Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1988, Side 20
20
LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988.
Reykjavik 18. apríl
Kæri vin
Jæja, þá er aö segja frá sextugsaf-
mæli Ebbu frænku. Þar fór allt
fram úr mínum björtustu vonum.,
Að vísu byijaði veislan ekki gæfu-
lega að mér fannst. Fólk fór að
tínast að um sexleytið, mestmegnis
fjarskyldir ættingjar sem ekki sjást
nema á 10 ára fresti og hafa ekki
áhuga á að hittast oftar. Kaffi-
köku-fiskihlaðborðið fyllti eigin-
lega borðstofuna og áttu allir að
sækja sér þar á disk. Svo byrjaði
þessi veiyulegi vandræðagangur
að ná sér í sæti og reyna að borða
með diskinn á hruánum og geyma
gosglasið á gólfinu þar sem því var
samstundis velt um koll. Sumir
voru svo heppnir að ná sér í sæti
við glugga og gátu haft diskinn í
gluggakistu. Það endaði með að ég
lagði undir mig píanóið og stóð þar
eins og klettur meðan ég snæddi
og leit yfir lýöinn. Haraldur Ebbu-
bróðir var ekki mættur, en eins og
þú manst var hann búinn aö segj-
ast ætla að koma með nokkra kassa
af hvitvíni til að hella aðeins uppá
liðið. En nú var sem sagt enginn
Haraldur og ekkert hvítvín og
aumingja Ebba hafði ekki keypt
nema takmarkað af gosi. Það gekk
fljótt til þurrðar og ég mátti fara frá
hálfiúllum diski út í sjoppu eftir
meira gosi. Raunar var ég að hugsa
um að stinga bara af frá þessu, en
kunni ekki við það auk þess sem
ég var vongóður um að Haraldur
kæmi og þá færi að lifna yfir sam-.
kvæminu. Já, meðan ég man. Ebba
var mjög hrifin af styttunni sem
við gáfum henni og biður fyrir'
kæra kveðju. En svo ég haldi áfram
með söguna þá brenni ég sem sagt
út í sjoppu eftir 30 lítrum af kóki.
Þegar ég kom til baka var Haraldur
kominn. Rallhálfur með sex kassa
af hvítvíni og annað eins af sérríi.
Það leyndi sér ekki að hann var
ákveðinn í að skemmta sér í af-
mælinu hvað sem aðrir gerðu. Eins
AF afmæli Ebbu
Bréftil vinar
Sæmundur Guðvinsson
og þú veist er hann mjög hávær
þegar hann smakkar það og lætur
allt fiakka. Og jafnframt því sem
hann gekk miili gestanna og tróð
hvitvíni uppá fólk byrjaði hann að
ræða dægurmálin tæpitungulaust:
„Loksins er byrjað á ráðhúsinu
og tími til kominn. Það eru ein-
hverjir asnar að röfla út af þessu
húsi en ég styð Davíð eins og klett-
ur. En ég vil láta gera meira. Ég
vil að drullupollurinn verði fylltur
npp til hálfs svo þaö sé hægt að
koma fyrir góðu torgi við ráðhúsið.
Helluleggja tjörnina, helst alla. Þó
má skifja eftir smápoll fyrir þá sem
hafa einhveija ánægju af að góna
á skítugt vatn í tíma og ótíma.“
Og svona hélt hann áfram meö
drynjandi strigabassarödd. Eins og
þú veist er Guðmundur mágur
hans, barnakennarinn þú manst,
einn af æstustu andmælendum
ráðhússins. Ég tók eftir því að Guð-
mundur varð náfölur undir ræðu
Haraldar og steypti í sig úr hvít-
vínsglasinu og teygði sig eftir
flösku og fyllti aftur. Þetta kom
mér nokkuð á óvart því ég vissi
ekki betur en Guðmundur væri
stakur bindindismaður. En þaö var
eins og hann tæki ekki eftir því
hvað hann gerði. Og svo byijaði
hann alit í einu að tala háum hvell-
um rómi. Stóð þarna á miðju gólfi
í brúnum jakkafotum, þvengmjór
og spekingslegur með þessi þykku
gleraugu. Hann var greinilega viti
sínu fjær af bræði:
„Þama er ykkur rétt lýst, friðar-
spillar og yfirgangsseggir sem
ekkert virðið skoðanir annarra.
Hugsið bara í peningum og stein-
steypu en hafið ekki hundsvit á
náttúrufegurð. Viltu ekki láta
skjóta allar endurnar líka, Harald-
ur? Er það ekki þaö sem þú vilt?
Sprengja, skjóta og eyðileggja. Það
er ansi hart að hafa kosið sjálfstæö-
ið í 30 ár og fá svo þetta framan í
sig. En flokkurinn skal fá að blæöa
fyrir þetta. Því skal ég lofa.“
Þegar hér var komið sögu greip
Haraldur framí og var ekki billeg-
ur:
„Hvað ert þú að þenja þig, rindill-
inn þinn. Það vita allir að þú hefur
verið laumukommi alla þína
hundstíö. Og ég held að kennarar
ættu ekki að hafa hátt þessa dag-
ana. Prumpulýður sem ekki nennir
aö vinna nema hálft árið og heimt-
ar alltaf hærri laun. Og svo ætluö-
uð þið í ólöglegt verkfall,
blækumar ykkar. Réttast væri aö
stinga ykkur í steininn, öllum með
tölu, og láta þjófa og morðingja
taka ykkur í kennslustund. Þið
væmð þá ekki rífandi kjaft, kallinn
minn. Hver var það sem kom bíl
undir rassinn á þér og kellingunni
nema hann Haraldur Ólafsson svo
ég held að þú ættir bara að hafa
hægt um þig, góði.“ Guðmundur
stóð orðlaus og gapti, frávita af
reiði. Margrét kona hans stóð upp
og gekk til hans, tók hann undir
arminn og leiddi fram í forstofu um
leið og hún sagði kalt:
„Hér verðum við ekki stundinni
lengur, Guðmundur minn. Það em
takmörk fyrir því hvað sómakært
fólk lætur bjóða sér.“ Ebba hljóp á
eftir þeim fram og það heyrðust
háværar raddir. Systumar greini-
lega komnar í hár saman. Haraldur
lét sér hins vegar hvergi bregða og
sneri sér nú að Helgu dóttur Ebbu
og sagði hryssingslega:
„Jæja, svo þið ætlið að fara að
ana í verkfall og loka búðunum. Á
nú að fara að svelta mann ofan á
allt annað? Á að leggja atvinnulífið
í rúst? Hver verður þá til að borga
ykkur launin, eymingjarnir ykkar
sem hangið í búð allan daginn án
þess að gera ærlegt handtak. Það
ætti að loka ykkur inni meö kenn-
arablókunum því þetta er bara
glæpastarfsemi og ekkert annað.“
En Helga lét ekki vaða yfir sig
og svaraði fullum hálsi: „Eg held
að þú ættir ekki að segja mikið,
Haraldur Ólafsson, bófi og krimmi
sem slappst við aö fara á Hraunið
af því þú hélst dómaranum fullum
þar til málið var fymt.“ Þegar hér
var komið blönduðu fleiri sér í
málið og allt fór í hávaða og hasar.
Því miður urðu ekki slagsmál, én
afmælið leystist upp og allir fóru
hinir reiðustu heim. Þetta var því
hin besta veisla.
Kveðjur
Sæmundur
Finnurðu
átta breytingar?
89
Þessar tvær myndir sýnast 1 fljótu bragöi eins en á neðri
myndinni hafa fallið burt hlutar af myndinni eða þeir
breyst, alls á átta stöðum. Þaö er misjafnlega erfitt að finna
þessar breytingar en ef fjölskyldan sameinast um að leysa
þetta trúum við því að allt komi þetta að lokum.
Merkið með hring eða krossi þar sem breytingarnar eru
og sendið okkur neðri myndina. Skilafrestur er tíu dagar.
Að þeim tíma liðnum drögum við úr réttum lausnum og
veitum þrenn verðlaun, allt Philipsvörur frá Heimilistækj-
um h/f. Þau eru Philips útvarpsklukka (verðmæti 3.210,-),
Philips kaffivél (verðmæti 2.280,-) og Philips ferðastraujárn
(verðmæti 1.600,-).
í öðru helgarblaði héðan í frá birtast nöfn hinna heppnu
en ný þraut kemur í næsta helgarblaði.
Góða skemmtun!
Merkið umslagið:
„Átta breytingar - 89, c/o DV, pósthólf5380,125 Reykjavík.“
Verðlaunahafar 87. gátu reyndust vera: Friðrik Berg-
manns, Nónvöröu 5, 230 Keflavík (útvarpsklukka); Sævar
Bjarki Einarsson, Dvergholti 1, 270 Mosfellsbæ (kaffivél);
Dagbjört Sigvaldadóttir, Ásgarði 12, 108 Reykjavík (ferða-
straujárn).
Vinningamir verða sendir heim.