Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1988, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988.
31
Lifsstm
ana og þarf ekki meira á þeim að
halda. Næstu raðir koma síðan utan
á og er ráðlegt að skipta um hlið til
að vinna með líminu, t.d. fyrst
vinstra megin, þá hægra megin o.s.
frv. Setjum sem svo að við byrjum
að leggja V-laga mynstur. Þá gerist
það af sjálfu sér að næsta röð er með
A-laga mynstri og svo koll af kolli.
Stafaparket krefst sh'punar
Borðaparket er oftast selt fuUlakk-
að. Því þarf ekki að hugsa um slípun
fyrr en fer að sjá á lakkinu. Að öðru
leyti er hagkvæmt að lakka parketið
oft til þess að verja viðinn sem best.
Stafaparket kemur hins vegar óslíp-
að og ólakkað og er því talsverð
-i-------
Heimilið
vinna eftir þegar búið er að leggja
það.
Þegar hér er komið sögu er best að
‘tala við fagmenn til að fá ráðlegging-
ar um slípunina eða hreinlega að fá
fagmenn til að annast hana. Hægt er
að fá leigðar slípivélar ef menn vilja
sjálfir annast verkið. Sölumenn
parkets leggja á það þunga áherslu
að rétt sé staðið að slípun, því hér
er um að ræða verk sem krefst út-
búnaðar sem verður að meðhöndla
rétt. Á eftir slípun er mælt með
þremur umferðum af lakki á parket-
ið.
Vert er að hafa í huga þegar leggja
á stafaparket aö mikill kostnaður
kemur öl eför að efnið sjálft hefur
verið keypt. Auðvitað er hægt að
spara sér margt með þvi að leggja
parkeöð sjálfur en geri maður það
ekki má áæöa að vinna við lagningu
kosö um 2.000 kr. fyrir hvem fer-
metra. Innifalið í þessu verði er
vinna ásamt efhi og shpun. Verðið
fyrir sjálft parkeöð er frá 1.400-2.400
krónur. Þeir aðilar, sem helst bjóða
upp á stafaparket, em Parketgólf sf.
og Egill Ámason hf. Að öðra leyö
fæst parket í Harðviðarvali, Húsa-
smiðjunnni og Byko.
Verð
Algengustu tegundir parkets era
eik og beyki - nokkuð sterkur viöm1.
Til era á markaðnum margar aðrar
tegimdir s.s. askur, sem er geysi-
sterkur, og merbau sem er dökkt
efni. Algengt verð á borðaparkeö,
sem ekki þarf mikið lím, er 1.800-2.
000 krónur. Þá má bæta um 100
krónum við í kostnað á hvem fer-
metra fyrir undirlag sem yfirleitt er
svampur.
Þegar verð er skoðað er ráðlegt að
spyija sölumenn einnig út í það hve
mikill efniskostnaður fylgi hverri
tegund fyrir sig. En eins og áður
sagði verður kostnaður mikfil auka-
lega við lagningu stafaparkets vegna
líms og lakks, að ógleymdum listum
sem kosta á annað hundrað krónur
metrinn, allt eför tegundum.
Forðist raka
Þegar parket er lagt verður að gæta
þess að ekki sé raki í steypunni. Slíkt
er hættulegt hvers konar viði. Ágætt
er að fá fagmann öl að rakamæla
með þar öl gerðum rafmagnsraka-
mælum. Ef raki er í steypunni verður
verkið að bíða. Einnig er öryggi í því
að setja plast undir svampinn sem
kemur undir borðaparket og láta
plasöð skarast svo ekki komist loft á
milli. Reyndar er plastfilma límd á
neðra byrði sums borðaparkets öl
vamar gegn raka.
Þétöeiki parkets er misjafn eftir
aldri og því hvemig þaö er lagt. Allt-
af skal þó reynt að koma í veg fyrir
að parket blotni. Þéttast er það park-
et sem er lagt á sléttan flöt og þannig
að ekki myndast misfellur. Stafa-
parket er þétt því það er slípað og
slípimylsna er sett í raufar á milli
stafa. Þetta virkar eins og kítö og
myndar samfelldan flöt þegar búið
er að lakka það.
Umgengni
Parket er úr viði og þolir ekki
hvaöa hnjask sem er. Því er fyllsta
ástæða öl þess að velja sterkan viö
á þau gólf sem mest mæðir á og hafa
mofiur á helstu álagsstöðum, t.d.
beggja vegná viö dyr. Einnig er ráð-
legt aö setja eitthvað neðan á
húsgögn, t.d. sófafætur, svo ekki
komi'rispur í viðinn. Háhælaðir skór
era fótabúnaður sem ekki hefur
reynst parkeö sérlega vel þar sem
þungi á hvem fersenömetra er svo
mikill aö holur koma í viðinn.
Auðvelt er að þrífa parket, miðað
við margt annað, því fleör eru slétör
og yfirleitt koma ekki bletör í park-
et. Sjálfsagt er þó að fylgjast vel með
sliö lakksins, lakka yfir eför þörfum
og slípa síðan ef verulega fer að sjást
á parkeönu. Lakk er jú slitflötur sem
auðvelt er að bæta á.
Fagmenn tiltækir
Best er að leita öl smiöa vilji maður
fá fagmenn til að leggja parket fyrir
sig. Hægt er að komast í samband
við þá, t.d. í gegnum Meistarafélag
húsasmiða, í síma 36977. Best er að
fá smiðina öl að líta yfir gólfin sem
á að leggja á og fá hjá þeim mat á
væntanlegum kostnaði. Einnig geta
smiðir ráðlagt um hvaða tegundir
parkets henta best hverju sinni.
Verðið fer mikið eför því hvemig
parkeöð á að liggja í viðkomandi
herbergi, hve mikið er um skurði og
hvaða tegund notuð er. Hægt er að
fá þetta gert effir tilboði eða sam-
kvæmt uppmælingu. Að öðru leyfi
hafa sölustaöir parkets yfirleitt
menn á sínum snærum sem hafa
reynslu í lagningu viðkomandi teg-
unda.
-ÓTT.
Hér sést vel munurinn á lökkuðu og ólökkuðu gólfi. Mælt er með að lakkaðar séu 3 umferðir yfir gólf þegar slfp-
að hefur veriö. Vert er að hafa i huga að lakk er slitflötur þannig að nauðsynlegt er að lakka gólfin oft til þess að
halda þeim sem best við.
Fyrir ofnarörum borast út gat sem er 20 mm þykkara en rörið sjálft. Því næst er sagaður út fleygur. Þegar borðið er svo endanlega komið á sinn
stað er fleygurinn límdur og kýldur við með fleyg. Klæðið síöan með borðahring.
Stærðir: Sólreitir/blómakassar:
3,15x3,76 m, kr. 61.000,- 122x93 cm, kr. 4.850,-
2,55x3,79 m, kr. 42.800,-
2,55x3,17 m, kr. 39.600,-
Húsunum fylgir 3 mm gróðurhúsagler sem er innifalið
í verðinu.
Ýmsir fylgihlutir fyrirliggjandi: hillur, sjálfvirkir glugga-
opnarar, borð, rafmagnshitablásarar (termostatstýrðir)
o.fl. o.fl.
Sólreitirnir eru af nýrri gerð, með plastgleri (óbrjót-
andi) og innbyggðum sjálfvirkum opnunar- og lokunar-
búnaði sem gengur fyrir sólarorkunni. Stærð
122x92x38 cm.
Eden-garðhúsin eru nú fyrirliggjandi en við höfum yfir
20 ára reynslu í þjónustu við ræktunarfólk. Engin gróð-
urhús hafa náð sömu útbreiðslu hérlendis. Þau lengja
ræktunartímann og tryggja árangur.
Sem fyrr bjóðum við hagstætt verð ásamt frábærri
hönnun Eden-álgróðurhúsa. Sterkbyggð og traust hús.
Sýningarhús á staðnum.
Kynnisbækur sendar ókeypis.
Klif h/f, Grandagarði 13,
Sími 23300. Reykjavík.
ÁL-GRÚÐURHÚS
og sólreitir fyrir heimagarða