Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1988, Qupperneq 40
FRÉTTASKOTIO
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrifft - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988.
Einbúi skotinn til
oana a noimin sinu
- annar maður fannst látinn á vinnustað sínum með skotvopn sér við hlið
Sakadómur Reykjavíkur:
Tíu ára ffang-
elsi vegna
- manndráps
í Sakadómi Reykjavíkur var í
morgun kveöinn upp dómur yfir
Svani Elí Elíassyni, 29 ára verka-
manni. Svanur Elí var dæmdur til
tíu ára fangelsisvistar fyrir að hafa
orðiö Jóhannesi Halldóri Péturssyni
^að bana á heimili Svans Elís aðfara-
nótt 7. nóvember 1987.
Banamein Jóhannesar Halldórs
var köfnun. Svanur Elí herti háls-
bindi að hálsi Jóhannesar með
fyrrgreindum afleiðingum. Bindið
markaði 0,7 sentimetra djúpt far á
hálsi Jóhannesar Halldórs. Ekki
þykir ljóst hvort þetta gerðist í átök-
_ um sem urðu á milli þeirra eða eftir
þau. Svanur Elí ber því við að hann
hafi verið undir miklum áhrifum
áfengis og lyfja.
Svanur Elí sagði meðal annars að
Jóhannes Halldór hefði leitað á sig
kynferðislega og við það hefði hann
tryllst. Ekkert í gögnum málsins
styður þennan framburð. Svanur Elí
segir að til átaka hafi komið á milli
þeirra með þeim hætti að þeir hafi
aðeins tekið á fótum hvor annars.
Þessi frásögn er í miklu ósamræmi
við áverka þá sem voru á líkinu.
*. Helgi I. Jónsson sakadómari kvað
upp dóminn. -sme
18 sinnum í sinuelda
Slökkviliðið í Reykjavík var kallað
átján sinnum út á síðasta sólarhring
vegna sinuelda. Sjaldnast var um
hættu að ræða. Seint í gærdag var
kveikt í sinu í Fífuhvammslandi í
Kópavogi. Þar voru tré við sumarbú-
stað hætt komin. Slökkvilið, lögregla
og starfsmenn Kópavogsbæjar náðu
að slökkva eldinn áður en hann olli
skaða. -sme
Næsta blað DV kemur út fostudaginn
22. apríl.
Smáauglýsingadeildin er opin tii
kl. 22.00 í kvöld.
Lokað verður á morgun, sumar-
daginn fyrsta.
Síminn er 27022.
Gleðilegt sumar!
Bílstjórarnir
aðstoða
§050
” SCnDIBiLHSTÖDUl
LOKI
Ég keypti hundrað pakka
af tannkremi í gær!
Maður var skotinn tii bana á
heimili sínu í Vopnafirði í gær.
Maðurinn var þijátíu og þriggja
ára gmall einbúi. Hann hafði verið
skotinn í btjóst. Ekkert skotvopn
fannst á heimili mannsins. Maöur-
inn bjó á bæ um sextán kílómetra
fyrir norðan kauptúnið á Vopna-
firöi.
Skömmu áður fannst 45 ára gam-
Verkfallsnefnd Verslunarmanna-
félags Reykjavíkur hélt fund í
gærkvöldi og fjallaði þá um þær und-
anþágubeiðnir sem borist höfðu og
að sögn Péturs Maack, formanns
nefndarinnar, var þeim flestum
hafnað.
Samþykkt var undanþága fyrir öll
dagblöðin, einnig fyrir eina starfs-
stúlku hjá Öryrkjabandalaginu og
all maður látinn á vinnustað stnum
á Vopnafirði. Við hlið hans fannst
haglabyssa. Talið er vist að hann
hafi fyrirfarið sér. Maðurinn, sem
er aðfiuttur, hefur unnið sjálfstætt
við smíðar og fleira tilfallandi.
Fjórir rannsóknariögreglumenn
héldu i gærkvöldi til Vopnafjaröar
til að vinna að rannsókn málsins.
Ekkert hefur komið fram sem stað-
fyrir einn vélagæslumann hjá stór-
mörkuðum.
Aftur á móti var hafnað undan--
þágubeiöni frá Brauð hf., Ræsi hf„
Ferðaskrifstofunni Sögu, Frón hf„
frá einum kírópraktor, frá lyfjainn-
flutningsfyrirtækjunum, sem sóttu
um sameiginlega, frá læknum í Do-
mus Medica um undanþágu fyrir
símavörslu og annað aðstoðarfólk.
festir tengsl á milli atburðanna.
Mennirair tveir þekktust ekkert
meira en gengur og gerist meðal
sveitunga.
Lik þeirra hafa verið flutt til
Reykjavíkur.
Hvorugur mannanna mun hafa
verið undir áhrifum áfengis þegar
atburðirnir áttu sér stað. Enginn
hefúr verið handtekinn vegna
Og loks var hafnaö undanþágubeiðni
frá meðferðarstofnuninni Meðferð.
í dag verða fleiri undanþágubeiðnir
teknar fyrir en þær streyma nú inn
að sögn Péturs Maack og tók hann
fram að verkfallsnefndin yrði mjög
ströng á allar undanþágur frá verk-
fallinu.
málsins og til þessa hefur aðeins
eitt skotvopn fundist Sigurður
Helgason sýslumaöur sagði í morg-
un að aðeins hefði farið fram
frumrannsókn á málinu til þessa.
Unnið var aö rannsóknum til
klukkan þijú í nótt og hófust þær
á ný um klukkan níu í raorgun.
Suðurland:
Verkfall á
sjúkrahúsum
Starfsfólk sjúkrastofnana á Suður-
landi hefur boðað verkföll næstu
daga. Samninganefnd Alþýðusam-
bands Suðurlands fór á fund sátta-
semjara kl. 10 í morgun en
niðurstaða þess fundar er enn ekki
ljós.
Á Hellu hefur Verkalýðsfélagið
Rangæingur boðað verkfall á dvalar-
heimilinu Lundi næstkomandi
fóstudag, 22. apríl. Stjóm dvalar-
heimilisins hefur beðið um frestun
verkfalls en ekki hefur verið ákveðið
hvort frestur verður veittur.
Á Selfossi hefur Verkalýðsfélagið
Þór boöað verkfall hjá starfsfólki á
sjúkrahúsinu og á Ljósheimum,
langlegudeild fyrir aldraða. Verk-
falliö hefst aðfaranótt miðvikudags-
ins 27. apríl. Ingibjörg Sigtryggsdótt-
ir, formaður Verkalýðsfélagsins Þórs
sagði í samtali við DV í morgun að
ef ekki gengi saman myndi starfsfólk
í þvottahúsum bætast í verkfalls-
hópinn fóstudaginn 29. apríl.
í Hveragerði hefur Verkalýðs- og
sjómannafélagið Boðinn boðað verk-
fall hjáræstingafólki á náttúrulækn-
ingaheimilinu og dvalarheimili
aldraöra þriðjudaginn 26. apríl.
Starfsfólk í þvottahúsi dvalarheimil-
isins fer einnig í verkfall sama dag.
Allsherjarverkfall er boðað frá 29.
apríl í Hveragerði.
-JBj
Ingvi Hrafn fámáll:
Sný mér að
nýjum
verkefnum
„Á þessum tímamótum lít ég hik-
laust með stolti yfir farinn veg og
gleðst yfir því trausti sem fréttastofa
Sjónvarps nýtur þrátt fyrir að stund-
um hafi gefið á bátinn eins og verða
vill,“ sagði Ingvi Hrafn Jónsson,
fréttastjóri Sjónvarps, þegar DV leit-
aði eftir viðbrögðum hans við brott-
vikningu hans frá Sjónvarpinu.
„Ég óska stofnuninni alls góðs eins
og ég hef alltaf gert í störfum minum
sem fréttastjóri. Ég hefði að visu vilj-
að að starfsferli minum við stofnun-
ina hefði lokið með öðrum hætti en
nú er bara að snúa sér að nýjum
verkefnum," sagði Ingvi Hrafn og
vildi ekki tjá’sig frekar um málið.
-JBj
- sjá einnig bls. 5
-S.dór
Veðrið á morgun:
Hlýnandi
veður
Á morgun, sumardaginn
fyrsta, lítur út fyrir hæga aust-
an- og norðaustanátt á landinu
og eftir frostnótt, boðandi sum-
argæsku, verður víðast frost-
laust yfir hádaginn. Hiti ætti að
komast yfir 5 gráöur sunnan-
lands. Skýjað verður austan-
lands en annars staðar
bjartviðri.
-sme
Verkfallsnefnd Verslunarmannafélags Reykjavikur kom saman í gærkvöldi til að fjalla um þær undanþágubeiðnir
vegna verkfallsins sem borist höfðu til nefndarinnar. Pétur Maack, formaður verkfallsnefndar, situr fyrir enda
borðsins og flettir skjölum. Með honum í nefndinni eru Böðvar Pétursson, Kristinn Stéfánsson, Jónina B. Grétars-
dóttir, Anna Sveinsdóttir, Ása Jörgensdóttir og Edda Kjartansdóttir og svo er á myndinni Baldvin Hafsteinsson,
lögfræðingur félagsins, og les yfir öxl Péturs. DV-mynd GVA
Undanþágubeiðnir streyma til verkfallsnefndar:
Flestum beiðnum hafnað