Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1988, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988.
19
Lífsstíll
Verkfall verslunarmanna hefst á föstudag:
Síðasta tækifærið
til að hamstra
A fóstudaginn næstkoinandi
hefst verkfall verslunarmanna
þannig að í dag er í raun síðasta
tækifærið til að gera innkaup. Að
vísu má kaupmaðurinn á hominu
hafa opið, eigendur verslana mega
afgreiða ásamt fjölskyldum sínum.
Þar sem flestar stærri heildversl-
anir koma einnig til með að loka
má búast við vöruþurrð ef verkfall
dregst á langinn. Þó verður mjólk-
urvörum áfram dreift og bakarar
mega baka og selja brauð, þannig
að af þessum vörum verður nóg.
Aðrar vörur ganga hins vegar til
þurrðar ef teygist úr verkfalli.
Birgja sig upp í dag
Það er því ráðlegt að birgja sig
vel upp í dag, því auk þess sem
vörur gæti farið að vanta er ljóst
að vöruverð er mun hærra hjá
„kaupmanninum á horninu" og
ekki ólíklegt að það hækki enn ef
samkeppni frá stórmörkuðum
hættir aö gæta.
Undanþágur
Samkvæmt upplýsingum, sem
DV aflaði sér hjá Verslunarmanna-
félagi Reykjavíkur, er ekkert ljóst
Neytendur
um undanþágur enn sem komið er.
Verkfalhð er allsherjarverkfall og
undanþágur verður að sækja um
þegar það er hafið. Þá verður tekin
afstaða til hvers máls fyrir sig
hvort undanþága verður veitt eða
ekki, en þó er ljóst að þær eru ekki
gefnar án góðrar og gildrar ástæðu.
Eins og fyrr greinir mega bakarar
baka áfram en aðstoðarmenn
þeirra fara í verkfall. Það er því
alveg á huldu hversu miklu bakar-
ar geta annað sjálfir, jafnvel þótt
þeir hafi maka og böm sér til að-
stoðar.
Eins er með mjólkurdreifingu.
Þeir sem henni dreifa em í Dags-
brún en allt skrifstofufólk er í V.R.
Það er því hægt að dreifa mjólkinni
en hvorki hægt aö skrifa út reikn-
inga né nótur, þannig að óvíst er
hve lengi verður hægt að senda
mjólkurvörur í þær verslanir sem
opnar verða.
Verðbólga i verkfalli
Slíkt verkfall skapar óvenjulegar
aðstæður sem bjóða þeirri hættu
heim að vöraverð hækki verulega.
Litlar hverfaverslanir era að jafn-
aði með mun hærra vöraverð en
stórmarkaðir og vitað mál að það
mun ekki lækka við það að stór-
markaðir loka. Sú verðsamkeppni,
sem í gangi er, heyrir sögunni til í
slíku verkfalli og næsta líklegt að
einhveijir sjái sér þar leik á borði
til að maka krókinn. Fólk ætti því
að birgja sig vel upp af þeim vöram
sem eitthvað geymsluþol hafa, svo
sem þurrkuðum baunum, dósamat,
frystivöru og öðra slíku. Grænmeti
og ávextir hafa hins vegar tak-
markað geymsluþol þannig að ekki
er ráðlegt að fjárfesta um of í slíkri
vöru.
í dag er síðasta tækifærið sem
fólk hefur til að kaupa matvöra á
stórmarkaðsverði og má búast við
að í nógu verði að snúast í stór-
mörkuðum i dag þar sem sumar-
dagurinn fyrsti er á morgun og
verslanir því lokaðar. Ef einhver
getur ekki birgt sig upp i dag er þó
ekki öll nótt úti því verslunarmenn
á Suðumesjum fara ekki í verkfall
fyrr en á mánudag. Þaö getur verið
þess virði að skreppa í Hagkaup í
i dag
Njárðvíkum á fóstudag eða laugar-
dag til að birgja sig upp, því ljóst
er að ef til verkfalls kemur getur
það vel dregist á langinn.
-PLP
Matarinnkaup
fyrir verkfallið
Nú, þegar ljóst er að stefhir í verk-
fall verslunarfólks, verður fólk að
fara að huga að ráðstöfunum með
matarinnkaup.
Frosin matvæli
Á velflestum heimilum eru ein-
hvers konar frystigeymslur, frysti-
skápar eða -kistur. Margir eiga hins
vegar ekki annað en litla kæhskápa
með litlum frystihólfum. Þau hólf
taka ekki mikinn mat og auk þess
hafa þau ekki sömú frystigétu og
skápar með sérstökum frystigeymsl-
um. Eigendur slíkra skápa geta htið
gert í því að bjrgja sig upp af frosn-
um matvælum og verða því að snúa
sér að öðra.
Þeir sem hafa góðar frystikistur/-
skápa ættu að geta keypt inn frysti-
vöra th langvarandi geymslu. Það
vih nú brenna við hjá mörgum að
frystigeymslumar séu hálffuhar af
matvælum sem aldrei verða notuð.
Því er upplagt að byija á því að taka
svolítið th í frystinum, henda því sem
má henda og raða inn aftur á eins
hagkvæman hátt og mögulegt er.
Það sem örugglega verður að
geymast í frysti er kjöt og fiskur. Ef
keyptur er fiskur í einhveiju magni
er ljóst að helmingi minna fer fyrir
flökum í geymslu en fiski í hehu.
Hafið því fiskinn í flökum og þá hent-
ugum pakkningum og því magni sem
þarf að nota í hvert sinn.
Sama ghdir um kjöt, það kemst
meira af nýtanlegu kjöti í frystinn
ef það er beinlaust. Því er best að
einbeita sér að innkaupum á sem
mestu af beinlausu kjöti, svo sem
kjöthakki, farsi eða öðra beinlausu
kjöti.
Ekki fyha frystinn af hlutum sem
má geyma annars staðar eða óþarfa
matvælum eins og stórum íspökk-
um.
Geymsluþolnar vörur
Margar matvörar eru þannig unn-
ar að þær hafa mikið geymsluþol án
þess að vera í frysti og má þar nefna
þurrkaða og niðursoðna vöra. Sem
dæmi um þunricaða vöra era hrís-
gijón, pasta og baunir. Aha þessa
vöra má nota éina sér (sbr. umfjöllun
um baunir í DV -14.4. sl.) eða með
öðrum mat, kjöti eða fiski. Gott er
að nota hrísgijón, baunir og’ pasta
sem meölæti með öðru í stað vöru
með minna geymsluþol eins og græn-
metis og þar með taldar kartöflur.
Niðursoðin matvæh hafa mikið
geymsluþol en era misdýr. Hins veg-
ar þurfa þau ekki sérstaka kæli-
geymslu. Við breytingar á tollalög-
gjöfinni um áramót lækkaði
niðursuðuvara töluvert og má þar
nefna tómata og baunir. Kjöt er til
niðursoðið og einnig fiskur og þá sem
fiskbollur eða fiskbúðingur.
Hér á landi er framleitt töluvert af
geymsluþolnum mjólkurvörum og
era þær merktar sem G-vara og
þurfa óopnaðar umbúðir ekki kæh-
geymslu. Mjólk, kaffirjómi, þeyti-
ijómi og kókómjólk eru dæmi um
slíka vöra en athugið alla dagstimpla
sem gefa th kynna hvenær geymslu-
þohö rennur út. Þó er útlit fyrir að
takist aö halda áfram mjólkurdreif-
ingu, a.m.k. fyrst um sinn, þannig
að ekki ætti að vera skortur á fersk-
um mjólkurvöram.
Vörur með lítið geymsluþol
Mikið af matvælum, sem seld eru
fersk, eins og ávextir og grænmeti,
hefur htiö geymsluþol og þarf undan-
tekningarhtið að’ geymast í kæh.
Gerið því engin stórinnkaup á jafn-
viðkvæmri vöra og ávextir og
grænmeti eru. Rýmið th í kæhskápn-
um og geymiö annars staðar vöra
sem ekki útheimtir kæhgeymslu.
Athugið vel aha dagstimpla á við-
kvæmri vöru og varist að kaupa í
miklu magni vöru sem er á siðasta
snúning. -JJ
J6? .*
í'w m M m É
iiJ jH* H rw ^ m H
SÉT «1 M m£ ^ ^ 91
m M m M ^ V |
I tbr 13
Niðursoðin matvæli eru til í miklu urvali.
Verkfall verslunarmanna:
'W' W • *
Hverjrr
hafa opið?
Eins og fram hefur komið i frétt-
um DV ætla ýmsar stærri verslanir
aö reyna aö hafa opið meðan á
verkfalh verslunarmanna stendur.
Þessar verslanir era:
Kjötmiðstöðin, Garðabæ,
Kostakaup, Hafnarfirði,
Hólagarður, Breiðholti,
Hraunver, Hafnarfirði.
Auk ofantaldra verslana má gera
ráð fyrir að flestar smærri hverfa-
verslanir hafi opiö meðan á verk-
falh stendur, enda mega þeir
verslunareigendur sem alla jafna
starfa S sínum verslunum, halda
því áfram, með aöstoð fjölskyldna
sinna.
Það vekur athygh að Kjötmið-
stöðin og Kostakaup hyggjast hafa
opið á þeim forsendum aö þar séu
kjötiðnaöarmenn að störfum, og
afgreiði þeir alla jafna. Þeir muni
því halda því áfram, þrátt fyrir að
afgreiðslufólk sé í verkfalli. Versl-
’unarmannafélög túlka þetta á
amian veg og segja aö með þessu
séu kjötiðnaðarmenn að ganga rnn
á starfsvið þeirra. Þeir kjötiðnaðar-
menn sem stundi afgreiðslu séu því
verkfahsbrjótar og veröi þeir
stöðvaðir. -PLP