Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Side 6
6
MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ 1988.
Sandkom
Fréttir
i
Yfir „bauginn"
Hafliði Guö-
mundssoní
Grímseysagðií
viðtaiiviðl'im-
annaðekkert
bentítilþessað
Grimseyingum
myndifækkaá
næstunni „Menn hér eru iðnir við
kolann," sagði Hafliöi hinn hressasti.
Þetta minnir á að heimskautsbaugur-
innliggurumGrímsey miðjaogað
sögn viEsvo skeramtflega tíl að heim-
skautsbaugslínan er i miðju rúmi
hreppstjórans þar og konu hans.
Menn haía því á orði að hann sé eini
roaöurinn í heirainum sem þarf yfir
heimskautsbaug ef hann ætlar að
„hvíslaemhverju" í eyra konu sinnar
aðnæturþeli.
Steingrímur ekki
í mannvalinu
.JÉgbarTiin-
annútádðgum
Tryggvaog
Jónasarogþeg-
aréglasundir
myndinnií
blaðinuaf
Qörutíuára
stúdentum, þótti mér vanta aö þess
væri getið að bekkurinn var skipaður
frábæru mannvali fyrir utan Stein-
grím Hermannsson.“
Svo segir í bréfi sem Tíminn birtí
í síðustu viku. Höítíndur bréfsins er
eldriborgari.
Þaö er greinilegt að þessi fyrrver-
andi blaðberi Timans hefur annað
raat á foringja Framsóknar og
Tímans en ritstjóm þess annars
ágæta blaðs. Lofið, sem Tíminn birti
er foringinn varö sextugur, var ein-
stakt
Þessi tyrrverandi blaðberi Tfmans
amast einnig við að hans eigið blað
skuli nota skammstöfunina USA í
sífellu. Tíminn lo&r starismanninum
tyrrverandi að nota hér eftír skamm-
stöftmina BNA sem útíeggst Banda-
ríki Norður-Ameríku.
Var Davíð
ofþykkur?
Góökunningi
Sandkomsfull-
yrðiraðDavíð
Oddsson, sem
erborgarstjóri
Reykvíkinga,
iiafi veriösend-
urtílFæreyja
með fyrstu ferð, að gefhu tilefni. Eins
og allir vita hefur Da við þessi slegið
öfium öðrum viði borðaklippingum,
fyrstu skóflustungum og fleiri tákn-
rænum vígslu- og opnunargeming-
um. Davíð mun hafa hlakkað mikið
til að renna sér fyrstur allra manna
niöur vatnsrennibrautina í Laugard-
al. Mennfóruaöeftistum aðboigar-
stjórinn kæmist niður sökum líkams-
byggingar. Óttinn mun fyrst og
fremst hafa verið við að borgarstjór-
inn myndi stífla brautina. Það var
fleira sem geröi að Davíð var sendur
tU Færeyja meö fyretu ferð. Hugsiö
ykkurhvað maðurixm hefði verið
gjörbreyttur þegar hann hefði komið
upp úr lauginni með þetta mikla og
hrokkna hár rennandi blautt.
Vestmannaeying-
areru óhressir
Sandkom
heyrðiaðí
Vestmannaeyj-
umvæmmenn
alltannaöen
ánægðirmeð
stuöning
grannasinnaí
norðri, það er íslendinga. Vest-
mannaeyingar buðu, eins og kunnugt
er, fram foreetaefni i nýafstöðnum
foreetakosningum. Frambjóðandi
Vestmannaeyinga mun hafa sett
heimsmet i slíkum kosningum þar
sera enginn mun áður í gjörvaliri
heimsbyggöinni hafa goldið annað
eins afhroö. í Vestmannaeyjum
munu vera uppi raddir sem vflja end-
urvekja hugmyndir um aö slíta meö
öllu samstarfi við grannana í notðri.
Dræmakjöreókn í Eyjum skýraþeir
áköfustu með því að fólk hafi talið
sinn frambjóðanda öruggan um sigur
og bafi heimamenn því setiö heima
við undirbúning sigurhátíðar. Sand-
kom selur þessa sögu ekki á meira
enhúnfékkst. Þaöskaltekiðfram
að sagan var mjife ódýr.
SÍQurjón M. tgllsaon
Vigdís vann yfirburðasigur
Kosningaþátttaka
sjaldan dræmari
Vigdís Finnbogadóttir vann yfir-
burðasigur í forsetakosningunum á
laugardaginn eftir stutta og um
margt sérstæða kosningabaráttu.
Aldrei áður hefur verið boðið fram
gegn sitjandi forseta og kjörsókn hef-
ur aldrei verið dræmari í forseta-
kosningum. Fara verður allt aftur tii
ársins 1933 til að finna dæmi um
dræmari þátttöku kjósenda í al-
mennum kosningum hér á landi.
Veðrið lét mismunandi við kjós-
endur á laugardaginn, sól og blíða
var austanlands en sunnan- og vest-
anmegin á landinu var rigning og
rok. Vel gekk að safna atkvæðum
saman þótt víða væri um langan veg
að fara, til að mynda þurfti að nota
skip, báta og flugvélar til að flytja
atkvæði á talningarstað í Vestfjarða-
kjördæmi. Framkvæmd kosning-
anna gekk í alla staði vel fyrir sig
og sama má segja um talningu at-
kvæða.
Alls greiddu 126.535 atkvæði en þaö
eru 72,4% þeirra sem voru á kjör-
skrá. í forsetakosningunum fyrir
átta árum var kjörsóknin 90,4% og í
síðustu alþingiskosningum, fyrir ári,
kusu 89,6%. Af þeim sem sáu ástæðu
til að nýta sér atkvæðisrétt sinn
greiddu 117.292 eða 92,7% Vigdísi
Finnbogadóttur atkvæði sitt en 6.712
eða 5,3% kusu Sigrúnu Þorsteins-
dóttur. Auðir og ógildir seðlar voru
2.531 eða 2,2%
Atkvæði frambjóðenda féUu nokk-
uð jafnt hlutfallslega yfir landið en
stærstan sigur vann Vigdís í Norður-
landskjördæmi eystra þar sem 94,2%
guldu henni atkvæði sitt en 4,3%
Sigrúnu. Sigrún fékk aftur á móti
mest fylgi í Norðurlandskjördæmi
vestra, 6,1%. Kosningaþátttaka var
einnig með svipuðu móti víðast hvar.
Þó kusu flestir hlutfaUslega á Suður-
landi en fæstir í Reykjavík og Norð-
urlandskjördæmi vestra. -JFJ
Stuðningsmenn Vigdísar Finnbogadóttur voru aö vonum kampakátir eftir
yfirburðasigur hennar á laugardaginn. Hér er forsetinn ásamt Ástríði dóttur
sinni og Svanhildi Halldórsdóttur kosningastjóra. DV-mynd GVA
Vígdís Finnbogadóttir:
Afar þakklát
„Ég er djúpt snortin og afar þakk-
lát fyrir þá traustsyfirlýsingu þjóöar-
innar sem þessar kosningar bera
með sér, meira er ekki um það að
segja," sagði Vigdis Finnbogadóttir,
nýkjörinn forseti íslands.
„Þetta er stórkostlegur sigur á
heimsmælikvarða og þætti verulega
gott hvar sem er í heiminum. Við
vildum ekki aöeins að hún ynni held-
ur aö hún ynni glæsilega og það tel
ég að hafi tekist," sagði Svanhildur
HaUdórsdóttir, kosningastjóri Vig-
dísar Finnbogadóttur.
Svanhildur sagðist vera ánægö
með kjörsóknina, hún hefði búist við
70-74% þó hún hefði vfljaö aö sem
flestir kysu. Taldi Svanhfldur að þar
sem engin spenna hefði verið í kosn-
ingunum hefði fólk ef tfl vfll ekki séð
ástæöu tfl að fara á kjörstaö. Skoð-
anakannanir hefðu verið búnar að
sýna að Vigdís myndi sigra með yfir-
burðum. „Þaö er mín trú að við höf-
um átt fylgi þess fólk sem sat heima
en það hafi ekki setið heima í mót-
mælaskyni,“ sagði Svanhildur.
Svanhildur sagði þessar kosningar
vera gerólíkar þeim sem voru fyrir
átta árum. „Þá var maður ekki eins
sigurviss, þó ég væri bjartsýn. Þá
þurfti að vinna allt öðruvísi. Kynna
þurfti frambjóöandann fyrir þjóðinni
og baráttan byrjaði fyrr. Nú hefur
engin umræða verið uppi áður en
framboð Sigrúnar kom. Vaninn er
sá að búið sé að ræða mál í þjóð-
félaginu af þeim sem vilja gjörbylta
öllu. Þetta var einnig óvenjuleg þjóð-
höfðingjakosning þar sem mótfram-
bjóðandinn reyndi að færa kosning-
arnar inn á stjómmálasviðið og ól á
óánægju," sagði Svanhildur Hall-
dórsdóttir. -JFJ
Reykjavik Norðurland vestra
Sigrún Þorsteinsdóttir 2.675 5,4% Sigrún Þorsteinsdóttir 316 6,1%
Vigdis Finnbogadóttir 45.650 92,3% Vigdis Finnbogadóttir 4.824 92,8%
Auðitogógildir 1.131 2,3% Auðirog ógildir 59 1.1%
Atkvæði greiddu 49.456 71,5% Atkvæði greiddu 5.199 71,5%
Reykjanes Norðurland eystra
Sigrún Þorsteinsdóttir 1.594 5,4% Sigrún Þorsteinsdóttir 569 4,3%
Vigdís Finnbogadóttir 27.246 92,5% Vigdís Finnbogadóttir 12.399 94,2%
Auðirog ógildir 606 2,1% Auðirog ógildir 193 1.5%
Atkvæðigreiddu 29.446 72,3% Atkvæði greiddu 13.161 72,8%
Vesturland Austurland
Sigrún Þorsteinsdóttir 395 5,2% Sigrún Þorsteinsdóttir 369 5,6%
Vigdís Finnbogadóttir 6.970 92,6% Vigdís Finnbogadóttir 6.197 93,4%
Auðirog ógiidir 161 2,1% Auðirog ógifdir 67 1,0%
Atkvæði greiddu 7.526 74,5% Atkvæði greiddu 6.633 73,2%
Vestfirðir Suðurland
Sigrún Þorsteinsdóttir 262 5,3% Sigrún Þorsteinsdóttir 532 5,2%
Vigdís Finnbogadóttir 4.604 92,8% Vigdfs Finnbogadóttir 9.402 92,6%
Auöirog ógíidir 94 1,9% Auðirog ógildir 220 2,2%
Atkvæði greiddu 4.960 73,3% Atkvæði greiddu 10.154 74,6%
Landið allt
Sigrún Þorsteinsdóttir 6.712 5,3%
Vigdís Finnbogadóttir 117.292 92,7%
Auöir og ógildir 2,531 2,0%
Atkvæði greiddu 126.535 72,4%
Sigrún Þorsteinsdóttir forsetaframbjóðandi lét engan bilbug á sér finna og
taldi úrslitin þrátt fyrir allt vera stórsigur. Hér gerir hún viðeigandi sigur-
tákn en með henni á myndinni er eiginmaður hennar, Sigurður Elíasson.
DV-mynd GVA
Sigrún Þorsteinsdóttir:
UrslHin gefa fólki von
„Þetta eru mjög góðar niðurstöður
þar sem verið var að kjósa á milli
tveggja hugmynda um forsetaemb-
ættið en ekki tveggja persóna. Hug-
myndir Vigdísar voru vel þekktar en
mínar komust ekki nægflega vel til
skfla á þessum stutta tíma auk þess
sem fólk þekkti mig ekki. Ef við lítum
á kjörsóknina þá sjáum við að fólk
er ekki alltof ánægt með hlutina,“
sagði Sigrún Þorsteinsdóttir forseta-
frambjóðandi.
Sigrún sagði að hún væri ánægð
með að þessar kosningar fóru fram
og þeim yrði fylgt eftir. Lýöræðis-
bylgja væri komin af stað sem ekkert
myndi stöðva. Fólkið vildi lýðræði
og það ætti ekki að láta vonbrigði
ná tökum á sér heldur hafa samband
á kosningaskrifstofuna og mynda
með sér grasrótarsamtök um lýðræði
og frelsi.
„Þessar kosningar gefa fólki nýja
von um breytingar og áhrifin verða
meiri þegar fólk sér að möguleikarn-
ir voru raunverulegir sem viö bent-
um á. Þessar hugmyndir munu sigra.
Ég held að eftir kosningamar muni
fólk sjá að ég var ekki að fremja nein
helgispjöll með því að bjóða mig fram
heldur aö framfylgja stefnu Jóns Sig-
urðssonar. Þessi tilfinningaviöbrögð
fólks sýna á hvaða lýðræðisstigi við
erum. Það hvarflaði aldrei að mér
aö ég væri að móöga einhvem með
því að bjóða mig fram,“ sagði Sigrún
Þorsteinsdóttir.
Geturöu hugsaö þér aö bjóða þig
fram að fjórum árum liðnum?
„Svona framboð kemur vel til
greina eftir fjögur ár, hvort sem það
verð ég eða einhver annar, það skipt-
ir ekki máli. Þetta er hugsjóna- og
mannréttindabarátta og ég, stuön-
ingsmenn mínir og ráögjafar erum
reiðubúin að hjálpa Vigdísi í hennar
embættisstörfum,“ sagði Sigrún.
„Ég er mjög ánægð og okkur finnst
að við höfum unnið stórsigur vegna
þess að hugmyndir okkar vom nýjar
og fengu htla kynningu. Fram undan
er að fylgja þessu eftir með því að
stofna grasrótarsamtök þeirra lýð-
ræöissinna, sem kusu Sigrúnu, til að
þróa hugmyndir okkar og vera mál-
svarar aukins lýöræðis. Ég tel að
þeir sem kusu Sigrúnu séu hinir
raunvemlegu sigurvegarar. Þeir
bmtu hefðir og sýndu hugrekki,"
sagði Áshfldur Jónsdóttir, fjölmiðla-
fulltrúi Sigrúnar Þorsteinsdóttm-.
-JFJ