Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1988, Page 10
—■■ .—I—
------"TjR
uv..~~t~—:ssíkSsT>í4
MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988.
Sendum í póstkröfu
simi 18199
Ódýrt! Ódýrt!
Leðurkuldaskór,
aðeins kr. 1.000,-
Stærðir 36-41.
Hlýir sjónvarpsskór
á kr. 390,-
Einnig kúrekastigvél nr. 37-45 á kr. 1.495,- og kr. 1.995,-
Ódýri skómarkaðurinn,
Hverfisgötu 89
KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ
80 ÁRA
Afmælisfagnaður verður haldinn 29. apríl 1988 í Sig-
túni 3 kl. 19.30.
Aðgöngumiðar og borðapantanir í Framheimilinu
v/Safamýri frá 18. apríl milli kl. 17.00 og 22.00.
Utlönd
Maíkosningar
í Danmörku
Guimar Kristjánsson, DV, Kaupmannahö£n:
Poul Schluter, forsætisráðherra
Danmerkur, rauf þing í gær og boð-
aði kosningar þann 10. maí. Tillaga
jafnaðarmanna, sem samþykkt var
siðastliðinn fimmtudag, gerði það að
verkum að ríkisstjómin getur ekki
setið við völd að óbreyttu.
í tillögtmni var kveðið á um að öll-
um erlendum herskipum, sem
heimsækja Danmörku, skuli afhent
bréf þar sem fram komi að kjarn-
orkuvopn eru bönnuð í Danmörku á
friðartímum.
Schliiter hefur bent á að tillaga
þessi ógni aðild.Danmerkur að'Atl-
antshafsbandalaginu og er það ósk
ríkisstjómarinnar að vilji kjósenda
komi fram. Bretar og Bandaríkja-
menn hafa gagnrýnt þessa tillögu
harðlega og neita að senda herskip
sín til Danmerkur. Stefna Banda-
ríkjamanna og Breta er að hvorki
hrekja né staðfesta hvort eitthvert
skip þeirra beri kjarnorkuvopn.
Norðmenn hafa éinnig lýst yfir
áhyggjum sínum. Jafnframt verður
Forsætisráðherra Danmerkur, Poul Schliiter, boðaði í gær kosningar þann
10. maí næstkomandi. Simamynd Reuter
öllum heræfingum í danskri land-
helgi hætt ef þessi tillaga kemur til
framkvæmda.
Svend Auken, formaður jafnaðar-
manna, segir að ríkisstjómin vilji
kosningar nú vegna þess að hún sé
úrræðalaus í öllum málum og alls
ekki sé verið að kjósa um aðildina
að Atlantshafsbandalaginu, eins og
Schluter hefði áður sagt.