Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1988, Page 13
LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988.
13
Jónas Kristjánsson skrifar um veitingahús
Forsjónin refsar
Akureyri ngu m
Forsjónin hefur sent Akur-
eyringum, eins og raunar mörgum
fleiri, skyndibitastaði til refsingar
fyrir misgerðir þeirra. Þeir fara í
sunnudagsbOtúra í Lindina eða
aðra benzínstöð, í stað þess að
styðja landbúnaðinn og borða
lambasteik og ijömaskyr heima hjá
sér. í Lindinni fá þeir ruslfæðið,
sem þeir einir eiga skOið, er snæða
á slíkum stöðum.
i
Sóað og sparað
í benzínmusterinu
Olíufélögin vita ekki aura sinna
tal í einokun sinni. Fyrir ofsagróð-
ann byggja þau skyndibitastaði við
þjóðveginn. Ekkert er sparað í
byggingarefnum, dýrum gólffbsum
og límviði í hólf og gólf. Ailt er hins
vegar sparað í mat og kaupi ófag-
lærðs starfsfólks.
MOU miðbæjar Akureyrar og
flugvaUarins hefur Olíufélagið
reist slíkt musteri matarhaturs
með veitingasal á annarri hæð, út-
sýnisgluggum til þriggja átta og
svölum í kring. Þetta er Lindin,
einn ofantaUnna skyndibitastaða,
sem veitir venjulegum og benzín-
gróðaiausum matstofum óheiöar-
lega samkeppni og er raunar að
drepa þær, því að íslenzkir við-
skiptavinir eru Utilþægir og vOja
láta kvelja sig. Matur í Lindiníú
reyndist ótrúlega vondur, jafnvel í
samanburöi við ýmsa skyndibita-
staði sunnan fjaUa. Ég veit hins
vegar ekki hver staða hennar er í
samanburði við aðra slíka á Akur-
eyri, sem sprottið hafa upp eins og
gorkúlur á mykjuhaug. KjúkUnga-
bitar, kaUaðir Southem Fried, voru
skraufaþurrir af langvinnu offorsi
í eldun. KínarúUur vora með
grimmdarlega brenndri og seigri
skorpu og bragðlausu innihaldi,
sem ekki var unnt að átta sig á.
KjúkUngabitar og kínarúUur eru
mun iUskárri og mun ódýrari tilbú-
in í örbylgjuofninn upp úr frysti-
kistum í matvörubúðum.
Ég prófaði ekki mínútusteik eða
djúpsteiktan fisk, en svínarifm á
matseðUnum voru ekki fáanleg.
Engar súpur eða forréttir voru í
Lindinni, svo að ekki er hægt að
reikna heilt máltíöarverð. Fiskrétt-
urinn kostaði 325 krónur og
miðjuverð kjötrétta var 480 krónur,
fyrir utan pylsur og hamborgara,
kjúkUngabita og samlokur.
Súlnabergi hefur
farið mikið fram
Ef menn eru ákveðnir í að vilja
enga þjónustu, er ólíkt skynsam-
legra að fara í Súlnaberg fyrir
svipað verð. Þar kosta réttir dag-
seðilsins að vísu 590 krónur, en
fyrir það fá menn súpu og ábót að
vUd. Þetta er ekki góður matur,
heldur veiddur upp úr hitakössum,
en kallast þó heU máltíð. Og mat-
Bautinn
Kokkahúfur eru fyrir matreiðslu og
blóm fyrir umhverfi og þjónustu, en
krónupeningarnir tákna verðlagið.
reiðslu Súlnabergs hefur farið
mikið fram.
Síðan má fá bezta kafS Akur-
eyrar, á aöeins 40 krónur, úr
sérstakri vél, sem malar það um
leið og hún hitar það. VéUn lagar
einnig svokaUað expresso-kaffi,
sem er helmingi sterkara en venju-
legt kaffi, en líkist að öðru leyti
ekki expresso, enda eru baunimar
hinar sömu Braga-baunir, sem
frægar eru í fjármálasögu þjóðar-
innar.
Súlnaberg er í rauninni eins kon-
ar mötuneyti fyrir þá, sem ekki eru
í fæði annars staðar. Staðurinn lít-
ur líka út eins og snyrtilegt
mötuneyti. Gamla dótinu hefur
öUu verið ruslað út. Komin er opin
og björt innrétting, nokkuð köld,
með sérkennUega akureyrskri
uppsetningu tjalda fyrir ofan stóra
glugga út að Hafnarstræti.
Gjaldkerastúka og tveir stórir
glerskápar með smurðu brauði,
kökum og tertum, tróna á miðju
gólfi. Úti við gluggana eru nokkur
borð með plastplötum og stálstólar
með þægUegum tágasetum og -bök-
um, svo sem víöa tíðkast í veitinga-
húsum. Flest borðin eru svo í
kuldalega skipulegum mötuneytis-
röðum á efra gólfi, er snýr glugga-
laust að Kaupvangsstræti.
Pottréttir hæfa
mötuneytunuin
Úr hitakössunum prófaði ég
ofeldaða ýsu, pönnusteikta, sósu-
lausa, en í fylgd ofsoðinna kart-
aUna og hversdagslegs hrásalats.
Ennfremur ofeldaðar, en ekki seig-
ar, lambahryggssneiðar með
pönnusteiktum kartöOum, grautl-
inu og óhuggulegu rósakáli og
frambærilegri hveitisósu.
Loks fékk ég úr hitakössunum
sómasamlegt hreindýrahakk með
kartöflustöppu, dæmigerðan pott-
rétt. Slíkir henta hitakössum betur
en viðkvæm vara á borð við fisk
og lambakjöt. Mötuneytisstjórar
mættu gjama hugleiða það. Súpa
dagsins var í annað skiptið heit og
ágæt minestrone, ítölsk tómatsúpa
með hveitihringjum. í hitt sinnið
var hún nothæf blómkáls-hveiti-
súpa með góðu kálbragði. í Súlna-
bergi þarf fólk ekki að borða
mötuneytisfæðu úr hitakössum.
Þar er einnig fastur seðill fimm
fiskrétta og sjö kjötrétta. Með súpu
dagsins, sérrétti, tertu og kafíi fer
miðjuverðið upp í 925 krónur og
eru það ólíkt hagstæðari kaup en á
skyndibitastöðunum.
Af sérréttum kom í fjós, að grill-
steiktar lambakótilettur voru
tæplega sæmilegar, jóðlandi í feiti,
fituskomar að hálfu, ekki ofsteikt-
ar, í fylgd rosalega ofsteiktra
sveppa og sæmilegra kartaflna
franskra. Blandaður kjötréttur á
teini var faliegur, en misheppnað-
ur, því að allt kjötið var jafnlítiö
steikt, þar á meðal svínakjöt, sem
Kokkahúfur eru fyrir matreiðslu og
blóm fyrir umhverfi og þjónustu, en
krónupeningarnir tákna verðlagið.
þarf að vera fullsteikt. Blandað kjöt
á teini er vafasamt í matreiðslu,
nema vönduð aðgát sé höfð. Fors-
teikja þarf sumt kjötið, svo að
eldunarjafnvægi náist milli teg-
unda.
Bautinn lafir í
að vera beztur
Ef fólk er svo frjálslegt í með-
ferö fjármuna, að það vilji borga
tæpan þúsundkallinn, sem sér-
réttamáltíð kostar í Súlnabergi,
kemur til greina að fara í Bautann
handan götunnar, þar sem veitt er
þjónusta til borðs og boðið er salat-
borð, sem er hið langbezta á
Akureyri og með hinum betri í
landinu.
Súpa, saiat, einn rétta dagsins og
kaffi kosta aðeins 880 krónur í
Bautanum og súpa, salat, sérréttur
af fastaseðli og kaffi kosta aðeins
1030 krónur, hvort tveggja að með-
altali. Því miður hefur mörgu farið
aftur á Bautanum, þar á meðal
sjálfri matreiðslunni og úrvalinu á
matseðli dagsins. Enn stendur
staðurinn þó upp úr, meira að segja
í samanburði við hina dýrari veit-
ingastaði. Þvi veldur annars vegar
salatbarinn, sem er óbreyttur að
gæðum, og hins vegar áherzlan á
matseðil dagsins, fremur en fastan
matseðil. Á seðh dagsins var súpa,
þrír fiskréttir og tveir kjötréttir.
Ég fékk í annað skiptið ólystuga
hveitisúpu, spergilkremsúpu með
skán, en litlu spergilbragði. í hitt
sinnið lélega sjávarréttasúpu með
ólseigum hörpufiski, en með ágætu
fiskbragði, svo að súpan varð góð,
þegar hörpufiskinum var sleppt.
Brauðbarinn var ómerkilegur.
Skötuselur var meyr og bragð-
góður, borinn fram með skemmti-
legri sósu og hvítum kartöflum.
Grísakótilettur voru hins vegar
frekar þurrar, bomar fram með
snyrtilegum kartöflum frönskum
og ýmsu gumsi úr dósum. Fersku
sveppirnir og paprikan á salat-
bamum bættu þetta fullkomlega
upp. Kaffi var í lagi og kostaði 25
krónur eftir mat.
Gott salatborð
og þjónusta í plús
Bautinn er óbreyttur í útliti.
Hann er ennþá skásti kosturinn á
Akureyri, en má nú kallast illsk-
ásti. Hann virðist því miður á
undanhaldi, því að gestagangur
hefur minnkað. Hin óheiðarlega
samkeppni olíufélaganna virðist
hafa dregið niður hið skásta, sem
Akureyringar hafa aö bjóða sjálf-
um sér í veitingamennsku.
En salatborð Bautans er þó enn
þrautalending þeirra, sem áhuga
hafa á mat. Og þjónustuna fá menn
næstum frítt umfram skyndibita-
staðina.
Jónas Kristjánsson
Lindin
• •
Kokkahúfur eru fyrir matreiðslu og blóm fyrir umhverfi og þjónustu, en krónupeningarnir tákna verðlagið.
Litir hvítt
og gyllt
mgo;
aWvJ
Teg. 539
Breiddir
90. 140
og 1 60
Teg. 596. breiddir 90. 120. 140 og 160
Litir hvítt, svart og grátt
REYKJAVÍKIRYEGI66.220 HAFNARFIRÐI.SÍMI 54100.
BILEIGENDUR
BODDÍHLUTIR!
Biltegund: Varahlutur: Verð: Biltegund Varahlutur: Verð:
MAZDA POLSKY
929,árg. 1973-77 bretti 4.900 Polortez frambretti 5.000
929,árg. 1978-81 818, árg. 1972 - - bretti bretti 5.800 4.900 RANGE ROVER
323, árg. 1977-80 bretti 4.900 (ra.-nbreUi 5.800
Pickup 197*7-81 bretti 4.900 atturbretti 6.800
SUBARU svunta 2.200 GMC USA Chevrolet Blazer frambretti 7.500
1600 4WD, árg. 1977-79 bretti 4.900 1973-1982 brettakantar
1600 FWD.árg. bretti 4.900 do stærri gerð 15.000
1977-79 do skyggni 6.000
do svuntur 2.300 brettakantar
1600, árg. 1980-84 bretti 4.900 do minni gerð 10.000
VOLVO Ch. Ðlazer Jimmy 1986 brettakantar 10.000
242-2651980-83 bretti 5.500 Ch. Van 1973 — brettakantar 10.000
Lapplander brettakantar 10.000 AMC USA
Volvo vörub. solskyggni 6.500 AMC Concord bretti 8.000
F88 bretti 5.500 AMC Eagle bretti 8.000
FORD UK FORD USA
Ford Esc. 1974 bretti 4.800 F. Econoline 1976-86 brettakantar 10.000
Ford E»c. 1975-80 bretti 4.900 skyggni
Ford Cort/Taunus bretti 5.800 F. Econolíne sL gerð 8.000
1976-79 skyggni
NISSAN DATSUN F. Econoline F. Bronco 1965-77 m. gerð bretti 6.000 7.500
DaUun 280C 1978-83 bretti 9.600 brettakantar
Datsun 220-2801976 bretti 7.800 do stærri gerð 9.900
79 brettakantar
Datsun 180B 1977-80 bretti 4.900 do minni gerð 8.900
D. Cherry Pulsar bretti 4.900 Bronco I11986 brettakantar 12.000
1977-82 Bronco Ranger og brettakantar 10.000
Dats. 120Y-140Y- bretti 4.900 pickup
B3101978-81 do skyggni 6.000
Nissan Patrol brettakantar 10.000 do bretti 7.500
do silsallstasett TOYOTA 7.000 CHRYSLER Dodge Dart 1974 bretti 8.000
T. LandCruiser, I. gerð brettakantar 12.000 Oodge/Aspen
T. LandCr., minni gerð brettakantar 12.000 Pl. Volaré 1976 — bretti 8.000
1986 Chrysler Baron
Toyota Tercel 1979-82 bretti 4.900 D. Diplomat 1978 • • bretti 8.000
Toyota Tercel 1977-78 bretti 4.900 brettak.
Toyota Carina bretti 4.900 Dodge Van1978--- með spoiier 13.000
1970-77 do skyggni 6.000
ToyotaCressida 1977-80 bretti 5.900 JEEP
Toyota Hi Lux skyggni 5.500 Gj-5 bretti, styttri gerð 5.900
do brettak 12.000 Gj-7 bretti. lengri gerð 6.900
do brettak 9.000 Gj-5 samstæða framan 32.500
LADA Lada 12001972 station bretti 3.900 do brettakantar, breiöir 10.000 HONDA
Lada 1300-15001973 bretti 4.900 Honda Accord 1981 bretti 4.900
Lada Sport . frambretti do brettakantar 3.900 6.800 ISUZU
do framstykki 4.800 Isuzu Trooper bretti 7.500
DAIHATSU BENZ
Charmant 1978-79 bretti 6.000
Charmant 1977-78 bretti 6.000 Vörubill (húddlaus) bretti 11.000
Charmánt 1977-79 Charade 1979-1983 svunta bretti 2.800 6.500 SCANIA VABIS
MITSUBISHI Scania, afturbyggð Scania bretti brettab. f. framb.
Lancer1975-79 bretti 5.000 Scania kassi t. kojubil
Galant 1975-77 bretti 5.800 Scania hlíf f. aftan
Galant 1977-80 bretti 6.800 framhjól.
Pajero brettakantar 10.000 Scania 80 frambretti
Scania frambretti
Scania solskyggni
Nýkomnir breiðir brettakantar á Lödu Sport,
sólskyggni og gangbretti,
einnig brettakantar á Scout jeppa.
Póstsendum
BÍLAPLAST
Vagnhöfða 19,
110 Reykjavik,
sími 688233.
Póstsendum