Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1988, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988.
11
Utlönd
Ótrúleg fylgisaukning
norska Framfaraflokksins
Björg Eva Erlendsdóttir, DV, Osló:
Mikill manafjöldi var saman
kominn á landsþingi norska Fram-
faraílokksins sem haldið var í
Bergen um helgina. Þinginu var
sjónvarpað í norska sjónvarpinu
og formaður flokksins, Carl I. Hag-
en, beindi máh sínu ekki síður til
sjónvarpsáhorfenda en ílokks-
bræðra sinna á þinginu.
Framfaraflokkurinn, sem er
lengst til hægri af öllum norskum
stjómmálaflokkum, getur státað af
ótrúlegri fylgisaukningu síðustu
mánuðina. Stjómmálamenn ann-
arra flokka hafa hingað til ekki
viljað taka Framfaraflokkinn al-
varlega en hafa htið á Carl I. Hagen
eins og nokkurs konar hirðfífl eða
öhu heldur þingfífl. En það voru
mistök sem Hagen hefur notfært
sér og nú hefur fylgi hans marg-
faldast. Sums staðar í Noregi er
flokkurinn orðinn stærstur ahra
flokka.
Á landsþinginu í Bergen talaði
Hagen blaðlaust í tvo tíma og fagn-
Carl I. Hagen, formaður norska Framfaraflokksins, talar mál sem almenningur skilur. Sums staðar i Noregi
er flokkur hans orðinn stærsti flokkurinn. Hér sést Hagen fagna sigri i sveitarstjórnarkosningunum i september
i fyrra ásamt konu sinni Eli. -Símamynd Reuter
aðarlátum viðstaddra ætlaði aldrei
að Unna eftir ræðuna. Hagen talar
mál sem almenningur skilur. Setn-
ingarnar eru stuttar og einfaldar
og stofnanamálið forðast hann eins
og heitan eldinn. Stóryrðin em aft-
ur á móti aldrei spöruð, sérstaklega
ekki þegar ráðist er á óvininn, sem
er ríkisbáknið og stjórnkerfiö.
Þeir sem þar sitja em hin raun-
verulega yfirstétt í Noregi, að áliti
Framfaraflokksins. Niður með
kerfiskallana og andlausa stjórn-
málaménn, er eitt af slagorðum
flokksins. Þeir hafa nefnilega
hvorki rétt né getu til þess að
stjóma. Það er fijáls samkeppni og
eftirspurn sem á að stjórna
landinu.
Hinir flokkarnir hafa svikið ykk-
ur, sagði Hagen og beindi máh sínu
til sjónvarpsáhorfenda. Almenn-
ingur er skattpíndur og peningun-
um ykkar er eytt í lúxús handa
kerfisköllum og flóttamönnum.
Framfaraflokkurinn vill loka
landinu fyrir flóttamönnum, leggja
niður aUan ríkisrekstur, til dæmis
á sjúkrahúsum og bamaheirmlum
og frjáls eftirspum á að ráða öUu.
Fyrirtæki eða landbúnaður og
veiðar sem ekki skUa arði á aö
leggja niður tafarlaust. Þessar og
fleiri sparnaðarráðstafanir munu
fyrst og fremst koma almenningi
og lægri stéttum til góða, segir
Hagen.
Framfaraflokkurinn hefur aldrei
þurft að sanna mál sitt með því að
eiga aðild að ríkisstjórn en sífellt
fleiri trúa á hin einfóldu boöorð
flokksins. Síðustu skoðanakannan-
ir benda tU þess að Framfaraflokk-
urinn eigi nú fylgi sextán prósent
allra kjósenda í Noregi. Þetta hafa
þeir tekið frá Hægri flokknum og
nú í vaxandi mæU einnig frá
Verkamannaflokknum.