Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1988, Qupperneq 36
LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988.
Heimsbikarmótið í Brussel:
Heimsmeistarinn fyrrverandi,
Anatoly Karpov, er enn efstur á
fyrsta heimsbikarmótinu í skák
sem lýkur í Brussel um helgina en
keppnin um efstu sætin er þó geysi-
hörð. Þeir sem neðar koma hafa
heldur ekki lagt árar í bát því að
þótt illa gangi í þessu fyrsta móti
er hver vinningur dýrmætur. Hver
skákmannanna teílir á ijórum mót-
um og sá sem nær bestum saman-
lögðum árangri telst heimsbikar-
meistari.
Margir þeirra sem verma botn-
sætin í Brussel gætu auðveldlega
snúið blaðinu við í næstu mótum.
Að loknum 15 umferðum var
heimamaðurinn Winants kirfilega
neðstur, eins og við var búist, en
næstu menn (talið neðan frá) voru
Sax, Kortsnoj, Seirawan, Sokolov
og Timman! Fimm áskorendur frá
Saint John sem svo sannarlega
mega muna sinn fífil fegri. Þaö er
að vísu órcttlátt gagnvart Timman
að senda hann svo neðarlega því
að hann hafði tvær biðskákir er
þetta er sett á blaö og átti mögu-
leika á því að skjótast langt upp
eftir mótstöflunni.
Alls veröa tefldar 17 umferðir á
mótinu en vegna þess að Vaganjan
varð að hætta keppni teflir hver
skákmeistaranna 16 skákir. Einn
situr yfir í hverri umferð. Er tvær
umferöir voru til loka áttu Nogu-
eiras og Salov eftir að hvíla. Salov,
sem er í baráttu um efstu sætin,
átti því aðeins eftir að tefla eina
skák en helstu keppinautar hans
tvær.
Karpov hafði 9,5 v. af 14 möguleg-
um, jafnmarga vinninga og Salov
að loknum 15 skákum. Enski stór-
meistarinn og stærðfræðidoktor-
inn John Nunn hafði 8,5 v. og
biðskák við Timman eftir 14 skák-
ir. Með sigri í biðskákinni hefði
Nunn því getað komist upp að hliö
Karpovs. Næstu menn voru:
Beljavsky 8,5 af 14; Andersson 8 v.
af 14; Portisch, Speelman og
Ljubojevic 7,5 v. af 14; Nikolic og
Tal 7 v. af 14; Nogueiras 6,5 v. af
15; Timman 6 v. og tvær biðskákir
af 14; Sokolov 6 v. og biðskák af 14;
Seirawan 6 v. af 14; Kortsnoj 5,5,
v. af 14; Sax 5 v. af 14 og Winants
2,5 v. af 14 mögulegum.
Frammistaða Nunns kemur lang-
mest á óvart - ef litið er framhjá
afhroði áskorendanna. Nunn tap-
aði í bráðabana gegn Portisch er
þeir tefldu um réttinn til að tefla í
Saint John. Þeir urðu jafnir á milli-
svæðamótinu í Szirak, þar sem
Jóhann Hjartarson og Salov sigr-
uöu svo glæsilega. Nunn er afskap-
lega lærður skákmaður, teflir
beinskeyttan stíl Og um leið nýtir
hann stærðfræðigáfurnar óspart.
Fáir standast honum snúning er
Frammistaöa John Nunn hefur komið á óvart.
reikna þarf út,langar leikjaraðir
eöa koma þarf auga á dulda mögu-
leika. Lítum á skák hans við
ungverska stórmeistarann Sax.
Nunn beitir eftirlætisvopni sínu,
Marshall-árásinni af spænskum
leik, en kemur ekki að tómum kof-
anum. Hins vegar leikur Sax illi-
lega af sér í miðtaflinu og missir
síðan öll tök á stöðunni í tímahraki.
Hvítt: Guyla Sax
Svart: John Nunn
Spænskur leikur.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4
Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5 7. Bb3 0-0
8. c3 d5!?
Skák
Jón L. Árnason
Marshall-árásin alræmda, sem
Nunn hefur haft í yopnabúrinu í
nokkurn tíma. Svartur fórnar peði
fyrir skjóta liöskipan og ef hvítur
er ekki með á nótunum gæti hann
orðið mát í fáum leikjum. Mars-
hall-árásin hefur hins vegar verið
rannsökuð svo mikið að nú er
henni oftar beitt sem jafnteflis-
vopni. Svo var komið að hvítur
hafði yfirhöndina í skákum með
þessari byrjun en nú hefur Nunn
og fleirum tekist að endurbæta tafl-
mennsku svarts þannig að hvítur
hefur átt í mestu erfiðleikum með
að afstýra jafntefli. Sax er augljós-
lega vel undirbúinn og virðist ná
undirtökunum.
9. exd5 Rxd5 10. Rxe5 Rxe5 11. Hxe5
c6 12. d4 Bd6 13. He2
Vinsæll leikmáti í seinni tíð en
„langa afbrigðið" er 13. Hel Dh414.
g3 Dh3 15. Be3 Bg4 16. Dd3 Hae8 17.
Rd2 He6 18. a4, sbr. skákina
Chandler - Nunn á skákmótinu í
Hastings um áramótin. Framhaldið
þar yarð: 18. - Dh5!? (Spassky-
afbrigðið) 19. axb5 axb5 20. Rfl Hfe8
21. Bdl Bxdl 22. Dxdl DÍ5 23. Bd2
Hxel 24. Bxel h5 25. h4 c5 26. b3
og að sögn Nunn hefði hann nú
leikið best 26. - g6 og ef 27. c4 bxc4
28. bxc4 RÍ6 29. d5 Rg4 og síðan 30.
- Re5 með frábærum gagnfærum.
13. - Dh4 14. g3 Dh3 15. Rd2 Bf5 16.
a4!?
Endurbót Sax á skákinni
Ljubojevic - Nunn frá millisvæða-
mótinu í Szirak. Þar tefldist 16. Bc2
Bxc2 17. Dxc2 f5 18. c4 Dg4! með
flókinni stöðu. Ljubojevic lék 19.
He6 og eftir 19. - Rf4 hefði hann
orðið að sætta sig við þráskák með
20. f3 Rh3+ 21. Kg2 Rf4+ o.s.frv.
■Þess ber og að geta að ekki gengur
16. Re4? vegna 16. - Bg4! 17. Rxd6
Dh5 18. Kfl Dxh2 19. f3 Bh3+ 20.
Kel Dxg3+ og Rd6 fellur.
16. - Hae8 17. Hxe8 Hxe8 18. Rfl h5
19. Bxd5 cxd5 20. axb5 axb5 21. Re3
Bg6 22. Dfl Dd7 23. Ha5 Hb8 24. Rg2
Hvítur hefur náð að hrekja svarta
innrásarliðið af höndum sér og á
peöi meira. Hins vegar er hægara
sagt en gert að gera sér mat úr
þessu peði. Svartur á biskupaparið
og virka stöðu, eins og svo oft vill
verða í þessu afbrigði. Síðasti leik-
ur Sax miðar að því að -hindra
h5-h4 sem heföi viss óþægindi í fór
með sér.
24. - b4 25. Bd2 bxc3 26. Bxc3 Bc7
27. Hc5!?
Dálítið glannalegur leikur en Sax
vill þrýsta að d-peði svarts. Nunn
finnur skemmtilega tilfærslu til að
sporna við þeirri áætlun.
27. - Be4 28. f3 Bc2! 29. Re3 Bb3
30. Bd2? Bb6 31. Hcl Bxd4
Eftir hræðilegan 30. leik sinn hef-
ur hvítur misst miðborðspeðið og
í næstu leikjum. hrynur staðan
(tímahrak?). Svo virðist sem Sax
hafi sést yfir, að eftir 30. Bd2? Bb6
gengur 31. Db5 ekki vegna 31. -
Dd8! og hvítmr kemst ekki hjá liðs-
tapi. T.d. 32. Dxb3 Bxc5 33. Dxd5
Dxd5 34. Rxd5 Bxd4+ og b-peðið
fellur í næsta leik. Frá stöðumynd-
inni hefði 30. Da6! verið mun
sterkara. Þá mætti svara 30. - Bb6
með 31. Db5 Dd8 32. Dxb3 Bxc5 33.
Dxd5 og með tvö peð .fyrir skipta-
mun stendur hvítur ekki lakar.
32. Dd3?! Bxb2 33. Hel Ba2 34. Da6
Bc4 35. Da5 Bd4 36. Bc3? Bxe3+ 37.
Hxe3 d4
Gaffall á biskup og hrók. Sax ger-
ir örvætningarfulla tilraun til að
bjarga sér en allt kemur fyrir ekki.
38. De5 Hd8 39. Bb2 f6 40. Dc5 dxe3
- Og Sax gafst upp.
Tisdall með
stórmeistaraáfanga
Alþjóðlegi meistarinn Jonathan
Tisdall, sem býr nú í Noregi, tefldi
á dögunum á Reykjavíkurskák-
mótinu og síðan á alþjóðlega
mótinu á Akureyri. Tisdall gekk
þokkalega á þessum mótum, þó
sýnu bétur norðan heiða, þar sem
hann átti vonarglætu í stórmeist-
araáfanga. Fékk þó aðeins hálfan
vinning en þurfti tvo, gegn Mar-
geiri og Polugajevsky í síðustu
umferðunum.
Nú hafa þær fregnir borist frá
Osló að Tisdall hafi loks tekist að
krækja sér í stórmeistaraáfanga.
Það gerðist á tíu manna móti af
sjöunda styrkleikaflokki sem hófst
strax að loknu alþjóðamótinu á
Akureyri. Tisdall, Englendingur-
inn Davies og sænski stórmeistar-
inn Lars Karlsson deildu sigrinum
á mótinu með 7 v. af 9 mögulegum.
Siðan komu tékkneski stórmeistar-
inn Jansa, fmnski stórmeistarinn
Westerinen og Norðmaðurinn
Djurhuss með 4 v. Næstur varö
Poulsson meö 3,5 v., síðan Gausel
og Östenstad með 3 v. og Haugli rak
lestina með 2,5 v. Þessir eru allir
Norðmenn.
Mér segir svo hugur um að Tis-
dall hafi andað léttar er hann sá
Zia og Rodwell sipðu í Staten Bank keppninni
Hollenski bankinn Staten Bank hefur
undanfarin tvö ár staöið fyrir keppni 16
heimsþekktra para og er spilað um há
peningaverðlaun.
Pörin spila 10 spil, allir við alla, og að
leik loknum eru impar í hverjum leik
reiknaðir út í vinningsstigum á 30 skalan-
um. Hámark í hverjum leik er 25.
Bandaríkjamennimir, Sontag og Eis-
enberg, leiddu keppnina mest allan
tímann, töpuðu síðasta leiknum, 12-18,
og duttu þar með úr fyrsta sæti niður í
fjórða.
Það gefur ef til vill hugmynd um styrk-
leika mótsins að Frakkamir Svarc og
Cronier urðu í neðsta sæti en það var
góðkunningi okkar, Zia Mahmood, sem
sigraði ásamt Bandaríkjamanninum Eric
Rodwell. Zia bætti þarna þriðju fjöðrinni
í hatt sinn eftir Reisingerkeppnina í
Bandarikjunum og rúbertubridgekeppni
á skemmtiferðaskipinu Canberra sem
hann vann á síðasta spilinu.
Keppnin var það jöfn að spilið í dag gat
breytt flestum efstu sætunum ef útkoman
hefði breyst örlítið.
N/ALLIR
♦ KG542
V G65
♦ A1087
+ 10
♦ 6
V D10 .
D932
+ G98732
♦ 9
♦ AK987432
♦ K6
+ D5
♦ AD10873
V -
♦ G54
+ AK64
Með Zia og Rodwell n-s, en Austurríkis-
mennina Terrano og Fucik a-v, þá gengu
sagnir á þessa leið:
Norður Austur Suður Vestur
pass 4H 4S pass
5S pass 6S pass
pass pass
Það var gott hjá n-s að komast í slemm-
una og Rodwell sýndi tækni sina með því
að vinna spilið örugglega.
Bridge
Stefán Guðjohnsen
Vestur spilaði út hjarta og Rodwell
trompaði. Hann tók trompin, síðan tvo
hæstu í laufi, trompaði lauf, trompaði
hjarta, trompaði lauf, og trompaði hjarta.
Þar með hafði haim fullkomna talningu
í spilinu - austur hafði byijað með skipt-
inguna 1-8-2-2. Rodweli spilaði því næst
tígulgosa, drottning og ás. Hann fór síðan
heim á tromp og spilaði tígh á tíuna.
Honum var nákvæmlega sama, hvað
varð um hana, því austur hlaut að spila
hjarta í tvöfalda eyðu, ef hánn ætti kóng-
inn.
Kanadamaöurinn Kokish, semvspilaði
á móti Englendingnum Forrester, lenti í
sama spili í vöminni gegn Austurríkis-
mönnunum, Meinl og Berger.
Berger lenti í sömu endastöðu, en tók
þá tígulás. Kokish lét kónginn í, en þá
sagði Berger: „Þetta var góð vöm hjá
þér, en ég á tíuna og spilið stendur."
Auðvitað er spilamenska Rodwells
betri því að hún dekkar hjónin hjá vestri.
Lokastaða mótsins var þessi:
1. Mahmood-Rodwell 243
2. Chemla-Reiplinger 241
3. Leufkens-Westra 241
4. Eisenberg-Sontag 240
5. Sundelin-Flodquist 233
6. Kokish-Forrester 231
7. Meinl-Berger 231
8. Fucik-Terrano 227
9. Kreijns-Engel 226
10. Hamman-Nickell 224
11. Hellness-Aaby 219
12. Lesniewsky-Gawrys 214
Bridgedeild Skagfirðinga
Spilað var í einum riðli þriðjudaginn
19. apríl.
Efstu skor fengu eftirtalin pör:
1. Andrés Þórarinsson
- Hjálmar Pálsson 130
2. Hildur Helgadóttir
- Karólina Sveinsdóttir 129
3. Ármann Lárusson
- Steingrímur Jónasson 121
4. Þorbergur Ólafsson
- Murat Serdar 115
Þriðjudaginn 26. apríl verður spil-
aður eins kvölds tímenningur.
Úrslit íslandsmótsins í tví-
menningskeppni 1988-
Töfluröð keppenda:
1. Ragnar Jónsson - Þröstur Ingimars-
son Kópavogi
2. Eiríkur Hjaltason - Hjalti Elíasson
B.R.
3. Gísli Torfason - Magnús Torfason
Keflavík
4. GuðniSigurbjarnason-JónÞorvarð-
arson B.R.
5. Bernharður Guðmundsson - ingólfur
Böðvarsson TBK
6. Kristján Guðjónsson - Stefán Ragn-
arsson Akureyri
7. Eggert Benónýsson - Rún'ar Lámsson
B.R.
8. Ásgeir P. Ásbjörnsson - Hrólfur
Hjaltason B.R.
9. Guðmundur Páll Arnarson - Símon
Símonarson B.R.
10. Jón Baldursson - Valur Sigurðsson
B.R.
11. Guðlaugur R. Jóhannsson - Örn Arn-
' þórsson B.R.
12. Jakob Kristinsson - Ólafur Týr Guð-
jónsson B.R.
13. Bjöm Eysteinsson - Þorgeir P. Ey-
jólfsson B.R.
14. Hörður Arnþórsson - Jón Hjaltason
B.R.
Eric Rodwell, fyrrverandi heimsmeistari í tvímenning, sem sigraði í Staten
Bank keppninni með pakistananum Zia Mahmoud, var gestur bridgehátíðar
á íslandi árið 1986.