Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1988, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988.
17
Lesendur
Athugasemd frá Flugleiðum:
Ekki okur í innanlandsflugi
í gær, mánudaginn 18. apríl, birtist
í lesendadálki DV bréf frá „Jóni Sig.,
V.R.-félaga“ um „okur á innanlands-
flugleiöum Flugleiða".
Þar sem bréfritari er með mjög al-
varlegar ásakanir í garð Flugleiða
og byggir þær á röngum staðhæfing-
um um fargjöld, verður ekki hjá þvi
komist að gera athugasemd viö skrif
hans.
Jón Sig., V.R.-félagi, segir í grein-
inni að það sé 163% dýrara aö fljúga
pr. mílu í innanlandsflugi en á Evr-
ópuleiðum hjá félaginu, Hann byggir
þetta á dæmi um samanburð á
„lægstu“ fargjöldum milli Akur-
eyrar og Reykjavíkur annars vegar
og milli Keflavíkur og London og
Keflavikur og Kaupmannahafnar
hins vegar.
Orðrétt segir Jón Sig., V.R.-félagi:
„Akureyri, fram og til baka 320 míl-
ur, lægsta verð kr. 7.234.“ - Þama
er rangt með farið hjá Jóni Sig.
Lægsta fargjald milli Akureyrar og
Reykjavíkur er ekki kr. 7.234, heldur
kr. 3.517 og munar þar miklu. Hæsta
fargjald á þessari flugleið er hins
vegar kr. 7.034 (ekki kr. 7.234).
Lægsta fargjaldið til Akureyrar er
því kr. 11.00 per mílu, og til London
kr. 8.61 per milu. Munurinn er því
27,6%, en ekki 163% eins og Jón Sig..
hélt fram í bréfi sínu.
Vona ég að um einfaldan misskiln-
ing hafi verið að ræða hjá Jóni Sig„
því það er alvörumál og ábyrgðar-
hluti að fara svo rangt með stað-
reyndir, sem hann gerði, í svo
harðorðu bréfi, sem hann skrifaði í
DV í fyrradag.
Varðandi þann mismun, sem þó er
þarna um að ræða á fargjaldi pr.
mílu í innanlandsflugi og millilanda-
flugi, þá er það að segja, að hann er
síst óeðlilega hár. Hann stafar m.a.
af því, að hægt er að nota mun stærri
og afkastameiri flugvélar í millilnda-
flugi sem þýðir mun lægri reksturs-
kostnað pr. sæti.
Einnig eykur það mjög á allan
kostnað innanlandsflugsins hve flug-
vellir innanlands eru slæmir og illa
búnir tækjum. Þetta kallar á aukinn
viðhaldskostnað, en einnig þýðir
þetta mun lakari nýtingú flugvél-
anna en ella, m.a. vegna þess að
ljósabúnað og önnur tæki vantar á
flesta flugvelli innanlands.
Gefur auga leið, að ef aðeins er
hægt að nýta flugvélar í 1500-1700
klst. á ári af þessum sökum (eins og
raunin er á íslandi), í stað 2200-2500
klst. eins og tíökast með sömu flug-
vélategundum erlendis, þá dregur
slíkt mjög úr hagkvæmni, einkum
ef litiö er til þess, að hver ný flugvél
af sambærilegri gerð kostar á bilinu
300 til 500 milljónir kr.
En þrátt fyrir það sem hér hefur
verið sagt um aðstæður hér á landi,
þá hefur nýlegur samanburður við
önnur lönd leitt í ljós, að þar sem um
innanlandsflug á sams konar eða
sambærilegum flugvélum er að
ræða, eru fargjöld síst hærri á ís-
landi. - Öllum dylgjum Jóns Sig.,
V.R.-félaga um „okur á innanlands-
leiðum Flugleiöa" er því visað á bug.
Með þökk fyrir birtinguna,
Upplýsingadeild Flugleiða,
19. apríl 1988.
HEMIAHIJJTIRÍ VÖRUBÍLA
• Hemlaborðar í alla
vörubíla.
• Hagstætt verð.
• Betri ending.
®] Stilling
Skeifunni 11,108 Reykjavik
Slmar 31340 & 689340
halda skátarnir í Kópavogi sína
árlegu kaffisölu í Félagsheimili
Kópavogs (uppi) frá kl. 3—6.
Hlaðborð með girnilegum kökum.
Einnig verða skátarnir með kaffi,
vöfflur og rjóma í Digranesi meðan á
skemmtiatriðum stendur.
Styrkið okkur í starfi!
KVENNADEILDIN URTUR
&
SKÁTAFÉLAGIÐ KÓPAR
UTSÆÐI
Jón er byrjaður að selja hinar mörgu
tegundir af útsæði að
Síðumúla 34.
„Ég vil ekki gera þetta að algildri dæmi-
sögu; ung manneskja mætir vondum
heimi. Þetta ertilfinning sem allir þekkja,"
segir Kjartan Ragnarsson í DV-viðtali á
föstudag.
En næstkomandi sunnudag verður eitt
frægasta verk William Shakespeare frum-
sýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur. í viðtalinu
ræðir Kjartan um uppfærsluna og þessa
frægustu persónu leikbókmenntanna.
Á sunnudag verður stór viðburður
hjá íslensku hljómsveitinni en þá
verðurfrumflutt tónverkið Sturla eftir
Atla Heimi Sveinsson við samnefnt
frumort Ijóð eftir Matthías Johann-
essen, Ijóðskáld og ritstjóra. Á undan
tónlistarflutningnum verður afhjúp-
að myndverk eftir Hallstein Sigurðs-
sonJistamann. DVsegirfrá þessum
viðburðiáföstudag.