Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Page 12
12 MÁNUDAGUR 27. JÚNf 1988. Utlönd Lurie Línudans Undanfarnar vikur hafa bandarísk yfirvöld haft tii rannsóknar ásakanir um viótæka spillingu innan hinna ýmsu arma kerfisins þar í landi. Mest hefur borið á rannsókn ætlaðrar spillingar innan varnarmálakerfis Bandaríkjanna, en fleira hefur þar blandast inn í þótt minni athygli hafi vakið. Meðal þeirra embættismanna sem undanfarið hafa orðið aö þola ásakanir um misferli er Jim Wright, forseti fulltrúadeildar bandaríska þingsins. Wright er af mörgum talinn hafa misnotað stöðu sína til þess að vinna að málum oiufyrirtækis eins í Texas sem honum mun eitthvað skylt. Lurie virðist einn þeirra sem telja Wright hafa stundað línudans, á mörkum stjórnamálalegs velsæmis, og sendi teiknarinn frá sér með- fylgjandi mynd af forsetanum. Flak þotunnar við Habsheim í gær. Flugslys vekur spurningar um tækniundur Aðstoðarflugmaður þotunnar liggur slasaður eftir slysið. Bjami Hinriksson, DV, Bordeaux: Flugslysið í Habsheim í Norðaust- ur-Frakklandi í gær, þar sem ný Air- bus A320-vél hrapaði til jarðar með þeim afleiðingum að fjórir létu lífið, kemur á versta tíma fyrir evrópska framleiðendur Airbus-vélanna og vekur óteljandi spumingar. A320 á að vera hálfgert tækniund- ur, nýjasta afkvæmi Airbus Industri- es sem undanfarna mánuði hefur haft betur í samkeppninni við banda- ríska flugvélaframleiðendur. í þess- ari flugvél átti öryggið að vera í fyr- irrúmi. Fyrsta reynsluflug vélarinnar var fyrir rúmu ári og Air France hefur keypt margar vélar sem setja átti í fuíla notkun. Vélin, sem hrapaði, var í áætlunarflugi milli Parísar og Mul- hause en kom við í Habsheim, þar sem fram fór flugvélasýning, til að sýna sig í lágu flugi yfir flugvellinum. Vélin náði ekki að lyfta sér nógu hátt, rakst í tijátoppa og hrapaði nið- ur í skóglendi. Enn vita menn ekki ástæðuna fyrir slysinu en tvennt kemur helst til greina. Annaöhvort hefur flugmað- urinn gert mistök, ekki gefið vélinni þann kraft sem þurfti til að lyfta henni upp, eða að stjórnkerfi vélar- innar, sem er aö miklu leyti tölvu- vætt, hefur brugðist. Að auki spyrja menn sig hvað í fjáranum ný flugvél af þessu tagi hafi verið að gera á flug- sýningu. Var Air France búið að fá öll tilskilin leyfi eða varð auglýsinga- ákafinn öryggisráðstöfunum yfir- sterkári? Eitt af helstu deilumálunum við A320 hefur verið breytingar í stjórn nýju vélarinnar sem gera það að verkum að nú þarf einungis tvo flug- menn í stað þriggja áöur. Flugfélög hafa tekiö þessari breytingu fegins hendi en flugmenn mótmælt og farið í verkfall. Slysið í gær gæti breytt viðhorfum ýmissa. Air France hefur tekið allar A320 vélar sínar úr umferð. Næstu dagar gætu orðið afgerandi fyrir framleið- anda vélanna, sem hefur beðið mik- inn álitshnekki, hvort sem rannsókn leiðir svo í ljós að mannleg mistök hafi valdið slysinu. Páfi sætti gagniýni Jóhannes Páll páfi II. tjáöi leið- togum gyðinga í Austurríki um helgina að það væri rangt að kenna kristni um helfórina. Hann lét einnig þá skoðun sína í ljós við þá að Palestínumenn ættu rétt á eigin landi. Páfi lagði áherslu á að páfagarður héldi fast við þá kröfu sína að lausn yrði að fást á vandamáli Palestínu- manna áöur en ísrael yrði viður- kennt formlega. Páfi sætti í fyrstu gagnrýni fyrir að hafa ekki minnst á gyðinga í heimsókn sinni til útrýmingarbúö- anna í Mauthausen en daginn eftir minntist hann á gyðinga og aðra sem látið hefðu lífiö þar og þjáning- ar þeirra. Um fimmtíu þúsund Austur- Evrópubúum hafði verið leyft aö halda til Austurríkis til að hlýða á messu páfa nálægt landamærum Austurríkis og Ungveijalands. í dag lýkur heimsókn páfa í Aust- urríki og mun hann halda þriðja fund sinn með Kurt Waldheim, for- seta Austurríkis, áður en hann heldur heim á leið. Pali a leið til messu i Trausdorf i Austurriki. Simamynd Reuter Efnt hefur verið til mótmæla í Austurriki á meðan á heimsókn páfa hefur staðið. Nasistaveiðarinn Beate Klarsfeld, sem lögreglan hefur hér afskipti af, var meðal þeirra sem mótmæltu fundi páfa og Kurts Wald- heim forseta. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.