Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1988, Blaðsíða 8
MÁLNINGAVERSLUN
Austurströnd 6 sími 612344
Stærsta málningarsérverslun
vestan Lækjar!
SÝNDU LlT
NOTAÐU HELGINA
Opið alla daga
LAUGARDAGA 10-16
Sunnudaga 1
_______iéí
BOGE MOBICAR
STERK,
MEÐFÆRILEG
OG HUÓDLÁT
LOFTPRESSA
• Hönnuð fyrir stöðuga
notkun og góða end-
ingu.
• Auðfæranleg, sterk og
læturvel að stjórn.
• Þýsk gæðaframleiðsla,
áralöng reynsla.
• Hentar þörfum iðnaðar-
mannsins.
Einnig mikið úrval af
öðrum stærðum
©RAFVERHF
SKBFUNNI3E, SlMAR 82415 & 82117
LITASTÁL ER
LISTASTÁL
Plasthúðaðar stálklæðningar á
þök og veggi frá Inter Profiles eru
tii í 17 litum.
- Prófílhæð 20 mm og 35 mm
- Allir fylgihlutir
- Skrúfur frá SFS
- Þéttilistar frá DAFA
- Verkfæri frá BOCH
- Fáanleg bogalaga
- Fáanleg með ALUZINK húð
- Ókeypis kostnaðaráætlanir
VERÐIÐ ER HAGSTÆTT
GARÐASMIÐJAN GALAX SF
LYNGÁSI 15 210 GARÐAM
SÍMI 91-53511
GÆÐI ÚR STÁXJ
LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988.
Söngvakeppni Sjónvarpsins í síðasta sinn?
Stórkarlalegt aótalaum sigur
- segir Bjöm Emilsson, framkvæmdastjóri söngvakeppninnar
„Eg er búinn að hlusta nokkr-
um sinnum á erlendu lögin í
keppninni og spá í þau og eftir þaö
er ég þess nær fullviss aö við eigum
eitt af þremur lögum sem eru sigur-
strangleg. Annars er best að segja
sem minnst því þetta hefur verið
sagt á hverju ári.“ Svo segir Björn
Emilsson, framkvæmdastjóri
söngvakeppninnar, sem nú er á leiö
til Dyflinnar ásamt fóruneyti. Rétt
vika er þangað til úrslitin veröa
kunngjörö.
Það er einmitt næsta laugardag
sem þeir félagar Sverrir Stormsker
og Stefán Hilmarsson syngja lagiö
Sokrates í beinni útsendinu fyrir
milljónir manna um alla Evrópu.
Þeim til halds og trausts verða fjór-
ar bakraddir sem jafnframt líta út
á sviðinu sem hljómsveit. Þaö eru
þau Edda Borg úr Módel, sem leik-
ur á hljómborð, Kristján Viðar
Haraldsson úr Greifunum, sem
leikur á hljómborð, Guðmundur
Jónsson, sem leikur á gítar, og Þor-
steinn Gunnarsson á trommur.
Hljómsveitin kallar sig Beathoven.
Æft á mánudag
„Strax á mánudaginn klukkan
hálftíu hefjast æfingar og við veröum
fyrstir þar eins og á öðrum æfmgum
sem fylgja á eftir. Það má búast við
að blaðamenn verði mikið á sveimi
í kringum okkur eins og hefur verið
undanfarin tvö ár. Það vildi svo til
að ég var staddur í Bergen þegar Icy
hópurinn keppti, var þar á eigin veg-
um. Sambýliskona mín, Ragna
Fossberg, var förðunarmeistari
hópsins. í Bergen voru blaðamenn
alltaf á höttunum á eftir listafólkinu
og ég reikna með að það sama verði
uppi á teningnum núna. Að mínu
viti er Sverrir með mjög gott og
heppilegt lag í þessa keppni og ég hef
heyrt það frá öðrum löndum að menn
séu aö bera saman Breta og íslend-
inga og að íslendingar hafi vinning-
inn. Bretar eru oft taldir sigurstrang-
legir. Annars finnst mér best að taka
öllu meö fyrirvara miðað við reynslu
fyrri ára,“ sagði Björn ennfremur.
Byijað að veðja eftir helgi
Hann sagði að önnur keppnislönd
væru á mjög svipuðum tíma og við
hvað varðar sýningu laganna. „Flest
Evrópulöndin haldast í hendur
vegna þess að sett eru þau skilyrði
að síðasti dagur til sýningar á lögun-
um sé á sunnudegi." Bjöm sagði að
lögin, sem flutt væru seinni hluta
keppninnar, væm heldur betri en
þau sem væru framar í röðinni, að
undanskildu lagi Sverris. Búast má
viö að strax eftir helgina fari menn
í alvöru að velta lögunum fyrir sér
og þá taka veðbankamir við sér.
Undanfarin ár hafa íslendingar lent
ofarlega í veðmálunum og jafnvel
verið spáð fyrsta sætinu. Það hefur
gert landann mjög bjartsýnan svo
best er að taka öllu slíku með fyrir-
vara. Evrópuþjóðimar eru með
ákaflega mismunandi lagasmekk og
margar hveijar em harla ólíkar okk-
ur. DV hefur þó fregnaö að lag
Sverris hljómi oft í frönsku útvarps-
stöðvunum svo gaman verður að vita
hve mörg stig við fáum frá þeim. Það
er nefnilega stigagjöfm sem ræður í
lokin.
Björn sagði að dagskráin þá viku,
sem dvalist verður í Dyflinni, yrði
mjög ströng. „Við verðum mest-
megnis í þvi að kynna okkur, land
og þjóð. I rauninni er þetta meiri
landkynning en fólk gerir sér grein
fyrir. Haldinn verður sérstakur
blaðamannafundur á okkar vegum
eins og undanfarin ár. Síðan má bú-
ast við að nóg verði að gera alla
dagana en mitt hlutverk snýr nær
eingöngu að því er varðar stjómun
og útlit.'Við erum einmitt með fund
núna á eftir þar sem ákveðið verður
endanlega hvernig hljómsveitarmeð-
limir verða klæddir,“ sagði, Bjöm.
Viötahð fór fram á þriðjudaginn þeg-
ar lokaspretturinn var að heíjast
áður en lagt yrði í hann. „Ég reikna
fastíega með að fatnaðurinn verði
grár og umfram allt látlaus, ekki
ósvipaður og fatnaður sá sem þeir
klæddust í keppninni hér heima.
Sviðið í Dyflinni verður svart, blátt
og bleikt með stjörnuljósum í bak-
sýn. Ég veit sem upptökustjóri að
svartur maður með svartan bak-
gmnn með svörtum flygh getur
aldrei komið vel út. Hvítt kemur
heldur ekki vel út, þaimig að við fór-
um milliveginn."
Aðeins í seinni kantinum
Bjöm sagði ennfremur að öll
undirbúningsvinna hefði gengið
nokkuð vel, „nema“, sagði hann og
brosti: „Ég verð að viðurkenna að
við erum í seinna lagi og ég hefði
kosið að vera búinn aö öllu núna en
það er ekki alvarleg seinkun. Æfing-
ar standa yfir þessa dagana hjá
hópnum."
Þegar út er komið verður Bjöm
Emilsson nokkurs konar leikstjóri
hópsins. Hann stjómar hreyfingum
á sviðinu og þá sérstaklega Stefáns.
„Ég hef ákveðið að vera ekki með
mjög miklar breytingar frá því sem
áður var. Það verður þó að taka tillit
til staðsetninga myndavélanna.
Minn helsti aðstoðarmaður og milli-
göngumaður við írana í undirbún-
ingsvinnunni er Ágústa Kristins-
dóttir, en hún fer með okkur út,
einnig Hrafn Gunnlaugsson, sem
verður nokkurs konar höfuðsmaöur
okkar, og svo Hermann Gunnarsson
sem verður kynnir heim. Hver mað-
ur hefur sínu hlutverki að gegna.
Auk þess fara einhverjir vandamenn
á eigin vegum. Einnig skilst mér að
áhugahópur æth að fara og vera í
salnum.“
í Belgíu í fyrra vakti söngkona okk-
ar, Halla Margrét Ámadóttir, mikla
athygli blaðamanna og kannski fyrst
og fremst fyrir að vera glæsilegur
kvenmaður. Heldur Bjöm aö tveir
karlmenn í aðalhlutverki veki jafn-
mikla athygli? „Nei, Halla Margrét
hafði náttúrlega allt annan karakter
en þeir bræður, Sverrir Stormsker
og Stefán Hilmarsson, það er ekkl
hægt að bera það saman. Ekki nema
Sverrir geri eitthvað skondið sem
hans væri von og visa sem ég tel aö
væri kannski best að láta kyrrt
hggja. -Það er til mikils að vinna
fyrir hann. Ég verð að segja að ég
er handviss um að Sverrir nær ofar
en lögin okkar áöur. Ef hann vinnur
hefur hann sjálfur bent á félags-
heimihð í Kjós sem ákjósanlegan
stað fyrir Eurovision. Ég keyrði
þangað upp eftir um daginn og skoð-
aði húsið og leist ekkert svo illa á
það. Án gríns, þá held ég að ef viö
ynnum yrðum við ekki tæknilega til
þess búin. í gamni - ef svo færi að
við ynnum keppnina þá myndi ég
veðja á Þjóðleikhúsið og fmnst það
engin helgispjöll. Annars er það hlut-
ur sem við ættum kannski að ræða
seinna.“
Eurovisionkeppnin hefur verið
gagnrýnd hér á landi og margir á
móti því að við séum þátttakendur í
henni. Nú hafa heyrst raddir um að
þetta verði í síðasta skipti sem við
verðum með, er það rétt? „Það hafa
verið uppi raddir um það og Hrafn
Gunnlaugsson hefur nefnt að það
geti komið til greina að þetta verði í
síðasta skipti sem við verðum meö í
keppninni í bih. Ég sé ekkert athuga-
vert við að þátttaka okkar sé endur-
skoðuð en tel að það sé vanmetið
hversu mikil landkynning keppnin
er fyrir okkur. Ef Sverrir vinnur
keppnina þá er ekki neinn vafi á
hversu mikil landkynning það yrði
og ég veit að hann á mörg góð lög til
að halda áfram.“
Fannst lagið grípandi
Bjöm Emilsson sat í dómnefnd í
upphafi, er lögin voru valin, sem
varamaður þar sem Ingimar Eydal
var veðurtepptur og komst ekki í
bæinn. „Ég get upplýst þaö núna að
þegar ég heyrði lagið hans Sverris,
er það kom upp úr svarta kassanum,
þá fannst mér það mjög grípandi. Ég
hefði þó sjálfur haft útsetninguna
hrárri án þess að ég skýri það nán-
ar. Þegar ég síðan var að taka upp
lögin og vinna þau, þá vissi ég að
þetta lag var eitt af topplögunum.
Mér þótti misvænt um lögin og ég
get ekki sagt að mér hafi þótt vænst
um þetta lag. Tvö önnur lög í keppn-
inni þóttu mér mjög góð. Lagið hans
Sverris hefur samt vissan persónu-
leika og maður sér það best þegar
horft er á öll erlendu lögin í keppn-
inni.“
Björn sagði að litlar breytingar
hefðu verið gerðar á laginu fyrir svið,
en Island er eina landið í ár sem ekki
er með stjómanda. Lagið er flutt af
bandi en söngurinn er „hfe“. „Það
var tekin sú ákvörðun að láta það
ekki henda aftur, eins menn töldu
að hefði gerst í Bergen, þegar fyrsta
innkoman á fiðlunum í Gleðibankan-
um var svo flókin að menn réðu ekki
við hana. Sókrates er að mörgu leyti
einfaldara lag en það var ákveðið að
hafa þetta „play back“. Ég er ekki
endilega að segja að ég hafi verið
sammála því. Við þurfum þess vegna
ekki hljóðmann þar sem öll forvinn-
an hefur veriö unnin hér heima.
Bakraddirnar hjálpa síðan mikið upp
á lagið í lokin þegar klappað er og
trallað. Mér fannst í upphaflegu út-
. setningunni svolítið fátæklegt að
Stefán væri einn að klappa,“ sagði
Björn. „Ég hlakka mikið til að fara
út tíl Dyfhnnar en ég neita því ekki
að ég kvíði því ef við vinnum. Ég er
ekki búin að sjá að það verði auðvelt
viðureignar. Annars ér það stór-
karlalegt að tala um sigur og það
hefur nú gerst áður.“
Tveggja manna starf
Bjöm Emilsson hefur unnið i
tuttugu ár hjá Sjónvarpinu. Hann
var um árs skeiö hjá Stöð 2 en kom