Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Qupperneq 10
10
MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ 1988.
Utlönd
Flokkurinn
Verkamenn leggja lokahönd á sjö hæða háa mynd af Lenin sem sett hefur
verið upp við Rauða torgið í Moskvu i tilefni flokksráðstefnunnar.
Simamynd Reuter
efnahagsmálasérfræðingum Sovét-
ríkjanna til þess að stjómkerfí lands-
ins yrði endurnýjað algerlega, tii
þess að hressa upp á efnahagslíf þess
sem hann sagði ver statt nú en verið
hefur árum saman. í viötah við sov-
éskt vikurit sagði Leonid Abalkin,
yfírmaður efnahagssstofununar vís-
indaakademíunnar í Moskvu, að það
væri ekki nóg að fækka embættis-
mönnum. Abalkin, sem verður með-
al fimm þúsund fulltrúa á flokksráð-
stefnunni nú í vikunni, sagöi að ekk-
ert hefði enn verið gert til að komast
að rótum vandans.
Sem fyrr segir hefst ráðstefna sov-
éska kommúnistaflokksins á morgun
og er þróun mála á henni beðið meö
nokkurri óþreyju.
ræðislegum aðferðum, en flokkurinn
yrði aö hafa stjórn á þróún þeirra
mála því ella myndi skapast óreiða.
Flokkurinn yrði áfram að velja þá
sem stjórnuðu á öllum sviöum.
Ummæli Afanasyevs í gær virðast
ganga í berhögg við fullyrðingar ann-
arra sovéskra embættismanna, sem
undanfarið hafa gefið í skyn að meg-
intilgangur flokksráðstefnunnar sé
sá að svipta flokkinn hluta valda
sinna, til að auka völd og sjálfstæði
hinna ýmsu ríkisstofnana.
Búist er við að Mikhail Gorbatsjov,
aöalritari sovéska kommúnista-
flokksins, muni í setningarræðu
sinni á ráðstefnunni, hvetja til þess
að flokkurinn beri framvegis minni
völd en hann hefur gert undanfarna
sjö áratugi.
Afanasyev sagði hins vegar í gær
að nauðsynlegt væri að flokkurinn
héldi áfram fullum völdum yfir efna-
hagsmálum, utanríkismálum,
mannaskipan og lausn innanríkis-
vandamála. Virtist hann þar eiga við
óróa þann sem undanfarið hefur ríkt
í Armeníu og Azerbaijan, vegna
deilna um landssvæði. Ritstjórinn
hafnaöi alfarið hugmyndum um
stofnun stjórnarandstöðuflokka eða
þjóðemisflokka, sem skapað gætu
mótvægi við hugmyndafræði komm-
únistaflokksins en áætlanir um slík-
ar stofnanir eru þegar upp í Estoníu.
Sagði ritstjórinn aö Pravda fengi
um sjö hundruð og fimmtíu þúsund
bréf árlega þar sem þróun undanfar-
inna ára væri gagnrýnd.
Á sama tíma hvatti einn af helstu
Ritstjóri sovéska dagblaðsins Pravda
fjallaði í sjónvarpsviðtali um helgina
um ráðstefnu sovéska kommúnista-
flokksins, sem hefst í Moskvu á
morgun, og varaði alvarlega við
ákvörðunum og aðgerðum sem gætu
orðið til þess að völd flokksins og
áhrif rýrnuðu.
í viðtali sagði ritstjórinn, Viktor
Afanasyev, aö flokkurinn væri hið
leiðandi afl í Sovétríkjunum, innan
hans væru teknar allar stjórnmála-
legar ákvarðanir, bæði efnahagsleg-
ar og kenningarlegar.
Afanasyev, sem er fulltrúi á
flokksráðstefnunni og á sæti í mið-
stjórn flokksins, sagði að þróun lýð-
ræðis í Sovétríkjunum yrði að fara
fram undir eftirliti flokksins. Sagði
hann að kjósa bæri leiðtoga með lýð-
Töluvert var um mótmæli i Moskvu um helgina. Simamynd Reuter.
haldl völdum
Ovæntur samningur um
Nýju Kaledóníu
Bjanú Hiniikason, DV, Bordeaux:
Eftir ófriðarástand síðustu mán-
aða á frönsku eyjunni Nýju Kaledó-
níu í Kyrrahafi geta eyjaskeggjar
nú andað léttar og vonast eftir
lausn deilumála. í gærmorgun
undirrituðu leiðtogar hinna
tveggja stríðandi fylkinga, það er
að segja sjálfstæðishreyfmgar inn-
fæddra og stærstu stjómmála-
hreyfingar hvítra, samning þar
sem báðir aðilar gáfu eftir og lagðar
eru línurnar fyrir þróun mála
næstu árin og frekara samkomu-
lag.
Þessi samningur kemur á óvart.
Fæstir bjuggust við að svo skam-
man tíma þyrfti til að komast að
samkomulagi né að deiluaðilar
slægju aif kröfum sínum.
Yfirleitt er litið á samninginn sem
mikilvægan pólítískan sigur fyrir
Michel Rocard, forsætdsráðherra
Frakklands, en hann tók sjálfur
þátt í viðræðunum sem fram fóru
í forsætisráðherrahöllinni í París.
Tvær vikur eru síðan samningsvið-
ræðm- hófust og höfðu þær farið
fram í kyrrþey og án stóryrtra yfir-
lýsinga.
Á Nýju Kaledóníu er tæplega
helmingur íbúa fnnnbyggjar, svo-
kallaðir kanakar, og álíka margir
aðfluttir Evrópumenn eða afkom-
endur fyrstu nýlenduherranna,
kaldosar. Kanakar hafa árum sam-
an krafist sjálfstæðis en kaldosar
vilja tilheyra Frakklandi. Mismun-
andi ríkisstjómir í París hafa reynt
mismunandi stjómarfyrirkomulag
á eyjunni án þess þó að grundvall-
ardeilumál væm leyst og nokkrum
sinnum hefur alvarlega soðið upp
úr. Bæði undir sljóm sósíalista árið
1985 og þó sérstaklega síðustu mán-
uði stjórnar Jacques Chiracs, for-
vera Rocards, og mótframbjóðenda
Francois Mitterrands í forseta-
kosningunum fyrir tæpum tveimur
mánuðum.
Síðustu vikumar fyrir þær kosn-
ingar fór ástandið dagversnandi á
eyjunni og deilurnar náðu hámarki
með gíslamálinu þegar sjálfstæðis-
sinnar myrtu nokkra lögreglu-
menn og tóku fjölmarga þeirra í
gíslingu. Gíslatakan varð að kosn-
ingamáli. Lögreglumennirnir vom
frelsaðir af hemum í mjög um-
deildri aðgerð þar sem allir gísla-
tökumennirnir misstu lífið, sumir
við óeölilegar kringumstæður.
Nokkrir hermannanna eru nú sótt-
ir til saka af yfirvöldum.
Mitterrand forseti og sósíalista-
flokkurinn höfðu, frá því Chirac
tók við stjóm og setti nýja reglu-
gerð um stjórn Nýju Kaledóníu,
lýst sig andstæðinga þeirra breyt-
inga sem þetta haföi í för með sér
og tahð hlut kanaka borinn fyrir
borð. Chirac hreykti sér yfir því
aö hafa komið á friði á eyjunni en
sá friður varð svo að engu og Mit-
terrand gerði Nýju Kaledóníu að
einu af lykilmálunum í kosninga-
baráttu sinni.
Eftir að hann náði endurkjöri og
skipaöi Rocard forsætisráðherra
sendi sá síðarnefndi nefnd, skipaöa
virtum mönnum, til Nýju Kaledó-
níu sem ferðuöust þar um og
ræddu viö hlutaðeigandi. Afhentu
þeir síðan forsætisráðherranum
skýrslu um málið.
Fyrir tilstilli forsætisráðherrans
var svo sest að samningaborði í
París. Þessi vinna hefur að mestu
leyti farið fram í kyrrþey enda vissi
Rocard að framtíð hans sem for-
sætisráðherra gæti að nokkru leyti
oltið á lausn málsins og mikilvægt
að hratt og örugglega væri unnið.
í samningnum er kveðið á um að
Nýju Kaledóníu verði stjórnað
beint frá París næstu tólf mánuði
sem á að tryggja hlutleysi í stjórn-
sýslu, öryggi og vemd allra eyja-
skeggja. Mikið átak á að gera í efna-
hagsuppbyggingu, félagsmálum og
menntun, sérstaklega á þeim svæð-
um sem verst eru sett. Samnings-
aöilar lofa að leggja fyrir stuðn-
ingsmenn sína niðurstöður við-
ræðna síöustu vikna og tryggja
stuðning þeirra. í haust mun svo
fara fram í Frakklandi þjóðarat-
kvæðagreiösla um stöðu Nýju
Kaledóníu. Að lokum er reiknað
meö að innan tíu ára fari fram á
eyjunni sjálfri atkvæðagreiðsla um
sjálfstæði hennar.
Leiðtogar deiluaðila hafa náð
saman en nú er að sjá hvort þeirra
menn heima fyrir eru ánægðir með
samninginn og hvort þeim tekst að
sannfæra þá um að leggja niður
vopnin. Það gæti reynst erfiðara
en margur heldur. Alla vega hefur
mikilvægt skref verið tekið og Mic-
hel Rocard hefur í bili skapað sér
ímynd trausts og áreiðanleika.
Leiðtogl sjálfstæðissinna á Nýju Kaledóníu, Jean-Marie Tjibaqu, og leiðtogi afkomenda nýlenduherranna,
Jacques Lafleur, undirrituðu í gær samning þar sem báðir aðilar gáfu eftir. Símamynd Reuter