Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Side 5
MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ 1988.
5
Fréttir
Iðnaðarmenn í Amessýslu kæra:
Þrír ófaglærðir og meistari kærðir
Þrír menn hafa verið kærðir fyrir
að starfa ófaglærðir við málningar-
vinnu í Þorlákshöfn. Fjórði maður-
inn, málarameistari í Hafnarfiröi,
hefur einnig verið kærður. Það er
Meistarafélag Suðurlands og Félag
byggingariðnaðarmanna í Ámes-
sýslu sem kærir.
Sigurður Guðjónsson, starfsmaður
Félags byggingariðnaðarmanna,
sagði við DV að í Þorlákshöfn starf-
aði ófaglærður maöur sem málari.
Maðurinn hefur tvo starfsmenn og
auk þess selur hann málningarvörur
í fyrirtæki sínu. Faðir mannsins, sem
hefur einnig verið kærður, er mál-
arameistari og býr í Hafnarfirði. Fað-
irinn leppar son sinn aö sögn Sigurð-
ar. Það er ótvírætt mat kæranda að
feðgamir og starfsmenn þeirra hafi
gerst brotlegir við iðnaðarlög. -
Kæran var send sýslumanni eftir
að Ölfushreppur ákvað að taka til-
boði þess ófaglærða í ákveðið verk.
Tvö tilboð bárast í verkið. Málara-
meistari bauð 150 þúsund krónur og
sá ófaglærði 120 þúsund, efni er inn-
ifalið. Hreppurinn tók lægra tilboö-
inu. Guðmundur Hermannsson
sveitarstjóri sagðist telja að rétt hafi
verið að öllu staöið af hálfu hrepps-
ins. Lægra tilboði tekið og þess kraf-
ist að meistari ábyrgðist verkiö.
Verkkaupi varð við því og þá var
gerður verksamningur milli aöila.
Næg atvinna er fyrir iðnaðarmenn
í Árnessýslu. Guðmundur Her-
mannsson sveitarstjóri sagði að oft
væri erfitt að fá iðnaðarmenn til
starfa. „Verkkaupi tekur mikla
áhættu þegar verslað er við ófag-
lærða. Réttur til að krefjast endur-
vinnu vegna gaUa er ekki sá sami og
þegar fagmenn vinna verkið, sagði
Sigurður Guðjónsson. -sme
TF-ÖRN, ein af flugvélum Ernis.
DV-mynd BB
ísafjörður:
Aukin áhersla
á frakt-
flutninga
Siguijón J. Sigurösson, DV, isafirði:
„Við höfum einsett okkur að ef
komið er með pakka á afgreiðsluna
í Reykjavík fyrir brottfór áætlunar-
flugsins til Suöureyrar, á hann að
vera kominn í hendur viðtakanda á
öllum viðkomustöðum Emis á Vest-
fjörðum samdægurs. Þaö sem gerir
þetta mögulegt er að frakt sem kem-
ur með áætlunarfluginu verður send
áfram með póstfluginu," sagði Hörð-
ur Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Emis, í samtali við DV.
Flugfélagið Ernir er nú komið með
afgreiðslu á Reykjavíkurflugvelh hjá
Leiguflugi Sverris Þóroddssonar við
hhðina á afgreiðslu Arnarflugs. Fé-
lagið keypti fyrir nokkru Twin Otter
vél frá Bandaríkjunum með aukna
þjónustu á sviöi fraktflutninga í
huga.
Opinber nefnd:
Innfluttur
áburður ekki
ódýrari en
innlendur
Nefnd á vegum landbúnaðarráðu-
neytisins hefur komist að þeirri nið-
urstöðu að ekki séu rekstrarleg rök
fyrir því að leggja niður Áburðar-
verksmiðju ríkisins í Gufunesi.
Nefndin telur ekki sannað að verð á
innfluttum áburði yrði lægra en verð
frá verksmiðjunni. Þá telur nefndin
að miðað við rekstrargrundvöll
verksmiðjunnar í dag geti hún staðið
undir skuldum og auk þess end-
umýjun á tækjum og búnaði.
Jón Helgason landbúnaðarráð-
herra skipaði þessa nefnd í kjölfar
umræðna um hættu af ammoníak-
geymi verksmiðjunnar í vetur. Með
nýjum ammoníakgeymi telur nefnd-
in að um 75 hektara land umhverfis
verksmiðjuna geti nýst sem athafna-
svæði.
Nefndin kannaði ekki hvað það
kynni að kosta að reisa nýja áburðar-
verksmiðju á öðrum stað. í skýrsl-
unni kemur fram að ný verksmiðja
yrði mun minni en sú sem nú er
starfrækt.
í skýrslu nefndarinnar kemur fram
að Áburðarverksmiðjan greiðir
lægsta verð á raforku til Landsvirkj-
unar eða 45 aura á kílóvattstundina.
Hún nýtur auk þess niðurgreiðslna
á áburðarverð.
Spariskírteini ríkissjóðs eru verðtryggð
og bera auk þess báa vexti
Nú eru síðustu forvöð að ávaxta sparifé
þitt með spariskírteinum ríkissjóðs,
sem bera 8,5% raunvexti til tveggja ára
(gjalddagi 1. febrúar 1990). Sölu á
þeim lýkur .nú um mánaðamótin.
Sala á spariskírteinum með 8,5% raun-
vöxtum til þriggja ára og spariskírtein-
um með 7,2% raunvöxtum til allt að 10
ára heldur áfram.
Spariskírteini ríkissjóðs eru að fullu
verðtryggð og með þeim getur þú
ávaxtað sparifé þitt á háum vöxtum á
öruggan og einfaldan hátt.
Spariskírteini ríkissjóðs fást í Seðla-
banka íslands og hjá löggiltum verð-
bréfasölum, sem m.a. eru viðskipta-
bankarnir, ýmsir sparisjóðir, pósthús
um land allt og aðrir verðbréfamiðlarar.
Ríkisvíxlar fást í Seðlabanka íslands.
Einnig er hægt að panta þá þar, svo og
sp^riskírteinin, í síma 91-699863,
greiða með C-gíróseðli og fá víxlana og
spariskírteinin síðan send í ábyrgðar-
pósti.
RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS
Nú hcafa forvextir á ríkisvíxlum
hækkað í 32,5% sem jafngildir
40,3% eftiró greiddum vöxtum
miðað við 90 daga lánstíma.
Ríkisvíxlar eru örugg og arðbær leið til
að ávaxta skammtímafjármuni.
Verðtryggð spariskírteini til sölu núna:
Flokkur Lánstími Ávöxtun Gjalddagi
l.fl. D 2 ár 8,5% l.feb ’90
l.fl. D 3 ár 8,5% l.feb ’91
l.fl. A 6/10 ár 7,2% l.feb ’94-’98
Tryggdu sparifé þínu
örugga óvöxtun núna.
30. júní lýkur sölu
spariskírteina ríkissióÖs
med 8,5% raunvöxtum
tll tveggja ára
-gse