Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1988, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1988, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988. Fréttir Leið ferðamannanna Urðarvöfn Laugafell % Tvær nætur í tjöldum Á------V *• V) X og snjóhúsum VHofsjökuiy l Jöku|dalur/’ Hreysiskvisl / Vafnajökull Leið björgunarmannannar \j(/Jökulheimar Hringt í cT" _ - ' ' Sigalda björgunarsveit irsv-?" ( fm ? ©Hella DV-kort Samúel Gytffl Garðarsson: Hlutileið- annnar ekinn efl- ir lóran - férðin gekk vel „Einn Frakkanna var alls ekki nógu hlýlega klæddur miö- að viö aö þeir lágu úti í tjaldi og snjóhúsi í tvær nætur,“ sagði Gylfi Garöarsson, formaöur Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu. Björgunarmenn komu að Frökkunum klukkan íjögur í fyrrinótt. Þegar DV hitti þá fyr- ir ofan Sigöldu um morguninn sátu þeir í góðu yfirlæti í torfæ- rubíl Björgunarsveitarinnar og báru sig vel. „Þeir höföu góðan aðbúnaö í skáianum i Jökuldal, nægar vistir til aö þreyja lengri biö en þetta,“ sagöi Garðar. Björgunarsveitinni barst beiðni um hjálp klukkan hálfsex á mánudaginn. Tveim- ur tímum síðar lögðu sjö manns af stað á snjóbíl, torfærubíl og tveimur vélsleðum,- Torfæru- bílinn komst alla leið að Hreysiskvísl, en þrír menn héldu áfram síöustu 20 kíló- metrana á snjóbílnum. ÞaÖ kom aldrei til þess aö nota þyrfti vélsleðana. „Þetta voru {jórtán tímar í snjóbílnum þessa hundraö kíló- metra. Feröin gekk hægt vegna þess hversu ósiétt var og blint. Hluti leiðarinnar var ekinn ein- ungis eftir lóran. En miöað við aöstæður gekk þetta allt. eins og best verður á kosiðsagöi Garðar. Björgunarsveitarmennimir sögðu að þetta væri ekki í fyrsta skipti sem þeir hefðu þurft að aöstoða hóp frá Fjallaferöum. Fyrir tveimur árum sóttu þeir hjón inn í Lnadmannalaugar. Konan haföi snúiö sig á ökla og maöurinn fýlgdi konu sinni til byggða. Þeir sögðu þó að farar- stjóri Fjallaferða, Phihppe Patay, væri einn sá reyndasti leiðsögumaður sem færi um landið. „Þessi hópar ganga betur um landið okkar en flestir aörir. Það mátti sjá þá koma í skálann í Landmannalaugum í sumar meö fullar byröar af rusli sem þeir höföu tínt upp af göngu- leiðunum. Rusl sem aðrir ferðamenn höfðu hent frá sér,“ sagði Sigurgeir Guðmundsson, félagi í Flugbjörgunarsveitinni á Hellu. -gse € Aldrei lent í svona byljum -segir Jean Zoro, 67 ára gamall, sem hefúr ferðast um vetur í Tíbet, Svalbarða og Síberíu „Ég hef farið í vetrarferðir til Nor- egs, Tíbet, Svalbarða og Síberíu, en ekki lent áður í svona miklum bylj- um og skafrenningi. Á leiðinni frá Laugafelh fauk vetthngurinn af mér eitthvað út í hríðina. Mér varð fljót- lega kalt og þegar við höfðum reist tjöld nokkrum kílómetrum • fyrir norðan Jökuldal kom í ljós að mig hafði kahö,“ sagði Jean Zoro, einn Frakkanna sem flugbjörgunarsveit- armenn frá Hellu sóttu í skálann í Jökuldal í fyrrinótt. Jean er 67 ára gamall, fyrrverandi kennari frá Par- ís og vanur-.ýmsum veðrum í vetrar- feröum sínum. Hinir Frakkamir tveir eru ekki heldur reynslulausir. Philippe Brasseur, 32 ára gamall bygginga- verkfræöingur frá Lyon, hefur komið til íslands átta sinnum. Hann var nú í sinni fimmtu ferð um há- lendi íslands að vetri til, en hann hefur einnig hjólað um hálendið um sumar. „Ég get kannski ekki skíðað aft- ur,“ sagði Phihppe á íslensku, en hann hefur náð aö grípa upp örhtið af máhnu á ferðum sínum hingað. Pihppe var stirður í báðum hnjám og átti erfitt með gang. Hann stóö hka upp við skenk í biðstofunni á Heilsu- gæslustöðinni á Hellu á meðan Sverrir Jónsson læknir skoðaði kahð á fingrum Jean Zoro. Þriðji Frakkinn, Maurice Plaine- maison, er 56 ára gamall bankastjóri frá Maubeuge í norðurhluta Frakk- lands. Hann er einnig mikill ferða- maður, hefur fimm sinnum farið í vetrarferðir til Kanada og fjórum sinnum til Skandinavíu. Þetta var önnur ferð hans á hálendi íslands að vetri til. Maurice sagðist hafa oröið eftir hjá hinum tveimur þeim til halds og trausts í skálanum í Jökul- dal. Læknirinn á Hellu þurfti þó að líta á ökklana á honum síöar. Hinir úr hópnum héldu áfram til Landmannalauga eftir að þremenn- ingamar urðu eftir í Jökuldal. Hópurinn heldur síöan áfram ferð sinni um hálendið og mun koma til Reykjavíkur á laugardag. Þá munu hrakningamennimir aftur slást í hópinn og halda heim á leið á sunnu- dag. En hafa þeir hug á aö koma aftur til aö ljúka ferðinni sem þeir urðu aö gefast upp á? „Auövitað. Hvers vegna ekki?“ svömðu þeir einum rómi. „Þótt eitt- hvaö þessu líkt komi fyrir skyggir það ekki á ánægjuna sem við höfum haft af þessum feröum okkar.“ -gse Frakkarnir þrir og björgunarmenn þeirra voru kátir þegar DV tók á móti þeim fyrir ofan Sigölduvirkjun. Frakkarnir voru þá aö koma til byggöa eftir að hafa dvalið i tjöldum í kafaldsbyl, illa haldnir af kali og þreytu. Félagar í Flugbjörgunarsveitinni á Hellu voru aö Ijúka við vel heppnaða sextán tíma björgunarferð. DV-myndir Brynjar Gauti Á þessu korti má sjá leiö ferðamannanna frá Akureyri og að Jökuldal. Þeir gistu sex sinnum á leiöinni, þar af þrívegis í tjöldum. Þegar komið var i Jökuldal voru þrír þeirra skildir eftir i skálanum en hópurinn hélt áfram i Jökulheima. Þá fyrst náðlst simasamband til byggða til þess aö tilkynna um kalna og þreytta mennina i Jökuldalsskálanum. Björgunarmenn frá Hellu fóru á torfærubfl, snjóbfl og tveimur vélsleðum þegar kallið barst. Torfærubillinn komst allt upp aö Hreysiskvfsl en snjóbillinn fór einn siö- asta spölinn aö skálanum. Frakkarnir voru sfðan fluttir sömu leið til baka að Hellu þar sem gert var að meinum þeirra. Frakkamir þrír, sem Flugbjörgun- arsveitin á Hellu sótti í skálann í Jökuldal í fyrrinótt, voru í hópferð á vegum Fiallaferða sem skipulagt hafa slíkar ferðir um áraraöir. Hóp- urinn dvelur hér í tvær vikur, þar af flesta daga uppi á hálendinu. Gist er ýmist í skálum eða tjöldum. Ferð Frakkanna þriggja hófst á miðvikudaginn í síðustu viku er þeir lögðu upp frá Akureyri. Leiðin lá fram Eyjaíjörð, upp Villingadal og inn á Nýjabæjarfjall. Þar gistu þeir fyrstu nóttina í tjöldum en ætluðu að ná að skálanum við Laugafell næstu nótt. Vegna óveðurs náði hóp- urinn þó ekki nema í skálann Bergland við Urðarvötn. Næsta dag fór hópurinn leiöina sem átti að fara daginn áður og gisti í Laugafelli. Daginn eftir var stefnt á gistingu í skálanum í Jökuldal og haidiö suö- austur Sprengisand. En á göngu hópsins skall á mikill bylur, bæði með ofankomu og skafrenningi. Þá missti einn Frakkanna vettling sem fauk út í hríðina. Annar var orðinn örmagna og átti erfitt um gang. Hóp- urinn gafst upp áður en hann náöi í skálann og tjaldaði um tíu kílómetra norðan við Jökuldal. Til þess aö verja tjöldin fyrir éljunum reistu þeir snjó- garða í kringum þau. Kalinn á annarri hendi Við þessar aöstæður þurfti hópur- inn að hafast við í tvær nætur. Þá var komið í ljós að sá sem misst hafði vettlinginn, Jean Zoro, var kahnn á Jean Zoro heilsar Sverri Jónssyni lækni við komuna til Hellu. Pilippe Brasseur horfir á. Jean var illa kalinn á tveimur fingrum en bar sig vel. Hann hefur ferðast víða að vetri til; í Tíbet, á Svalbarða og í Siberíu. annarri hendinni og auk þess kaldur og illa farinn á hinni. Sá sem átti erfitt um gang áöur, Pihppe Brasse- ur, var nú orðinn stirður í hnjám og þurfti að styðja hann. Þegar eilítið birti upp, eftir tvær nætur í tjöldunum, lagði hópurinn énn afstað og náði í skálann í Jökul- dal. Þá var ijóst að þeir Jean og Pilippe komust ekki lengra á skíðum. Reynt var að hringja eftir hjálp til byggða úr farsíma en ekkert sam- band náðist. Daginn eftir var því gripið til þess ráðs að skipta hópnum. Þeir Jean og Pilippe urðu eftir í skál- anum og einn tU, þeim til aðstoðar. Hinir níu héldu feröinni áfram og ætluöu að hringja eftir hjálp þegar samband næðist. Það gerðist ekki fyrr en hópurinn var kominn niöur í Jökulheima. Frakkarnir þrír eyddu deginum og mestum hluta næstu nætur í skálan- um í Jökuldal. Klukkan rétt rúmlega fiögur um nóttina komu þrír félagar úr Flugbjörgunarsveitinni á Hellu að skálanum á snjóbíl. Frakkamir voru fluttir í honum að Hreysiskvísl þar sem þeir vom fluttir yfir í torfæm- bíl sem ók þeim að Heilsugæslustöð- inni á Hellu. Þar gerði læknir að sárum þeirra. í samtah viö DV sagði Sverrir Jóns- son læknir að of snemmt væri að fullyrða um hvort fiarlægja þyrfti eitthvað af fingmm Jean Zoro en hann heföi haft ansi slæmt kal á tveimur fingrum. Pilippe Brasseur heföi verið með festumein í hnjám, en þau ættu eftir að jafna sig. -gse tjöldum í kafaldsbyl - einn kól og annar örmagnaðist Flugbjörgunarsvertin á Hellu sækir þrjá Frakka í Jökuldal: Gistu tvær nætur í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.