Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1988, Síða 16
16
LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988.
Grein í tímariti leiddi til uppljóstrunar á hugsanlegu morðmáli:
Skildi lík níu ára sonar síns eftir
í skurði á aðfangadagskvöld
Anna Bjamason, DV, Denver
Það var seint sl. haust að kona
nokkur í smábænum Lyman í Wy-
oming las grein í Readers Digest. í
greininni var frá því skýrt að á að-
fangadagskvöld áriö 1985 hafi frosinn
líkami 9 ára drengs fundist rétt fyrir
utan þjóðveginn í Thayer-sýslu í
Nebraska. Drengurinn var klæddur
í blá náttföt og hann haföi stirðnað
með aðra hönd á hjartastað. Að lok-
inni krufningu og þriggja mánaða
eftirgrennslan yfirvalda í Thayer-
sýslu var drengurinn, sem kallaður
var „blái drengurinn", grafmn í
kirkjugarði staöarins. Ekkert hafði
komið í ljós varðandi það hver þessi
drengur var eða hvaðan hann var.
Óþekktur dauödagi
Ibúar tveggja smábæja í Thayer-
sýslu, Chester og Hebron, fylgdust
með gangi málsins og höföu innilega
samúð með þessum litla, látna dreng.
Þeir nefndu hann sín á milli Matthí-
as, sem þýðir guðsgjöf. Enginn vissi
hver hann var eða hvernig dauða
hans haföi borið að.
Eftir lestur greinarinnar fannst
konunni í Wyoming, sem ekki vill
láta nafn síns getið, sem hún kannað-
ist við drenginn. En hún reyndi að
varpa þeirri hugsun frá sér sem allt
of ósennilegri tilviljun.
Daginn eftir hringdi grannkona
hennar sem einnig haföi lesið grein-
ina og fengið þessa sömu tilfmningu,
að hún kannaðist við þennan litla,
látna dreng. Þegar þær ræddu málin
sín á milii fannst þeim báðum að
þarna væri kominn drengurinn
Danny Stutzman.
Konan, sem um er getið í upphafi
Danny litli Stutzman lá í tæp tvö ár
í gröf sem merkt var nafninu Matt-
hew.
þessarar frásagnar, þekkti Eli, fóður
Dannys. Drengurinn haföi dvalið á
heimÚi konunnar og eiginmanns
hennar frá því um vorið 1985 og fram
á vetur. Eli Stutzman haföi’síðan
sótt drenginn aðeins tíu dögum áður
en líkið fannst í Nebraska.
Með hálfum huga sendi konan yfir-
völdum í Thayer-sýslu mynd af
Danny litla og vonaði aö grunur
hennar reyndist ekki réttur - að líkið
sem fannst væri ekki lík Dannys.
Sýslumaðurinn trúði ekki
Sýslumaðurinn í Thayer-sýslu,
Gary Young, haföi aldrei trúað því
aö óþekkti drengurinn heföi dáið af
eðlilegum orsökum. Hann haföi feng-
ið um það bil þúsund ábendingar um
uppruna drengsins en þegár að var
gáð reyndust þær allar rangar. Þegar
hann fékk bréfið frá konunni í Ly-
man og sá myndina af Danny sá hann
óðar að þar gat verið um sama dreng-
inn að ræða. Hann haföi því samband
viö konuna og bað hana að senda
einhver frekari gögn svo að unnt
væri að sannreyna hvort þama væri
um sama drenginn að ræða. Hann
fékk sent afþrykk af hönd drengsins,
sem var á einkunnaspjaldi hans frá
Vörukynning
Á LOFTVERKFÆRUM OG SLÍPIVÖRUM
ÍFIIMTECl
Xí GRMKNG TEOWOLOGY_
Beltaslípivélar,
8 mismunandi gerðir
Loftverkfæri
& slípivörur
Shlnano
loftverkfæri
Cumet
carbideoddar & -skerar
Kemper
slípivörur &
slípimassar & -olíur
Lenox
járnsagarblöð
holusagir & bit
oa
cm
Slípivörur: belti -
skífur - arkir -
hjól - diskar
P.S. Mikið af okkar vörum
er sérstaklega ætlað
til vinnslu á ryðfriu stáli
SÉRVERSLUN UEÐ SLfPIVÖRUR OG LOFTVERKFÆRI
,S3R0T
BÍLDSHÖFÐA 18. SlMI 672240
bamaskólanum í Lyman. Það réð
úrslitum. Látni drengurinn var
Danny Stutzman.
Nákvæmlega sama dag og drengur-
inn fannst látinn, en tveimur árum
síðar, var faðir hans, Eli Stutzman,
handtekinn í bænum Azle í Texas.
Haiin var ákærður fyrir aö hafa mis-
þyrmt syni sínum og manndráp.
Eli hélt því fram í fyrstu að hann
heföi einlægan áhuga á að lijálpa til
Danny og faðir hans áður en þeir
lögðu af staö i siðasta ferðalagið
14. desember 1985.
við að upplýsa málið. Hann var flutt-
ur til Thayer-sýslu tveimur dögum
síðar. Þegar hann stóð yfir gröf sonar
síns runnu tárin niður kinnar hans
og hann kvaðst gleðjast yfir því aö
málið væri nú komið fram í dagsljós-
ið.
„Mér er það ljóst að ég hef oröið
valdur að sorg og sársauka fólks og
mér þykir það mjög leitt. Ég neita
því ekki að ég hagaði mér rangt varð-
andi dauða Dannys og á því biðst ég
fyrirgefningar. Ég er sekur um að
segja ósatt en ég hvorki misþyrmdi
né varð syni mínum að bana,“ sagði
Eli.
Eli fær tvo kosti
Eli Stutzman hélt því síðan fram
að Danny heföi látist af slysförum
þar sem hann svaf í bíl föður síns.
Þar sem engin leið var til að sanna
að dauða Dannys heföi borið að
höndum með voveiflegum hætti var
Eli Stutzman gefmn kostur á að játa
sig sekan um tvenns konar lagabrot;
að hafa yfirgefið lik á almannafæri
og aö tilkynna ekki um andlátiö.
Áður en dómur var kveðinn upp í
máli Elis í dómsalnum í Hebron sagði
hann frá þvi hvemig dauða Dannys
bar að höndum.
Þeir feðgamir vom á leiöinni frá
Wyoming til Apple Creek í Ohio þar
sem þeir hugðust dvelja um jólin hjá
skyldfólki. Danny var með slæma
hálsbólgu og leið fila. „Við ræddum
um að stoppa á hóteli yfir nóttina en
Danny vildi ólmur að við héldum
áfram,“ sagði Eli. „Ég bjó því um
hann í aftursæti bifreiðarinnar
þannig að hann gat lagt sig þar í
svefnpokanum sínum. Ég leyföi hon-
um meira að segja að opna eina
jólagjöfina, sem var fótbolti.“
Danny leið svo betur er líða tók á
kvöldið, klæddi sig í nýju bláu nátt-
fötin sín, sem vom jólagjöf frá Eli,
og skreið svo ofan í svefnpokann
sinn.
Nokkrar klukkustundir liðu, að
sögn Elis, sem fannst Danny vera
óeðlilega hljóður. Eli sagðist hafa
teygt sig aftur í og þreifað á fótlegg
Dannys en ekki fengið nein viðbrögð.
Hann stöðvaði þá bílinn og þá kom
í ljós aö Danny var látinn. Eli, sem
eitt sinn starfaði sem aöstoðarmaöur
á sjúkrahúsi, sagðist hafa reynt lífg-
unartilraunir, bæði blástursaðferð-
ina og einnig hjartahnoð, en án
nokkurs árangurs.
Reyndi aö vera rólegur
„Eg reyndi að vera rólegur en vissi
ekki hvað ég átti að taka til bragðs,"
sagði Eli í réttinum. „Ég fann fyrir
hræðilegri einmanakennd. Ég ók
áfram um stund þar til ég kom að
friðsælum dal. Ég bað til Guðs og
ákvað að skilja Danny þama eftir og
bað Guö um að vemda hann. Ég
sagði engum hvað haföi komið fyrir.“
Eli Stutzman sagði þessa sögu sína
án þess að sýna nokkrar tilfinningar.
Þegar ákærandinn spurði hann
hvort hann heföi orðið syni sínum
aö bana svaraði Eli stutt og laggott:
„Nei.“
Gary Young, sýslumaður í Thayer-
sýslu, var þess fullviss aö gangur
málsins heföi ekki verið sá sem Eh
Stutzman skýrði frá.
„Það skilur enginn maður níu ára
gamlan látinn dreng eftir í skurði úti
á víðavangi. Slíkt gerðist kannski á
miðöldum en ekki í dag. Ég hef haft
það á tilfinningunni frá upphafi að
hér hafi ekki allt verið sem sýnist en
ég get bara ekki komiö auga á hvem-
ig þetta hefur gerst,“ sagði Young.
Sýslumaðurinn var ekki einn um
efasemdir. Vinafólk Stutzmans í Col-
orado og Wyoming lýsir honum sem
hæglátum manni sem flýti sér aldrei
við neitt. Þaö kveður samband þeirra
feðga hafa verið mjög náið og inni-
legt. Danny var einkasonur Eli en
Eli var uppalinn í amish-þjóðfélagi í
Ohio. Amishfólkið þar skýrði hins
vegar svo frá að það teldi betra að
vera á verði gagnvart Eli Stutzman.
Umhverfi það, sem Eli Stutzman
ólst upp í, var mjög strangt. Faðir
hans var biskup safnaðarins. Þrátt
fyrir það reis Eli upp gegn amish-
þjóðfélaginu og flutti á brott. Þeir
sem vantreysta honum segja að hann
hafi verið einrænn og þunglyndur
og það orð hafi af honum farið að
hann væri óforbetranlegur lygari.
Að auki bentu þeir á að fleiri en ein
persóna mjög nákomin Eli heföi lát-
ist á voveiflegan hátt.
Fleiri dauösföll
Árið 1977, þegar Danny var 10 mán-
aða gamall, laust eldingu niður í
hlöðuna á bænum þar sem fjölskyld-
an bjó í Apple Creek. Samkvæmt
frásögn Elis fékk eiginkona hans
hjartaáfaU þegar eldur varð laus í
hlöðunni af völdum eldingarinnar.
Konan var þá komin fimm mánuði á
leið með annað bam þeirra hjóna.
Sagt var að konan heföi verið að
reyna að bjarga nýaitavélunum úr
brennandi hlöðunni þegar hún dó.
Læknirinn, sem tók á móti Danny
og þekkti vel til heilsu móður hans,
kvað hana hafa haft mjög sterkt
hjarta og taldi að dauði hennar heföi
verið mjög „óvepjulegur og óvænt-
ur“. Það þótti einnig ótrúlegt að
konan skyldi hafa verið að reyna að
bjarga mjaltavélum eins og á stóð
fyrir henni.
En þegar læknirinn haföi komist
að þessari niðurstöðu var aUt orðið
um seinan. Búiö var að jarða konuna
og af tiUitssemi við amishfólkið vUdi
hann ekki láta grafa lík hennar upp
til þess að unnt væri að framkvæma
krufningu.
Andleg vanlíðan
EU varð mjög þunglyndur eftir
dauöa konu sinnar og heyrðu ná-
grannamir oft hróp og köll frá
honum. Um tíma var hann á sjúkra-
húsi vegna andlegrar vanUðanar.
Hann átti þó ekki langa dvöl á