Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1988, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1988, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988. Frjálst, óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÚLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aöstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÚNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON ðg INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 700 kr. Verð i lausasölu virka daga 65 kr. - Helgarblað 80 kr. Forréttindi SÍS Forsvarsmenn samvinnuhreyfingarinnar eru haldnir einkennilegri fóbíu. í hvert skipti sem einhver dirfist aö hreyfa við málefnum SÍS. rjúka þeir sambandsmenn upp til handa og fóta og kvarta undan árásum og atlög- um. Á undanförnum misserum hafa komið fram margvís- legir rekstrarerfiðleikar hjá einstökum kaupfélögum og fyrirtækjum innan samvinnuhreyfmgarinnar. Stjórn- endur SÍS og kaupfélaganna hafa reynt að bregðast við þessum vanda, meðal annars eru uppi hugmyndir um sameiningu kaupfélaga og í ullariðnaðinum hefur iðn- aðardeild SÍS sameinast Álafossi. Allt eru þetta eðlileg viðbrögð, bæði til hagræðingar og bjargar rekstri. sem stendur veikum fótum. Samband íslenskra samvinnufé- laga er langstærsta fyrirtæki landsins og engar líkur á að það breytist. Umsvif þess eru mikil og margvísleg, starfsmenn margir og viðskiptavinir enn fleiri. Sambandið þarf því ekki að vera undrandi eða grát- bólgið þótt stjórnmálamenn, almenningur eða fjölmiðlar hafi skoðanir á stöðu SÍS í þjóðfélaginu, ítökum og ábyrgð, efnum og ástæðum. Það er til að mynda eftirtekt- arvert þegar lítið kaupfélag, Kaupfélag Svalbarðseyrar, verður gjaldþrota, hverjir það eru sem borga brúsann. Ekki er það SÍS, ekki er það hin margrómaða félagsmála- hreyfmg sem segir á hátíðarstundum að hún standi saman. Ekki er það baktryggingin fyrir sunnan, ekki hinar ýmsu deildir Sambandsins. Nei, þeir sem sitja í súpunni eru nokkrir einstaklingar sem hafa gengið í persónulega ábyrgð fyrir kaupfélagið og byggðarlagið. SÍS þvær hendur sínar og vísar því á bug að gjaldþrota kaupfélag eigi eitthvað inni hjá sér. Þó er manni sagt að kaupfélögin myndi Sambandið og eigi það í nafni tugþúsunda félagsmanna um land allt! Þetta sérkennilega mál hefur leitt til þess að þrír þing- menn sjálfstæðismanna hafa flutt frumvarp á þingi um breytingar á lögum um samvinnurekstur sem hefur það að markmiði að auka ábyrgð samvinnuhreyfingarinnar í málum eins og að framan er rakið. Eins og málum er háttað á alþingi þarf enginn að halda að frumvarp þetta verði samþykkt. Tilgangurinn er væntanlega sá að vekja athygli á þeirri þversögn sem kemur fram í málflutningi samvinnuhreyfmgarinnar annars vegar og raunveruleikanum hins vegar. Þau eru fleiri málin sem vekja athygli. í DV í gær er sagt frá því að SÍS njóti þeirra forréttinda í bankakerf- inu að slá lán án veðtrygginga og fullyrt að SÍS skuldi milljarð í Landsbankanum án nokkurar baktryggingar, nema þá í verðlausum verðbréfum úr skreiðaviðskipt- unum! Þessi dæmi og mörg, mörg önnur sem lúta að lögum, fjármálum, fyrirgreiðslu og forréttindum, draga það enn og einu sinni fram í dagsljósið að Samband íslenskra samvinnufélaga hefur algjöra sérstöðu í íslensku at- vinnulífi. Þær staðreyndir liggja á borðinu og meðan sambandsmenn og framsóknarmenn halda þeim forrétt- indum til streitu geta þeir auðvitað ekki búist við öðru en að á þau sé bent. Og það án þess að kvarta og kveina um að verið sé að koma SÍS fyrir kattarnef. Stórveldi eins og SÍS verður ekki lagt að velli, meðan það ber ekki ábyrgð á vanskilum kaupfélaganna og hefur óheft- an aðgang að lánsfé án veða eða trygginga. En þeir mega vel heyra það, SÍS karlarnir, að þeir eru ekki einir í heiminum. Ellert B. Schram „Og hvað með það?“ Það er með ólíkindum hve ágætt fólk getur komið manni á_óvart. Stundum spyr ég jafnvel Ijálfan mig hvetju mennt og menning fær áorkað hjá þeim sem skortir að því er virðist jarðsamband við raun- veruleika lífsins sjálfs, hringiðu þeirrar undirstöðu verðmætanna sem landsbyggðarbúinn t.d. lifir og hrærist í. Nú skal ég ekki fara að draga í dilka, svo sem alltof oft er gert milli landsbyggðar og þéttbýlisins suðvestanlands, heldur ekki milli menntaðra og ómenntaðra, enda erfitt um vik, því hver vill í alvöru dæma um þaö hvað sönn menning er, hvað „ekta“, hvað „óekta“. Dekurbörn frjálshyggjunnar En því hef ég þennan formála, svo undarlegur sem hann er eflaust, að fyrir nokkru ræddi ég við vel menntaðan félagsfræðing, borinn og barnfæddan Reykvíking, af vel efnaðri fjölskyldu - svo efnaðri að hann haföi aldrei þurft að vinna fyrir námi sínu nema að vild og það var ekki beysið. Hann var hins vegar róttækur vel í skoðunum, a.m.k. að eigin mati, og við vorum raunar að ræða kjaramál fyrst og síðast og vorum nokkuð sammála um margt. Báðir vorum við á þeirri ein- dregnu skoðun að skellilegt væri hversu misskipting auðsins væri að verða áberandi hér á íslandi, hversu einstakir auðfurstar á sviði verslunar og viðskipta, ásamt sér- þekkingu í skattsvikum, væru verðlaunaðir af samfélaginu, for- réttindahópar sem hagkerfi okkar hossaði æ hærra á kostnað hins almenna launamanns í þjóðfélag- inu. Okkur blöskraði báðum glæsi- hallir verslunar og viðskipta og ég benti réttilega á hvar þær risu og hvernig landsbyggðin væri rúin einmitt til þessara hluta, sem hann samsinnti svona ansi mikið annars hugar og eins og með semingi. En báöir vorum viö að sjálfsögðu sam- mála því aö hinn almenni launa- þræll væri í raun réttri eigándi þessara verðmæta, hinir ræningjar sem skráðir væru eigendur, dekur- börn frjálshyggjunnar, sem ríður húsum eins og versti draugur úr fomum sögum. Á „menningarlínunni“ Óg við fórum að tala áfram um hin raunverulegu verðmæti og skapendur þeirra. Og þá fór nokk- uð að kárna gamanið pg sátt og samlyndi ekki eins einkennandi og áður. Hann var nefnilega á „menn- ingarlínunni", svo algerlega að hann sá ekki út fyrir hana eða út yfir hana, að mér fannst. Það voru hin einu verðmæti og iðkendur þeirra og unnendur öllum öðrum æðri og göfugri og áttu að verð- skulda umbun í fullu samræmi við það, margfalda miöað við eymdar- kjör dagsms. Ég fylgdi honum lengi vel því ekki dreg ég gildi góðrar menntunar í efa og þeim sem henni miðla ann ég alls hins besta, m.a. drjúgra aflafanga af ránsfeng þeirra ríku. Eins vil ég hlut þeirra sem að menningu starfa sem mestan og bestan og þykist hafa sýnt hvoru tveggja sæmilega í verki á fyrri vinnustöðum, þótt eflaust hefði allt mátt vera betra og meira í þá veru. Ég var honum sem sagt samferða langleiðiná, eða a.m.k. vel upp í miöjar hliöar, þótt þar væri tals- vert langt í þann forréttindatopp sem félagsfræðingurinn vildi láta alla sína vel menntu vini tróna á. En leiðir skildi þó ekki fyrr en ég fór að koma mínu fólki virkilega að sem gjarnan mátti fyrir honum Kjallariim Helgi Seljan félagsmálafulltrúi ÖBÍ eiga unandi verkalaun, en ekki miklu meira. Þetta fólk hafði nefni- lega svo ósköp takmarkaða menntun, ef nokkra, enga próf- gráðu, ekkert löggilt skírteini og engin umtalsverð afrek hafði það unnið á lista- eða bókmenntasvið- inu sem gætu fært því lárviðar- sveiga eða ódauðleika fræðarinnar sem til fjár mátti meta í ríkum mæli. Hundleiður á snobbinu Nú eru þetta ekki orð kunningja míns beint en merkingin þó nokk- uð nærri þessu. Og þá er ekki seinna vænna að víkja að því fólki sem ég taldi alveg sér í lagi að þyrfti að huga að varðandi verðug verkalaun. Þetta fólk er í fram- leiðslustörfunum til sjávar og sveita, fiskverkunarkonan, salt- fiskkarlinn, bóndinn og kona hans sem öll erja ærinn vinnudag pg bera skarðan hlut frá borði. Ég bætti raunar um betur og minntist á iðnverkafólkið, fólkið í þjónustu- störfunum - ófaglærðá fólkið sem annast framar öðru sjúka, aldraða og vanheila - já, langt umfram þá sem þar standa ofar í þrepum og þiggja mun hærri laun fyrir mun minni vinnu. Og þetta síðasta heíði ég eflaust ekki átt að segja, enda ekki sann- gjarnt með öllu, enda færðist nú vinur minn allur í aukana. Hann kvaðst löngu orðinn hundleiður á þessu snobbi niður á við - snobbi fyrir fjósalykt og slori og illa þefj- andi elliheimilamat og öllu því fólki sem þar væri að puða, einfaldlega af því það hefði skort vilja eða getu til að afla sér nauðsynlegrar menntunar - trúlega hvort tveggja - getulaust og viljalaust. Eftir smálestur um lítilsiglda pólitíkusa náði kunningi minn nokkrum áttum og samsinnti mér í því að vissulega mætti margt bæta í kjörum þessa fólks sem væri líklega nokkuð nauðsynlegt, þegar allt kæmi til alls og kringlu- leitir breiðvangsfurstar mættu sannarlega blæða til þessa fólks. En ljóst var að leiðir skildi að mjög verulegu leyti. Félagsfræð- ingurinn róttæki varð allt í einu undarlega sammála þeim kringlu- leitu frjálshyggjufyrirbærum eða réttara sagt - líkt og þeir ómeðvit- aður um upptök - uppsprettur þess þjóðarauðs sem allt byggist þó á. í kennslubókunum einum Rétt eins og frjálshyggjufyrir- bærin virðast halda að „Kringlum- ar og Byko-Ikeurnar“ séu uppsprettur auðsins, að ógleymdu öllu „hollywoodinu", þá viröist þessi góðkunningi minn á því að í kennslubókunum einum sé öll verðmæti að fmna. Og enn verra var öllu skilningsleysinu, ákveðin fyrirlitning, fjarræn og fordóma- full, ásamt undrahroka þess sem allt veit. Enda lauk samtalinu á þann veg að ég var að burðast við að segja þaö á minn menningar- snauða máta að ef ekki væri fólk sem vinna vildi þessi störf, væri undirstaðan ekki til fyrir allt hitt, svo nauðsynlegt sem allt það væri nú, og því þyrfti sérstaklega að huga að kjörum þess fólks því án framleiðslunnar gerðist fátt mark- vert í þjóölífinu. Og þá var þaö sem félagsfræöingurinn spurði svo spaklega: Og hvað með það? Viö þessu átti ég engin svör, hvorki félagsfræðileg né önnur, og því er ég enn þann dag í dag jafn- undrandi og jafnframt hugsandi - hugsandi og hryggur um leið: Því skyldu kringlukóngamir eiga nokkra bandamenn betri en þá sem hafa á sér fræðistimpil, kenna sig við mennt og menningu og eru sós- íalistar innan gæsalappa í þokka- bót? Já, hvað með þaö? Helgi Seljan ...því án framleiðslunnar gerðist fátt markvert í þjóðlífinu". - Saltfisk- vinnsla á Hornafirði. „Því skyldu kringlukóngarnir eiga nokkra bandamenn betri en þá sem hafa á sér fræðistimpil, kenna sig við mennt og menningu og eru sósíalistar innan gæsalappa í þokkabót. - Já, hvað með það?“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.