Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1988, Qupperneq 33
MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988.
33
Lífsstfll
Dreymdi 2 tölur og vann 2,5 milljónir:
„Trúi að þetta sé
fyrirfram ákveðið"
í nóvember síðastliðnum duttu
Lilja Snorradóttir og maður hennar
í lukkupottinn. Þau fengu vinning
að upphæð 2,5 milljónir. DV spurði
Lilju hvemig það ber- að þegar stór
vinningur kemur í hlut þess sem
spilar í lottói.
Rumskaði á fjórðu tölu
„Við vorum vön að spila með sinn
miðann hvort. Þegar dráttur fór fram
í Sjónvarpinu var það ég sem sat fyr-
ir fyrir framan skjáinn og fylgdist
með,“ sagði Lilja. „Hann hafði lagt
sig og ég fór aðeins yfir minn miða.
Þar var ekkert spennandi svo ég fór
korteri seinna og spurði manninn
minn hvort ég ætti að fara líka yfir
hans miða. Hann jánkaði því og hélt
áfram að sofa. Hann heyrði mig fara
yfir miðann sinn og þegar ég var
komin í fjóra rétta þá fór hann aðeins
að taka við sér. Síðan komu 5 réttir
og við urðum mjög ánægð. Það tók
okkur einhvem tíma að róa okkur
niöur. Síðan hringdum við og athug-
uðum hve margir vom með 5 rétta.
Við héldum að nokkrir væra einnig
með 5 rétta því það er jú algengast.
Þegar þaö svo kom íljós að við vorum
ein með allt rétt dönsuðum við um
og féllumst í faðma.“
Vorum að leita að íbúð
- Hve miklu hefúr vinningurinn
breytt hjá ykkur?
„Bíllinn okkar var ekki upp á
marga fiska þegar þetta var. Við
höfðum skoðað ágætisbíl sem okkur
langaði til að kaupa. Við keyptum
hann auðvitað. Síðan var ætlunin að
leigja íbúð. Við hættum við það því
nú gátum við fest kaup á minni íbúð
sem við ætlum að byrja á. Það má
þvi segja áð þessi vinningur hafi gef-
ið okkur þann möguleika að kaupa
bæði íbúð og bíl.“
Finnst þetta allt fyrirfram
ákveðið
- Hvað er þér efst í huga þegar
gæfan blasir við á þennan hátt?
„Þetta gefur mér trú um að gæfan
geti virkilega brosað við einstakl-
ingnum. Framtíðin er óneitanlega
bjartari. Ég held hins vegar að þetta
sé alit fyrirfram ákveðið. Örlögin
stjórna þessu. Hvar vinningur á að
hafna er búið að ákveða fyrir löngu.“
- Hvemig skýrir þú það út í þínu
tilfelli?
„Þegar við fóram að athuga hvem-
ig þessi vika hafði Uðið var okkur
það ljóst að margir hlutir höföu gerst
sem bent geta til þess að eitthvað
gæfulegt myndi gerast. Maðurinn
minn gaf mér t.d. úr í afmælisgjöf
sem bent getur til þess að tímar
myndu breytast og einnig keyptum
við skyrtu á hann sem á stóð: „Fort-
une smiles on us“. Síðan kom þetta
fæst
í blaðasölunni
#
a
járnbrautarstöðínni
r
i
Kaupmannahöfn.
einnig fram í draumum mínum. í
einum draumnum áður en miðinn
var fylltur út dreymdi mig að við
værum að flytja og fjárhættuspil var
með í draumnum. Bróðir minn var
þarna og var hann mjög sorgmæddur
og sagði tvær tölur; 16 og 32. Þessar
tölur setti ég síðan á báða seðlana
sem við spiluðum með.“
-ÓTT
Hjónin Lilja Snorradóttir og Carl John Adams unnu stóran vinning í lottói.
Litja segist trúa aö fyrirfram sé ákveðið hvar vinningar hafna.
Flateyri:
r
*
1
Guömundur Finnbogason,
verksljóri hjá Hjálmi á Flateyri,
vann nýlega 2,4 milijónir í lott-
óspilinu. Honum var boðið suður
til að veita vinningi viötöku og
kom þá m.a; fram í sjónvarpi.
Þegar athygli landsmanna beind-
ist að honum mæltist hann til
þess að afgreiðsla lottósins kæmi
einnig til Flateyrar því Flateyr-
ingar áttu langt aö sækja í næsta
afgreiðslustað. Viðbrögð urðu
skjót. Nú hafa Flateyringar sinn
eigin afgreiðslustað.
Fólk í drelfbýli gleymist oft
„Nú þurfum viö ekki lengur að
leita til ísafjarðar tíl þess að spUa
í lottóinu," sagði Guömundur.
„Ég var nú reyndar með 10 vikna
seðU en það er sama, við verðum
að njóta þessarar þjónustu eins
og aðrir. Eldra fólk hér og al-
mennt viröist hafa mikla ánægju
að því að taka þátt í hvers konar
spUum og leikjum. Margt eldra
fólk hér, sem ekki spUaöi áður,
spilar nú í lottóinu eftir að kass-
inn kom.
Það er gott að ferð min suður
gat leitt eitthvað gott af sér fyrir
Flateyringa og þá eflaust fleiii úti
á landsbyggðinni. Þeir geröu vel
við okkur hjá Getspánni. Okkur
var boðin ferð suður og gisting.
Annars trúöi ég því nú aldrei fyrr
en ávísurún var i mínum höndum
að við hefðum unnið svona mUUö;
Ætla að hafa gamla sófa-
settið áfram
„Margir hafa spurt hvers vegna
við kaupum nú ekki nýtt sófasett
í stofúna þar sem fjárhagurinn
hefur batnað svo mikiö. Ég vU
nú bara svara því þannig að
gamla settiö sem er frá 1974 er
bara svo ágætt, þaö er þægUegt
aö sofna í þvi Við þurfum ekkert
á leðursófasetti aö halda eins og
fólk í dag viröist almennt kaupa
sér. Aðalatriðið er að vera án-
ægður með það sem maður
hefur.“
-ÓTT
anon
Ljósritunarvélar
FC-3 kr. 36,900 stgr.
FC-5 kr. 39.990 stgr.
Skrifvélín, sími 685277
RAKATÆKI
MIKIL VERÐLÆKKUN
Verð f rá
kr. 2.300.-
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbrauf 16 - Sími 69 16 00
STALGRINDAR-
HÚS
- Auðveld í uppsetningu
- Stuttur byggingartími
- Sveigjanleg byggingakerfi
- Breytingar auðveldar
- Stálklæðning frá Inter Profiles
- Stéinullareinangrun
- SFS festingar
- C og Z langbönd frá Inter Profiles
- Ókeypis kostnaðaráætlanir
VERÐIÐ ER HAGSTÆTT
GARÐASMIÐJAN GALAX SF.
LYNGÁS! 15 210 GARÐABÆ
SÍMI 91-53511
GÆÐI XJR STÁLI
Úrval
Tímarit fyrir alla
HENTAR ÖLLUM ALLS STAÐAR - Á FERÐALAGINU JAFNT SEM HEIMA
MEÐAL EFNIS:
Skop 2 • Bölvun Keimedyættarinnar 3 • Gefðu þér tíma til að hlæja 9 • Beitir þú huganum rétt? 14
• Aætlunin Pedro Pan 18 • Fyrirsát í Silkiskarði 25 • Hugsun í orðum 32 • í vanda staddur í vetrar-
skógi 34 • Woody Allen og myndimar hans 40 • Vísindi fyrir almenning: Ætla að afhjúpa leyndardóm
risaapans 47 • Böm og íþróttir: I: Æfingin skapar meistarann 51 • II: Fjölhæfhi 66 • Em læknavísindin
á réttri leið? 59 • Segðu það með tónum 80 • Reimleikar á 20. öld: I: Skálastúfur 81 • II: Lestarbúinn
í Láru 85 • Síðasti herpósturinn 90 • Völundarhús 96 •