Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1988, Page 8
8
MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988.
Utlönd
Allir gíslamir látnir lausir
í Algeirsborg í moigun
Allir gíslamir, sem verið hafa í
haldi flugræningja um borð í Boeing
747 þotu frá flugfélagi Kuwait í sex-
tán daga, voru í morgun látnir lausir.
Gislarnir, sem undir það síðasta voru
þrjátíu og einn talsins, fóru úr flug-
vélinni í dögun i morgun. Virtust
þeir, að sögn sjónarvotta, tiltölulega
vel á sig komnir, þrátt fyrir liðlega
tveggja vikna ógnarástand.
Skömmu áður en gíslamir gengu
frá borði fluttu alsírsk yfirvöld flug-
ræningjana á brott. Ekki er vitað
hvert þeir voru fluttir. Segja sjónar-
vottar að flugræningjarnir hafi
yfirgefið farþegaþotuna í tveim hóp-
um. Um fjörutíu og fimm mínútum
áður en gíslarnir yfirgáfu vélina
voru fjórir eða fimm menn, sem tald-
ir eru hafa verið úr hópi flugræningj-
anna, fluttir á brott frá þotunni. Um
þijátíu mínútum síðar var afgangur
flugræningjanna síöan fluttur á
brott.
Aðspurður um dvalarstað flugræn-
ingjanna í morgun sagði El-Hadi
Kheridi, innanríkisráðherra Alsír,
að það væri mál Alsírmanna. Sagði
ráðherrann að meginatriði málsins
hefði verið aö bjarga lífi gíslanna og
það þýddi ekkert að ræða einstök
atriði þess samkomulags sem náðist
við flugræningjana.
Flugræningjamir höföu gert kröfu
um að sautján félögum þeirra, $gm
afplána dóma fyrir sprengjutilræði í
Kuwait, yrði sleppt úr haldi. Yfirvöld
í Kuwait neituðu alfarið aö verða við
þeirri kröfu. í Kuwait sögðu tals-
menn stjórnvalda í morgun að
Alsírmenn hefðu samið við flugræn-
ingjana um að þeir fengju að fara
frjálsir ferða sinna, eftir aö þeir gáfu
sig yfirvöldum á vald.
Ekki er vitað með fullri vissu hverj-
ir flugræningjamir voru, en þeir eru
taldir vera félagar í samtökum öfga-
sinnaðra múhameðstrúarmanna í
Líbanon.
Flugræningjarnir hafa notið stuön-
ings annarra öfgahópa múhameðs-
trúarmanna í Líbanon, sem meöal
annars hafa haft í hótunum um að
myrða vestræna gísla, sem þeir hafa
í haldi, ef tilraun yrði gerð til að taka
þotuna með valdi.
Eftir að flugræningjamir voru
komnir til Algeirsborgar virtust
samningaumleitanir viö þá ganga
mun betur en til þess tíma. Þeir
gérðu aðeins einu sinni kröfu um að
fá að fljúga áfram til ótilgreinds
áfangastaðar en ítrekuðu þá kröfu
ekki og fylgdu henni ekki eftir á
neinn hátt.
IASHHAD
iKÝPUR
ALGEIRSBORG
TEHERAN
*MAROKKÖ
KUWAITi
(BANKOI
Flugræningjarnir tóku farþegaþotuna herskildi þriðjudaginn 5. april þegar hún var á leið frá Bangkok til Kuwait.
Þotunni var snúið til Mashhad, í norðausturhluta íran. Þar slepptu flugræningjarnir þegar einum gíslanna.
Daginn eftir slepptu flugræningjarnir tuttugu og fjórum konum úr haldi og á fimmtudaginn var þrjátíu og tveim
gislum til viðbótar sleppt. Siðar þann dag var sett eldsneyti á þotuna.
Föstudaginn 8. april hélt þotan frá Mashhad áleiðis til Beirút i Libanon. Þar reyndu flugræningjarnir að lenda en
án árangurs. Ræningjarnir sneru því til Kýpur og lentu þar á flugvellinum í Larnaca seint um kvöldið.
Á laugardag myrtu flugræningjarnir einn gíslanna og á mánudag var annar gísl skotinn til bana. Þriðjudaginn 12.
apríl tókst svo samkomulag um að þotan yrði fyllt af eldsneyti i skiptum fyrir tólf af gislunum.
Seint á þriðjudagskvöld hóf þotan sig síðan á loft frá Larnaca á Kýpur og hélt áleiðis til Alsír þar sem hún lenti
á fiugvellinum i Algeirsborg snemma að morgni miðvikudagsins 13. apríl.
Siðan hafa samningaumleitanir staðið milli stjórnvalda i Alsír og flugræningjanna og báru þær loks árangur i
morgun þegar öllum gislunum var sleppt.
Einn gíslanna hélt enn á minjagrip, sem hann hafði keypt sér í Bangkok,
þegar hann loks fékk frelsið í morgun. Símamynd Reuter
Dukakis vann yfirburðasigur
Ólafur Amaisan, DV, New York;
Michael Dukakis, ríkisstjóri
Massachusettsríkis, virðist nú
stefna hraðbyri að þvi að tryggja
sér útnefningu Demókrataflokks-
ins fyrir forsetakosningarnar í
haust.
Dukakis vann yfirburöasigur í
forkosningunum í New York sem
fram fóru í gær. Hlaut hann 51 pró-
sent atkvæða. Helsti keppinautur
Dukakis, Jesse Jackson, hlaut 37
prósent og Albert Gore hlaut 10
prósent. Stórsigur Dukakis kom
nokkuð á óvart því skoðanakann-
anir höfðu bent til þess að mjórra
yrði á mununum milli hans og
Jacksons. ' •
Gleðin skein úr andliti Dukakis
er hann ávarpaði stuðningsmenn
sína í New York í gærkvöldi. Við
hlið hans til annarrar handar stóð
eiginkona hans, Kitty, og til hinnar
handar var frænka hans, Olympia
Dukakis óskarsverðlaunahafi.
Dukakis sagði að í Iowa hefði hann
hlotið bronsverðlaun, í New
Hampshire gullið en í gær hefði
hann hlotið sín óskarsverðlaun.
Hin dagfarsprúði Dukakis tjáði síð-
an New York-búum að hann
elskaöi þá en í gærkvöldi var Duk-
akis mun hressari og kátari en
hann hefur hingað til verið. Það er
ef til vill ekki undarlegt því sigur-
inn í gær var eftil vill mikilvægasti
sigur hans í kosningabaráttimni til
þessa.
h Vv’ * .HP
/ ^
Michael Dukakis fagnar sigri ásamt Kitty, eiginkonu sinni, og frænku
sinni, Olympiu Dukakis óskarsverðlaunahafa.
Jesse Jackson óskaði Dukakis til
hamingju með sigurinn í gær-
kvöldi. Jackson sagði að Dukakis
hefði barist á heiðarlegan, málefna-
legan og virðingarveröan hátt í
þessari kosningabaráttu.
Albert Gore beið afhroð í kosn-
ingunum í gær og þykir nú næsta
ljóst aö hann sé úr leik aö þessu
sinni. Gore sagöist myndu ráðfæra
sig við vini og ráögjafa í dag og að
á morgun væri að vænta yfirlýsing-
ar frá honum um framhaldið. Gore
á nú í fjárhagsvandræðum og
skuldar eina og hálfa milljón doll-
ara vegna kosningabaráttu sinnar.
Talið er að á morgun muni hann
annaðhvort tilkynna að hann dragi
sig alveg í hlé eða þá að hann ætli
að fara að dæmi Poul Simon og
hætta baráttu sinni en vera áfram
frambjóðandi að nafninu til.
Ástseða hins stóra sigurs Dukakis
í gær virðist vera sú að hvítir íbúar
New York-ríkis flykktust um hann
til að koma í veg fyrir sigur Jesse
Jacksons. Dukakis fékk yfirgnæf-
andi meirihluta af atkvæðum
hvítra en athyghsvert er að Jack-
son fékk mun fleiri atkvæði meðal
hvítra en Albert Gore. Skýringin á
því er sennilega sú að hvítir kjós-
endur hafa talið atkvæði greitt
Albert Gore kastað á glæ og jafnvel
Jackson til framdráttar.
Gore lagði mikla áherslu á að fá
gyðinga til liðs við sig en án árang-
urs. Dukakis fékk nærri þrjáfjórðu
hluta af atkvæðum gyðinga. í skoö-
anakönnunum sem . gerðar voru
fyrir utan kjörstaði kom hins vegar
í ljós að um 70 prósent af þeim gyð-
ingum sem kusu Dukakis hefðu
frekar viljað kjósa Gore. Þeir höfðu
hins vegar kosið Dukakis til að
stöðva Jackson. Jackson hlaut hins
vegar nærri 95 prósent atkvæða
blökkumanna.
Það er áhyggjuefni fyrir Dukakis
að yfir helmingur allra þeirra sem
kusu hann sögðust fremur hafa
viljað kjósa einhvem annan. Það
virðist því Ijóst að Michael Dukakis
tendrar engan ástríðuneista í
bijóstum bandarískra kjósenda.
Fylgi hans á rætur sínar að miklu
leyti að rekja til þess að mörgum
er illa við Jesse Jackson og einnig
til þess að mörgum finnst hann
skásti kosturinn úr hópi þeirra
frambjóðenda sem fyrir hendi em.
í gær var kosið um 255 fulltrúa á
flokksþing demókrata. Dukakis
fékk 152 fulltrúa, Jackson 88 og
Gore. 15. Dukakis hefur nú fengið
1033 fulltrúa en 2089 þarf til að
hljóta útnefningu Demókrata-
flokksins. Jackson hefur 831 og
Gore rúmlega 400. Litlar líkur em
taldar á að Dukakis nái þeim fjölda
sem þarf til að hijóta útnefninguna
en fátt er nú taliö geta komið í veg
fyrir að hann fái flesta fulltrúa á
þingið.
Jesse Jackson fagnaöi sigri á ein-
um stað í New York-ríki. í New
York-borg marði hann fram sigur
á Dukakis og munaði einungis sex
þúsund atkvæðum af rúmlega átta
hundruð þúsund þegar upp var
staðið. Það er kaldhæðnislegt að
harðasti andstæðingur Jacksons í
New York er Ed Koch, borgarstjóri
New York-borgar. Koch, sem
studdi Gore, hafði undanfarna daga
látið geysilega hörð ummæli frá sér
fara um Jackson. í skoðanakönn-
unum, sem gerðar vom í gær, kom
fram að fólki mislíkaöi framganga
og orðaval Koch í garð Jacksons
og stuðningur hans við Gore virðist
frekar hafa faelt kjósendur frá Gore
en laðað að. Á næsta ári em borg-
arstjórakosningar í New York og
samkvæmt skoðanakönnunum í
gaer hefur Koch skaðað möguleika
sína á endurkjöri mjög með stráks-
legri framkomu sinni í garð
Jacksons.
Hjá repúblikönum var tíðindalit-
ið og lítil þátttaka í forkosningum
þeirra. George Bush vann yfir-
burðasigur á Pat Robertson sem
nú er aðeins að nafninu til fram-
bjóðandi. Er Bush nú kominn með
1051 fulltrúa á flokksþing repúblik-
ana en 1139 þarf til að tryggja sér
útnefninguna.
Næsta stóra skrefið hjá demó-
krötum em forkosningar sem fara
fram í Pennsylvaniu á þriðjudag í
næstu viku.