinu á hendur sér en
heimildir herma að morðiö hafi verið
sameiginleg aðgerð ísraelsku leyni:
þjónustunnar, ísrpelska flotans og
sérsveita ísraelska hersins.
Abu Nidal, einn af róttækustu leið-
togum Palestínumanna, hefur heitið
því að hefna morðsins á Wazir „með
byssukúlum og blóöi“ að því er segir
í yfirlýsingu frá fylgismönnum hans
í gær.
Yasser Arafat, leiðtogi frelsissamtaka Palestinu, PLO, tekur við samúðar-
kveðjum frá Fethia Mzali, eiginkonu fyrrverandi forsætisráðherra Túnis,
vegna morðsins á Wazir. Simamynd Reuter
Bandaríkjamenn segjast ekki vita
hverjir hafi staöið að morðinu á
Wazir þótt aðrir þeir sem rannsaka
tilræðið hafi flestir komist að þeirri
niðurstöðu að ísraelsmenn hafi
framið það.
Khalil Wazir, sem þekktur var und-
ir nafninu Abu Jihad, var af mörgum
talinn einn af hófsamari leiðtogum
Palestínumanna. Hann er talinn hafa
leikið lykilhlutverk í stuöningi við
Palestínumenn á herteknu svæðun-
um á Vesturbakkanum og Gaza-
svæðinu undanfarna mánuði, í
blóðugum átökum þeirra við ísra-
elska herinn þar.
Heimildir segja aö ísraelska ríkis-
stjómin hafi samþykkt morðið á
Wasir eftir að þrír starfsmenn kjarn-
orkuversins í Dimona í ísrael voru
myrtir í síðasta mánuði. Wazir haíði
lýst því yfir að árásin á starfsmenn
Dimona væri sigur fyrir Palestinu-
menn.
Síðustu lotu friðarumleitan-
anna mfili stjórnvalda í Nic-
aragua og kontraskæruliða lauk
í gær án þess að samkomulag
næðist um neitt annað en að
deiluaðilar hittust að nýju til
funda í næstu viku.
Leiðtogar kontraskæruliöa
lýstu þó ánægju sinni með þessa
siðustu lotu og sögðust ætla að
sleppa úr haldi þeim stjómar-
hermönnum sem þeir hafa haldið
fóngnum.
Báöir deiluaöilar samþykktu að
hittast aö nýju í Managua þann
28. apríl næstkomandi.
Nýr
fundur
Til mótmæla kom á herteknu svæðunum i Israel vegna morðsins á Wazir
á laugardag.
Simamynd Reuter
Stjornarhermenn og kontra-
skæruliðar takast i hendur á
fundi skammt norður af Mana-
gua, höfuðborg Nicaragua.
Simamynd Reuter
á Wazir
Hundruð féllu í
ektflaugaárásum
íranar sögðu í morgun að hundr-
uð almennra borgara hefðu falhð í
eldflaugaárásum sem írakar gerðu
á íranskar borgir í nótt.
Sögðu íranar að mest mannfall
hefði orðið í borginni Qom, en einn-
ig nokkurt í Isfahan og Shiraz, í
suðurhluta landsins.
Til mikilla átaka hefur komið
milli írans og íraks undanfama
daga og meðal annars kom til
harðra bardaga á Faw-skaganum,
sem íranir hertóku fyrir nokkru
írakar segjast hafa hrakið írana á
brott þaðan og hafi orðið mikið
mannfall í liði þeirra.
írakar fagna sigrum sinum á írön-
um á Faw-skaga
Simamynd Reuter
^ ' *
, */«
s\Z$:
# DANSLEIKUR«
SIÐASTA VETRARDAG
■ RISINU H^
s iJí.V
m
01
iÉ
Mengun í
Peking
Peking er nú orðin ein af verstu
mengunarborgum veraldar, að því
er skýrt var frá í kínverskum fjöl-
miðlum í gær.
Að sögn Kínverja er loftmengun í
Peking nú þrjátíu og fimmfalt meiri
en í London og sextánfold sú mengun
sem Tokýobúar þurfa að glíma viö.
Það munu einkum vera kolareykur
og annað eiturloft frá þungaiðnaði
' sem valda mengun þessari í höfuð-
borg Kína. Segja þarlendir fjölmiðlar
að um hundrað sextíu og átta þúsund
verksmiðjur mengi mnhverfi sitt í
landinu.
Þar sem
PLUS° og MINUS
mætast í frystihúsinu, vöruskemmunnf
eða iðnaðarhúsnæðinu er lausnin að nota
MAX/ÍLiðnaðarplasthengi
til varnar hita- og kuldatapi.
Hljóðeinangrandi og gegnsæ
ASTRA
Leitið
upplýsinga
Austurströnd 8
- sími 61-22-44