Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1988, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988.
25
Enn á ný virðist Dennis Hoo-
per ætla að ná fótfestu í
Hollywood. Hann hefur þeg-
ar náð góðum árangri sem
leikari og nú fær hann hrós
sem leikstjóri fyrir Colors,
er fjallar um unghngaflokka í Los
Angeles sem beijast um yfirráöa-
svæði. Það er ekki aðeins Dennis
Hooper sem fær uppreisn æru í Col-
ors. Sean Penn og Robert Duvall í
aðalhlutverkunum leika einnig mjög
vel.
Dennis Hooper er orðinn íimmtíu
og eins ár. Hann á að baki skrautleg-
an feril. Hann byrjaði um leið og
James Dean, lék með honum við góð-
an orðstír í Rebel Without A Cause
og framtíðin blasti við honum. Hann
þótti fljótt erfiður í umgengni, var
fljótur að stofna til vandræða og 1958
var hann gerður útlægur úr
Hollywood.
Var það vegna þrjósku hans við
Henry Hathaway en hann leikstýrði
honum í From Hell To Texas. Hooper
neitaði að gera eins og Hathaway
skipaði honum. Hathaway sagðist
skyldu gera hann útlægan úr
Hollywood og stóð við það.
Það er ekki fyrr en 1968 sem Denn-
is Hooper slær á ný í gegn, þá bæði
sem leikstjóri og leikari. Og að sjálf-
sögðu var það Easy Rider. Aðeins
tveimur árum seinna var hann aftur
gerður útlægur úr kvikmyndaiðnað-
inum vestanhafs.
Þótt The Last Movie hafl að lokum
fengið fyrstu verðlaun á kvikmynda-
hátíðinni í Feneyjum hjálpaði það
ekki Dennis Hooper í samskiptum
hans við peningamennina vestan-
hafs. Hann gerði The Last Movie í
Suður-Ameríku. Safnaði að sér mis-
rugluðu liði, poppurum og leikurum.
Sjálfur var hann þá kominn á kaf í
Colors
Kvikmyndir
og sj ö ára er hann kominn fram á
sjónarsviðið á ný og hefur engu
gleymt.
Sean Penn er aðeins tuttugu og sjö
ára. Hann hefur samt í nokkur ár
verið mesti vandræðagemlingurinn
í Hollywood. Enginn efast um hæfi-
leika hans og hann hefur hvað eftir
annað sýnt hversu góður hann er -
leikið í góðum myndum á borð við
Racing With The Moon, The Falcon
And The Snowman, Fast Times At
Richmond High og At Close Range.
Úrvalsmyndir sem samt hafa ekki
slegið í gegn.
Nú orðið er hann þekktari fyrir
einkalíf sitt en kvikmyndaleik.
Stormasamt hjónaband hans og Ma-
donnu hefur vakið mikla athygli og
bíða menn yfirleitt eftir því hvern
hann muni slást við næst. Sean Penn
lék aðeins í einni kvikmynd á síðasta
ári, Shanghai Surprise, sem var
kannski vonlausasta kvikmynd
þessa árs.
Það var Penn sem átti hugmyndina
að Colors. Hann kom með handrit til
Hooper og vildi fá hann sem leik-
stjóra. Handritið hallaði um tvo
lögregluþjóna, svartan og hvítan, í
Chicago. Þeir eiga i átökum við
glæpaflokka sem lifa á eiturlyfjasölu.
Dennis Hooper var ekki hrifinn af
handritinu, fannst það lélegt og yfir-
borðskennt. Hvers vegna ekki að
flytja söguna til Los Angeles, lögg-
urnar skyldu vera hvítar, einn
gamall, einn ungur og eiturlyfm
skyldu vera „krakk“ og söluhóparnir
unglingar.
Hooper hafði sitt fram. Robert Du-
vall var fenginn til að leika eldri
lögguna. í fyrstu hafði Hooper efa-
semdir um þaö, aðallega vegna þess
að hann hafði orðið vitni að hörku-
rifrildi milli Duvall og Penn í fyrsta
skipti sem þeir hittust. Ástæðan var
hæfileikar eða vanhæfni ónefnds
| starfsfélaga þeirra. „Þetta verður allt
í lagi,“ sagði Duval þegar Hooper
hafði orð á þessu. „ Við getum haldið
áfram að rífast og fengið borgað fvrir
það."
Næst var að fá kvikmyndatöku-
mánn og ekki er hægt að segja annað
en Haskell Wexler, sá þrjóski en mik-
ilhæfi kvikmyndagerðarmaður.
passi vel inn í þennan hæfileikarika
hóp. Listamaöur, sem eingöngu hef-
ur sinnt verkefnum sem hann hefur
langað til, bæði sem leikstjóri og
kvikmyndatökutnaður.
Sjálfsagt hafa margir haft efasemd-
ir um gerð Colors í byrjun. Þær
efasemdir heyrðust þó ekki lengi.
Enda fór þaö svo að myndin var gerð
á tíu vikum, nákvæmlega þeim tíma
sem áætlaður var og kostnaðaráætl-
un stóðst. Kvikmyndastjörnurnar
mættu ávallt á réttum tíma og Penn
meira að segja fékk inni í lögreglu-
skóla til að fylgjast með kennslu.
Þess má einnig geta að á meðan á
tökum stóð þurfti Penn að taka út
fahgelsisvist fyrir að slá niður ljós-
myndara.
Colors var svo frumsýnd í Banda-
ríkjunum fyrir rúmri viku. Gagnrýn-
endur eru yfirleitt hrifnir, þótt
smávægilegar athugasemdir fylgi
með. Áhorfendur bíða í röðum. Einn
galli er þó á gjöf Njarðar. Háværar
raddir eru í Los Angeles um að banna
myndina og tóku yfirvöld í Chicago
undir þá skoðun. Er það vegna þess
að eftir að sýningar hófust hafa ungl-
ingaflokkar í báðum borgum gengiö
berserksgang og glæpir unglinga
aukist. Telja yfirvöld þessa glæpa-
öldu vera áhrif sém Colors hefur á
unglingana. Hver niðurstaðan verö-
ur er ekki ljóst ennþá og hvað sem
þvi líður er ljóst að Dennis Hooper
hefur gert áhrifamikla kvikmynd og
þykir nær öruggt að hann muni í
framtíðinni snúa sér nær eingöngu
aðleikstjórn.
HK
eiturlyf og sögur af lifnaði kvik-
myndaliðsins voru fljótar að komast
á síður kjaftablaða í Bandaríkjunum
og hafði þau áhrif að enginn kom að
sjá The Last Movie sem kostaði ekki
svo lítið.
Hinn ódrepandi Hooper átti samt
eftir að koma enn einu sinni fram á
sjónarsviðið. 1986 leikur hann í
tveimur kvikmyndum Hoosiers og
Blue Velvet með frábærum árangri
og nú voru allir tilbúnir að fyrirgefa
honum syndir hans. í millitíðinni
hafði hann gengið í gegnum þrjá
hjónaskilnaði, verið dæmdur fyrir
að bera ólögleg vopn og næstum
drepið sig oftar en einu sinni á eitur-
lyfjumogáfengi.
Hreinsaður af öllum vímuefnum
þiggur Dennis Hooper aðeins kaffi
og sígarettu í dag. Enda hefur komið
í ljós, eins og margir töldu sig vita,
að undir grófu yfirborðinu býr sann-
ur listamaður.
Robert Duval hefur á löngum ferli
gert aðeins ein mistök. Þau mistök
urðu honum dýr. Hann vakti fyrst
athygli í litlu en góðu hlutverki í To
Kill A Mockingbird er gerð var 1963.
Frá þeirri stundu hefur hann þótt
einn traustasti leikarinn í Holly-
wood, leikið í mörgum úrvalsmynd-
um og hátindi ferils síns nær hann
1983 er hann fær óskarsverðlaun fyr-
ir leik sinn í Tender Mercies.
Ári seinna er það vonsvikinn mað-
ur sem flyst á búgarð sinn í Virginiu
og hefur lítið af Hollywood að segja
eftir það. Ástæðan er Angelo My
Love, mynd sem hann kostaði að
hluta og fékk með þrjósku peninga-
menn méð sér. Myndin þótti mis-
lukkuð og enginn kom að sjá hana.
Sömu menn og klöppuðu fyrir hon-
um við óskarsverðlaunaafhending-
una létu hann út í kuldann. Fimmtíu
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
Þremenningarnir við tökur á Colors. Greinilegt er að einhver hefur sagt eitthvað skemmtilegt.