Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1988, Síða 27
Þjóðarbókhlaðan
Tilboð óskast í frágang forhýsis, glugga og glerjun aðalhúss,
múrverk og frágang í stigahúsum o.fl. i húsi Þjóðarbókhlöðunnar
við Birkimel.
Verkinu skal lokið fyrir 30. apríl 1989 en þó skal hluta þess lokið
á árinu 1988.
Útþoðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri að Borgartúni 7,
Reykjavík, til og með 6. maí 1988 gegn 10.000 kr. skilatrygg-
ingu. Tilboð verða opnuð á sama stað mánudaginn 16. mai 1988
kl. 11.00.
INNKAUPASTOFIMUIM RÍKISINS
___ BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988.
Nýjar plötur
Naked - Talking Heads
Greeri Thoughts og Live - The Smithereens
Shona Laing - South
So - Horseshoe in the Glove
Sæl nú...
Madonna hefursem kunnugt
erfengist við kvikmyndaleik
meðfram söngnum en með
misjöfnum árangri að vísu.
Nú ætlar frúin að bæta um
betur og hefur þegar gert því
29. mars siðastfiðinn sté
hún á leikhúsfjalimar í New
York í stykkinu Speed the
Flow... Þautíðindihafa
borist vestan frá Bandarikj-
unum að plata Sex Pistols,
Never Mindthe Bollocks,
sem út jtom fyrir tíu ámm,
hafi loks náð tilskilinni sölu
þar vestra til að teljast gull-
plata... Svanasöngur
Housemartins er nú kominn
út á smáskifu og heitir þessi
siðasta afurð hinnar fram-
liðnu hijómsveitar, Always
Something there to Remind
Me og skal tekið fram að
ekki er um sama lag að
ræða með sama nafni og
Sandy Shaw gerði heims-
frægt hér um árið ...
i væntalegri ævisögu Micha-
els Jackson, Moonwalk, ku
goðið upplýsa allt um and-
litslyftingar sínar, æsku
sina, auk þess sem bókin
verður prýdd fjölda litmynda
úrfjölskyldualbúmi drengs-
ins... Gömlu mennirnir í
Status Quo hafa beðist opin-
berlega afsökunar hjá
Sameinuðu þjóðunum vegna
þess að þeir léku ekki alls
fyrir löngu á hljómleikum í
Suður-Afríku. Listamenn,
sem hafa troðið upp þar
syðra, hafa verið settir á
svartan lista og fordæmdir
víða en vegna iðrunar Franc-
is Rossi og félaga hafa þeir
verið strikaðir út af fyrr-
nefndum lista... Iron
Maiden á nú í litilsháttar
stappi viðforeldra i Bret-
landi vegna blótsyrða og
orðbragðs í laginu Black
Part Blues sem er á bakhlið
nýjustu smáskífu hljóm-
sveitarinnar, Qan I Play with
Madness. Talsmenn hljóm-
sveitarinnar vilja gera sem
minnst úr mótmælum for-
eldra og segja það ekki
tiltökumál nú á dögum þó
menn bölvi og ragni á hljóm-
plötu...NeilYounghefur
stofnsett nýja hljómsveit,
The Blue Notes, og á þeim
bæ er ekkert verið að drolla
við hlutina, ný plata er þeg-
arkominút, heitir This
Note’s for You og ínniheldur
tiu ný lög eftir Yong.. .það
varallt..
-SþS-
Vel dúðuð nekt
Hverfur
í fjöldann
Shona Laing er áströlsk söngkona
sem trauðla er mjög þekkt hér á ís-
landi. Hún átti að vísu lag á vin-
sældalistum útvarpsstöðvanna ekki
alls fyrir löngu, en það er líka það
eina sem heyrst hefur til hennar hér-
lendis. Lagið sem um ræðir er (Glad
I’m) not a Kennedy, prýðisgott popp-
lag sem mér vitanlega hefur ekki
vakið mikla athygli annars staðar en
hér.
Hvað um það, Shona Laing lumar
á fleiri lögum en þessu eina og þótt
ekkert þeirra sé ýkja líklegt til vin-
sælda getur Shona verið nokkuð stolt
af þessari plötu sinni.
Shona er nefnilega mikil hæfileika-
stúlka; ekki einungis semur hún öll
sín lög sjálf og syngur, heldur leikur
hún á hin ýmsu hljóðfæri á plötunni
og forritar hljóðgerfla.
Tónlistin er létt melódískt popp
með klassísku ívafi á köflum, alvöru
píanói og strengjum auk blásturs-
hljóðfæra.
Besta lagið á plötunni er fyrrnefnd-
ur þakkasöngur um að tilheyra ekki
Kennedy fjölskyldunni, en önnur góð
eru Caught og South.
-SþS-
Undir áhrifum
Platan Especially for You hitti mig
í hjartastað eins og svo marga aðra.
Fjórmenningarnir frá New Jersey,
sem kalla sig The Smithereens, höfðu
greinilega sitthvað fram að færa þótt
ekki væri það stórkostlega frumlegt.
Nýja platan, Green Thoughts, ristir
heldur ekkert sérstaklega djúpt. Hún
er einfaldlega hressilég, - uppfull af
lögum sem minna á gamla tíma.
Já, gamla tíma. The Smithereens
sækir áhrif sín mjög til sjöunda ára-
tugarins. Viö fmnum gítarhljóma frá
Kinks og Byrds, raddir frá Beach
Boys og sumar lagasmíðarnar
hljóma hálfkunnuglega. The Smith-
ereens er þó síður en svo eina
hljómsveitin vestra sem er undir
þessum áhrifum. Hún, ásamt R.E.M.,
Green on Red, Don Dixon og fleiri,
ætti raunar að höfða fyrst og.fremst
til fólks á fertugs- og fimmtugsaldrin-
um sem upplifði bítlaæðið svokall-
aða.
Víst er um að tónlistin á Green
Thoughts er yfirleitt hressileg. Því
er það hálfundarlegt að textar plöt-
unnar eru í hrópandi ósamræmi við
lögin. Pat DiNizio er bæði laga- og
textasmiður hljómsveitarinnar. Og
meðan hann hamrar glaðlega hljóma
í anda tónlistar sjöunda áratugarins
er hjarta hans greinilega fullt
heimssársauka og brostinna vona.
Skrítin blanda sem kemur ekki að
sök hjá þeim sem láta alla textagerö
fara inn um annað eyrað og út um
hitt.
Þegar ég fékk plötuna Green
Thougths fyrst í'hendur vonaðist ég
til þess að-hún hefði að geyma hressa
og skemmtilega tónlist. Sú ósk rætt-
ist. Eigi að síður hefði mér þótt betra
að Smithereens væru komnir lengra
á veg við að þróa sinn eigin stíl en
raun er á. En það hlýtur að koma.
Skömmu áður en Green Thoughts
kom út kom í verslanir í höfuðborg-
inni sex laga geisladiskur með
upptökum frá hljómleikum Smit-
hereens í New York í september ’86.
Þetta er hinn eigulegasti gripur, þótt
stuttur sé, og áreiðanlegá kærkom-
inn þeim sem hlýddu á Smithereens
í Gamla bíói fimm mánuðum síðar.
Eini munurinn á lögum disksins og
hljómleikunum hér var sá að á
disknum er hljómburðurinn i góðu
lagi og hljóðblöndunin eins og hjá
mönnum. Ég vona að fjórmenning-
arnir í Smithereens séu löngu búnir
að reka skemmdarverkamanninn í
hljóðmannslíki sem kom með þeim
hingað. ÁT
„So what?"
Það eru gömul sannindi að ungum
tónlistarmönnum gengur oft erfið-
lega aðkoma sér á framfæri. Margir
standa árum saman í basli við að
komast á hljómplötusamning á með-
an aðrir slá í gegn eins og að drekka
vatn.
Dúettinn So tilheyrir fyrri flokkn-
um, sem sést best á því að öll lög
plötunnar eru samin.1986 en platan
kom út nú fyrir nokkru. Og það verð
ég að segja að þessi samningstregða
hljómplötufyrirtækjanna kemur mér
ekki alls kostar á óvart því hér er
fátt um fína drætti; þeir Mark Long
og Marcus Beli eru ósköp hugmynda-
snauðir í tónlistarsköpun sinni og
ekki bætir úr skák að útsetjarinn
reynir að fela hæfileikaleysi þeirra
félaga með íburðarmiklu krúsidúlli.
Og útkoman er eftir þessu, með heið-
arlegri undantekningu þó, þar sem
lagið Are You Sure er.
-SþS-
Enn kemur Talking Heads á óvart.
Siðustu tvær plötur hljómsveitarinn-
ar, Little Creatures og True Stories,
voru nánast léttmeti. Nýja platan,
Naked, er allt annað. Undarlegur
stílgrautur í upphafi en eftir því sem
oftar er hlustað falla stílarnir saman
eins og bitar í púsluspili og út kemur
skemmtileg og nýstárleg heild.
Á plötuumslagi er greint frá tilurð
plötunnar Naked. Upphaflega hittust
fjórmenningarnir, David Byrne,
Jerry Harrison, Chris Frantz og Tina
Weymouth, og léku af fingrum fram
góöa- stund. Víxluðu meira að segja
hljóðfærum eins og stundum áður.
Þetta „djamm“ var hljóðritað og út
úr því fundnir hljómar sem þóttu
henta í ný lög. Fjörutíu lög komu út
úr þessari törn.,
Utan dagskrár má geta þess að
Björn Ulvæus og Benny Anderson,
fyrrum forkólfar ABBÁ, semja sín
lög einatt á svipaðan hátt.
Þegar búið var að velja þá tónlist
sem nota skyldi á næstu plötu Talk-
ing Heads lá leiðin til Parísar, list-
rænna vegamóta heimsins, að því er
segir á plötuumslaginu. Þar vaxa og
dafna hin ólíklegustu stílbrigði tón-
listarinnar og þar var platan tekin
upp með aðstoð hljóðfæraleikara frá
hinum ýmsu heimshornum. Enda
má víða greina afrísk áhrif í tónlist
Talking Heads að þessu sinni. Sömu-
leiðis suður-amerísk. Þarna má
greina soul, fönk og jafnvel hrein-
ræktaða framúrstefnu sem erfltt er
að draga í neinn þekktan dilk. Hræri-
grautur? Vissulega, en áheyrilegur
grautur.
Textarnir við lögin á Naked urðu
allir til eftir á. Byrne á heiðurinn af
þeim sem endranær og staðfestir
það, sem löngu var vitað, að hann
er greindur og hugsandi piltur, ekk-
ert allt of ánægður með samtíð og
framtíð en svo sem ekkert yflr-
þyrmandi svartsýnn heldur.
Vissulega höfðuðu lögin ellefu á
Naked misvel til mín. Smellurinn
(Nothing but) Flowers vandist fljótt
og vel. Sömuleiðis Totally Nude og
Mr. Jones. þessi þrjú lög má telja
léttmeti plötunnar. Önnur eru
þyngri og útpældari en áreiðanlega
sannkallaður ánægjuauki aðdáend-
um einnar fremstu hljómsveitar
bandaríska rokksins nú.á vordögum.
Talking Heads er farin að láta til sín
taka að nýju.
-ÁT-