Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Síða 4
4
MÁNUDAGUR 27. JÚNf 1988.
Fréttir_________________________________________
Sigurður Gunnarsson, trillukavi á Húsavík:
Fékk ekki að
kjósaforseta
„Eg fékk ekki að kjósa forseta lýð-
veldisins. Mér þykir það furðulegt
að ekki sé komiö heim til þeirra sem
ekki eiga heimangengt. Eg veit til
þess að farið var á sjúkrahúsið og
sjúklingunum leyft að kjósa þar,“
sagði Sigurður Gunnarsson á Húsa-
vík.
Sigurður meiddist um borð í báti
sínum á fóstudag í fyrri viku. Hann
hefur legið rúmfastur síðan. Kona
Sigurðar hefur hjúkraö honum.
„Konan er búin að spara ríkinu
tugi þúsunda. Ég er ekkert annað en
spítalamatur. Við viljum bæði að ég
sé heima á meðan þaö er hægt.
þúsunda," segir Sigurður Gunnars-
son.
Læknir kom til mín á miðvikudag
og sprautaði mig. Hann hafði orð á
því að ef ekki yrðu snöggar breyting-
ar á yrði ég að fara á sjúkrahúsið,"
sagði Sigurður.
„Á föstudag óskaði ég eftir því að
fulltrúi sýslumanns kæmi með kjör-
gögn heim svo ég gæti kosið. Ég hef
læknisvottorð fyrir þvi að ég kemst
ekki á kjörstað. En það var ekki
leyft Ég ásaka ekki fuÚtrúann, enda
er hann bæði nafni minn og vinur,
heldur ásaka ég löggjafann fýrir að
svona sé hægt að fara með þegna
þjóðfélagsins," sagði Sigurður Gunn-
arsson. -sme
Okkur var neitað um læknisaðstoð
- segir Rúnar Svansson í Vestmannaeyjum
„Við komum á sjúkrahúsið fáranótt laugardagsins kom til læknisaðstoð á hvaða tíma sólar-
klukkan fimm aðfaranótt sunnu- slagsmála. Rúnar og félagi hans hringsins sem er. Ég fékk skoðun
dags. Ég er meiddur á hendi og fé- voru þátttakendur í þeim og meidd- í gær og á að mæta í dag í röntgen-
lagi minn er nefbrotinn. Okkur var ust eins og fyir sagði. Þeim þótti myndatöku. Ég er mikið bólginn á
neitaö um alla aðstoð og reyndar ráðlegast að leita læknis og héldu handlegg,“ sagði Rúnar Svansson.
var hringt tvisvar á lögreglu til að að sjúkrahúsinu. Þeim var ekki „Éger meömölbrotiðnefogvildi
vísa okkur M sjúkrahúsinu," hieyptinnheldurtilkynntaðlækn- endilega láta rétta það áður en þaö
sagði Rúnar Svansson í Vest- ir yröi við klukkan níu um morg- bólgnaði. Núerþaðofseintogand-
mannaeyjum. uninn. litiö er allt stokkbólgið" sagði Há-
Eftir dansleik í Skansinum aö- „Það er hart aö geta ekki fengiö kon Svavarsson. -sme
„ Borgames og Höfn:
Afengisútsölur samþykktar
- óvíst hvort eða hvenær verslanir verða opnaðar
„Ég get ósköp lítið um máhð sagt.
Þetta eru viljayfirlýsingar íbúanna
sem er formskilyrði samkvæmt lög-
um. Það er fjármálaráðherra sem
ákveður hvar útsölur eru en þær
geta verið í kaupstað þar sem íbúam-
ir hafa samþykkt slikt í almennri
atkvæðagreiðslu. Ég get því lítið sagt
um málið," sagöi Höskuldur Jóns-
son, forstjóri Áfengis- og tóbaks-
verslunar ríkisins.
Á laugardaginn kusu bæöi íbúar í
Borgamesi og á Höfn í Hornafirði
um hvort leyfa ætti áfengisútsölu á
staðnum. Á báðum stöðum voru þeir
í meirihluta sem vildu áfengisútsölu.
í Borgamesi sögðu 602 já en 228 nei
en 29 skiluðu auðu. Á Höfn í Homa-
firði sögðu 533 já en 130 nei, 14 tóku
ekki afstöðu.
En hvemig líst Höskuldi á að opna
hugsanlega áfengisutsölu á þessum
stöðum?
„Um það get ég htið sagt nema til
Hafnar myndi fækka póstafgreiðsl-
um sem em erfiðar og til ama. Þeir
eru öðruvísi í sveit settir heldur en
aðrir því fyrir íbúa þar er skemmst
í áfengisútsölu á Selfossi eða Seyðis-
firði,“ sagði Höskuldur. -JFJ
Svo margir komu til að vera við útskrift HÍ í Háskólabiói að koma varð
fyrir sjónvarpsskermum í anddyri.
Metútskríft frá
Háskóla íslands
- mikið fjölmenni viðstatt útskriftarathöfhina
Háskóh íslands útskrifaði 383
kandídata á laugardaginn. Það er
mesti íjöldi sem útskrifaður hefur
verið í einu til þessa. Svo margir
vora við útskriftina að koma varð
fyrir tveimur videoskermiun í and-
dyri Háskólabíós svo allir gætu fylgst
með.
Viðstaddir voru meðal annarra for-
seti íslands og menntamálaráðherra.
Athöfnin hófst með hljóðfæraleik
Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur
píanóleikara, Sigurðar I. Snorrason-
Sigmundur Guðbjarnason háskóla-
rektor afhendir kandidat prófskír-
teini.
ar klarinettuleikara og Páls Einars-
sonar sem spilaði á kontrabassa.
Við athöfnina var einnig lýst fjór-
um heiöursdoktorsnafnbótum. Dr.
Jóhannes Nordal seðlabankastjóri
var sæmdur heiðursdoktorsnafnbót
frá Félagsvisindadeild, Jónas Har-
alds, fyrrv. bankastjóri, frá Við-
skipta- og hagfræöideild, Gmuiar
Böðvarsson prófessor frá Raunvis-
indadeild og dr. Leifur Ásgeirsson
prófessor, einnig frá Raunvísinda-
deild.
Að þessu loknu ræddi háskólarekt-
or málefni skólans og ávarpaði
kandidata. Þá vom nemendum af-
hent prófskírteini sín. Flestir
kandidatar útskrifuðust frá lækna-
deild. Þar af útskrifuðust 49 í læknis-
fræði, 59 hjúkrunarfræðingar og 18
sjúkraþjálfarar. í raungreinum út-
skrifuðust 59. Þar af luku flestir prófi
í tölvunarfræði. Meðal kandidata var
Belgi sem lauk embættisprófi í ensku
frá heimspekideild. Svo skemmtilega
vih til að lokaritgerð hans var um
tónhstarmanninn Leonard Cohen.
Að athöfn lokinni var svo haldið
boð í Skólabæ við Suðurgötu tU heið-
urs nýkjömum doktorum.
-ÓTT.
í dag mælir Dagfari
Þá er kosningaleiknum um for-
setaembættið lokiö að sinni og
komu úrslitin engum á óvart. Það
sem vakti kannski mesta athygli
var hve margir nenntu ekki á kjör-
stað til aö krossa við annan hvom
frambjóðandann. Þaö vom víst um
fimmtíu þúsund manns sem höfðu
öðmm hnöppum að hneppa en
standa í að kjósa forseta. Ymsar
skýringar vom tíndar til þegar
reynt var að afsaka þessa dræmu
kjörsókn. í sumum landshlutum
var víst svo kalt að fólk treysti sér
ekki út úr húsi. Á öðrum stöðum
var hins vegar svo heitt að kjósend-
ur máttu sig hvergi hræra heldur
flatmöguðu undir húsvegg, lamaðir
af hitanum. Þá bætti það ekki úr
skák að sjónvarpið sýndi úrshta-
leikinn í Evrópukeppninni í fót-
bolta eftir hádegið á kjördag en það
er einmitt upp úr hádegi sem marg-
ir kjósa og komist þeir ekki á kjör-
stað á þeim tíma þá fara þeir ekki
fet. Einhvers staðar var sagt í frétt-
inn aö þetta væri minnsta þátttaka
í kosningum hérlendis frá árinu
1933 og var það þó löngu áður en
farið var að kjósa forseta. En sínum
augum htur hver á silfrið og kosn-
ingastjóri sigurvegarans lét svo
ummælt að þessi glæsilegi sigur
Afleitt kosningaveður
skemmtunar fyrir aha landsmenn
í nýja útvarpshúsinu. Þar léku
væri heimsviðburður. Ur hiniun
herbúðunum heyröust ekki síöri
fagnaðarlæti og ósigurinn talinn
með glæstustu sigrum þjóðarinnar
fyrr og síðar, auk þess sem boðaö
var framboð á nýjan leik aö fjórum
árum hðnum. Þaö helsta sem ein-
kenndi aðdraganda forsetakosn-
inganna nú var skortur á kosninga-
baráttu. Ástæðan er sú að annar
frambjóðandinn vildi kappræður
viö hinn en sá vildi engar rökræður
þeirra í mihum og sagðist vera
búinn að segja aUt það á átta árum
sem hann hefði til málanna
leggja. Auk þess væri ekki hæg
vera bæði forseti og forsetafram-
bjóðandi. Þessi ummæh vom látin
faUa í sjónvarpsvið
Álftanesi að kvöldi
þegar úrsht lágu fyrir og stuðn-
ingshð sigurvegarans gekk um sal
hins foma höföingjaseturs og mátti
heyra glasaglaum og fagnaðar-
hlátra. Hefur þama eflaust farið
fram hin veglegasta sigurhátíð eins
og vera ber, hver svo sem borgar
reikninginn. En frambjóðandinn,
sem vhdi rökræður en fékk ekki,
bauðst til að gerast ráðgjafi sigur-
vegarans en ekki er enn vitaö hvort
boðið veröur þegið. Það að fjórði
hver kiósandi kaus það eitt á kör-
ar til þess aö margir hafi vUjað fá
svohtið futt í kosningabaráttuna
sem aldrei varð nein barátta. Úr-
shtin benda hins vegar til þess að
það skih bestum árangri að segja
sem minnst og forðast að mæta
andstæðingnum augliti til aughtis.
Sjónvarpið reyndi þó að bjarga því
sem bjargað varð og efndi til
hstamenn erlend lög af miklum
móð eins og vera ber þegar verið
er aö kjósa forseta íslenska lýðveld-
isins. Svo kom Albert á vettvang
og lýsti því yfir að hann vUdi aö
aUtaf væri kosið um forseta, hvort
sem mótframboð bærust eða ekki.
Það getur verið áhættusamt fyrir-
tæki því hvað skal gera ef einn er
í kjöri en fær ekki meirihluta kjós-
enda til að drattast á kjörstað. Og
fyrrverandi formaður kjörstjómar
mætti í nokkurs konar „Maður er
nefndur" viðtal og sagði frá því
hvemig hann hefði jafhaö fyrstu
tölur frá forsetakosningunum 1968
til þess að stuða ekki um of stuðn-
ingsmenn þess er tapaði. Það hefði
verið erfitt að beita því bragði í
þessum kosningum. Þrátt fyrir við-
leitni sjónvarpsins stöndum við þó
uppi með dauflegustu kosningar í
manna minnum, ahavega þeirra
sem ekki muna kosningarnar 1933.
En eins og margoft hefur verið bent
á má ekki efna til ófriðar um for-
setaembættið. Því ber að leggja aUa
baráttu af við forsetakosningar hér
eftir og helst þurfa kosningarnar
að fara fram með þeim hætti að sem
fæstir taki eftir þeim. Laugardag-
urinn 25. júní verður okkur lands-
mönnum því fyrst og fremst minni-
stæður fyrir frábæran knatt-
spyrnuleik í sjónvarpinu þar sem
HoUendingar börðu á Rússum með
svo eftirminnUegum hætti. Þar
vantaði ekki baráttugleðina af
beggja hálfu.
Dagfari